Fréttablaðið - 22.05.2001, Side 6
Ekki enn búið að leigja
út öll pláss í Smáralind
Samið hefur verið um 85% hússins. Leigutími að meðaltali 11,6 ár. Meðalleiga er um 4 þúsund krónur á fermetra
á mánuði. Svipaður kostnaður og hjá verslunum í Kringlunni.
verslun Smáralind mun opna 10. októ-
ber n.k. og að sögn Pálma Kristins-
sonar, framkvæmdastjóra Smára-
lindar, gengur ágætlega að leigja út
þau pláss sem standa til boða. Búið er
að ganga endanlega frá samningum
fyrir 85% af húsnæðinu og aðrir
samningar eru komnir langt á leið.
Leigutími er að meðaltali 11,6 ár.
Flestir leigja til 10 ára, stórir aðilar
til 15 ára og svo einstakir til 25 ára.
í húsinu verða 80-90 verslanir og
þjónustufyrirtæki á tæpum 39 þús-
und fermetrum. í heild er stærð hús-
næðisins 62 þúsund fermetrar. Sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðsins
er meðalverð leigunnar 4 þúsund
krónur fermetrinn, á mánuði, en
svæðunum er skipti í þrjú hólf þar
sem A er dýrasti hlutinn.
Verslunareigandi í Kringlunni,
sem er í samningaviðræðum við
Smáralind, segir að erfiðlega gangi
að leigja síðustu plássin. Hann segir
líklegt að eignarhaldsfélagið gefi
verslunareigendum afslátt af lista-
verði til að tryggja að öll pláss verði
fyllt þegar verslunarmiðstöðin verð-
ur opnuð. Niðursveiflan nú verður til
þess að Smáralind þurfi að mæta
minnkandi eftirspurn eftir leiguhús-
næði með því að lækka verð.
Gunnar Henrik Gunnarsson, ann-
ar eigandi Augans í Kringlunni, segir
leiguverð í Kringlunni og Smáralind
svipað. Þrátt fyrir einhvern samdrátt
í verslun núna þá er þétt íbúðarbyggð
ákveðin trygging fyrir auknum við-
skiptum. ■
STÆRSTU HLUTAHAFAR SMARALINDAR EHF.
Olíufélagið hf.
Byko hf.
Saxhóll ehf.
Bygg ehf.
Skeifan 15 sf.
Baugur hf.
Gaumur ehf.
Forsetafrúr frá tíu
Afríkuríkjum:
Minna á
alnæmis-
vandann
kicalí. RÚANDA. ap „Ég kom til Rúanda
til þess að ræða um HlV-veiruna og
alnæmi, en þegar ég leitaði að smokk
á hótelherberginu mínu fann ég eng-
an,“ sagði Simone Ehivet Gbagbo,
forsetafrú Fílabeinsstrandarinnar, á
fundi með forsetafrúm tíu Afríku-
ríkja sem haldinn var í Rúanda í gær.
„Ef ég finn tannkrem á hótelher-
bergi, þá á ég að finna smokk þar
líka,“ hélt hún áfram. Markmið
kvennanna með fundinum var að
IALAU TÆPITUNGULAUST
Stella Obasanjo frá Nígeriu og Sophie Bu-
yoya frá Búrúndí storka eiginmönnum sín-
um á fundinum í Rúanda.
hreyfa við eiginmönnum sínum, leið-
togum Afríkuríkja sem hingað til
hafa flestir forðast að taka á alnæm-
isvandanum sem tröllríður álfunni.
