Fréttablaðið - 22.05.2001, Blaðsíða 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
22. maí 2001 ÞRIÐJUDAGUR
Rússland:
Kafbátnum Kúrsk
lyft af hafsbotni
HÁSKÓLAFRÉTTIR
Einkunnarskilasíða Stúdenta-
ráðs hefur skilað bættum ein-
kunnaskilum til nemenda. í janúar
eftir jólaprófin var ljóst að ein-
kunnum var skilað of seint í 21
prósent tilvika. Þetta hlutfall var
32 prósent í vorprófunum 2000.
Einkunnaskil höfðu því batnað um
34 prósent. Líklegt að hlutfallið
hafi verið umtalsvert hærra áður
en einkunnaskilasíðan var sett á
laggirnar, en hún starfar nú í
fjórða sinn. Því er árangurinn í
raun enn meiri. Ástæða þess að
síðunni var komið á fót er óá-
nægja stúdenta með það hve
margir kennarar Háskóla íslands
draga að skila einkunnum þótt
skýrt sé kveðið á um það í reglu-
gerð það skuli gert innan þriggja
vikna frá prófi.
rotterdam. ap. Nú er loks er komið að
því að gera tilraun til að sækja kaf-
bátinn Kúrsk af hafsbotni og hafa
Rússar fengið hollenskt fyrirtæki til
verksins, þegar rúmt ár er liðið frá
því hann sökk til botns í Barentshafi.
um 300 kílómetra norður af Noregi. I
nóvember sl. sóttu kafarar lík 12
áhafnarmeðlima en alls fórust 118
rússneskir sjóliðar með kafbátnum.
Kúrsk vegur 18.300 tonn og liggur á
108 metra dýpi.
Hollenska fyrirtækið, Mammoet
Transport BV, reiknar með því að
lyfta kafbátnum upp að pramma,
sem síðan muni flytja hann til hafn-
ar í Murmansk. Rússar hafa neitað
því að kjarnavopn séu um borð í
bátnum og einnig lýst því yfir að
ekki sé hætta á mengun frá kjarna-
ofnum hans, þeir hafi slökkt á sér
sjálfkrafa þegar báturinn sökk.
Reiknað er með að verkefninu ljú'ki
næsta haust. ■
SVONA GERUM VIÐ ÞAÐ
Mikhail Barskov, aðstoðaryfirmaður her-
mála í Rússlandi, kom I sjónvarp og sýndi
teikningu af þvf hvernig kafbátnum Kúrsk
verður náð af hafsbotni.
Ný kínversk rannsókn:
Grænt te gott
fyrir magann
heilsa. Grænt te getur komið í veg fyr-
ir alls kyns magakvilla og jafnvel fyr-
irbyggt magakrabbamein, samkvæmt
nýrri kínverskri rannsókn sem
Reuters-fréttastofan segir frá. Þetta
ættu að vera góðar fréttir fyrir marga
íslendinga, en gríðarieg aukning á
neyslu tesins hefur orðið á undanförn-
um mánuðum, að sögn Eddu Þorleifs-
dóttur, starfsmanns í Te og Kaffi við
Laugaveg. Þeir s^m hafa verið svo
gæfusamir að veljt hið meinholla te
hafa ef til vill gert það vegna þess að
það er bæði kalk- og sieinefnaríkt, auk
þess að innihalda A, B og C vítamín.
Varia hafa þeir vitað af kínversku
rannsókninni, en samkvæmt henni
gætu læknar beinlínis notað grænt te
sem fyrirbyggjandi meðferð hjá þeim
serr falla i áhættuhópa vegna maga-
kvilla.
600 Kínverjar tóku þátt í rannsókn-
inni sem leiddi í ljós að helmingi minni
líkur voru á magakrabbameini eða
magasári hjá þeim sem völdu græna
teið fram yfir það svarta. „Rannsóknin
gefur til kynna að notkun græns tes
sem fyrirbyggjandi meðferðar dregur
úr magakrabbameini þegar til lengri
tíma er litið,“ segir Dr. Zuo-Feng Zhang
vísindamaður við Kaliforníuháskóla.
Ekki er með öllu ljóst hvernig grænt te
verndar magann en Zhang bendir á að
teið innihaldi svokölluð andoxunarefni,
sem hjálpi til við að lækna skemmdar
frumur í maganum. ■
EKKERT EINS OG TEBOLLI
Grænt te er frábrugðið svörtu tei að því
leyti að telaufin eru ekki gerjuð og halda
þau ferskleika sínum betur.
