Fréttablaðið - 22.05.2001, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 22. maí 2001
Frumsýning:
Karlmenn
í krísu
leikhús Um hádegið í dag verður leik-
ritið Rúm fyrir einn frumsýnt í Há-
degisleikhúsinu í Iðnó. Leikritið ger-
ist í rúmaverslun í Reykjavík þar
sem nýfráskilinn maður ætlar að
kaupa sér rúm og lendir á trúnó með
afgreiðslumanninum. Rúm fyrir einn
fjallar um karlmenn í krísu. Píkan
hefur fengið málið en sögurnar sem
hún segir eru ekki allar sannar.
Hverju eiga karlmenn að trúa?
Hvenær er konan fullnægð?
Sýningar verða í hádeginu, húsið
opnar klukkan tólf og þá er matur
borinn á borð, en hann er innifalinn í
miðaverði. Stuttu síðar hefst sýning-
in sem stendur í tæpa klukkustund. ■
SÝNINGAR________________________
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic í
Austurstræti og er þetta er fyrsta einka-
sýning Ara. Þema sýningarinnar á Atlant-
ic er islenski fáninn. Gengið er inn frá
Austurvelli.
Ljósmyndasýningin Varnarsamstarf í 50
ár stendur nú í Þjóðarbókhlöðunni.
Sýningin er haldin í tilefni þess að 50 ár
eru liðin frá gerð varnarsamnings Is-
lands og Bandaríkjanna. Hún er sam-
starfsverkefni utanríkisráðuneytisins og
varnarliðsins á íslandi og veitir yfirlit yfir
þróun varnarmála undanfarin 50 ár.
Sýningin stendur til 6. júní.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
stendur yfir í Gerðubergi. í vetur hafa
þeir unnið undir handleiðslu hugsjóna-
mannsins Marteins Sigurgeirssonar og
afraksturinn hangir á veggjum Gerðu-
bergs. Sumar myndanna eru Ijóðskreytt-
ar aðrar segja sjálfar allt sem segja þarf.
Sýningin stendur til 2. júní.
IVtYNPLIST______________________
Sumarsýning Listasafns íslands, And-
spænis náttúrunni, var opnuð um helg-
ina. Á henni eru verk eftir ísendinga í
eigu safnsins og fjallar hún um náttúr-
una sem viðfangsefni ísienskra lista-
manna á 20. öld. Verkin á sýningunni
eru eftir marga af helstu listamönnum
þjóðarinnar á nýliðinni öld, frá Þórarni
B. Þorlákssyni til Ólafs Elíassonar. Opið
frá kl. 11 til 17 alla daga nema mánu-
daga. Sýningin stendur til 2. september.
í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni,
opnaði um helgina sölusýning á um 80
verkum eftir marga af fremstu lista-
mönnum landsins. Á sýningunni eru
m.a. málverk eftir Ásgrím Jónsson, Jón
Stefánsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Gunn-
laug Scheving, Gunnlaug Blöndal, Finn
Jónsson, Jón Engilberts og hátt á annan
tug málverka eftir Jóhannes S. Kjarval.
Einnig eru á sýningunni abstraktverk
eftir Guðmundu Andrésdóttur, Karl
Kvaran, Svavar Guðnason og Valtý Pét-
ursson. Loks eru teikningar og vatnslita-
myndir eftir ýmsa listamenn svo sem
Snorra Arinbjarnar, Flóka, Jón Engilbert
og þrykk eftir þekkta erlenda listamenn
svo sem Robert Jakobsen og Bram van
de Velde. Sýning þessi er í samvinnu
Listasafns Kópavogs og Guðmundar Ax-
elssonar. Hún opin alla daga nema
mánudaga frá 11 - 17 og lýkur laugar-
daginn 2. júní.
Svipir lands og sagna nefnist sýning á
verkum Ásmundar Sveinssonar sem
opnuð var um helgina í Listasafni
Reykjavíkur Ásmundarsafni. Á sýning-
unni eru verk sem spanna allan feril
listamannsins og sýna þá þróun sem
varð á list hans í gegnum tíðina. Safnið
er opið daglega 10-16 og stendur sýn-
ingin til 10. febrúar á næsta ári.
liisisisuy
sisssmssn
iiIiiiSiSISS
HÁSKÓLI ÍSLANDS * 191 1 - 2001
Viltu stunda nám í
sagnfræði, íslensku,
heimspeki, málvísind-
um, bókmenntafræði,
táknmálsfræði eða
einhverju erlendu
tungumáli?
Kennarar og nemendur
sitja fyrir svörum um nám
í heimspekideild á 2. og 3.
hæð í Nýja Garði
í dag þriðjudaginn 22. maí
kl. 15:00-18:00
Sjá nánar: www.hi.is
VEIST ÞÚ HVAR SKAL LEITA?
Getur verið að þú
sért villtur þegar kemur að því að velja bestu leiðina
til að vekja athygli á fyrirtæki þínu. Góðar merkingar eru besta leiðin
til þess að auðvelda viðskiptavinum þínum að finna þig.
Nota bene hf. hefur um árabil verið leiðandi í hönnun og framleiðslu merkinga
og skreytinga, hvort sem um er að ræða smíði stórra Ijósaskilta, framleiðslu
sérhæfðra innréttinga eða prentun lítilla merkinga. Sem dæmi um verk,
sem Nota bene hf. hefur unnið má nefna breytingar á Nýkaupsverslunum,
Ijosaskilti Kringlunar, smíði neonljósastanda fyrir 10-11 og merkingar verslana,
innan og utanhússmerkingar verslana Símans, Popeye's, Hagkaups,
Tals ofl. ofl.. Við bjóðum upp á alla almenna skiltasmíði, glugga
og bílamerkingar, hágæðaprentun í yfirstærðum og silkiprentun límmiða.
Á.VtfrÍKUH ÓOCI
nota bene
SÚÐARVOGUR 6 104 REYKJAVÍK SÍMI 533 2444 FAX 533 2445 WWW.NOTABENE.IS