Alþýðublaðið - 08.04.1960, Page 14
Gudmundur I.
Framhald af 4. síðu.
einnig, að þörf sé sérstakrar
reglu í viðbót, þegar um sér-
stöðu er að ræða, þannig, að
a.fkoma þjóðar er að lang-
mestu leyti háð fiskveiðum
við ströndina.
Þessa sérregu verður auð-
vitað að orða á þann veg, að
hún verði ekki misnotuð. ís-
lenzka nefndin á fyrri ráð-
stefnunni um réttarreglur á
hafinu lagði raunar fram til-
lögu í þessu máli, sem hlaut
talsverðan stuðning. Við mun
um leggja fram svipaða til-
lögu á þessari ráðstefnu.
Eg vil í þessu sambandi
leggja áherzlu á það, að þótt
því hafi verið haldið fram að
þessu vandamáli hafi verið
gerð fullnægjandi skil í sam-
þykktinni um sérstakar að-
stæður við strandveiðar, sem
gerð var á fyrri ráðstefnunni,
þá er einn megingalli á þeirri
samþykkt, nefnilega sá, að
samkvæmt ákvæðum hennar
skulu allar ráðstafanir háðar
samþykki einmitt þeirra ríkja,
sem fiskveiðar stunda á um-
ræddu svæði og eru því ekki
líkleg til að hafa mikinn á-
huga á því að fallast á for-
gangsrétt strandríkis á því
svæði.
Samþykktin yrði í slíku til-
viki aðeins pappírsgagn.
Sendinefnd mín mun því
leggja fram tillögu um þetta
efni, er myndi að minnsta
kosti verða viðbót við um-
rædda samþykkt, ef hún kæmi
þá ekki f stað hennar.
Þetta, herra forseti, eru
meginskoðanir stjórnar minn-
ar, og með yðar leyfi vildi ég
ljúka máli mínu með Evf'a'ð
rifja upp höfuðatriðin.
1. Hugtökin frelsi á hafinu og
lögsaga við strönd eru hlið-
stæð og hvorugu verður
haldið fram sem röksemd
fyrir því að takmarka hitt
óhæfilega.
2. Skýrt skyldi greint á milli
landhelgi og fiskveiðilög-
sögu.
3. ísland getur fallizt á þrönga
landhelgi að því tilskildu,
að fiskveiðilögsagan sé
nægilega víð.
4. Almenna reglan er sú, að
fiskveiðilögsaga geti náð
allt að því 12 mílur.
5. Þegar aðstæður eru sér-
stakar og íbúarnir eiga af-
komu sína að langmestu
leyti undir fiskveiðum við
ströndina, má fiskveiðilög-
sagan ná lengra, en reglan
um þetta verður að vera
þannig orðuð, að hún verði
ekki misnotuð.
Sendinefnd mín vill nota
þetta tækifæri til þess að
beina því til allra vina okkar
á þessari ráðstefnu, að þeir
sýni þessum atriðum skilning
og geri það, sem þeim er fært
til að styðja þau.
Fleira hef ég ekki að segja
að svo stöddu.
Þakka yður fyrir, herra
IÞROTTIR
Framh. af 11 síðu.
Leikurinn var ekki nema
nokkurra sekúndna gamall, þeg
ar Gunnar Sigurðsson fékk
knöttinn úr uppkastinu og
skoraði við mikil fagnaðarlæti.
En ÍR-ingar láta það ekki á sig
fá og ná fljótt yfirtökunum með
hröðu og skemmtilegu spili,
sem ruglaði KFR algjörlega í
ríminu. Hólmsteinn skoraði
fyrsf eitt stig úr vítakasti, en
síðan renna Helgi og Þorsteinn
Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ
sézt hér afhenda Helga Jó-
hannssyni, fyrirliða ÍR hinn
fagra bikar.
knettinum í KFR-körfuna á
mjög glæsilegan hátt. Leikað-
ferð ÍR-liðsins var árangursrík
og kom KFR alveg á óvænt, að
því er virtist. Helgi Jóhannsson
stjórnaði liðinu af röggsemi og
sendingar hans undir körfu
voru oft með ágætum.
ÍR-ingarnir auka forskot sitt
stöðugt í fyrri hálfleik og kom
ust í 31:17 fyrir hlé. Nokkuð á-
berandi var hvað leikmenn
voru óöruggir í vítaköstum og
fóru mörg þeirra til ónýtis.
Síðari hálfleikur var einnig
fjörugur og hófst með mikilli
sókn ÍR, sem skoraði þrívegis
áður en KFR fékk að gert, og
fóru nú flestir að hallast að því,
að sigur ÍR væri staðreynd. En
KFR gafst aldrei upp og sýndi
of t ágætt spil og lék betur í síð-
ari hálfleik en þeim fyrri.
