Alþýðublaðið - 30.03.1960, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 30.03.1960, Blaðsíða 2
Ctgefandl: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson. — Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 D00 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906 — Að- oatur: Alþýðubúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 35,00 á mánuðl. ! Sundrungin viðurkennd ! ; Þjóðviljinn birtir í gær stjórnmálaályktun 12. þings Sósíalistaflokksins. í upphafi ályktunar- innar er það viðurkennt, að ágreiningur hefur ver- ið innan Sósíalistaflokksins en þar segir svo: „Flokksþingið álítur nauðsynlegt, að skil- greina stefnu flokksins, baráttuaðferðir og af- stöðu, ýtarlegar á þessu þingi, en hinum fyrri ; með tiliiti til reynslu flokksins á undanförnum árum og þeirra MISMUNANDI SKOÐANA, sem fram hafa komið innan hans.“ Það, sem einnig vekur mikla athygli í stjórn- . málaályktuninni er það, að í henni eru þingmenn þeir, er studdu lögin um Útflutningssjóð vorið .1958, löðrungaðir. Efnahagsráðstafanir vinstri stjórnarinnar vorið 1958 eru kallaðar „árás aftur- haldsins“ og þeir Lúðvík Jósepsson, Hannibal Valdimarsson o. fl. er studdu þær aðgerðir verða .að sitja undir því að hafa tekið þátt í „árás aftur haldsins á verkalýðinn“ eins og það er orðað. í ályktuninni er rædd nauðsyn á samstöðu verka- lýðshreyfingarinnar í Reykjavík og úti á landi og t'alað um að slík samstaða sé nauðsyn til sigursæll- ar baráttu. Síðan segir orðrétt: „Á þessu varð misbrestur 1958, þegar ekki ! tókst samstaða um að veita mótspyrnu gegn ó- rásum afturhaldsins eins og verkalýðshreyfing- ; in í Reykjavík taldi nauðsynlegt. Sósíalista- flokkurinn brást hins vegar ekki heildarhags- munum verkalýðshreyfingarinnar frekar en endranær, þótt undan væri látið á alþingi um vorið 1958, skipulagði flokkurinn sóknarharáttu verkalýðsins um sumarið og haustið og tókst að koma á algeru samstarfi alls verkalýðsins um að vinna upp það sem tapazt hafði.“ Margir munu brosa, þegar þeir lesa þennan kafla úr ályktun þings Sósíalistaflokksins. Sósíal- istaflokkurinn er að reyna að hreinsa sig af verk- um Alþýðubandalagsins. En sú tilraun mistekst. Sömu mennirnir ráða nefnilega báðum fyrirtækj- unum og allir þingmenn Alþýðuþandalagsins að Einari einum undanskildum samþykktu lögin um Útflutningssjóð vorið 1958. í hópi þeirra sem sam- þykktu, voru sem sagt menn eins og Lúðvík Jós- epsson, Karl Guðjónsson, Björn Jónsson og fleiri slíkir. Þá vekur það ennfremur athygli, að í álykt- kn kommúnista er boðað samstarf við Framsókn- ^rflokkinn og staðfestir það aðeins það, sem áður var vitað, að þessir tveir flokkar hafa gert með |þr bandalag. Æ 30. marz 1960 — Alþýðublaðið <MUt ■: " 'JÍ ííiLUijiíV/iji/ Bíllinn i 1 S'ími 18-833. | Höfum til sölu flestar tegundir bifreita. Bifreiðar með afborgunu í. Bifreiðar við allra hæfi. —< Bíllinn ' Varðarhúsinu. Sími 18833 Bíllinn Sími 18-833. Til sölu og sýnis í d. g: Ford 1958 Skipti koma til greina á Chevrolet 1955 eða io d 1955. — Falcon 1960 Skipti á eldra koma t:i greina. — Billinn Varðarhúsinu. Sími 18" > BíBEinn S'ími 18-833. Til sölu og sýnis í d"g: Ford 1955 sendiferða. Nýkominn ‘ 11 landsins. Samkomulag. — Skipti koma til greina. Fiat Multipla ’59 Samkomulag. — Kevrður: 7 þúsund km. BilEinn Varðarhúsinu. Sími 18883 Starfsfræðsic Framhald af 16. síðu- in nýju, fengu að skoða bíl ir. 5 vél og dri'fi og reyna nýtt ts: 1;1 ökukennara, sem gert er ti'l þ u að mæla fjarlægðarskyn, sjc - vídd og viðbragðshraða. A. ,c þess ræddi fjöldi drengja \ í fulltrúa frá bifreiðaeftMitir, götulögreglunni og rannsókn; - lögreg'lunni. XJm lyfjafra. L spurðu 28, sjúkraleikfimi ti, tanniækningar 16, lækni'sfrs: í'í 38, guðfræði 20, lögfræði í j, náttúrufræði 34, veðurfræði 1J, byggingarverkfræði 14, efr i- verkfræði 16, rafmagnsvei fræði 9, arki'tektur 32, eðlis- c.g efnafræði 34, nám í heimspel i- deild 40. Um 1000 manns vitj- uðu fulltrúa Ælugmála. 101 ræddi við fulltrúa listmálara, 115 fræddust um tónli'st, 107 um leiklist, 114 um fóstrustörf, 18 um verkstjórn og verka- mannastörf 25, 69 fiskmat, 22® ræddu við fulltrúa Vélskólans, og á anna ðhundrað spurðu uiO blaðamennsku. Snorri, hinn nýi uakostur Lofi SNORRI STURLUSON, hin nýja flugvél Loftlsiða kom hingað til lands s. 1. föstudag. Flugvéli'n kom frá New York. Frá New York hafði vélin ver ið 8 klst. og 55 mínútur. Flug- istjóri vélar'.nnar var Jóhannes Magnússon. Með véli'nni komu nokkrir flugmenn sem verið höfðu í Bandaríkjunum við þjálfun í meðferð hinna nýju flugvéla. Hinar nýju vélar eru af gerð i'nni Cloudmaster D. C. 6b. og rúma 80 farþega. Þær eru bún ar jafnþrýstikerfi. Síðdegis þennan :sama dag buðu Loftleiði'r nokkrum gestum í flugferð með Sniorra. Flogið var yfir suð-austan vert landið. Flogi'ð var yfir Heklu; framhjá Tindfjalia- jiökli, yfir Rangæi'ngaafrétt og yfir Mýrdalsjökul. Síðan var flogið yfi'r Vestmannaeyj ar og til Reykjavíkur. Flug- vélin er hinn bezti' fanarkost ur, og hældu flugmennirnir henni fyrir mi'kla flughæfni. Lítið verður vart við titring í vélinni og í henni' eru öll þæg indi ti’l að farþegum geti lið- ið sem bezt. Með komu Iþessarar nýju vélar eiga Loftiei'ðir yfir að ráða farkosti, sem-flut get- ur í einu 400 faríþega. Ætlun i'n er að hinar nýju vélar, Snorri Sturluson og Leifur Eiríksson komi smám saman inn í flugáætlun Loftdeiða. Með sumaráætlun félags- ins, sem tekur gildi 1. apríl :er gert ráð fyrir að hefja reglubundnar flugferðir til Finnlands. Verður þá flogið um Ósló til Helsinki einu si'nni í viku. Með kaupum á þessum nýju vélum hafa Loftleiðir stígið eitt af sínum stóru skrefum í framfara átt, og er fuil ástæða til að óska þeim til hamingju með hinar nýju vélar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.