Fréttablaðið - 22.05.2001, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 22. ma( 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
POKEMON 5 (tsL tal)
CHERRY FALLS
jSAVETHE LASTDANCE kl.8og lO-lsllíel
|NY1 STÍLUNN KEISARANS (ísl. tal) H. 5.5Ö1|1?|
fl02 DALIVIATÍUHUNDUR (isl. tal) kl. 3.50j jl?|
IPOKEMON 5 (isLtal)
CROUCHING TIGER.
Itraffic
[DRACULA 2001
|MEN OF HONÖR
^ P Q. ^ *vl
HVERFISCÖTU SÍMI 551 9000
www.skifan.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10
jDRUNGEONS AND DRAGONS kl. 6.8 QglO [
Sýnd kl. 5, 8 og 10:30
jBLOW kl. 5.30, 8 og 10.301
Ienemy at the gates kl. 8 Og 10.30 j
|the wedding PLANNER kl. 5.501
'jbb/
LAUCAVECI 94, SIMI 551 6500
KRINGLU :&j
Synd kl. 5.45, 8 og 10.15 vitho
kl. 5.40, 8 og Í0.20W
PAY IT FORWARD
Patsy Kensit, leikkonan knáa, hef-
ur tekið boði um að koma fram í
gamanþáttaröðinni Beðmál í borg-
inni eða Sex And
The City, sem sýnd-
ir voru á RÚV en
eru nú komnir í
sumarfrí, mörgum
til mikils ama.
Þættirnir eru með
þeim vinsælli í
Bandaríkjunum og
hirtu þeir m.a.
nokkur verðlaun á Golden Globe
verðlaunaafhendingunni á dögunum.
Söng- og leikkonan Cher og Alec
Baldwin munu einnig koma fram í
þáttaröðinni en aðalhlutverkið er að
vanda í höndum Söruh Jessicu Park-
er. Þetta verður stærsta hlutverk
Kensit, sem nú er 33 ára, frá því hún
skildi við söngvara hljómsveitarinn-
ar Oasis, vandræðagemsann Liam
Gallagher. Hjónaband hennar við
söngvarann kostaði hana hlutverk
Emily, hinnar ensku eiginkonu Ross,
í þáttunum um Vini. Liam Gallagher
vildi ekki að hún ynni í Bandaríkjun-
um þegar þau voru gift. Við hlut-
verki hennar í Vinum tók Helen
Baxendale.
í BÍÓ
THE MUMMY RETURNS_______________
Bandarísk Regnboginn
Handrit: Stephen Sommers
Leikstjóri: Stephen Sommers
Aðalhlutverk: Brendan Fraser, Rachel
Weisz, John Hannah,
Arnold Vosloo, Patricia
Velazquez og tíu milljón
tölvuteiknaðir púkar,
skrímsli og forynjur
Ævintýri, grín
og rómantík
Stundum koma spútnikar upp
úr annarri deild; það gerði B-
myndin Múmían fyrir tveimur
árum. Hollywood stóð á öndinni
og leikstjórinn Stephen Sommers
fékk aukalykil að peningaskápn-
um hjá Universal og mátti búa til
múmíur og pýramída og tölvu-
djöfla að vild til að Múmían tvö
yrði sannkallaður sumarsmellur
árið 2001, sannkölluð Múmía í
öðru veldi.
Og dæmið gengur upp. Stans-
laus keyrsla frá upphafi til enda,
ævintýri, grín og jafnvel smá
rómantík. Allt er þetta saklaust
og blóðslettulaust ævintýr um
átök góðs og ills og engin leið að
villast á því hverjir eru góðir og
hverjir vondir í þessari mynd.
Þráínn Bertelsson