ÍR sigraði í leiknum eins og
fyrr segir með 69 stigum gegn
48, sem er mun stærri sigur en
flestir bjuggust við fyrirfram.
Beztur í liði ÍR var Þorsteinn
Hallgrímsson, sterkur, fljótur
og sérstaklega öruggur í körfu-
skotum. Vafasamt er að nokkur
íslendingur hafi sýnt betri leik
í körfuknattleik en hann gerði í
fyrrakvöld, þessi látlausi og hlé
drægi íþróttamaður. Guðmund-
ur, Hólmsteinn og Helgi voru
einnig prýðisgóðir. Ragnar Jóns
son er í stöðugri framför í körfu
knattleik Og Haukur er einnig
vaxandi.
Lið KFR hefur isýnt betri leik
en á miðvikudagskvöldið, en að
þessu sinni voru Ingi, Gunnar,
Einar, Ólafur og Agúst beztir.
Dómararnir Þórir og Viðar
sluppu nokkuð vel frá leiknum,
en erfitt var að dæma hann,
Keppt var til úrslita í 2. fl.
kvenna og léku A- og B-lið KR.
B-liðið sigraði nokkuð örugg-
lega með 20 stigum gegn 12.
Stúlkurnar sýndu ágætan leik
á köflum og er enginn vafi á
því, að þær geta náð langt í
þessari íþrótt með áframhald-
andi æfingum.
Benedikt G. Waage forseti
ÍSÍ afhenti sigurvegurunum
verðlaun, en þau voru hin
glæsilegustu. Forsetinn drap á
hinar miklu framfarir, seni orð
ið hafa í körfuknattleik undan-
farið og hvatti íþróttafólkið til
að sýna enn meiri ástundun. —
Körfuknattleikur er Olympíu-
íþrótt og því til mikils að
vinna, sagði Benedikf G.
Waage.
í heild má isegja að mót þetta
ihafi farið vel fram og verið
spennandi.
Fjölbreytt
tæknirit
TÍMARITIÐ TÆKNI, apríl-
hefti, er nýkomið út og flytur
fjölda greina og mynda um
tæknilegar nýjungar og tækni-
leg efni. Tímaritið er prentað í
tveim litum.
Meðal helztu greina má nefna
nefna: Fiskiveiðar framtíðarinn
ar — með sogdælu og raflosti,
Bílasýningin í Túrin, Borgin
undir ísnum, Gúmbátarnir, Snjó
flóðagirðingar úr alúmíni, Stríð
án blóðsúthellinga, Ljósmynda-
þáttur, Geimför og geimferðir,
og ýmislegt fleira.
Þjófar
Framhald af 16. síðu.
ur forvitni er á um það,
hvort rannsóknarlögregl-
unni tekst að grípa hann.
Hún veit ýmislegt um hann,
sem hún vill ekki gefa upp
við blaðamenn og er það
eðlilegt. Hún veit um auka-
atriði, eins og þau, að á ein-
um stað sýndi þjófurinn tölu-
verðan smekk á vindlum. Af
einum þremur tegundum
valdi hann sér Henry Clay,
sem eru í góðum flokki. —
Aftur á móti lét hann liggja
vindla, sem Loftleiðir selja
farþegum sínum, og eru í
pjáturhylki. Það þarf þrosk-
aðan smekk til að halda að
vindlar í pjáturhylki séu
ekki betri. Þá hefur hann og
félagi hans forðast að snerta
áfengi. Ekki er vitað hvort
þeir eru bindindismenn, en
þeir drekka heldur kók, og
mjólk, ef þeir sjá hana. Einn
galli er á þessum þrifnu
mönnum, og hann er sá, að
þeir hirða ekki um þótt þeir
spori. „Segðu þeim að
þurrka af fótunum næst,
þegar þeir koma,“ sagði einn,
sem þeir höfðu sporað hjá.
forseti.
iitr
14 8. apríl 1960 — Alþýðublaððið
VeSrið:
A. og N.-A, kaldi;
Slysavárðstofan er opin all
an sólarhringinn. Læknavörð
ux LR fyrri vitjanir er á sama
stað frá kl. 16—8. Sími 15030.
-o-
o----------------------o
Gengin. Kaupgengi.
1 sterlingspund .... 106,65
1 Bandaríkjadollar . . 38,00
1 Kanadadollar .... 39,93
100 danskar kr.....551,40
100 norskar kr....... 532,80
100 sænskar kr..... 734,70
100 vestur-þýzk mörk 911,25
o------------------------o
Flugfélag
íslands h.f.:
Millilandaflug:
Gullfaxi fer til
Glasgow og K-
mh. kl. 08.00 í
dag. Væntan-
leg aftur til
Rvk kl. 22.30 í
kvöld. Flug-
vélin fer til
Oslo, Kmh. og
Hamborgar kl.
