Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 17
IVIIÐVIKUDAGUR 13. júní 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
I3CI*
Imemento
[traffíc
SNORRABRAUT 37. SÍMI 551 1384
Sýnd kl. 6, 8 og 10
SOMEONE LIKE YOU kl. 6, 8 og 101
ICET OVER IT kl. 6, 8 og 101
ITOMCATS kl. 8 og 10|
KIRIKOU kl.6|
Sýndkl. 4, 6, 8ogt0 235
[VALENTINE kl. 8 og 10|[&I(
[SPOT ki. 4 og
|POKEMON 3 (Isl. tal) u:i\m
|SAY rr ISN'T so kl. 6, 8og 101
|THE CRIMSON RIVERS kl. 8 og ío.ioj
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
ISPYKIDS kl.4,6,8og 10
ÍTOMCATS kl. 4,6, 8 og 10
UNDIR GEISLANUM
Upprisa Air
Franski dúettinn Air hefur alltaf
verið í miklu uppáhaldi hjá mér.
Fyrri diskar hljómsveitarinnnar,
Moon Safari og Premier
Symptomes eru einhverjar bestu
plötur sem ég hef hlustað á. Ég var
kominn á þá skoðun að ef ég færi
einhvern tímann til Frakklands og
sæti þar með rauðvínsglas í hendi,
hlytu hinir ljúfu tónar sveitarinnar
að leika um mig líkt og heit sjávar-
gola. Slík var vellíðanin. Þegar
Virgin Suicide, þriðji diskur sveit-
arinnar, kom út varð ég fyrir mikl-
um vonbrigðum og taldi Frakk-
landsdrauminn fyrir bí. En sem
betur fer hafa þeir gefið út nýjan
disk er ber nafnið 10,000 Hz
Legend. Dúettinn fær ýmsa lista-
menn til liðs við sig þar á meðal
meistara Beck Hansen í laginu The
Vagabond en lagið, ásamt Radio #1,
hefur fengið mikla spilun í útvarps-
stöðvum hér á Iandi. Diskurinn er
AIR:_________ íqOQOHlLKEND
talsvert frábrugðinn fyrra efni Air
og munar þá helst um þau lög sem
fyrrnefndur gestur kemur við
sögu. Það gerir þó ekki diskinn
verri hlustunar og í raun bara fjöl-
breyttari, því enn má finna hina
ljúfu tóna líða um líkt og þegar Air
er uppá sitt besta. 10,000 Hz
Legend endurvekur allar mínar
gömlu kenndir og aðeins eitt hægt
að segja um þennan disk. Snilldar-
verk.
Kristján Hjálmarsson
Hljómum hanTpað í Mojo:
íslenskt fríkbít
í manna minnum
tónust Mojo er enskt
tónlistartímarit sem
gefur öðruhverju út
aukablað með fortíð-
arfíklaefni: Mojo
Collections. í því
nýjasta er „sækadel-
íutímabilið" tekið
fyrir og heitir ein
greinanna Freak-
beat! The birth of
British Psychedelia.
Að loknum stuttum
inngangi velur
greinarhöfundur 50
bestu fríkbít-lögin
og meðal þeirra eru
2 sem íslendingar
eru viðriðnir. Lagið I
don’t care með Thor’s Ilammer er í 24.
sæti á Fríkbítlistanum, en á íslandi
hét þessi sveit Hljómar! Lagið kom út
í litlu 6 laga albúmi með lögum úr
Hljóma-myndinni Umbarumbamba.
Hin hljómsveitin hét Syn og er í 46.
sæti með lagið Grounded. í henni
trommaði Gunnar Jökull Hákonarson
(síðar m. Hljómamönnum í Trúbroti).
Nefna má að Troggs og Jimmy Page
er í 20. og 21. sæti
á listanum, en fáir
aðrir eru í manna
minnum.
B í t - m ú s í k
nefnist tónlistin
frá fyrstu frægð-
arárum bresku
Bítlanna og sveita
í þeirra stíl, fram
til 1965.
Hugvíkkunar-
tónlistin (sæka-
delían/sýrurokk-
ið) lætur fyrst á
sér kræla árið '67.
Um svipað leiti
kom fram tónlist-
artegund sem
ekki fékk nafn fyrr en árið 1984, er
útgáfufyrirtækið Bam-Caruso gaf út
safnplötu með sjaldgæfum smáskífu-
lögum frá 7. áratugnum. Freakbeat
var það kallað á plötuumslaginu.
Nafnið er skýrskotun í hið brjálaða bít
sem einkennir lögin, tilraun tónlistar-
mannanna til að rífa sig frá Bítlunum
og búa til eitthvað nýtt.
Andrea Jónsdóttir
THOR'S HAMMER
I don't Care er í 24. sæti yfir 50 bestu
fríkbit lögin.
MOLTA OG
MOLTUBLANDA
MOLTAN er allt í senn magnaður áburður og heilnæmur
jarðvegsbætir, hvort sem er í beð, fyrir tré eða á
grasflötina. M0LTAN er rík af lífrænum efnum og helstu
næringarefnum fyrir allar plöntur. M0LTAN er einnig
tilvalin í matjurtarækt.
MOLTUBLANDA er sambland af M0LTU og úrvals
gróðurmold. Hana má nota beintvið gróðursetningu,
t.d. á sumarblómum í beð og blómaker.
Á umbúðum M0LTU og M0LTUBLÖNDU eru góðar
leiðbeiningar um notkun.
MOLTA og MOLTUBLANDA fást í öllum helstu blóma-
og garðvöruverslunum landsins.
Garðamold ehf. íshellu 2,220 Hafnarfirði,
Sími 565 8722, Fax 565 8728
www.firmaskra.is
Frelsi til samskipta
með handfrjálsum búnaði frá Plantronics
i ■ . ■
<
BAND
ÉMPLANTRONICS
frjáls eins og fuglinn
Samband'Samskiptalausntr ehf. | Hlíðasmára 10 | 201 Kópavogui | Simt 569 7100