Alþýðublaðið - 08.04.1960, Síða 3
Lánasjódur íslenzkra
námsmanna erlendis
Stórhækkun
námsstyrkja
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt
fram á alþingi frumvarp til
laga um lánasjóð íslnzkra
námsmanna erlendis. Gylfi Þ.
Gíslason, menntamálaráðherra,
fylgdi frumvarpinu úr hlaði í
neðri deild í gær með ítarlegri
ræðu. Mun verða lögð áherzla
á, að afgreiða frumvarpið fyr-
ir páska til þess að unnt verði
að hcfja lánveitingar úr sjóðn-
um stax á 2. ársfjórðungi 1960.
Lánasjóði íslenzkra náms-
manna erlendis skal varið til að
veita námslán íslenzkum stúd-
entum og öðrum námsmönnum
við nám erlendis skv. ákvæðum
laganna og fer Menntamálaráð
íslands með stjórn sjóðsins. —
Ríkisstjórnin leggur sjóðnum
árlega til 3.250.000.00 kr. Af-
horganir af námslánum mennta
málaráðs, sem veitt voru ár-
in 1952-1959 og vextir af þeim
renna einnig í sjóðinn.
Alls eru nú áætlaðar 5.195.
000.00 kr. til námsstyrkja og
námslána samanlagt £ stað 2
millj. kr. árið 1959 og 1.275.
000.00 kr. árið 1958 Gert er
ráð fyrir því, að styrkirnir
WMWVWMWWIWWWW
hækki sem svarar til gengis-
fellingar íslenzku krónunnar,
en auk þess verði námslánin
aukin verulega Áætlað er, að
af fjárveitingu ársins 1960 sé
hægt að verja 3.250.000,00 kr.
til námslána, eða átta sinnum
hærri upphæð en árið 1958.
í 2. gr. frv. segir, að lán úr
sjóðnum skuli aðeins veitt ís-
lenzkum stúdentum eða öðrum
námsmönnum við nám erlendis
skv. reglum, sem sjóðsstjórnin
(þ. e. menntamálaráð) setur,
en þurfa samþykki mennta-
málaráðherra. Hver námsmað-
ur skal að jafnaði hafa heimild
til að taka lán einu sinni á ári
meðan hann er við nám, en þó
ekki lengur en hæfilegur náms-
tími er talinn í þeirri grein og
þeim skóla, sem námið er stund
að í.
Þeir námsmenn, sem njótq
fulls styrks frá menntamála-
ráði eða jafnmikils styrks ann-
ars staðar frá, skulu að jafnaði
ekki fá lán úr sjóðnum. Þó er
heimilt >að víkja frá þeirri reglu
— ef sérstaklega stendur á.
Lántakandi skal enga vexti
greiða, meðan á námstíma
stendur, en greiða lánin upp
með jöfnum afborgunum á 10
árum. Vaxtagreiðslur og afborg
anir hefjast þrem árum eftir að
námi lýkur. Miða skal við próf
eða síðustu lántöku, ef stúdent
hverfur frá námi, nema sér-
stakar ástæður séu fyrir hendi.
Til tryggingar lánum þessum
skulu lánþegar samiþykkja
skuldabréf og setja frekari
tryggingu, ef hægt er, skv. á-
kvörðun sjóðsstjórnarinnar. —
Bókhald, innheimtu og eftirlit
með greiðslum skal sjóðsstjórn-
in fela opinberri stofnun, en sér
að öðru leyti um daglegan rekst
ur sjóðsins.
Ráðherra setur reglugerð, þar
sem frekar er kveðið á um starf
semi sjóðsins.
Sigga Vigga
Ritvélar ut-
anríkisráðu-
neytisins í
hættu
EINS OG fram hefur
komið x fréttum var hót-
unarbréfið til lögreglu-
stjóra skrifað á ritvél í
utanríkisráðuneytinu. —
Var það ritvél Bjarna
Guðmundssonar blaða-
fulltrúa, sem notuð var
við það tækifæri Mun
Bjarni hafa verið ritvél-
arlaus síðustu daga, þar eð
rannsóknarlögreglan tók
ritvélina í sína vörzlu
vegna rannsóknar máls-
ins. í fyrradag hvarf svo
ritvél úr varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins. —
Var það ritvél Péturs Egg
erz fulltrúa, er hvarf um
miðjan daginn, en hann
hafði verið að nota hana
skömmu áður. Tíminn seg
ir í gær, að umrædd rit-
vél hafi horfið úr „varn-
armálanefnd", en það er
alrangt eins og fram kem
ur í þessari frétt.
MMWUHMMHMMMMMMMM
Bamamúsikskóli
B ARN AMÚ SÍ KSKOLINN í
Reykjavík efnir til skemmtun-
ar fyrir almenning næstkom-
andi sunnudag, 10. apríl.
