Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1867, Blaðsíða 9

Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1867, Blaðsíða 9
9 ura oss frá opinberum löslum. Flestir Gyðingar ólust upp í vanþekkingu og fengu litlu betra uppeldi en heið- ingjar; þess vegna álitu bæði heiðingjar og Gyðingar, að margt það væri sér leyfilegt, sem kristin trú kennir oss að se synd og því refsingarvert. Þegar nú Gyðingar og heiðingjar á fullorðins árum sínum fyrst tóku kristna trú, hve ertitt hlýtur þeim að hafa verið að leggja nið- ur þá siðu og rífa sig út úr þeim hleypidómum, sem þeir höfðu alizt upp í, og samt fá þeir lof af heiðingj- um fyrir það, að þeir lifi kyrrlátu og lastvöru líferni. Gætum vor, að vér, sem frá barnæsku erum uppaldir í kristilegum siðum, lausir við alla hleypidóma heiðingja og Gyðinga, gætum vor, segi eg, að vér eigi þurfum að standa með kinnroða frammi fyrir heiðingjum og Gyðingum þeim, er hafa tekið kristna trú. En vér eigum eigi að eins að taka annarar trúar mönnum fram í sómasamlegri breytni í heimsins aug- um, heldur á hreinleiki hjartans, trúmennska, gleði og samvizkusemi í því að gjöra vilja hins alvísa Guðs og óþreytandi kostgæfni í hinu góða að vera einkenni vor krislinna manna, ef vér viljum vera þess verðir að nefnast kristnir og lærisveinar lausnara vors. Að vísu geta menn, sem eigi hafa lært kristna trú, breytt sam- kvæmt boðum lögmálsins, verið árvakrir og starfsamir í köllun sinni, réttlátir, góðgjörðasamir og greiðviknir, en þetta eru þeir því að eins, að þeir haQ einhvern hag af því, eða að þeir að minnsta kosti haQ ekkert tjón at’ því. Þeir geta elskað vini sína, en þeir hata líka sína óvini. En Jesús Iírislur lausnari vor býður oss: »Elskið óvini yðar, blessið þá sem yður bölva, gjörið þeim gott, sem hata yður, og biðjið fyrir þeim sem rógbera yður og ofsækja, svo að þér séuð börn föð-

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.