Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1867, Blaðsíða 4

Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1867, Blaðsíða 4
4 fvlling timans kæmi, og þjóðin yrði undirbúin til þess að taka móti frelsaranum. Vér þekkjum nú allir Ijóslega af sögunni það, sem spámennirnir einir sáu fyrir; vér þekkjum þann, sem Guð hefir sent í heiminn eigi að eins Gyðingum til huggunar, heldur öllum heiminum til frelsis, vér viturn hversu hann vann það verk, sem faðirinn liafði fengið honum að vinna, vér vitum að hann var vegna vor of- sóktur, smánaður og deyddur kvalafullum dauða, síðan upphafinn til Guðs föðurs almáttugs liægri handar. Inni- hald kenningar hans er oss kunnugt og það er það, sem einkum gjörir oss sæla. Iíristur hefir kennt oss að þekkja Guð fullkomlega sem kærleikans Guð, sem hinn ástríkaföður á himuum, er samkvæmt sinni eilífu ráðsáliktun vill að vér skulum veröa eilíílega sælir; og til þess að vér gætum orðið þessarar eilífu sælu að- njótandi, miðar allt það, er hann hingað til liefir gjört fyrir oss og enn þá gjörir. Þessi vor himneski faðir heimtar að sönnu af oss, að vér séum hans hlýðin börn og hegnir þeim, sem eru honum óhlýðnir, en hann út- skúfar engum, er iðrast synda sinna og ílýr til hans með sundurkrömdu hjarta, heldur breiðir hann á móti honum sinn föðurfaðm, því »hann vill ekkidauða synd- ugs manns, heldur að hann snúi sér og lifi«. Hvílik sæla er það fyrir oss að vita þetta, að vita það að Jesús Iíristur er dáinn fyrir þá, sem á hann trúa, að hann liefir tekið upp á sig þeirra syndir, sem stynja undir þunga synda sinna, og í trúnni grípa um krossinn Krists, sem það eina náðaratkeri, sem til sé fyrir þá, sem stara á hið himneska Ijós, er Jesús Kristur kveikli her á jörðu, og reyna að fylgja því, með því þeir í eymd sinni sjá og vita, að það er það eina, er getur

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.