Alþýðublaðið - 30.03.1960, Page 3

Alþýðublaðið - 30.03.1960, Page 3
FUJ í LIDO BINGÓKVÖLD heldur Félagi ungra jafnaðarmanna í Reykja- vík fimmtudagskvöldið 7. apríl nk. í LIDO og liefst það kl. 8.15. Aðalvinningar kvöldsins verða ferð með Gullfossi til Kaupmannahafnar og heim aft- ur og fimm daga páskaferð með Krústjov í Rheims RHEIMS, 29. marz. — NTB- AFP. — Krústjov, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, og föruneyti hans kom til Ver- dun í dag og seinna um daginn liélt hann ræðu í Rheims, og réðst harkalega á Vestur-Þjóð- verja. Hann sakaði meðal ann- ars Adenauer um að vera að endurvekja Herraþjóðarkenn- ingar Hitlers og færði sem rök fyrir því þau ummæli A- denauers er hann viðhafði við )pá!Ja fyr(ir skömmu, að Guð) hefði falið Þýzkalandi það hlut verk að frelsa Evrópu. Krústjov var vel fagnað í Rheims. Hann sagði í ræðu sinni í Rheims að Frakkar og Rússar hefðu alltaf verið sig- ursælir, er þeir stóðu saman. HINN nýi sendiherra Ung- verjalands á íslandi, herra Pál Korbacsica afhenti í gær for- seta íslands trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn á Bessa- stöðum, að viðstöddum Emil Jónssyni ráðherra, sem fer með utanríkismál í fjarveru utanríkisráðherra. Að athöfninni lokinni hhöfðu forsetahjónin hádegisverðar- boð fyrir sendiherrann og frú hans. PEKING, 29. marz. NTB- AFP. — SJÚ EN LAI, for- sætisráðherra Kína, setti í dag kínverska þingið í Peking. — Það situr tíu daga á ári hverju. Ferðaskrifstofu Úlfars Jacob- sen. Auk þess verða 10—12 vinn- ingar smærri og er mjög vand- að til þeirra. Er þar á meðal fatnaður, bækur, málverk o.fl. Listinn yfir vinningana verður birtur hér í blaðinu einhvern næstu daga. Þegar bingó hefur verið leik- ið, mun að öllum líkindum ný, amerísk söngkona, sem LIDO á von á, skemmta og síðan verð- ur stiginn dans til kl. 1. Bingó er orðið geysivinsælt hér, og er jafnan fjölmenni, hvar sem það er spilað. Að- göngumiðar að bingókvöldinu fást á skrifstofu Alþýðuflokks- ins í Alþýðuhúsinu og er hægt að panta þá í síma 1 50 20 og 1 67 24. Fólki er bent á að tryggja sér miða í tíma, því að þeir munu vafaláust seljast mjög fljótt. Öllum er heimill aðgang- ur. REYKJAVÍK SKEMMTIKVÖLD FUJ í Rvík verður annað kvöld kl. 8.15 í Félagsheimilinu Freyjugötu 27. Fjölmargt til skemmtunar að venju; Bingó, skáktöfl, snil, leik ir og fleira. — Þriggja kvölda keppni í félagsvist byrjar. Fjöl- mennið og takið gesti með. FÖNDUR Á FÖSTUDAG. Stúlkunum á föndumám- skeiði FUJ í Reykjavík er bent á, að mæta á föstudags- kvöld, en ekki á fimmtudags- dagskvöld, eins og áður var ákveðið. KÓPAVOGUR FRAMHALDSSTOFNFUNDUR FUJ í Kópavogi verður í Fé- lagsheimilinu Freyjugötu 27 næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 8,30. Eftir fundinn verður farið á skemmtikvöld FUJ í Reykjavík á sama stað. Fjölmennið stundvíslega. Þjófurinn eyði- lagði bifreiðina KLUKKAN 5 í fyrrinótt fannst bifreið, þar sem hún stóð utan við veginn á móts við Rauðhóla, skamimt frá Reykja- vík. Bifreiðin stóð á hjólunum, en greinilegt var að hún hafði endasteypzt. Eigandi bifreiðarinnar segir að henni hafi verið stolið frá húsi hans í Vogunum. H'ann sá bifreiðina fyrir utan húsið skömmu eftir klukkan 12 þá um nóttina_ Hann vissi ekkert um þjófnaðinn fyrr en lögreglan vakti hann upp um morguninn með þessum fréttum. Bifreiðin hefur endásteypzt er henni var ekið út af vegin- um. Hún er það mikið skemmd, að ekki mun talið borga sig að gera við hana, einkum vegna þess að grindin er öll skökk og undin. Þetta var Kaiserbifreiðin R 3633 af árgerð 1954. Eigandi hennar er Guðmundur Guð- mundsson heildsali. INNBROT var framið í fyrri- nótt í frímerkja- og bókasöluna ,að Frakkastíg 16. Þjófurinn braut upp dyr búðarinnar. iStolið var 'bók, sem frímerki eru geymd í. Munu 'hafa verið frímerki í bókinni, sem