Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 14
HVERNIG FER? Fjórði leikur Philadelphia 76'ers og L.A. Lakers? | FRIÐRIK INGI RÚN- ARSSON, ÞJÁLFARI GRINDAVfKUR OG LANDLIÐSINS Phildelphia jafnar metinn j í kvöld og vinnur með 8- 12 stigum. Iverson verður I heitur. Aaron McKie mun nálgast meðaltal sitt í úr- slitakeppnínni. Liðsheild- in og góður varnarleikur Philadelphia verð- ur til þess að þeir jafna 2-2. LOGI GUNNARSSON LEIKMAÐUR NJARÐVÍKUR Ég held að staðan verði jöfn I einvíginu eftir leik- inn í kvöld. Philadelphia vinnur með fimm stiga mw. v ^./ mun, þeir sýndu það í k - fyrsta leiknum að þeir geta auðveldlega unnið. Heimavöllurinn hefur llka mikið að segja. MOLAR Juan Sebastian Veron, argentínski landsliðsmaðurinn sem leikur með Lazio, gæti verið á leiðinni til Man. Utd. fyrir um 20 milljónir punda. Samkvæmt umboðs- manni leikmannsins munu forráðamenn Man. Utd. og Lazio hittast bráðlega með hugsanleg viðskipti í huga. Lazio setti upphaflega um 40 milljóna punda verðmiða á Veron en vegna deilna um uppruna hans og hugsanlega falsað vegabréf hefur verðið verið lækkað. Veron óttast að honum geti verið vikið úr landi vegna málsins og mun helst ekki vilja þurfa að koma fyrir rétt á Ítalíu vegna þess. Hann hefur verið með ítalskt vega- bréf hjá Lazio og því ekki flokkast sem erlendur leikmaður. Veron sem er talinn vera einn besti miðjuleik- maður heims hefur lýst því yfir að hann vílji fara frá Lazio vegna deiln- anna og er talið líklegt að hann gangi í raðir Man. Utd. Þá hafa orð Sven Gor- an Eriksson, þjálfara enska landsliðs- ins og fyrrverandi þjálfara Lazio, ör- ugglega ekki skemmt fyrir, en hann hefur eindregið mælt með því við Ver- on að hann komi til Englands. Markvörðurinn Chris Kirkland vill ekki fara frá Coventry til Liver- pool. Hann segist ætla að hjáipa Coventry að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina. Kirkland, sem er í U- 21 landsliði Englendinga, var hrósað af knattspyrnustjóra Liverpool, Ger- ard Houllier á dögunum. í kjölfarið heyrðust raddir um að Houllier vildi bjóða Coventry sex milljónir punda til að fá Kirkland sem varamann Hol- lendingsins Sander Westerveld. Hann bíður enn eftir merki frá Coventry um að Kirkland sé á lausu. Frakkinn Mikael Silvestre hefur áhyggjur af því að Suður-Kóreu- búar láti sig vanta á Heimsmeistara- keppnina í knatt- spyrnu á næsta ári. Landslið Frakklands sigraði í Álfukeppni FIFA, sem var hald- in í Suður-Kóreu í síðustu viku. „Þeir hafa lagt mikið á sig, byggt frábæra velli, og skipulagn- ingin er góð. Áhuginn á knattspyrnu er hinsvegar ekki mikill í landinu. Við spiluðum leiki þar sem einungis þriðjungur af vellinum var setinn af áhorfendum. Hvað þeir ætla að gera við vellina þegar keppnin er búin skil ég ekki,“ sagði Silvestre. Forseti Juventus, Vittorio Chiusa- no, staðfesti að þjálfari liðsins, Carlo Ancelotti, hætti í lok leiktíma- bilsins. Hann stað- festa ekki endan- | lega að Marcello j Lippi taki við stöð- unni en sagði [ orðróm þar um [ sannan. „Við skul- um bíða með að tala um það. Það sem skiptir máli núna er að einbeita sér að leiknum á móti Atalanta," sagði Ancelotti. Ef Juvent- us vinnur leikinn, sem er á heima- velli, gæti Jiðið unnið deildina. 