Alþýðublaðið - 12.02.1960, Síða 3
Ægir finnur
nokkra síld
VARÐSKIPH) Ægir hefur
undanfarið verið að athugun-
um á vetrarstöðvum síldarinn-
ar við Suðurland. í gær frétti
yblaðið, að Ægir hefði veitt tals-
verða síld í Grindavíkursjó og
mundi ætlunin að Neptúnus
gerði tilraunir með flotvörpu
sinni á þessum slóðum.
Jón Jónsson fiskifræðingur
skýrði blaðinu svo frá, að Ægir
hefði lagt upp í för sína í kring-
um 10. janúar s. 1. og yrði um
mánuð í rannsóknarleiðangri
sínum. Þó var ætlunin, að
hann kæmi inn aðeins eftir 10
—12 daga. Sagði Jón, að hér
væri um stóran leiðangur að
ræða, þar eð Ægir ætti að fara
yfir mjög stórt svæði eða nær
allt svæðið fyrir Suðurlandi.
Togarinn Neptúnus er nú að
veiðum fyrir Vestfjörðum en
talið er, að hann muni reyna
með flotvörpunni í Grindavík-
ursjó, er hann snýr heim úr
veiðiför sinni. Alþýðublaðið
fékk þær upplýsingar í atvinnu
málaráðunevtinu, að rætt hefði
verið um það, að Neptúnus
gerði tilraunir með flotvörp-
una í Grindavíkursjó en ekki
yrði það þó á vegum ríkisins
Nýjar undirstöður
í efnahagsmálum
FRUMVARP ríkisstjórn | benti sérstaklega .á viðskilnað
arinnar um efnahagsmál
var til 2. umræðu. í neðri
deild alþingis í gær. Fyrir
fundi deildarinnar lá
nefndarálit meiri hluta
fjárhagsnefndar, en álit
fveggja minni hluta voru
ekki komin fram.
Leita varð afbrigða til að
taka málið á dagskrá, þar eð of
skammt hafði liðið frá 1. umr.
í deildinni, og voru þau veitt
með samhljóða atkvæðum.
Fyrstur tók til máls framsögu-
maður meirihluta fjárhags-
nefndar, Birgir Kjaran, en að
r.efndarálitinu auk hans standa
Sigurður Ingimundarson og Jó-
hann Hafstein. Leggja þeir
eindregið til, að frumvarpið
verði samþykkt.
Minnihlutinn skilar áliti í
tvennu lagi, Skúli Guðmunds-
son fyrir Framsóknarflokkinn
og Einar Olgeirsson fyrir Al-
þýðubandalagið.
Framsöguræða Birgis Kjar-
sn stóð nærri tvær klukku-
stundir, og kom ræðumaður
víða við. Rakti hann þróun
efnahagsmálanna síðustu árin,
Dönsku kon-
ungshjónin
í Noregi
Oslo, 11. febr. (NTB).
DÖNSKU konungshjónin
komu í dag í fjögra daga opin-
bera heimsókn til Noregs.
Hermanns Jónassonar við þjóð-
arbúið, og gerði ítarlega grein
fyrir í hverju viðreisnartillög-
ur núverandi ríkisstjórnar
væru fólgnar.
Lauk Birgir máli sínu laust
fyrir kl. 4, en þá var fundi
frestað til kl. 5. Tilkynnti deild
arforseti, að samkomulag væri
með flokkunum að hraða um-
ræðum, þannig að framsögu-
menn minnihlutanna mundu þá
reifa málið af sinni hálfu, enda
þótt nefndarálit þeirra lægju
ekki fyrir prentuð.
AFKOMA ÞJÓÐARINNAR
f HÚFI,
Nefndaráliti meirihluta fjár-
bagsnefndar lýkur með þessum
orðum:
„Það er skoðun meirihluta
f járhagsnefndar, að þetta
frumvarp sé nauðsynlegt til
þess að í framkvæmd komist
víðtæk stefnubreyting í efna-
hagsmálum fslendinga, sem
hafi þann tvíþætta tilgang að
forða þjóðinni frá beinum
voða greiðsluþrots og atvinnu
leysis, en hins vegar að
leggja nýjar undirstöður í
efnahagsmálum íslendinga,
sem á megi byggja í framtíð-
inni aukna framleiðslu og
bætt lífskjör. Þessa^ ráðstaf-
anir þóla enga bið, og efna-
hagslegt sjálfstæði íslendinga
og afkoma þjóðarinnar um ó-
fyrirsjáanlega framtíð er í
húfi, að þær takist vel og
giftusamlega. Þess vegna
leggjum við eindregið til að
þetta frumvarp nái fram að
ganga. Breytingartillögur til
glöggvunar á nokkrum ákvæð-
•Um frv. og til leiðréttingar
verða fluttar á sérstöku þing-
skjali“.
s
NEI! og
aftur NEI!
S
? — Það getur verið ^
c að þú ætlir í hina átt- S
• L
S ina mamma, en ég ^
^ ætla sko í allt aðra S
S átt. Hér er Alþýðu- ^
^ 'b'laðsmynd úr Banka- S
S stræti í gærdag. Móð- ^
c irin sigraði. S
Comet-4 á
leiðinni
London-Osló
OSLÓ, 11. febr. (NTB). —
Brezka flugfélagið BEA hefur
ákveðið að taka í notkun Co-
met-4 farþegaþotur á flugleið-
inni London—Osló frá 1. júní
n. k. og flytja um leið enda-
stöðina frá Fornebu til Gard-
ermoen.
Hðfdís lik-
EKKERT hefur sézt af vél-
bátnum Hafdísi frá Þingeyri,
sem eldur kom upp í á Selvogs
banka í fyrradag. í fyrrakvöld
sáust blossar upp úr bennandi
bátnum og telja menn, að þá
hafi orðið sprengingar í bátnum
og hann sokkið upþ úr því.
Eins og frá var skýrt í blað-
inu í gær, bjargaðist áhöfn Haf-
dísar hei'l á húfi í gúmmíbátum
yfir í vélbáti'nn Flóaklett frá
Hafnarfirði.
í gær var ágætt veður á þeim
slóðum ,sem báturinn var að
brenna, og svipuðust Grinda-
víkurbátar og fleiri eftir Haf-
dísi, en án árangurs.
Ekkert er unnt að fullyrða
um eldsupptök, en líklegt má
telja að kvi'knað hafi í út frá
olíumaskínu í káetu eða f-
kveikja hafi orðið í vélarrúmi.
'Stefán Þorbjarnarson skip-
stjóri varð var við óvenjulegan
hita frá miðstöð bátsins, en þeg
ar skipverjar ætluðu að athuga
það nánar, gaus eldurinn á
móti þeim. Fengu þeir við ekk-
ert ráðið og urðu að yfirgefa
bátinn skömmu síðar.
Skipstjóri á Flóakletti, sem
bjargaði áhöfn Hafdísar. er
Björgvin Gunnarsson.
Alþýðublaðið — 12. febr. 1960 J