Fréttablaðið - 22.05.2001, Blaðsíða 1
Frelsið eða
fiskabúrið?
eyjar í dag er stór dagur í lífi
„Eyjapeyjans" Keikós. Hallur
Hallsson og félagar ætla að opna
búrið í Klettsvík og fara með há-
hyrninginn út á rúmsjó í fylgd
þriggja báta, fjölda aðstoðarmanna
og blaðamanna. - Kannski verður
þyrla skammt undan. Markmiðið
er að komast að því hvort Keikó
vilji vera frjáls eins og Willy, sem
hann lék í Hollywood-myndinni um
árið, eða hvort hann kjósi að lifa
lífi gullfisksins til æviloka.
VEÐR|p pAG
REYKJAVÍK Norðaustlæg átt
yfirieitt 5-8 m/sek og létt-
skýjað. Hiti 2 til 9 stig,
mildast yfir hádaginn.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður Q 5-8 slydduél O 6
Akureyri Q 5-8 skúrir O 4
Egilsstaðir Q 1-3 skýjað 04
Vestmannaeyjar © 5-8 léttskýjað O 7
Dagur fjölbreytni
í lífríkinu
náttúra „Á hverri kynslóð hvílir sú
mikla ábyrgð að umgangast og
nýta náttúruna með sjálfbærum
hætti og viðhalda henni sem sjóði
fyrir komandi kynslóðir," segir í
ávarpi Kofi Annan í tilefni af degi
líffræðilegs fjölbreytileika. Land-
vernd heldur fund í Odda kl. 16.00
um virkjunarhugmyndir.
Allt er þá þrennt er
verkfalí Hafnfirskir bæjarstarfs-
menn í Verkalýðsfélaginu Hlíf
greiða í dag atkvæði um miðlunar-
tillögu ríkissáttasemjara til lausn-
ar deilu þeirra við bæinn, sem hef-
ur lamað starf í leikskólum, grunn-
skólum og fleiri stofnunum bæjar-
ins undanfarna viku. Starfsmenn
hafa tvisvar fellt gerða samninga.
nkvÖLDIÐ j KVÖLDj
Fyrrverandi eigendur
fá trillukvótann
I lögunum um kvótasetningu smábátanna er stuðst við veiðireynslu áranna 1996 til 1998.
Stór hluti kvótans fer til manna sem hafa selt báta og eru hættir í útgerð.
kvótar Þegar kemur að úthluta ýsu- og
steinbítskvóta á smábáta verður
stuðst við veiðireynslu áranna 1996,
1997 og 1998. Þetta verður til þess að
margir sem gera út báta í dag fá eng-
...-0..- an kvóta - heldur fyrr-
verandi eigendur bát-
anna. í flestum kaup-
samningum, sem
gerðir hafa verið á
allra síðustu árum, er
ákvæði um þetta.
Fréttablaðið veit um
samninga þar sem
kveðið er fastar að
orði; þar er sagt að nú-
verandi eigendur hafi
forkaupsrétt á þeim
kvóta sem verður út-
„Ef þjóðin
tekur þá
ákvörðun að
leggja sjávar-
plássin í eyði
þá er hrein-
legra að gera
það skýrt og
skorinort -
ekki murka úr
okkur lífið."
—0—
hlutað á því verði sem skapast á mark-
aði á fyrsta mánuði.
Fiskvinnslan Kambur á Flateyri á
að fullu eða hluta sex báta. „Ég get
staðfest að óbreyttu þá eigum við nán-
ast enga reynslu. Ég held að það sé um
tíu tonna reynsla á einum báti,“ sagði
Hinrik Kristjánsson framkvæmda-
stjóri Kambs á Flateyri.
En þegar kaupsamningarnir voru
gerðir voru lögin í gildi og því má ætla
að búast hafi mátt við þessum afleið-
ingum. „Við trúðum ekki að þessar
hörmungar myndu ganga yfir. Utgerð
þessara báta er í mikilli óvissu. Þegar
við fórum út í þessi viðskipti keyptum
við úreldingarúmmetra dýrum dómum
og við keyptum þorskkvóta. Við vissum
af þessum lögum en treystum á að
SMÁBÁTAR
Nú hefur komið í Ijós að kvótar fara oft til
fyrrverandi eigenda bátanna en ekki þeirra
sem eru að gera þá út. Búist er við að sá
kvóti fari beint í sölu. Dæmi eru um að
núverandi eigendur hafi forkaupsrétt að
kvóta á eigin bátum.