í maíbyrjun lýkur áttunda
starfsári Barnamúsíkskólans.
Nemendur skólans eru nú á 3.
hundrað að tölu. í lok skóla-
ársins hafa nemendur oftast
efnt til skemmtunar og sýnt
ýmis atriði úr skólastarfinu,
sungið og leikið á hljóðfæri,
ein og í smáhópum.
Það telst til nýlundu í starfi
skólans í vetur, að nemendur
hafa æft stuttan söngleik eftir
Hindemith, „Wir bauen eine
Stadt“, sem á íslenzku hefur
hlotið nafnið „Við reisum nýja
Reykjavík“. Þorsteinn Valde-
marsson hefur þýtt og staðfært
textann. Nemendur skólans sjá
einir um flutninginn, syngja
og skipa hljómsveitina, sem
leikur undir, en Baldvin Hall-
dórsson leikari hefur annazt
leikstjórn.
Auk söngleiksins verða ýmis
önnur skemmtiatriði, kórsöng-
ur, einleikur og samleikur á
ýmis hljóðfæri.
Skemmtun þessi verður hald-
in aðeins einu sinni fyrir al-
menning, næstkomandi sunnu-
dag kl. 4 síðd. í samkomusal
Hagaskóla við Hagatorg. Börn
innan 10 ára aldurs fá ekki að-
gang nema í fylgd fullorðinna.
Aðgöngumiðar fást í Hljóðfæra
húsinu, Bankastræti, og í hljó-
færaverzluninni í Vesturveri.
«5Vrf=3'
uSOMU LAUN FYRIR5ÓMU VINNU? SEGIR HANN. GÖTT OG
VELy STÚLKA MÍN! -OG ÞÁ HEFOI ÉG ÁTT AE> SJÁ VIE) HONUM"
Sjóðþurrðin
tugir þús ?
HEYRZT hefur að sjóðþurrð I Ásnum í janúar sl., en hann
og óreiða hafi komið upp hjá
Vikublaðinu Ásinn h.f. Sjóð-
þurrðin mun nema tugum þús-
unda króna. Blaðið kom ekki
út síðast liðinn miðvikudag,
sem er útgáfudagur þess.
Höfuðstóll hlutafélagsins eða
hlutafé, sem nemur 80 þúsund
krónum, mun einnig hafa verið
eytt. Ásinn er prentaður í
Steindórsprenti og mun það
hafa verið prentsmiðjan sem
stöðvaði útgáfu blaðsins vegna
skuldar.
Nýr ritstjóri var ráðinn að
íslendingurinn heimtaði
hús með garði og bílskúr
NÝLEGA voru auglýstar
lausar til umsóknar fimm lekt
orsstöður við Æðri skólann
Notodden í Noregi.
Aðeins einn sótti um stöðu:
íslendingur. En þeirn þótti
hann vera nokkuð kröfuharð-
ur: Hann heimtaði að fá eigið
íbúðarhús með garði og bíl-
skúr.
Oppedal rektor tók sér
bessaleyfi til að skrifa íslend-
ingnurn, að því er hann upp-
lýsti á skólanefndarfundi í
síðasta mánuði, og bauð hann
velkominn til Notodden. En
að sjálfsögðu gat rektorinn
ekki lofað íslendingnum húsi,
garði og bílskúr.
íslenzki umsækjandinn er
mikill söng- og mlúsíkvinur og
hann tók fram í bréfi sínu, að
kæmi hann til Noregs, kæmi
ekki til mála annar staður en
Þelamörk.
í lok skólanefndarfundar-
ins tók rektor Oppedal fram,
að hann hyggist við metað-
sókn að skóla sínum næsta
vetur, en útlitið með kenn-
aralið væri hreint ekki sem
bezt.
mun hafa látið af störfum strax
og hann komst að því að blaðið
hafði verið stöðvað. Heyrzt hef-
ur, að Steindórsprent muni yf-
irtaka rekstur blaðsins vegna
skulda við prentsmiðjuna.
Framkvæmdastjóri Viku-
blaðsins Ásinn h.f. er Halldór
Indriðason, byggingarmeistari.
JJ.skákin
I bið
11. EINVÍGISSKÁK þeirra
Tal og Botvinniks var tefld í
gær. í fyrsta sinn í einvíginu
lék Tal ekki e2—e4 í fyrsta
leik. Miklar flækjur urðu í
skákinni og fór hún í bið eftir
41 leik með tvísýnni stöðu.
Forsætisráð-
«
herra fer utan
FORSÆTISRiÁÐHERRA, Ól-
afur Thors, fer til útlanda í
dag og mun dveljast ytra um
nokkurra daga slteið.
Alþýðublaðið — 8. apríl 1960 3