W&mmm fré f&nái ímór fósf í iiinitf if ei*f«
Tæknilegar upplýsingar eru á
www.sandurimur.is
isanpur imuR
Viðarhöfði 1,110 Reykjavík.
Sími: 567 35 55 • Myndsendir: 567 35 42 • www.sandurimur.is
áJÉBÍfiÍ
Hraö
25 kg
íslenskar, há-
gæða blöndur
fyrir íslenskar
aðstæður.
f
1S5ÍI,
ISnfalt að velja og noto
Sandur ímúr býður íslenska framleiðslu, þróaða fyrir íslenskar aðstæður: sprautumúr, múrblöndur,
viðqerðarblönaur, gólfflot, límblöndur, þunnhúðir oq ýmsar blöndur. Allar umbúðir frá Sandi (múr eru
0 skýrum notkunarleiðbeiningum og öllum nauðsynlegum upplýsingum.
mei
Talibanar:
Loka skrif-
stofum
Sameinuðu
þjóðanna
kabúl. ap. Stjórn Talibana í Afganistan
lokaði í gær skrifstofum Sameinuðu
þjóðanna í fjórum borgum landsins.
Gripið var til aðgerðanna í mótmæla-
skyni við refsiaðgerðir gegn stjórn
Talibana sem eru íslamskir harðlínu-
menn. Lokunin í borgunum Kandah-
ar, Herat, Mazar-i-Sharif og Jalabad
er í samræmi við ákvörðun stjórn-
valda Afganista sl. mars. Þá kröfðust
Talibanar þess að fá að opna skrif-
stofur í New York og Pakistan sem
lokað hafði verið vegna refsiaðgerða
S.þ. en þeirri kröfu hefur ekki verið
svarað. ■
SAMBUCETTI PÁFI LEIDDUR TIL SÆTIS
Þriggja daga fundur kardinála og páfa
hófst í gær.
Kardinálar í Róm:
Funda um
framtíðina
vflnKANiD. ap. Fjölmennasti fundur kar-
dinála kaþólsku kirkjunnar hófst í
Róm í gær. Að sögn Vatikansins voru 1
155 kardinálar af 183 komnir saman
en þeir hyggjast ræða málefni kaþ-
ólsku kirkjunnar. Margir telja að kar-
dinálarnir ætli sér að nota tækifærið
og koma sér saman um arftaka Jó-
hannesar Páls páfa II sem er 81 árs
gamall og hrumur mjög. Fundir kar-
dinála hafa tíðkast síðan 1141, það
þótti hins vegar tímanna tákn í gær
að í miðri þögulli bæn í athöfn í gær
hringdi farsími eins kardinálans. ■
Glæpur og refsing
í Arabíu:
Hálshöggnir
fyrir morð
ap. sflUDi-flRABifl Tveir Saudi Arabar
voru hálshöggnir í gær fyrir þátttöku
sína í tveimur morðum, samkvæmt
tilkynningu frá innanríkisráðherra
Saudi Arabíu. Badr bin Mukhlid bin
Auwid al-Ausimi al-Autibi var fund-
inn sekur um að stinga Akla bin Abid
bin Ayid al-Mahimzi al-Rashidi mörg-
um sinnum með hnífi í kjölfar rifrild-
is milli mannanna tveggja.
Muhammad bin Saleh bin Saleeh al-
Autiani al-Autibi var hinsvegar sak-
felldur fyrir að skjóta Muhammad
bin Seif bin Radi al-Makati al-Autibi í
borginni Arar. Hinn seki dró upp
byssu í kjölfar rifrildis milli mann- I
anna. 43 Saudi Arabar hafa verið
hálshöggnir á þessu ári. í fyrra voru
alls 125 manns hálshöggnir í landinu.
Aftökur fara fram á opinberum vett-
vangi og er viðkomandi hálshöggvinn
með sverði. ■
| HAFNARFJÖRÐUR |
Menningarmálanefnd Hafnar-
f jarðar hefur veitt 30 aðilum
styrki úr sjóði til menningar- og
listastarfsemi. Meðal þeirra eru
Kvennakór Hafnarfjarðar, Lúðra-
sveit Tónlistarskólans, Kammer-
sveit Tónlistarskólans, Söngsveit
Hafnarfjarðar, Gaflarakórinn,
Kór eldri Þrasta, Tríó Reykjavík-
ur, Kór Hafnarfjarðarkirkju, Col-
legium Musicum, hljómsveitin
Úlpa, Ásgeir Long, Botnleðja,
Kvikmyndasafn fslands, Leikfé-
lag Flensborgarskólans, María Ei-
ríksdóttir, félagsmiðstöðin Setrið
og Vestnorræna menningarhúsið.
AP/MASSIMO