Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 13. júní 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 19 Nýlistasafnið: Tónar og myndir nýust Myndlistarmenn sem unnið hafa með tónlist og tónlistarmenn sem unnið hafa í námunda við mynd- listarfólk eru í aðalhlutverki á Pólý- fóníu, mikilli hátíð sem nú stendur ýfir í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Ýmsar uppákomur hefjast klukkan átta á hverju kvöldi, en hátíðinni lýk- ur 17. júní með fjölbreyttri dagskrá allan daginn. Verk eftir Magnús Blöndal Jóhannsson tónskáld eru í áberandi hlutverki á hátíðinni og má m.a. njóta þeirra á pallinum á fyrstu hæðinni. Meðal listamanna sem koma fram á hátíðinni eru Egill Sæ- MAGNÚS BLÖNDAL JÓHANNSSON Verk eftir hann eru i stóru hlutverki á Pólýfóníu. björnsson, Biogen, Vindva Mei og Translight 2000 auk þess sem frá Sví- þjóð kemur 14 manna hópur sem kall- ar sig Club Bevil. ■ i Sjóminjasafninu í Hafnarfirði stend- ur handverkssýning Ásgeirs Guðbjarts- sonar. Frá 1. júní til er Sjóminjasafnið opið alla daga frá ki. 13 til 17. Sýningin stendur til 22. júlí. Ljósmyndasýning grunnskólanema stendur yfir I Gerðubergi. i vetur hafa þeir unnið undir handleiðslu hugsjóna- mannsins Marteins Sigurgeirssonar og afraksturinn hangir á veggjum Gerðubergs. Sumar myndanna eru Ijóðskreyttar aðrar segja sjálfar allt sem segja þarf. Opnunartími sýningar er virka daga frá 12 til 17 og stedur sýn- ingin til 17. ágúst. Handritasýning stendur I Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði við Suðurgötu. Sýningin er opin frá kl. 11 til 16 mánudaga til laugardaga til 25. ágúst. MYNDLIST____________________________ Nú stendur yfir I Kaffistofu Hafnar- borgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, sýning á grafíkverkum Magdalenu Margrétar Kjartansdótt- ur. Sýningin samanstendur af skissum og skyssum sem rispaðar eru á kopar-, plast- eða tréplötur með beittum verk- færum. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá klukkan 11 til 17 og hún stendur til 2. júlí. Önnur af sumarsýningum Listasafns Reykjavíkur - Kjarvalsstaða ber nafn- ið Flogið yfir Heklu. Sýningarstjóri er Einar Garibaldi Eiríksson myndlistar- maður og prófessor við Listaháskóla ís- lands. Á sýningunni getur að líta mis- munandi myndir Heklu sem sýndar verða hlið við hlið. Sýningin stendur til 2. september.Margrét Magnúsdóttir sýnir í listhúsi Ófeigs við Skólavörðu- stíg 5. Sýningin samanstendur af mál- verkum og þrívíðum hlutum. Sýningin stendur til 23. júní og er opin á versl- unartfma. Sýningin List frá liðinni öld stendur yfir í Listasafni ASÍ. Á sýningunni eru sýnd öndvergisverk úr eigu Listasafsn- ins. Litið er til fyrri hlutar síðustu aldar og sjónum beint annars vegar að yngri verkum frumherjanna. Sýningin stend- ur til 12. ágúst. Valgerður Björnsdóttir sýnir í sal fé- lagsins íslensk grafik, Tryggvagötu 17, Hafnarhúsinu (hafnarmegin). Svip- myndir úr skólalffinu er myndefni lista- konunnar og teflir hún saman gömlum og nýjum tíma, veltir fyrir sér þróun í skólamálum og spyr hvort áherslur séu þær sömu. Sýningin nefnist Skólalif og er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 14-18. Hún stendur til 17. júní. Sumarsýning Listasafns Sigurjóns Ólafssonar ber yfirskriftina Hefð og nýsköpun. Þar má sjá úrval verka eftir Sigurjón frá þrjátíu ára tímabili, 1930- 60. Safnið er opið alla daga milli klukkan 14 og 17, nema mánudaga. Arnar Herbertsson heldur sýningu á verkum sínum i Listasal Man við Skólavörðustíg 14. Sýningin stendur til 20. júní og er opin á virkum dögum kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18. Sýning kvennahópsins Mosaik 2001 á mósaíkverkum stendur í Listmunahúsi Ófeigs við Skólavörustíg. Hópurinn hefur