Fréttablaðið - 22.05.2001, Qupperneq 24
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur augiysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VISIi'-IS Fyrstur með fréttirnar
OPH> VIRKA DAGA KL B-19 • LAUGARDAGA Kl. 10-16
Skeifunni 17, 108 Reykiavík I
Sími 550 4100
Furuvöllum 5, 600 Akureyrí |
Tæknival
Negldur vegna
dekkjanna
Um daginn kom fram í fjölmiðl-
um að lögreglan í Reykjavík
hefði stöðvað 15 ökumenn sama eft-
irmiðdaginn fyrir að aka um á
nagladekkjum. Þetta var tveimur
vikum eftir að sumar gekk í garð
samkvæmt gömlu íslensku tímatali
og blíðskaparveður í borginni, enda
hefur sumarið verið fremur snjólétt
það sem af er. Þetta átak lögregl-
unnar er svo sem ekki í frásögur
færandi, en er mér þó ofarlega í
huga þar sem það snerti mig með
beinum hætti. Ég var einn þessara
15 brotamanna og þar sem ég vissi
upp á mig skömmina og hafði ekkert
mér til málsbóta var ekki um annað
að ræða en að játa brotið og lofa bót
og betrun.
Ég er sem sagt í hópi þeirra öku-
manna sem nota nagladekk á bílinn.
Naglarnir veita mér ákveðið öryggi
þegar allra veðra er von og aksturs-
skilyrði geta breyst
á örskömmum
tíma. Af þeim sök-
um er ég lítið hrif-
inn af hugmyndum
borgaryfirvalda i
Reykjavík um að
stemmt verði stigu
við notkun nagla-
dekkja með sér-
stökum skatti.
Markmiðið er að draga úr sliti á göt-
um borgarinnar og minnka svifrik í
lofti, sem er í sjálfu sér góðra gjal-
da vert. Hins vegar er sérstök skatt-
lagning alltof harkaleg aðferð til að
ná þessu fram, sérstaklega ef afleið-
ingin verður minna öryggi vegfar-
enda.
Naglarnir veita
mér ákveðið ör-
yggi þegar allra
veðra er von og
akstursskilyrði
geta breyst á
örskömmum
tíma.
Fyrir utan öryggisþáttinn þarf líka
að huga að því hvernig á að fram-
kvæma skattlagninguna. Ég held að
það muni reynast afar erfitt. Á að-
eins að skattleggja Reykvíkinga
með þessum hætti eða á skatturinn
að ná til landsins alls? Hvernig á að
leggja skattinn á? Hvernig á að
fylgjast með því hverjir hafa greitt
hann og hverjir ekki? Munu öku-
menn neyðast til að skipta um dekk
í hvert sinn sem þeir fara yfir borg-
armörkin á veturna þegar óvarlegt
er að fara ónegldur um þjóðvegina?
Svo má lengi telja. Einhvern veginn
hef ég á tilfinningunni að menn
muni komast að þeirri niðurstöðu að
svona aðgerð sé ekki fyrirhafnar-
innar eða kostnaðarins virði. ■
Tilbúnar grindur
200x167 cm 9.948 kr.l
í skjólveggi
Pantaöu hugmyndarbæklinginn Sælureit á
www.husa.is eða hringdu í síma 525 3000.
7.458 kr. 1
HÚSASMIÐJAN
Húsasmiðjan er leiðandi i sölu og þjónustu á girðingar- og pallaefni.
Við kynnum nýjung sem eru tilbúnar grindur f skjólveggi.
Sími 525 3000 • www.husa.is
NN
TIL HAMINGJU! ÞU V
TAKK FYRIR AÐ REYNSLUAKA SUZUKIWAGON R
FJÖLNOTABÍLNUM SEM KEMUR SVO SKEMMTILEGA Á ÚVART
VINNINGSHAFI LUKKUPOHSINS IGÆR ER:
Valgerður Óla Þorbergsdóttir, Breiðvangi 55, Hafnarfirði
(Vinningsins skal vitja í Garðheimum, Stekkjarbakka 6, Mjódd.)
Hver vinnur á morgun? Komdu í reynsluakstur!