Talið er að 17 milljónir Afríkubúa
hafi látist af völdum alnæmis frá því
1981. ■
Munaðarleysingjar í Flórída hafðir á geðlyfjum:
Lítið vitað um
aukaverkanir
heilsa. Dæmi eru um að munaðar-
lausum börnum á stofnunum á veg-
um Flórída-fylkis séu gefin geðlyf án
þess að nauðsynlegar rannsóknir
hafi verið gerðar á þeim aukaverk-
unum sem þau geta haft á yngsta ald-
urshópinn, að sögn CBS-fréttastof-
unnar, sem undanfarið hefur rakið
alvarleg dæmi um afleiðingar lyfja-
notkunarinnar fyrir börn og ung-
linga. Einkum er þar um að ræða
geðlyfið Risperdal sem rannsóknir
benda til að geti haft langvarandi
slæm áhrif á taugakerfi fullorðinna í
1 af hverjum 6 tilfellum. Rannsóknir
á áhrifum lyfsins á börn liggja hins
vegar ekki fyrir.
Þrátt fyrir að bandaríska lyfjaeft-
irlitið hafi lýst yfir áhyggjum vegna
þessa hefur notkun þess til barna
aukist að undanförnu. Þá hefur fram-
leiðandi lyfsins, Johnson & Johnson,
gefið út að Risperdal sé ekki mark-
aðssett með börn í huga.
Carolyn Salisbury, lagaprófessor
við Miami-háskóla, undirbýr máls-
höfðun vegna þessa. Hún segir að
óvenjulega miklum fjölda munaðar-
lausra barna séu gefin geðlyf á borð
við Risperdal. Hefur hún áhyggjur af
því að hluti barnanna hljóti varanleg-
an taugaskaða sem lýsa sér til dæm-
is í ósjálfráðum handahreyfingum og
vöðvakippum. ■
22. maí 2001 ÞRIÐJUDAGUR
LOGEGLUFRETTIR
Helgin var erilsöm hjá lögregl-
unni í Hafnarfirði, Garðabæ og
Bessastaðahreppi. Unglingar söfnuð-
ust saman í Heiðmörk og þar voru
unnin mikil skemmdarverk á þjón-
ustuhúsum fyrir ferðalanga. A staðn-
um voru handteknir 10 unglingar,
sem grunaðir eru um að vera aðilar
að skemmdarverkunum og einnig að
hafa fíkniefni í fórum sínum. Málið
er í frekari rannsókn. Þá voru brotn-
ar allmargar rúður í Engidalsskóla
og er það mál einnig í rannsókn.
Níu umferðaróhöpp voru tilkynnt
til lögreglu. Á Hafnarfjarðarvegi
lentu fjórir bílar í árekstri og var
einn fluttur á slysadeild. I Hafnar-
firði tók 16 ára unglingur bifreið föð-
ur síns traustataki og endaði öku-
ferðin á ljósastaur.
SPURNING DAGSINS
Hvað ætlar þú að gera í þing-
hléinu?
FRETTABLAÐIÐ
Tasmaníu-eyjar við Ástralíu:
í byrjun júní fer ég til
Danmerkur að sitja að-
aifund og ráðstefnu Al-
þjóðasambands hjúkr-
unarfræðinga, en Ijóst er
að ég verð endurkjörin í
stjórn samtakanna á
þeim fundi. Eftir það
ætlar fjölskyldan að
slappa af í viku í sumarhúsi á Jótlandi. Stuttu
eftir heimkomuna munum við fylgja 8 ára syni
okkar, sem er Fylkisgaur, á Pollamótið í Eyjum.
Svo er stefnan að fara í tvo hestatúra í sumar. í
fyrri ferðinni förum við Fjallabak-syðra með fé-
lögum okkar og í hinni er stefnan tekin á túr
fyrir norðan, í Skagafirðinum. Einnig mun
drjúgur tíma fara í að skoða þau mál sem ég
hef verið að flytja í vetur og ekki voru afgreidd
í vor og undibúa þingstörfin.
Ásta Möller er 44 ára þingmaður Reykvíkinga fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Hún er hjúkrunarfræðingur að
mennt og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum
á því sviði.
Ullarpeysur
handa mörgæsum
dýravernd. Um eitt þúsund litlar ull-
arpeysur verið sérprjónaðar fyrir
mörgæsir á ástralska eyjaklasanum
Tasmaníu til að búa þær betur fyrir
veturinn, að sögn norska dagblaðsins
Aftenposten. Eiga peysurnar að
vernda mörgæsirnar gegn kulda og
olíumengun sem nokkuð hefur borið
á undanfarin ár.