unnið undir leiðsögn Kuregej Argunova. Sýningin Norrænir hiutir opnaði um helgína í Norræna húsinu. Á sýning- unni eru verk listamanna frá Dan- mörku, Finnlandi, íslandi og Noregi. Sýningin er liður í átaki sem nefnist Hin nýju Norðurlönd. Sýningin er opin daglega frá kl. 12 til 17, nema mánu- daga. Sumarsýning Lista- safns fslands nefnist Andspænis náttúr- unni. Á henni eru eingöngu verk eftir Isendinga f eigu safnsins og fjallar hún um náttúruna sem viðfangsefni ís- lenskra listamanna á 20. öld. Verkin á sýningunni eru eftir marga af helstu listamönnum þjóðar- innar á nýliðinni öld, frá Þórarni B. Þor- lákssyni til Ólafs Elíassonar. Opið frá kl. 11 til 17 alla daga nema mánudaga. Aðgangur er ókeypis á miðvikudögum. Sýningin stendur til 2. september. Svipir lands og sagna nefnist sýning á verkum Ásmundar Sveinssonar sem opnuð var um helgina í Listasafni Reykjavikur Ásmundarsafni. Á sýn- ingunni eru verk sem spanna allan feril listamannsins og sýna þá þróun sem varð á list hans f gegnum tíðina. Safnið er opið daglega 10-16 og stendur sýn- ingin til 10. febrúar á næsta ári. Sýning Hrafnkels Sigurðssonar stendur í galleríi i8, Klapparstig. Sýnd eru nýjustu verk Hrafnkels af tjöldum f fslensku vetrarumhverfi. Sýningin er opin þriðjudaga til laugardaga kl. 13- 17 og stendur til 16. júní. Á meðan eitthvað er að gerast hér, er eitthvað annað að gerast þar nefnist sýning á verkum Bandaríkja- mannsins John Baldessari sem stend- ur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Hafn- arhúsi. Hann er eitt af stóru nöfnun- um í samtímalistasögunni og hefur verið nefndur Ijóðskáld hinnar öfug- snúnu fagurfræði og húmoristi hvers- dagsleikans. Sýningin er opin 11-18 og fimmtudaga til kl. 19. Sýningin stendur til 17. júnf. Norðmaðurinn Gisle Nataas hefur opnað sýningu á Mokka-kaffi við Skólavörðustíg. Sýninguna nefnir listamaðurinn Eitt andartak og þrjár samræður og fjallar hún um hreyfingu og rými. Ljós og skugga. Sambandið á milli mynda og samræðna og þau áhrif sem hlutirnir hafa á rýmið. Vorhefti Skímis: Víðförlir íslendingar bókmenntir Vorhefti Skírnis, tíma- rits Hins íslenska bókmenntafélags er komið út með fjölbreyttu efni að vanda. Á átjándu öld lögðu tveir ís- lenskir alþýðumenn heiminn að fót- um sér og ferðuðust hvor í sínu lagi alla leið til Kína. Þeir Eiríkur víð- förli og Árni Magnússon frá Geita- stekk skrifuðu síðan báðir ferða- sögur sínar, en um þær og fleiri ferðasögur fjallar Steinunn Inga Óttarsdóttir. Sigurður Pétursson leitar einnig svara við því hvort lærðar konur á íslandi á fyrstu öldunum eftir siða- skipti hafi náð máli ef þær eru metnar á forsendum evrópskra húmanista á þeim tímum. Fleira forvitnilegt er í tímarit- inu, því Davíð Logi Sigurðsson velt- ir því fyrir sér hvort Sambands- lagasamningur íslands og Dan- merkur árið 1918 hafi að einhverju leyti verið fyrirmynd fullveldis á írlandi þremur árum síðar. Kristján Karlsson er skáld Skírnis að þessu sinni og Gunnar Harðarson fjallar um Eggert Pét- ursson, myndlistarmann Skírnis. ■ Banamein Mozarts: Purkormar í svínakjöti? tónsnillincasaca Til eru a.m.k. 150 tilgátur um dánarorsök tónsnillingsins Mozarts. Sú nýjasta er að hann hafi látist úr svonefndri fleskormaveiki, sjúkdómi sem stafar af fleskormum eða purkormum úr sýktu kjöti. Nánar tiltekið úr snöggsoðnu svínakjöti, að því er bandaríski læknirinn Jan V. Hirschmann fullyrðir og WOLFGANG AMADEUS MOZART telur sig hafa býsna sterk rök. „Hvaða ilmur er þetta? ... svínakótelettur! Che Gusto. Ég snæði þér til heilla," skrif- aði Mozart í bréfi til konu sinnar 44 dögum fyrir andlát sitt. Dr. Hirschmann telur að þarna hafi Mozart verið að snæða svínakjötið með pur- kormunum sem urðu honum að bana. Meðgöngutími sjúkdómsins