eru um 2000 krónur að verðmæti. Einnig var stolið fyrstadags- ums’lögum, m. a. ballonumslagi, lýðveldisumsla^i og handrita-, svana- og Vatnajökulsumslagi. Bílasalirm hirti bil bíógests FYRIR nokkrum dögum fór maður nokkur á kvikmynda- sýningu í Stjörnubíó. Hann var á bíl, senr hann hafði lagt á bílastæði skammt frá meðan á sýningunni stóð. Þcgar sýningu var lokið og maðurinn ætlaði að halda heimleiðis, tók hann eftir því, að bíllinn var horfinn. Maðurinn gerði lögreglunni þegar aðvart og var liafin um- fangsmikil leit að bílnum um nóttina, en án árangurs. Daginn eftir var hringt frá bílasölu, skamrnt frá Stjörnu- bíó og tilkynnt að þar væri bifreið, sem tekin hefði verið í „misgripum“ kvöldið áður. Þannig stóð á þessu, að bílasalinn var að selja bíl, sömu tegundar og þann sem hvarf, en hann þurfti að fara til viðgerðar um nóttina, svo hann væri tilbúinn fyrir kaup andann næsta morgun. Við- gerðarmaðurinn fékk lykla að bílnum hjá bílasalanum og gerði við þá galla sem á hon- um fundust uni nóttjna. Um morguninn sagði hann bíla- salanum, að þetta hefði verið miklu minni viðgerð, en hann hefði búizt við. Bílasalinn fór þá að athuga málið og kom í ljós, að hann var næstum búinn að selja rangan bíl. Bíllinn, sem átti að fara í viðgerð, var óhreyfð- ur fyrir utan bílasöluna. Lykl arnir að honum höfðu gengið að hinum. Misskilningur þessi endaði þó farsællega, einkum fyrir bíógestinn sem fékk fría við- gerð á bíl sínum. Nýtt innheimtu- kerfi simgjalda EINS OG áður hefur verið skýrt frá breytist innheimtu- fyrirkomulag símaafnotagjald- anna í Reykjavík 1. apríl næst- komandi, þannig að notendur með símanúmerin 10000 til 16 499 greiða fullt ársfjórðungs- gjald í apríl, en þeir sem hafa númerin 16500—24999 greiða eins mánaðar afnotagjald í apr- íl, en venjulegt ársfjórðungs- gjald í maf og síðan á ársfjórð- ungs fresti. Þeir, sem hafa símanúmerin 32000 til 36499 greiða tveggja mánaða afnota- gjald í apíil, en venjulegt árs- fjórðungsgjald í júní, og síðan á ársfjórðungs fresti. Frá 1. apríl verða símanot- endur í Reykjavík ekki krafðir mánaðarlega um greiðslur fyr- ir símskeyti og símtöl á meðan upphæðin er undir 100 krónum, heldur með ársfjórðungsreikn- ingi. Athygli símnotenda við sjálf- virku stöðvarnar skal vakin á eftirfarandi: 1. apríl reikningi fylgir reikn ingur fyrir umframsímtöl sem töluð voru á tímabilinu desem- ber, janúar, febrúar, og reikn- ast á 55 aura hverf samtal, en umframsímtöl, sem eru töluð 1. marz og síðar, kosta 70 aura. 2. Lækkun símtalafjöldans, sem er fólginn í fastagjaldinu, niður í 600 símtöl á ársfjórð- ungi, kemur fyrst til fram- kvæmda á símtölum, sem eru, töluð eftir 30. júní. 3. Vegna hins sérstaka fyrir- komulags á símasambandinu milli Hafnarfjarðar og Reykja- víkur, verður símtalafjöldinn, sem fólginn er í fastagjaldinu í Hafnarfirði, reiknaður sem svarar 850 símtölum á ársfjórð- ungi fyrir þau símtöl, sem tÖl- uð eru á tímabilinu 1. marz til 30. júní á þessu ári, en lækkar 1. júlí ofan í 600 símtöl á árs- fjórðungi, samtímis því að gjaldið fyrir símtölin milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur verður reiknað eftir tímalengd niður í eina mínútu. Þar sem helmingur símtala frá heimilis símum í Hafnarfirði til Reykja- víkur hefur reynzt að vara skemur en 1 mínútu, en með- altími símtalanna um 2 mínút- ur, felur hið nýja fyrirkomu- lag í sér talsverða gjaldalækk- un. Samskonar fyrirkomulag verður þá einnig tekið upp á sjálfvirku símasambandi á milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur. (Frá póst- og símamála- stjórninni.) Deilan DEILAN um kjör útlendinga í Sinfóníuhljómsveitinni leyst- ist á þann veg, að þeir munu starfa áfram við óbreytt kjör. Sigga Vigga Alþýðublaðið — 30. marz 1960 J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.