þetta myndi aldrei gerast með þeim
hætti sem nú hefur orðið. Nú virðist
fyrir okkur að liggja að kaupa eða leig-
SKÓLI BARNANNA: Móðir kemur í Don Filippo Rinaldi-barnaskólann í Róm til að sækja barn sitt, en talið er að fjöldi barna
við skólann hafi verið fórnarlömb barnaníðinga. Á meðal hinna handteknu er húsvörður skólans.
ja aðrar heimildir af stórútgerðinni.
Kannski að það hafi verið tilgangurinn
allan tímann,“ sagði Ilinrik.
Þegar hann var spurður aftur
hvort ábyrgðin sé ekki þeirra sjálfra
að vita af Iögum en vona að þau komi
aldrei til framkvæmda, sagði hann:
„Ég held að menn almennt hafi horft
til þess að með endurskoðunarnefnd-
inni kæmi fram vilji til að byggja
landið. Það vita allir, sem vilja, að af-
koma sjávarplássanna byggist á veið-
um og vinnslu. Við munum taka fulla
ábyrgð á okkar fjárfestingum. Ef
þjóðin tekur þá ákvörðun að leggja
sjávarplássin í eyði þá er hreinlegra
að gera það skýrt og skorinort - ekki
murka úr okkur lífið.“
sme@frettabladid.is
Italía:
Hringur
barnaníðinga
leystur upp
Róiyi. ap. ítalska lögreglan handtók í
gær 6 aðila sem sakaðir eru um kyn-
ferðislega misnotkun á tugum barna
sem öll ganga í sama skóla í Róma-
borg. Á meðal hinna handteknu eru
húsvörður skólans, fyrrverandi lög-
regluþjónn og tveir sjúkraliðar. Telur
rannsóknarlögreglan að allt að 50
börn hafi verið misnotuð. Voru allir
hinna handteknu sakaðir um nauðgun
auk þess sem sumir þeirra eru einnig
sakaðir um skipulagningu á barna-
vændi.
Á meðan 8 mánaða rannsókn
málsins stóð uppgötvaði lögregla til-
vist samtaka sem nefnast Frelsis-
hreyfing barnaníðinga, en þau hafa á
stefnuskrá sinni að berjast gegn and-
stæðingum kynferðislegrar misnotk-
unar á börnum. ■
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 (þróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 19 Útvarp 21
Kveikt í aftur á sama stað:
Nöturlegt
Ikveikja Kveikt var í póstkössum í
Flúðaseli í Breiðholti í gær og þurfti að
kalla út slökkvilið til að slökkva eldinn.
Þetta er í annað sinn sem kveikt er í
þessum sama stigagangi, en í nóvem-
ber síðastliðnum var bensíni hellt í
stigaganginn sjálfan að næturlagi og
kveikt í. íbúum hússins er því eðlilega
brugðið. „Þetta er heldur betur nötur-
legt að lenda í þessu. Þetta rifjast allt
upp fyrir manni aftur,“ segir íbúi í hús-
inu. „Það vildi til að þetta var á þessum
tíma dags og fólk á ferli. Það mátti ekki
miklu muna því rúða sem er á milli
andyrisins og stigagangsins var
sprunginn af hitanum. Lögreglan segir
að það sé tilviljun að kveikt sé í aftur á
sama stað, en við eigum bágt með að
trúa því. Maður er mjög órólegur.“
Skemmdir urðu af völdum sóts og
BRUNNIR PÓSTKASSAR
Póstkassarnir voru illa brunnir. Tveir menn
voru dæmdir fyrir fyrri íkveikjuna en þeir
sitja nú inni.
reyks í andyrinu, en að sögn slökkviliðs
var búið að slökkva eldinn þegar það
bar að. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu lá enginn undir grun og ekki
talið að tengsl séu á milli þessarar
íkveikju og hinnar fyrri, en málið er í
rannsókn.■
| FÓLK |
Vona að þeir bestu séu
Tekur yfir
100.000 myndir
SÍÐA 14
ÞETTA HELST
Þroskaþjálfar telja að sex leikskólar
í borginni brjóti verkfall þeirra
með því að senda ekki ekki börn sem
verið hafa í umsjá þroskaþjálfara
heim á meðan verkfalli stendur. bls. 2.
—4—
Colin Powell utanríkisráðherra
Bandaríkjanna hvatti í gær ísra-
elsmenn og Palestínumenn til þess
að rjúfa vítahring ofbeldisins. Hann
lýsti sig fylgjandi friðartillögum
nefndar undir forystu George
Mitchell, sem gerðar voru opinberar
í gær. bls. 2.
—0—
Byggingarnefnd Þjóðleikhússins
vill byggja 100 fermetra bráða-
brigðahúsnæði undir leikmunadeild
við gafl Þjóðleikhússins. Meirihluti
skipulags- og byggingarnefndar
borgarinnar er málinu fylgjandi.
bls. 6.