Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 11
IVIIÐVMiUPAGUR 13. júnf 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Aukin innbrot í íbúðarhús yfir sumartímann:
„Nágrannavarsla er ódýrasta og
öruggasta þj ófavarnarkerfið ‘ ‘
Nokia:
Afkomuvið-
vörun
helsinki. ap. Nokia sendi frá sér af-
komuviðvörun í gaer. Samkvæmt
henni verður hagnaður á öðrum árs-
fjórðungi helmingi minni en spáð
hafði verið, eða innan við 10%. Hluta-
bréf í fyrirtækinu féllu um 20% í
verði í kjölfar tilkynningarinnar.
„Undanfarið hafa markaðsskil-
yrði versnað meira en áætlanir okkar
gerðu ráð fyrir,“ segir í yfirlýsingu
framkvæmdastjóra Nokia, Jorma
Ollia. Nokia er stærsti framleiðandi
farsíma í heiminum. Hlutur þeirra
hefur aukist að því er kom fram í yf-
irlýsingunni en farsímamarkaðurinn
mun vaxa lítið í ár miðað við í fyrra
að því er segir þar. ■
forvarnir „Nágrannavarsla er
ódýrasta og öruggasta þjófavarnar-
kerfið fyrir fólk sem ætlar í ferða-
lög,“ sagði Jón Ólafssonar, deildar-
stjóri Sambands íslenskra trygging-
arfélaga, aðspurður um hver væri
helsta forvörnin gegn þjófnaði í íbúð-
arhús yfir sumartímann. „Fólk ætti
að kappkosta við að vera í góðu sam-
bandi við nágranna sína og gæta að
eigum hvors annars þegar farið er í
fríið."
Lögreglan og Samband íslenskra
tryggingarfélaga hafa tekið höndum
saman um að vekja fólk til umhugs-
unar um hvað hægt sé að gera til að
tryggja að ekki sé brotist inn hjá því
þegar það skreppur í sumarleyfi en
að sögn Jóns hafa þessir tveir sam-
starfsaðilar orðið varir við aukna
tíðni tilrauna til þjófnaðar um þetta
leyti.
Jón sagði að fólk ætti að gæta sín
á því að skilja húsið eftir þannig að
ekki sé hægt að lesa utan á því að
engin sé heima. Þetta er hægt að gera
með ýmsu móti m.a. að láta tæma
póstkassann, nota ruslatunnuna, slá
grasflötina og jafnvel kveikja ljós
eða nota sjálfvirka ljósarofa. Einnig
á fólk að gæta sín á því að láta sím-
svara ekki upplýsa að fólk sé að
heiman og jafnframt að ganga
tryggilega frá gluggum og dyrum og
athuga að allur læsingabúnaður sé í
lagi.
Tjón af völdum vatns og raf-
magns fjölgar einnig um þetta leyti
árs vegna ófullnægjandi frágangs.
Mælt er með því að fólk loki fyrir
vatn að þvottavél og uppþvottavél,
gæti að hvort sírennsli sé í blöndun-
artækjum og að niðurföll séu í lagi.
Einnig er ráð að taka raftæki úr sam-
bandi. ■
Ætlar sér að vinna
traust Evrópuþjóða
Fyrsta ferð Bush til Evrópu. Mun ræða mikilvægi eldflaugavarnakerfis og stækkun NATO.
madrid. spáni, ap. Við komu sína til
Spánar í gær lagði Bush áherslu á
mikilvægi eldflaugavarnarkerfis
Bandaríkjanna, stuðning landsins við
stækkun NATO til austurs og að þrátt
fyrir spennu á milli Evrópu og
Bandaríkjanna undanfarið, væru
bandarísk stjórnvöld vinur sem hægt
væri að treysta á. Á Spáni hitti Bush
Juan Carlos, konung landsins og
Soffiu drottningu. Síðan átti hann tal
við Jose Maria Aznar, forsætisráð-
herra auk þess sem hann heilsaði upp
á starfsfólk bandaríska sendiráðsins
í Madrid. f sjónvarpsviðtali reyndi
Bush að sýna færi sína í spænsku, en
tókst ekki allt of vel upp. Bar hann
nafn Aznar, forsætisráðherra Spánar,
fram sem Anzar, auk þess sem mál-
fræði og framburður var ekki upp á
marga fiska. „Ég þarf að æfa mig að-
eins betur í þessu fallega tungumáli,“
sagði Bush til afsökunar.