Mörgæsirnar áströlsku hafa úr
nokkrum litum og gerðum að velja
þegar kemur að vetrartískunni.
Þannig geta sérlega pjattaðar mör-
gæsir fengið peysur sem líta út eins
og smókingföt. Þrátt fyrir augljósan
hag sem mörgæsirnar litlu hafa af
peysunum eru þær þó ekki mjög
þakklátar og segja aðstandendur upp-
átækisins að þær vildu fegnar sleppa
við klæðnaðinn. Dýraverndunarsinn-
ar eru hins vegar ákveðnir í því að
hafa vit fyrir mörgæsunum og telja
þeir að peysurnar veiti þeim nauð-
synlega vernd gegn menguninni. ■
ERFITT LÍF HJÁ MÖRGÆSUM
FYRIR SUNNAN
Hinir ófleygu vinir Tasmaníubúa eru í
hættu vegna mengunar sem gerir
þær berskjaldaðri fyrir vetrarkuldum.
BARNAKALL
Bono á orðið fjögur börn.
m 1
U2-fjölsFyldunni:
Bono eignast
dreng
ap. dublin Bono, söngvari írsku hljóm-
sveitarinnar U2, hefur eignast sitt
fjórða barn. Ali eiginkonan hans átti
dreng á spítala í Dublin í gær og var
Bono viðstaddur fæðinguna. Sam-
kvæmt talsmanni sjúkrahússins
heilsast móður og barni vel. Bono og
Ali eiga áður dæturnar Jordan, ellefu
ára, og Eve, átta ára, auk sonarins
Elijah sem er tveggja ára gamall. ■
Gasský í Þýskalandi:
100 manns
þurftu hjálp
berlín. ap. Meira en 100 manns þurftu
að ieita sér læknishjálpar eftir að
sprenging í BASF-efnaverksmiðju
olli gasskýi yfir Vestur-Ludwigs-
hafen í Þýskalandi í gær. Meðal þeir-
ra sem þurfni aó leita sér læknis-
hjálpar voru 50 leikskóla- og grunn-
skólabörn. Um 50-60 starfsmenn
verksmiðjunnar voru einnig fluttir á
sjúkrahús. Enginn er í lífshættu, en
flestir þjást af ertingu í húð, augum
og öndunarvegi. íbúum í borginni
var ráðlagt að hafa allar hurðir og
glugga lokaða á meðan gasskýið
leystist upp. Einnig var íbúum í ná-
grenni verksmiðjunnar ráðlagt að
skola öll leikföng og húsgögn sem
voru utandyra í dag með vatni. Ekki
er vitað hvað olli sprengingunni í
verksmiðjunni. ■
4
STUTT [
5 sæta ATR-42 skrúfuþota var
send í sjúkraflug frá Isafirði.
Þetta kemur fram á vef Bæjarins
besta. Beðið var um sjúkraflug frá
ísafirði til Reykjavíkur. Á sumrin er
engin vél til staðar á ísafirði og þarf
þvi að fljúga frá Reykjavík. íslands-
flug hefur verkið með höndum en í
gær var eina Dorniervél félagsins í
skoðun. „Þetta er náttúrlega dýrasta
lausnin," segir Einar Birgisson hjá
íslandsflugi í samtali við Bæjarins
besta.
Fimm ökumenn voru stöðvaðir,
grunaðir um ölvun við akstur og
þrjú innbrot voru kærð til lögreglu
um helgina. Auk þessa höfðu lög-
reglumenn afskipti af 37 ökumönn-
um vegna umferðarlagabrota, þar af
8 vegna hraðaksturs.
SVIPAÐ LEIGUVERÐ
Leiguverð í Smáralind er að meðaltali svipað og í Kringlunni. Þó eru dýrustu plássin þar dýrari en annars staðar.