Fréttablaðið - 22.05.2001, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 22. maí 2001
FRETTABLAÐIÐ
7
Tölvugeirinn:
Tæknival og Aco
að sameinast
viðskipti í gær ákvað stjórn Tækni-
vals að ganga til viðræðna við Aco
um sameiningu fyrirtækjanna. Með
sameiningu þeirra yrði til stærsta
tölvu- og upplýsingatæknifyrirtæki á
landinu, segir í fréttatilkynningu,
með tæknilausnir og búnað frá Sony,
Cisco, Compaq, Fujitsu Siemens,
Apple, Microsoft, Panasonic og
Thomson, auk fjölda annarra viður-
kenndra aðila. „Með sameiningu yrði
jafnframt rennt sterkari stoðum und-
ir reksturinn þannig að fyrirtækin
standist betur þær sveiflur sem ríkja
í íslensku starfsumhverfi. Stjórnend-
ur telja einsýnt að með því náist frek-
ari hagræðing í rekstri fyrirtækj-
anna.“ segir ennfremur. ■
Nýju tóbaksvarnarlögin:
Sígarettur seldar í brúnum pokum
tóbakssala Töluverðar breytingar
eru framundan hjá kaupmönnum
þegar nýju tóbaksvarnarlögin koma
til framkvæmda 1. ágúst n.k. Þá verð-
ur m.a. óheimilt að hafa sígarettur og
aðrar tóbaksvörur sýnilegar í versl-
unum. Emil B. Karlsson verkefna-
stjóri Samtaka verslunar og þjónustu
bendir m.a. á að það geti verið erfitt
að koma í veg fyrir það vegna þess að
þessar vörur verða sýnilegar um leið
og þær séu réttar yfir afgreiðslu-
borðið. Það sé kannski hægt að koma
í veg fyrir það með því að afgreiða
þær í „brúnum" pokum eða einhverju
álíka umbúðum."
Verkefnastjóri samtaka smásölu-
kaupmanna segir að þar fyrir utan
hefðu menn gert athugasemdir við
tvo aðra þætti í umsögn sinni þegar
frumvarpið um tóbaksvarnarlögin
voru til meðferðar hjá Alþingi. Fyrir
það fyrsta óttast kaupmenn að það
geti valdið þeim erfiðleikum við
starfsmannahald að 18 og yngri sé
óheimilt að afgreiða viðskiptavini um
tóbak. Þá sé viðbúið að margir kaup-
menn þurfi að fjárfesta í nýjum inn-
réttingum. Hann áréttar þó að kaup-
menn séu stuðningsmenn átaksins
gegn sölu tóbaks til unglinga. ■
TÓBAKSVÖRUR HVERFA ÚR HILLUM
Margir kaupmenn þurfa að fjárfesta í
nýjum innréttingum þegar þeim verður
óheimilt að hafa tóbaksvörur sýnilegar
viðskiptavinum sínum.
Verkfallið í Hafnarfirði:
Vafi um úrslit
kjaramál Verkfallsfólk í Verkalýðsfé-
laginu Hlíf greiðir atkvæði um miðl-
unartillögu ríkissáttasemjara í dag,
frá klukkan 9 -19. Þá um kvöldið verða
atkvæði talin hjá
sáttasemjara. Sigurð-
ur T. Sigurðsson for-
maður Hlífar segir að
þótt hann muni mæla
með samþykkt tillög-
sigurður t. unnar sé hann beggja
sigurðsson blands um það hvort
Beggja blands hún muni njóta meiri-
um viðtökur fé- hlutafylgis hjá þeim
lagsmanna tæplega 400 félags-
mönnum sem hafa verið í verkfalli í
vikutíma hjá Hafnarfjarðarbæ. Það sé
m.a. vegna þess að verðlagshækkanir
hirða að mestu jafnóðum þær kaup-
hækkanir sem samið er um. ■
Genealogia Islandorum
og ættfræðigrunnur IE:
Hundruð
milljóna krafa
ófrágengin
dómsmál Málarekstur Genealogia Is-
landorum (GI) og Þorsteins Jónsson-
ar ættfræðings gegn fslenskri erfða-
greiningu (ÍE) og Friðriki Skúlasyni
ehf. vegna mein-
tra ólögmætra af-
nota af ættfræði-
gögnum, sem Þor-
steinn og GI telja
sig eiga höfundar-
rétt að, gengur
hægt. GI og Þor-
steinn Jónsson
krefjast 293 millj-
óna króna í bætur
en ÍE og Friðrik
Skúlason neita
allri sök.