í dag mun forsetinn hitta aðildar-
þjóðir NATO í Brussel í Belgíu. Við
komu sína til Spánar talaði Bush um
að Bandaríkin styddu NATO dyggi-
lega, en sagði hins vegar að engin
þjóð ætti að hafa neitunarvald um
stækkun sambandsins. Bush mun á
fundinum einnig ræða stöðu mála á
Balkanskaganum þar sem hann mun
tala fyrir áframhaldandi friði.
Þetta er fyrsta ferð Bush til Evr-
ópu frá því hann tók við forsetaemb-
ættinu. Eftir fundinn í Brussel mun
forsetinn á morgun halda til Gauta-
borgar á fund með Evrópusamband-
inu og þvínæst heimsækir hann Var-
sjá í Póllandi.
Á laugardag fer forsetinn síðan
til Slóveníu þar sem hann mun hitta
Vladimir Putin, forseta Rússlands, í
fyrsta sinn. Þar mun Bush reyna að
stríðsins um að Rússland og Banda-
ríkin eigi að stefna í sameiningu að
eyðingu allra varnakerfa til að tryg-
gja frið í heiminum," sagði Bush við
komu sína til Spánar. „Ymsar ógnir
steðja að okkur, aðallega líffræðileg-
ar, efnafræðilegar og úr heimi upp-
lýsingatækninnar." „En okkur er líka
ógnað úr annarri átt,“ sagði Bush,
sannfæra hann um mikilvægi eld-
flaugavarnakerfis í Bandaríkjunum
og að samningur á milli þjóðanna frá
1972 sem kveður á um bann við eld-
flaugavörnum sé úreltur og hamli
frekari þróun varnarkerfa sem
stuðli að því að gera heiminn örugg-
ari. „Við eigum að setja til hliðar
hugarfar okkar frá dögum kalda
KOMIN TIL EVRÓPU
Bush og kona hans Laura veifa til almenn-
ings við komu sína til Spánar.
„og það er sú staðreynd að nú geta
sumar þjóðir beint eldflaugum að
Bandaríkjunum semog öðrum Evr-
ópuþjóðum og þ.a.l. haldið okkur í
gíslingu.“ ■
í HNAPPHELDUNA
Þessi ógurlegi apamaður er á leiðinni í
hnapphelduna þann 16. júni n.k. Áður en
apamaðurinn fær að gifta sig verður hann
þó að leysa nokkrar þrautir sem félagar
hans leggja fyrir hann. Ein þeirra var að
klæðast hjólabuxum og pungbindi einum
fata og hlaupa niður Laugaveginn. Vinir
hans brugðust honum ekki og hvöttu
hann til dáða i jeppabifreið sem fylgdi
honum eftír. Fréttablaðið óskar apamann-
inum og konu hans að sjálfsögðu innilega
til hamingju.
Indónesía:
Suharto veikur
iakarta. ap. Fyrrum einræðisherra
Indónesíu, Suharto, veiktist alvar-
lega í gær. Suharto réði ríkjum í
Indónesíu í 32 ár og hefur verið sak-
aður um gríðarlega mikla spillingu í
valdatíð sinni. Læknar hans sögðu
ástand hans í fyrstu alvarlegt en síð-
ar í gærdag var hann á batavegi.