10.00 í fyrramálið. — Inn-
anlandsflug: í dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar, Fag-
urhólsmýrar, Hornafjarðar,
Kirkjubæjarklausturs og Vest
mannaeyja. '4— Á morgun
er áætlað að fljúga til AJkur-
eyrar, Blönduóss, Egilsstaða,
Hólmavíkur, ísafjarðar, Sauð
árkróks og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.:
Saga er væntanleg kl. 17.30
frá New York. Fer til Glas-
gow og London kl. 19.00. —
Leiguflugvélin er væntanleg
kl. 19.00 frá Kmh. og Oslo.
Fer til New York kl. 20.30.
Saga er væntanileg kl. 5.30 á
laugardagsmorgun frá Lond-
on og Glasgow. Fer til New
York kl. 17.00.
Eimskipafélag
íslanðs h.f.:
Dettifoss fer frá
Rvk annað kvöld
8.4. til Vestm,-
eyja, Keflavíkur,
Akraness og það-
an vestur og norður um land
til Rostock, Halden og Gauta-
borgar. Fjallfoss kom til
Grimsby 6.4. fer þaðan í
kvöld 7.4. til Rotterdam, —
Antwerpen og Jfamborgar. —
Goðafoss fer frá Ábo 7.4. til
Kmh. og Rvk. Gullfoss fer
frá Rvk kl. 22 .00 í kvöld 7.
4. til Hamborgar, Helsing-
borgar og Kmh. Lagarfoss fór
frá Rvk 2.4. til New York.
Reykjafoss fór frá Eskifirði
6.4. til Danmerkur og Svíþj.
Selfoss fór frá Gautaborg 4.4.
væntanlegur til Rvk árd. á
morgun 8.4. Tröllafoss fór
frá New York 28.3. til Rvk.
Tungufoss fór frá Rotterdam
4.4. til Rvk.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla er væntanleg til
Siglufjarða rí dag á leið til
Akureyrar. Herðubreið er á
Austfjörðum á norðurleið. —■
Skjaldbreið fór frá Rvk í
gær vestur um land til Akur-
eyrar. Þyrill er á leið frá
Bergen til Rvk. Herjólfur fer
frá Rvk kl. 21 í kvöld til Vest-
mannaeyja. Baldur fer frá
Rvk í dag til Grundarfjarðar.
Hafskip h.f.:
Laxá er í Gautaborg. ^
Skipadeild S.Í.S.:
Hvassafell átti að fara í
gær frá Sas van Gent til Ak-
ureyrar. Arnarfell fór í gær
frá Keflavík til Rotterdam,
Rostock, Kmh. og Heröya. —-
Jökulfell fór 1. þ. m. frá New,
York til Rvk. Dísarfell fór
5. þ. m. frá Rotterdam til
Hornafjarðar. Litlafell er í
olíuflutningum í Faxaflóa. —>
Helgafell er í Þorláksliöfn. ■—
Hamrafell er í Hafnarfirði.
Jöklar h.f.:
Drangajökull fór frá Rvk
í fyrakvöld á leið til Grims-
by og Hull. Langjökull er í
Ventspils. Vatnajökull er í
Rvk.
AFMÆLI: — 70 ára er í dag,
9. apríl, Símon Símonar-
son, bifreiðastjóri, Þor-
finnsgötu 8, Reykjavík.
Frá Guðspekifélaginu: Dög-
Cn heldur fund í kvöld kl.
8,30 í Guðspekifélagshús-
inu. Erindi flytja: Njörður
P. Njarðfvilk: „Hugleið’ing
um sólina" og Erlendur Har
aldsson: „Sálfræði Jungs“.
Kaffi á eftir.
Föstudagur
8. apríl:
n
18.30 Mannkyns-
saga barnanna. -
18.50 Framb.k. í
spænsku. 19.00
Þingfréttir. Tón-
leikiar. — 20.30
Krvöldvaka: a)
Lestur fornrita:
Auðunar þáttur
vestfirzka (Óskar
Halldórsson vand.
mag.). b) Minnzt
aldarafmælis
kímniskáldsins K. N.,Krist-
jáns Níelsar Jónssonar. — Sr.
Benjamín Kristjánsson flytur
erindi og lesið verður úr ljóð
mælum skáldsins. c) íslenzk
tónlist: Lög eftir Friðrik
Bjarnason. d) Kynlegur kvist
ur á meiði 19. aldar, — frá-
söguþáttur (Jóhann Hjalta-
son kennari). 22.10 Passíu-
sálmur (45). 22.20 Hugleið-
ingar um vandamál flótta-
manna (Guðmundur Thorodd
sen prófessor). 22.40 í léttum.
tón: Söngkonan Virginia Lee
syngur lög frá ýmsum lönd-
um við undirleik hljómsveit-
ar Árna Elvars. 23.10 Dag-
skrárlok.
LAUSN HEILABKJÓTS:
Þú sefur í einn tíma.
Klukkan vekur þig kl. 20.