14 FRETTABLAÐIÐ 15. júní 2001 MIÐVIKUDAGUR Símadeild kvenna: Stórsigur Grindavíkur knattspyrna Þrír leikir fóru fram í Símadeild kvenna í gærkvöldi. Stjarn- an fór í heimsókn til Vals að Hlíðar- enda, KR-ingar spiluðu við FH að Kaplakrika í Hafnarfirði og Grindavík flaug til Vestmannaeyja og mætti ÍBV á Hásteinsvelli. Stemmningin á Hásteinsvelli hefur eflaust verið góð í gærkvöldi því ÍBV vann Grindavík með sjö mörkum gegn einu. Strax í hálfleik voru stelpurnar í ÍBV búnar að skora fimm mörk gegn engu marki Grindavíkur. Fyrsta mark- ið kom á 24. mínútu. Pauline Hamill skoraði það og hvorki meira né minna en þrjú önnur. Bryndís Jóhannsdóttir og Elva Dögg Grímsdóttir skoruðu ein- nig fyrir IBV. Ólöf Helga Pálsdóttir skoraði fyrir Grindavík en leikmaður liðsins skoraði einnig sjálfsmark. KR-ingar fóru létt með FH, unnu leikinn með þremur mörkum gegn engu. Guðrún Jóna Kristjánsdóttir skoraði tvö mörk, á 4. og 57. mínútu og Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði þeg- ar lítið var eftir af fyrri hálfleik. LEIKIR u J T MÖRK STIG Breiðablik 4 3 1 0 18:6 10 KR 4 3 0 1 22:3 9 Grindavík 4 3 0 1 6:9 9 ÍBV 4 2 1 1 20:7 7 Stjarnan 4 2 0 2 5:7 6 Valur 4 1 2 1 7:6 5 FH 4 0 0 4 1:14 0 Þór/KA/KS 4 0 0 4 3:30 0 Valsstúlkur unnu Stjörnuna með þremur mörkum gegn einu. Rakel Logadóttir, Kristln Yr Bjarnadóttir og Elín Anna Steinarsdóttir skoruðu fyrir Val og Freydís Bjarnadóttir fyrir Stjörnuna. Fyrir leiki gærkvöldsins var Breiðablik á toppi deildarinnar með tíu stig. Breiðablik burstaði Þór/KA/KS GOTT FÆRI Hér sækir Guðný Þórðardóttir, leikmaður Vals, að markmanni Stjörnunnar, Maríu Björg Ágústdóttur, í leiknum að Hlíðarenda í gær. 10-0 í fyrsta leik umferðarinnar um helgina. Eina liðið sem gat náð topp- sætinu var Grindavík, sem var með níu stig. Sú var ekki raunin. ■ Tekst Tiger að sigra 5. stórmótið í röð? Opna bandaríska meistaramótið í golfi hefst á morgun. Keppt verður á Southern Hills golfvellinum í Oklahoma sem er um 6.500 metra langur. Búast má við erfiðum aðstæðum eða um 32 til 38 gráða hita á celsius. GoiF Á sunnudaginn mun koma í ljós hvort Tiger Woods tekst að sigra á sínu 5. stórmóti í röð, en á fimmtu- daginn hefst 101. Opna bandaríska meistaramótið í golfi á Southern Hills golfvellinum í Túlsa í Oklahoma fylki. Golfsérfræðingar telja miklar lík- ur á að Woods takist að skrifa nafn sitt enn einu sinni í golfsöguna, en fram að þessu hefur engum tekist að sigra á 5 stórmótum í röð. Fyrir utan augljósa hæfileika Woods á golfvell- inum þykir völlurinn í Túlsa henta honum vel, þar sem hann er mjög langur eða um 6.500 metrar. Á vellin- um er að finna tvær lengstu holur í sögu Opna bandaríska mótsins, en það er hola 5, sem er rúmlega 600 metra löng par 5 hola og hola 16, sem er um 460 metra löng par 4 hola. Ástæðan fyrir áherslu bandaríska golfsambandsins á aukna lengd valla er sú að golfarar eru sífellt að verða betri, þ.e. bæði sterkari og betur þjálfaðir en áður og einnig eru golf- kylfur sífellt að verða tæknilega fuli- komnari. Þó Southern Hills völlurinn sé langur er líka annað sem golfararnir þurfa -að berjast við og það er hitinn í Oklahoma, en búist er við að hann verði á bilinu 32 til 38 gráður á celsi- us. Einmitt vegna hitans er Opna bandaríska mótið sjaldan haldið í Suðurríkjunum. Önnur ástæða er sú að á hverju ári er haldið eitt stórmót á svæðinu, Masters-mótið í Georgíu fylki. „Það er alltof heitt hérna," sagði Svíinn Jesper Parnevik og hristi höf- uðið. Eftir að hafa eytt góðum tíma á 101" U. S. OPEN