Suharto var neyddur frá völdum
1998. Ilann hefur verið sakaður um
að hafa dregið að sér milljónir. Hann
hefur notað bágt heilsufar sitt sem
röksemd gegn því að hann mæti fyr-
ir rétt og svari til saka fyrir gjörðir
sfnar. ■
Evrópusambandið:
ESB samþykkir
lög gegn
barnaklámi
STRASBQRG. FRAKKLANDI, AP. StjÓm Evr-
ópusambandsins hefur samþykkt
með miklum meirihluta ný lög gegn
barnaklámi, en barnaklám hefur und-
anfarin misseri verið að vaxa sem
iðnaður í Evrópu. Lögin, sem sam-
þykkt voru með 446 atkvæðum gegn
16, kveða á um stóraukið samstarf
Evrópuþjóða gegn kynferðislegri
misnotkun á börnum. Samkvæmt lög-
unum mega dómar gegn þeim sem
misnota börn undir 16 ára aldri ekki
vera lægri en átta ár. Enn eiga aðild-
arríki ESB eftir að samþykkja lögin,
sem eftir það munu vera notuð sem
fordæmi fyrir dóma gegn þessum al-
varlega glæp. ■
Nú hægir á í upplýsingageiranum
Öflugt fyrirtæki verður til við sameiningu Aco og Tæknivals.
Störfum fækkar um sjötíu.
ÁRNI SIGFÚSSON FORSTJÓRI TÆKNIVALS OG
BJARNI ÁKASON FRAMKVÆMDASTJÓRI ACO
Áætlað er að við sameininguna fækki starfsfólki um 70
manns. Ekki er Ijóst hvort Árni og Bjarni stjórna hinu
sameinaða fyrirtæki; saman eða annar hvor.
viÐSKiPTi Tæknival og Aco eru að
sameinast. Nefnd sem skipuð var
af stjórnum beggja fyrirtækja
leggur til að félögin verði samein-
uð. Frosti Bergsson aðaleigandi
Opinna kerfa sem eiga fjórðungs
hlut í Aco og þriðjung í Tæknivali
segir menn vera að bregðast við
breyttum aðstæðum. „Það hefur
hægt á fjárfestingu í tölvugeiran-
um og við teljum að með þessu
verði auðveldara að reka arðbært
fyrirtæki."
Frosti segir að ekki sé mikil
skörun þessara tveggja fyrir-
tækja við Opin kerfi, en ekki
verði komist hjá því að fyrirtæk-
in keppi á einhverju sviði. „Tæknival
er með BT tölvur og heimilismarkað-
inn og Aco með prentiðnaðinn. Það er
samt aldrei hægt að koma í veg fyrir
einhverja samkeppni sjálfstæðra
fyrirtækja.“
Stefnt er að því að auka hlutafé
Tæknivals sem síðan mun kaupa Aco.
Þetta mun vera spurning um aðferð-
ir, en Árni Sigfússon forstjóri Tækni-
vals segir að fyrirtækin verði
sameinuð á jafnréttisgrunni. Um
270 manns störfuðu samanlagt hjá
fyrirtækjunum um áramót, en
áætlaður starfsmannafjöldi sam-
einaðs fyrirtækis verður 200
manns. Árni segir að hluti fækk-
unarinnar sé þegar komin fram,
þar sem ekki hafi verið ráðið í
stöður sem hafa losnað frá ára-
mótum, en vildi ekki tjá sig að
öðru leyti um ákvarðanir í kjölfar
sameiningarinnar. Ljóst er að ein-
hver fækkun starfsfólks mun fyl-
gja í kjölfarið. Áætluð velta sam-
einaðs félags er um sjö milljarðar
og áætlað markaðsvirði þessara
tveggja félaga er um tveir milljarðar
samkvæmt verðmati íslandsbanka í
maí og er hlutur Tæknivals sam-
kvæmt sama mati um 70% í samein-
ingunni. ■
u Við smíðum fyrir þig %
allt sem smíöa þarf!
Garöpalla, uppsetning
innréttinga og margt
fleira, hringdu og fóöu
aö vita meira ? síma:
689-7919 Jón eða 866-9903 Hákon
FB-MYND: ÓMAR R.