Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Side 12
12
réttvíslega og guðrækilega í þessum heimi, bíðandi
þeirrar sælu, sem er í vændum og dýrðlegrar opinber-
unar liins mikla guðs og vors frelsara JesúKrists, sem
heflr útgefið sig fyrir oss, svo að hann endurleysti oss
frá allskonar ranglæti og hreinsaði sér sjálfum fólk til
eignar, kostgæflð til góðra verka«. Þetta býður Páll
postuli Títusi lærisveini sinum að kenna, áminna þar
um og ávíta með allri alvörugefni. Og Pétur postuli
segir: »leggið því alla stund á þetta og auðsýnið í trú
yðvarri dyggðina, en í dvggðinni þekkinguna, en í þekk-
ingunni bindindið, en í bindindinu þolinmæðina, en í
þolinmæðinni guðræknina, en í guðrækninni bróður-
elskuna, en i bróðurelskunni elskuna til allra. 1*ví ef
þessar dyggðir finnast hjá yður og í gnægð, mnnu þær
ekki láta yður vera iðjulausa og ávaxtarlausa í þekk-
ingu drottins vors Jesú Iírists. I'ví lijá þeim, sem þær
eru ekki, hann er blindur, byrgir fyrir augu sér og
gleymir hreinsun sinna fyrri synda«. I’egar ver hug-
leiðum þessi og þvílík guðsorð, sjáum vér, að sá tælir
sjálfan sig hræðilega, sem þykist hafa frið og sálarró-
semi, þótt hann heimuglega eða opinberlega saurgi líf-
erni sitt með vísvitandi syndum. »Farið ekki villir
vegar; guð lætur ekki að sér hæða, því það sem mað-
urinn sáir, mun hann og upp skera; því sá sem sáir í
hold sitt, mun af lioldinu skaðsemi upp skera, en sá
sem sáir í andann, mun af andanum upp skera eilíft
lff«. En þótt þú vissir með sjálfum þér, að þú værir
laus við 6líkar ásetnings syndir, þá er eptir að vita,
hvort þú hefir fengið nýtt líf og ert endurfæddur af
andanum, því að í »Jesú Kristi gildir hvorki umskurn
né yfirhúð, heldur ný skepna«. I’að sem af holdi er
fætt er hold, cn hold og bióð munu ekki grfa guðsríki.