Alþýðublaðið - 08.04.1960, Side 11
ISLANDSMEISTARAR í
körfuknattleik 1960 — lið
ÍR. Aftari röð talið frá
vinstri: Haukur Hannes-
son, Einar Ólafsson, Ragn-
!ar Jónsson, Ingi Þór Stef-
ánsson og Þorsteinn Hall-
grímsson. Fremri röð frá
vinstri: Guðmundur Þor-
steinsson, Helgi Jóhanns-
son (fyrrilði) og Hólm-
steinn Sigurðsson. ÍR vann
nú hinn glæsilega bikar,
sem Lockhead-félagið gaf
í fjórða sinn. ÍKF hefur
einnig unnið hann fjórum
sinnum og íþróttafélag
stúdenta einu sinni. Ljós-
mynd: Sveinn Þormóðss.
HWWVMWMWWWWVWWV
n II «« mvai 1» ,
segir Asgeir Guðmundsson
ÍÞRÓTTASÍÐAN sneri sér
til Ásgeirs Guðmundssonar, í-
þróttakennara í gær og lagði
fyrir hann nokkrar spurningar
um körfuknattleik en Ásgeir
þjálfað,i íslenzka landsliðið í
körfuknattleik fyrir landsleik-
inn við Dani í fyrravor.
— Hvað viltu segja um úr-
listaleik ÍR og KFR?
— Mín skoðun er sú, að leik-
ur ÍR-inga sé naeð því bezta,
sem íslenzkt lið hefur sýnt fyrr
og síðar. Þetta er sérstaklega
athyglisvert, þar sem liðið er
að mestu skipað ungum leik-
mönnum, sem virðast taka í-
þróttina alvarlega og leitast
við að gera sitt bezta.
— Aðrir leikir mótsins?
— í heild má segja, að þeir
hafi ve-ið góðir. Margir góðir
einstaklingar eru í félögunum,
en liðin eru ekki ávallt eins
samstillt og einstaklingsgetan
segir til um.
— Þú heldur þá, að við séum
á réttri leið?
— Það er ekki nokkur vafi
á bví. Það er sýnilega um mikl-
ar framfarir að ræða síðan í
fyrra og „breiddin" er mikil.
Það ánægjulegasta við þetta
er þó það, að yngri aldursflokk-
arnir eru yfirleitt skipaðir mjög
góðum einstaklingum og ef þeir
halda allir áfram að æfa af
samvizkusemi, mun ísland
eignast mjög sterkt landslið í
körfuknattleik á næstu árnm.
IIolland-Belgía 4:2.
Conolly, 67,58 í sleggjukasti.
— Don Styron, USA, 21,9 í 220
yds. grind (bein braut), heims-
met! Gamla metið 22,1. — Há-
stökk: Fairbrother, Engl., Four
nier ,Frakkl., og Kotei, Gh'ana,
allir 2.10 m. (innanhúss).
Stigin
ÞESSIR leikmenn skor-
uðu stigin í leik ÍR og
KFR £ fyrrákvöld:
Þorst. Hallgrímss., ÍR, 23
Hólmst. Sigurðss., ÍR, 15
Ingi Þorsteinss., KFR, 14
Einar Matthíass., KFR, 14
Guðm. Þorsteinss., IR, 13
Helgi Jóhannsson, ÍR, 10
Ólafur Thorlacius, KFR, 8
Gunnar Sigurðss., KFR, 6
Ágúst Óskarsson, KFR, 5
Haukur Hannesson, ÍR, 4
Ragnar Jónsson, ÍR, 2
Ingi Þór Stefánss., ÍR, 2
Sig. Helgason, KFR, 1.
mann íslandsmeisfari. ÍR sigr-
aði í 2. og 4. flokki karla, en Ár-
mann í 3. flokki.
MEISTARAFL. KARLA
KARLA: ÍR—KFR 69:48
Lið ÍR: Helgi Jóhannsson,
Hólmsteinn Sigurðsson, Hauk-
ur Hannesson, Ragnar Jónsson,
Guðmundur Þorsteinsson, Þor-
steinn Hallgrímsson, Einar Ól-
afsson og Ingi Þór Stefánsson.
Tveir hávaxnir við körfu KFR,
til vinstri er Guðmundur Þor-
steinsson, IR að skora mjög fal-
lega, en Sigurður Helgascn,
KFR reynir árangurslaust að
koma í veg fyrir það. Ingi Þcr-
steinsson, KFR fylgist spennt-
ur með.
KFR: Ingi Þorsteinsson, Ein-
ar Matthíasson, Ólafur Thorla-
cius, Sigurður Helgason, Helgi
R. Traustason, Gunnar Sigarðs
son, Ásbjörn Egilsson, Ágúst
Óskarsson.
Dómarar: Þórir Arinbjariar
og^Viðar Hjartarson.
Það var ágæt „stemning"' að
Hálogalandi í fyrrakvöld eða al
veg eins og vera á, þegar úrsliba
leikir fara fram. Áhorfendur
voru mjög margir, nærri full-
setið húsið og menn virtust
skemmta sér mjög vel. .
Framhald á 14. síðu. .
INNANFELAGSMOT IR
heldur áfram í dag kl. 5,30 og
verður keppt í spjótkasti. - Stj.
ISLANDSMEISTARAR í
körfuknattleik kvenna
1960 — lið Ármanns.
Fremri röð, talið frá
vinstri: Rut Guðmunds-
dóttir, Kristín Jóh'anns-
dóttir og Sigríður Sigurð-
ardóttir. Aftari röð frá
vinstri: Hrafnhildur Lút-
hersdóttir, Þuríður ísólfs-
dóttir, Malla Magnúsd.,
Katrín Hermannsdóttir og
Þórunn Erlendsdóttir. Á
myndina vantar fyrirliða
Ármannsliðsins, Sigríði
Lúthersdóttur. Þetta er
annað árið í röð, sem Ár-
mann vinnur verðlaun,
sem Jakob V. Hafstein gaf.
ÍSLANDSMÓTINU í körfu
knattleik lauk að Hálogalandi
á miðvikudagskvöldið og þá
sigraði ÍR KFR í meistaraflokki
karla og varð íslandsmeistari.
Einnig var háður úrslitaleikur í
2 flokki kvenna milli A- og B-
liðs KR og sigraði B-liðið. Áður
voru kunn úrslit í meistara-
flokki kvenna, en þar varð Ár-
ÍR Islandsmeistari
í körfuknattieik
Sigraði KFR i glæsilegum úr-
slitaleik með 69 gegn 48
Alþýðublaðið — 8. apríl 1960
■>. n,Wtr;ÍíÁ — t;sv ■=• yj