CHAMPIONSHIP OPNA BANDARÍSKA 101. Opna bandaríska meistaramótið í golfi hefst á morgun. Nick Faldo vippar hér inn á 18. flötina á æfingu á mánudaginn. æfingasvæðinu á mánudaginn hætti hann við að leika hring. „Ég átti að fara út klukkan fimm, en mér var sagt að það yrði jafnvel enn heitara þá. Þegar ég er staddur í Bandaríkj- unum bý ég í Flórída, en það er aldrei svona heitt þar og í Svíþjóð..." Opna bandaríska meistaramótið verður að mörgu leiti sérstakt. Hinn 59 ára gamli Jack Nicklaus mun ekki vera á meðal þátttakenda, en hann tók fyrst þátt í mótinu árið 1957. Þá mun Tom Watson ekki verða með í fyrsta skiptið síðan 1979. Síðustu sex ár hefur Nicklaus fengið sérstaka undanþágu til þess að fá að vera með á Opna bandaríska, en eftir mótið á Pebble Beach á síðasta ári ákvað hann að hætta þátttöku á mótunum. Hann vildi enda ferilinn á einum af sínum uppáhaldsvöllum. í þau 44 ár sem Nicklaus tók þátt í mótinu sigraði hann fjórum sinnum og varð 9 sinnum á meðal þriggja efstu. Þrátt fyrir að Nicklaus verði ekki með mun fjölskylda hans eiga einn fulltrúa á mótinu. Gary, 32 ára gamall sonur hans, mun verða á með- al þátttakenda í annað skiptið á sín- um ferli. ■ BESTUR Maurice Greene sigraði í 100 m hlaupi í Aþenu á mánudaginn. Ato Boldon varð annar og Bernard Williams þriðji. Grand Prix í Aþenu: Greene hljóp á 9,91 frjAlsar Ifróttir Bandaríkjamaðurinn Maurice Greene, heimsmetahafinn í 100 metra hlaupi, sigraði á Grand Prix frjálsíþróttamótinu í Aþenu á mánu- daginn. Greene hljóp 100 metrana á 9,91 sekúndu, sem er besti tími ársins, en heimsmet hans er 9,79 sekúndur. Ato Boldon frá Trinidad varð í öðru sæti í hlaupinu á 9,97 sekúndum og Bandaríkjamaðurinn Bernard Willi- ams varð þriðji á 10,07 sekúndum. Boldon byrjaði hlaupið best og leiddi fyrstu 80 metrana, en þá seig Greene. Þrátt fyrir sigurinn og besta tíma árs- ins sagðist Greene ekki vera ánægður með hlaupið. „Ég er frekar svekktur," sagði Greene. „Startið hjá mér var hræðilegt.“ Greene, sem fæddur er í Kansas-borg, sagðist vera í góðu formi. Hann ætlar að bæta heimsmet- ið og hlaupa á 9,6 sekúndum á keppnis- tímabilinu. ■ Jagúar og McLaren fyrir dómstóla: Hvert fer besti bíla- hönnuður heims? formúla Baráttan milli Jagúar og McLaren um kappakstursbílahönn- uðinn Adrian Newey fer nú harðn- andi og svo er komið að málið fór komið fyrir dómstóla í London í gær. Jagúar framleiðandinn segir að þeir hafi gert samning við Newey um að hann komi til starfa hjá liðinu þegar samningur hans við McLaren rennur út 31. júlí á næsta ári. McLarenmenn eru síður en svo á þeim buxunum að sleppa hendinni af hönnuðinum. Báð- ir framleiðendur telja sig hafa unnið mál í höndum. ENDURHÖNNUN JAGÚAR? Jagúarliðið hefur sett stefnuna á toppbaráttuna og vill krækja í Adrian Newey. Hann er talinn einn besti bílahönnuður heims. „Staðreyndirnar eru með okkur,“ sagði yfirmaður Jagúarliðsins, Bobby Rahal, en hann og Newey eru aldagamlir vinir frá því að þeir tóku þátt í kappakstri á 9. áratugnum. „Ég er ekki bitur, við gerðum samkomu- lag sem var brotið,“ sagði Rahal. „Því miður þarf það að fara fyrir rétt en ég var sá síðasti sem vildi sjá það gerast. Við verðum samt að leita rétt- ar okkar.“ Newey er talinn einn fremsti bíla- hönnuður heims en bílar hans hafa unnið 12 heims- meistaratitla fyrir Williams og McLaren.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.