í ágústlok í
fyrra staðfesti
Hæstiréttur þá
ákvörðun héraðs-
dóms að sam-
þykkja beiðni Þor-
steins og GI um
dómkvaðningu
matsmanna til að
meta hvernig ÍE
og Friðrik Skúla-
son hefðu staðið
að gerð ættfræðigrunns. Þorsteinn
og GI telja að ÍE hafi í ábataskyni og
með aðstoð Friðriks Skúlasonar sleg-
ið inn í tölvu lögverndaðar upplýsing-
ar úr ýmsum ættfræðiritum sem
unnin séu upp úr frumgögnum af
Þorsteini Jónssyni og öðrum fræði-
mönnum.
Að sögn Ragnars Aðalsteinssonar,
lögmanns GI, hafa matsmennirnir
enn ekki lokið starfi sínu og verður
því bið á framhaldi málsins þar til
þeir hafa lokið gagnaöflun sinni.
Eins og kunnugt er hefur starfs-
mönnum Genealogia Islandorum ver-
ið sagt upp og þeir sendir heim vegna
erfiðleika í rekstri fyrirtækisins.
gar@frettabladid.is
TRYGGVI pét-
URSSON.
Stjórnarformaður
Genealogia Island-
orum hefur sent
starfsfólkið heim en
fyrirtækið heldur
enn í vonina um
300 milljóna króna
skaðabætur frá ÍE
og Friðriki Skúla-
syni.
„Stílbrot og fáræði“ í
byggingu við Þj óðleikhús
Skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkurborgar er klofin í afstöðu til viðbyggingar undir leikmunadeildina
við Þjóðleikhúsið. Um eitthundrað fermetra timburhús með Steni-klæðningu.
þjóðleikhúsið Byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins hefur óskað eftir leyfi til
að byggja 100 fermetra bráðabrigða-
húsnæði undir leikmunadeild leik-
hússins. Meirihluti skipulags- og
byggingarnefndar borgarinnar hefur
tekið jákvætt undir þessa beiðni en
Óskar Bergsson varaformaður
nefndarinnar er ekki sömu skoðunar.
í bókun hans kemur m.a. fram að
þessi viðbygging sé engan veginn
samboðin Þjóðleikhúsinu. Þar segir
einnig að það sé bæði „stílbrot og fá-
ræði“ að ætla að „tjasla" þessari við-
byggingu upp án þess að heilstæð
Iausn liggi fyrir hvar stækkunar-
möguleikar Þjóðleikhússins liggja.
Hann segist ekki vera á móti því að
byggt sé við leikhúsið þegar það sé
gert af myndarleik og metnaði.
Ráðgert er að reisa þetta bráða-
birgðahúsnæði áfast við Þjóðleikhús-
ið að austanverðu um leið og leyfi
fæst hjá borgaryfirvöldum. Aætlað-
ur kostnaður er talinn geta numið 6-8
milljónum króna. Þarna er um að
ræða timburhús með Steni-klæðn-
ingu. Árni Johnsen formaður bygg-
ingarnefndar Þjóðleikhússins gefur
—&— ekki mikið fyrir
gagnrýni varafor-
manns skipulags-
og byggingar-
nefndar enda sé
þarna um bráða-
birgðahús að ræða
sem ætlað er að
leysa úr brýnni
þörf á sem hag-
kvæmastan hátt. í
því sambandi bend-
ir hann á að menn
hafi stundum þurft
að geyma leik-
Það sé bæði
„stílbrot og fá-
ræði" að ætla
að „tjasla" þess-
ari viðbyggingu
upp án þess að
heilstæð lausn
liggi fyrir hvar
stækkunar-
möguleikar
Þjóðleikhússins
■'ggja.
—4_.
myndir úti vegna plássleysis.
Hann telur einnig að viðbyggingin
muni falla mjög vel að húsinu, enda
sé það verk unnið í samráði við Húsa-
meistara ríkisins og þá arkitekta sem
komið hafa að öðrum endurbótum
sem gerðar hafa verið á leikhúsinu.
Hann segir ýmsar hugmyndir á döf-
inni um hvernig best verður staðið að
frekari aðgerðum og stækkun á Þjóð-
leikhúsinu sem hann segir að upphaf-
lega hafi verið byggt sem „bíó- og
fundarhús“ á sínum tíma. Hann segir
að áætlað sé að það muni kosta eitt-
hvað á annan milljarð króna að koma
sjálfu leikhúsinu í viðunandi horf.
PLÁSSLEYSI UNDIR LEIKMYNDIR
Þjóðleikhúsið hefur þurft að geyma leik-
myndir sínar í gámum eða jafnvel úti
vegna skorts á rými innandyra. Úr því á að
leysa með áfastri viðbyggingu úr timbri.
