Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1990, Page 171
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ OG ÞJÓÐMINJAVÖRZLUNA 1990
175
var úr geymslum á Korpúlfsstöðum. Þá var bókasafnið skráð svo og
ljósmyndasafnið og textílsafnið hreinsað og búið um það. Einnig voru
fornleifar frá Viðey forvarðar.
Eitt aðalverkefni safnsins er viðhald og endursmíð gamalla húsa, enda
safnið eina eiginlega útisafn landsins, þótt sum byggðasöfn hneigist nú
í átt tii þess einnig. Var einkum unnið að viðgerð húsanna frá Suður-
götu 7, Vesturgötu 55 og Lækjargötu 4, sem eru ný í safninu, en einnig
hússins frá Laufásvegi 31 og Teitshúsi, sem hafa verið þar lengi.
Þá kom út á vegum safnsins askja með myndumjóns biskups Helga-
sonar úr Reykjavík og hafin útgáfa á ritröð í stað Árbókar safnsins, og
hafa þegar komið út tvö rit, Viðey, fornleifarannsókn 1989-90 og Gamli
austurbærinn.
Safnið gerði einnig sögulega úttekt á gamla borgarhlutanum sunnan
Hringbrautar og vestan Öskjuhlíðar og fylgdist með framkvæmdum
víða í borginni, þar sem menningarminjar voru.
Fyrr er getið rannsóknanna í Viðey, sem framkvæmdar eru af
Árbæjarsafni.
Við Byggðasafn Akraness og nærsveita í Görðum var lokið viðgerð
Garðahússins gamla, sem staðið hefur yfir frá 1986. Var húsið opnað
almenningi til sýnis 12. maí á árinu í tengslum við M-hátíð á Vestur-
landi. Er húsið búið völdum húsmunum úr eigu safnsins frá síðustu
aldamótum og fyrra hluta aldarinnar. Minni háttar frágangi er þó ólokið.
Þá var húsið Neðri-Sýrupartur, sem er 114 ára gamalt og elzta varð-
veitta timburhús á Akranesi, flutt á safnsvæðið og sett á grunn norðan-
vert við Garðahúsið. Ráðstafanir voru einnig gerðar til að varðveita
gamla húsið í Hvítanesi í Skilmannahreppi, senr reist var 1879.
Unnið var að innréttingu á geymsluhúsnæði, sem þegar er farið að
nýta og einnig verður kjallari Garðahússins notaður sem geymsla. Haf-
inn var undirbúningur að tölvuskráningu safngripa og tölva keypt í
þeim tilgangi.
Safnið gaf út teikningar sr. Jóns M. Guðjónssonar af gömlum torf-
bæjum sunnan Skarðsheiðar í sérstakri möppu.
Safngestir urðu 4088 auk skólabarna á árinu.
Guðmundur Guðmarsson tók við umsjón safnanna í Borgarnesi, þar
á meðal Byggðasafns Borgftrðinga, af Bjarna Bachmann, sem séð hefur
um söfnin frá uppliafi. Uppsetning safnsins er enn til bráðabirgða í nýja
safnhúsinu.
Við Minjasafnið á Hnjóti var haldið áfram að koma upp flugminjasafni
með tilstyrk Flugmálastjórnar og þangað var einn'ig fluttur á endanlegan
stað við safnið báturinn Muinmi, sem getið var í síðustu skýrslu.