Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1990, Page 104
108
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
aði hann. Fyrst fór hann þá í sitt stúdíum og stúderaði hann í bókum.
Skrifaði hann upp á vaxspjald, nóterandi það sem hann vildi hafa sér-
lega úr bókum, og þar eftir skrifaði Einar djákni upp í kvaterni eður
bók svo að biskupinum var tiltæk nær hann vildi á líta og það frammi
hafa.“42
Petta bendir til þess að Lárentíus hafi skráð leiðbeiningar á vaxspjald-
ið, en skrifari hans skrifað texta til varðveislu á skinn. Líklega hafa þær
því aðallega verið notaðar við skrif á því sem ekki hefur átt að varðveita
á spjöldunum. Annað hefur verið fært yfir á bókfell.
Vaxspjöld voru notuð í Evrópu á miðöldum í daglegu lífi á svipaðan
hátt og rissblöð nútímans. Þau eru þannig gerð að bráðnu vaxi cr rennt
í litla tréramma og látið storkna og var síðan skrifað á vaxið með stíl.
Tvö eða fleiri vaxspjöld bundin saman nefndu Rómverjar „codex“, en
það orð var síðar haft um skinnhandrit.4'1 Slík spjöld voru einnig notuð
við skriftaræfingar og útreikninga ýmiss konar.
I Guðmundar sögu Arasonar er minnst á vax í frásögninni um dauða
Ingimundar prests. Svo bar til að Ingimundur var á leið frá Noregi til
íslands er skip hans hraktist til Grænlands og segir svo: „En þess varð
svo víst að fjórtán vetrum síðar fannst skip þeirra og þá fundust sjö
menn í hellisskúta einum. Þar var Ingimundur prestur. Hann var heill
og ófúinn og svo klæði hans, en sex manna bein voru þar hjá honum.
Vax var og þar hjá honum og rúnar þær er sögðu atburð um líflát
þu44
eirra.
Veraldlegir höfðingjar hafa einnig notað vaxtöflur, og er þekkt frá-
sögnin um Sturlu Þórðarson sagnaritara og forspá hans í Fagradal í
Dalasýslu varðandi Bárð Einarsson vorið 1270: „Nokkru síðar um
vorið tók Bárður sótt. Þá spurði Þórður Sturlu hvort Bárður myndi
upp standa úr sóttinhi eða eigi. „Skil eg nú“, segir Sturla, „hví þú spyr
þessa, en fá mér nú vaxspjöld mín.“ Lék hann þar að um hríð. Litlu
síðar mælti Sturla: „Ur þessari sótt mun Bárður andast.““45 Þá er þess
einnig getið að Þorgils skarði hafi skrifað sendibréf á vaxspjöld: „Þá er
skip tóku að búast um vorið lét Þorgils rita á vaxspjöld og sendi kon-
42. Laurentius saga biskups. Árni Björnsson, bls. 101.
43. Ólafur Halldórsson: „Bókagerð", bls. 58.
44. Sturlunga saga I. Kr. Kálund, bls. 153. Sbr. Guðmundar sögur biskups I. Stefán
Karlsson, bls. 68.
45. Sturlunga saga II. Kr. Kálund, bls. 328.
46. Sturlunga saga II. Kr. Kálund, bls. 143.