Hins vegar sé óvíst hvenær fjárveit-
ing fæst til þess.
grh@frettabladid.is
Austfirðir:
Þrjú kyn-
ferðisbrota-
mál til
rannsóknar
kynferðisafbrot Rannsóknardeild lög-
reglunnar á Eskifirði hefur undanfar-
ið unnið að rannsókn þriggja mála þar
sem talið er að ungar stúlkur hafi ver-
ið misnotaðar kynferðislega.
Tvö málanna hafa þegar verið
send til ríkissaksóknara sem tekur
ákvörðun um ákæru og sagði Jónas
Vilhelmsson lögreglufulltrúi að þrið-
ja málið yrði væntanlega sent sömu
leið í kringum næstu mánaðamót.
Málin sem hafa verið send til ríkis-
saksóknara áttu sér stað á Fáskrúðs-
firði að því er fram kemur á frétta-
vefnum Skjávarpi en að sögn Jónasar
FÁSKRUÐSFJORÐUR
Tvær stúlkur hafa kært afa sinn fyrir kyn-
ferðislega misnotkun. Stúlka hefur kært
nágranna fyrir áreitni.
átti þriðja málið sér stað í öðru sveit-
arfélagi en málin eru ótengd. í öðru
málanna á Fáskrúðsfirði hafa frænk-
ur á unglingsaldri kært afa sinn fyrir
grófa misnotkun en í hinu málinu er
rúmlega fimmtugur maður sagður
hafa sýnt unglingsstúlku kynferðis-
lega áreitni. I þriðja málinu er svo
um grófa og ítrekaða misnotkun á
ungri stúlku að ræða.
Að sögn Jónasar hafa undanfarinn
áratug komið upp tvö slík mál á ári að
meðaltali en hluta þess tíma hafi um-
dæmið verið mun stærra en það er i
dag. ■
Nemendur í Lækjarskóla:
Vantar 25 kennsludaga
Kennarasamband Is-
lands:
Réttindi í
crunnskóli Nemendur í Lækjarskóla í
Hafnarfirði fá ekki tilskilinn
kennsludagafjölda samkvæmt grunn-
skólalögum. Kennsla á að standa yfir
í 170 daga á hverju skólaári en eru
bara 165 samkvæmt kennsluáætlun
Lækjarskóla hjá yngstu bekkjar-
deildunum.
Þröstur Harðarson, sem á sæti í
foreldraráði Hafnarfjarðar, segir að
nemendur í 1. bekk hafi byrjað í skól-
anum tveimur dögum of seint. Einnig
vantar þrjár kennslustundir í stunda-
töfluna sem samsvarar 18 kennslu-
dögum yfir skólaárið. Þegar þetta er
lagt saman vantar 25 kennsludaga
upp á til að skólinn kenni lögbundinn
fjölda skóladaga.
Þröstur segir að orsökin sé meðal
annars plássleysi í skólanum. Lækj-
arskóli er elsti skóli í Hafnarfirði og
hefur ekki vaxið í takt við fjölda
barna sem þangað sækja nám. Verið
er að byggja annan skóla í nágrenn-
inu og er áætlað að fyi'stu nemend-
i «k *m <tk iia .» •» ib í
u n » ■■ n n n ii ii it ii
tl II II !l II1
>• ai n n it J
a aavu
LÆKJARSKÓLI
Börn i yngstu bekkjardeildum Lækjarskóla
fá ekki tilskilinn kennsludagafjölda sam-
kvæmt grunnskólalögum.
urnir gangi þar inn haustið 2002, sem
mun leysa húsnæðisvandamál skól-
ans í hverfinu. ■
uppnámi
áslandsskóli Kennarasambands ís-
lands hefur formlega óskað eftir við-
ræðum við íslensku menntasamtökin
um gerð kjara-
samnings fyrir
kennara og skóla-
stjóra Aslands-
skóla. Eiríkur Jóns;
son formaður KÍ
segir að án kjara-
eiríkur samnings muni
jónsson for- verðandi kennarar
maður kí t.d. ekki njóta rétt-
Ekkerf svar við ;n(ja í A-deild lífeyr-
vikugamalli ósk. issjóðS opinberra
starfsmanna. Um vika er síðan sam-
bandið kom þessari ósk sinni á franv
færi við íslensku menntasamtökin. í
gær hafði sambandið ekki fengið
nein viðbrögð frá íslensku mennta-
samtökunum við þessai'i bréflegu
ósk sinni. ■