er einmitt allt að 50 dagar og ein- kennin passa nákvæmlega við lýs- ingarnar á síðustu vikum Mozarts: hiti, útbrot, beinverkir og bólgur. Meðal annarra dánarorsaka sem nefndar hafa verið til sögunnar eru gigtarsótt, nýrnasteinar, hjartasjúk- dómur, lungnabólga og jafnvel eitr- un. Mozart lést í Vínarborg þann 5. desember árið 1791,35 ára gamall. ■ ----------------------------------------------------------\ Hugmyndasamkeppni, H | H um skipulag miðborgar og hafiiarsvæðis við Austurhöfii Að höfðu samráði við samstarfsnefnd ríkis og borgar um tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð og hótel, efnir Reykjavíkurborg til hugmyndasamkeppni um skipulag miðborgar og hafnarsvæðis við Austurhöfn. Keppnissvæðið Keppnissvæðið afmarkast í megindráttum af Suðurbugt / Norðurstig í vestur, Klapparstíg og Ingólfsstræti í austur og Sæbraut, Tryggvagötu og Hafnarstræti. Tilgangur og markmið Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hugmyndir að skipulagi svæðisins sem er um margt sérstakt, áhugavert og einstakt í miðborg Reykjavíkur. Gera má ráð fyrir að byggingar á samkeppnissvæðinu verða mjög áberandi úr ýmsum áttum og ekki ólíklegt að þær geti orðið einskonar "vití" eða tákn miðborgar Reykjavíkur í framtíðinni. Tegund og tilhögun samkeppninnar Samkeppnin er hugmyndasamkeppni. í því felst að útbjóðandi er fyrst 0g fremst að leita eftir grundvallarhugmyndum, tilhögun að skipulagi svæðisins miðað við þá starfsemi sem gert er ráð fyrir að þar verði s.s. tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð, hótel, miðstöð fyrir almenningsvagna svo eitthvað sé nefnt. Verðlaim Heildarverðlaunafé samkeppninnar er kr. 8.000.000. Fyrstu verðlaun verða aldrei lægri en 40% þeirrar fjárhæðar. Auk þess er dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir allt að kr. 2.000.000. Þátttökuréttur Samkeppnin er opin öllum er taka vilja þátt með fyrirvara um tengsl við dómnefndarmenn. Tekið skal fram að það takmarkar ekki rétt til þátttöku hafi aðilar, á fyrri stigum, unnið tillögur af skipulagi svæðisins eða hluta þess enda verða öll opinber gögn og tillögur, sem unnar hafa verið af svæðinu, aðgengileg keppendum á heimasíðu samkeppninnar. Dómnefiid Formaður er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. Meðdómendur eru Inga Jóna Þórðardóttir, borgarfulltrúi, Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi, Ólafur B. Thors, formaður samstarfsnefndar ríkis og Reykjavíkurborgar um tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð og hótel, Albina Thordarson, arkitekt, Sólveig Berg Björnsdóttir, arkitekt og Knud Fladeland Nielsen, arkitekt. Afhending keppnisgagna og þátttökugjald Keppnislýsing verður lálin í té endurgjaldslaust frá og með 13. júní 2001 á skrifstofu Arkitektafélags íslands, Hafnarstræti 9, milli 09:00-12:00 virka daga og í afgreiðslu Borgarskipulags Reykjavíkur, Borgartúni 3, milli 10:00-16:15 virka daga. Hana má einnig nálgast á heimasíðu samkeppninnar, http://www.midborg.net. Önnur keppnisgögn verða afhent gegn skilatryggingu að upphæð kr. 10.000. hjá trúnaðarmanni. Skilafrestur Tillögum skal skila til trúnaðarmanns, á skrifstofu Arkitektafélags Islands að Hafnarstrætí 9, 2. hæð 101 Reykjavík eigi síðar en 5. nóvember 2001. Nánari upplýsingar og samkeppnislýsingu er að finna á heimasíðu samkeppninnar, http://www.midborg.net, sem opnar 13. júní. Upplýsingar verða einnig veittar á skrifstofu Arkitektafélags Islands í síma: 551 1465 milli 09:00-12:00 virka daga og hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur í síma: 563 2340, milli 10:00-16:15 virka daga. Reykjavík, 9. júní 2001. _________________________________________________/

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.