Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 16
BESTU VEFSÍÐURNAR ÍSAR LOGI ARNARSSON framkvæmdarstjóri Undirtóna Hugi og nulleinn Maður veit ekki hvort maður á að vera sjálfumglaður og segja undirtonar.is? Nei, en ég vinn við þá síðu og fer mest inná hana. Fyrir utan hana er það sennilega hugi.is og nulleinn.is. Það eru mest lifandi vefsíður landsins og einu síðurnar sem gaman er að. ■ ALGENCUST LEITARORÐIN | Listi yfir þau orð sem voru slegin oftast inn á leitarvélinni www.lycos.com síðastliðna viku Ql Oragonball ► Britney Spears A €? Tattoos ▲ Q}1 Pearl Harbor ▼ Napster A Pamela Anderson ▲ © Final Fantasy ▲ Pokemon ► Baseball A Big Brother T MEIRA FRÁ JAPAN DragonBall Z samanstendur af myndasög- um, teiknimyndum, tölvuleikjum, safn- kortaspilum og leikföngum. DragonBall Z: Nýtt krakkaæði í Bandaríkjunum heimasídur Vefsvæðið lycos.com birt- ir vikulega algengustu leitarorðin á þeirra eign vefsvæði. Þessa vikuna er það orðið DragonBall Z eftir sam- nefndum myndasögum, Anime- teiknimyndum og slagsmálaleikjum. Þetta er í fjórða vikan í röð sem DragonBall Z heldur efsta sætinu en það virðist vera nýjasta krakkaæðið í Bandaríkjunum. Pétur Yngvi Yamagata hjá bóka- og spilabúðinni Nexus segir ekki lík- legt að DragonBall Z nái fótfestu hér á landi. „Við seljum Dragonball myndasögurnar og leigjum út teikni- myndirnar. Þetta er japönsk fantasía sem byggir á asískum mítum, drek- um o.s.frv. Þetta er búið að vera á markaði erlendis í nokkurn tíma. Þetta verður eflaust ekki æði hér heima. Það væri búið að gerast nú þegar,“ segir Pétur. Unglingastjarnan Britney Spears fylgir fast á eftir í öðru sæti en hún hefur lengi verið algengasta leitar- orðið. Skrárskiptiforritið Napster virðist alltaf taka kipp þegar það kemst í fréttirnar en það er í fimmta sæti og er efsta skrárskiptiforritið á listanum. Önnur álíka forrit sem ná að vísu ekki inná topp tíu listann eru Gnutella og Morpheus. Meðal þeirra leitarorða sem sækja stift inn á topp tíu listann eru maríjúana í 20. sæti, Biblían í 18. sæti og WWF í 14. sæti. WWF stendur fyrir World Wrestling Federation en það er fyrirtæki, sem Hulk Hogan fer fyrir og sér um hina sívinsælu sýningarglímu sem stund- uð er í Bandaríkjunum. ■ 16 FRÉTTABLAÐIÐ 13. iúni 2001 MIÐVIKUDAGUR HÁSKÓLABÍÓ Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 V,T 235 ITHE MUMMY RETURNS kL 4,530,8 og lo’3o]pfft| jSAY IT ISN'T SO kl. 6, 8 og 10.15« Sýnd kl. 4, 6 og 8 U,TIM [POKEMON 3 (ísl. tai) ■ ” kuim IVALENTINE m o 2 ISWEET NOVEMBER " ' ki.8lSBl |MISS CONGENIALITY "1141P1 jÉXnWONDS kl. 10.15 IjWll ! NÝl SIÍLUNN KEISARANS (rsL tal) kl. 3.451 |Yfi| FRÉTTIR AF FÓLKI Nú hafa Anne Robinson, Ali G og David og Victoria Beckham náð að komast í orðabók. Þau falla öll und- ir skilgreininguna hver er hver í nýrri útgáfu af Collins Concise English Dictionary. Þetta er í fyrsta sinn í tíu ár sem orðabókin er endurútgefin. MeðaL annarra sem koma fram í bókinni eru George Clooney, Eminem, Tom Cruise og Nicole Kidman en þau sem duttu út eru m.a. David Bellamy, Kate Adie og Ronnie Barker. Svo getur farið að Eddie Murphy taki enn og aftur að sér hlutverk lögreglumannsins Axel Foleys. Að sögn Variety hefur . framleiðandinn Jerry Bruckheimer og kvikmyndafyrir- tækið Paramount Pictures fengið handritshöfund að fjórðu myndinni um lögguna í Beverly Hills. Jason Richman, fyrrum rokkgítarleikari og handritshöfundur fyrir Bruckheimer og Walt Disney, hefur verið fenginn til að skrifa nýtt ævintýri fyrir Foley og félaga. Bruckheimer og samstarfs- maður hans Don Simpson framleiddu fyrstu tvær myndirnar, sú fyrsta kom út árið 1984 og skaut hún Eddie Murphy á stjörnuhimininn. Bandaríska körfuknattleikssam- bandið, jSIBA, hefur fengið hljóm- sveitina Sugar Ray til að spila í hálf- íeik í úrslitarimmu L.A. Lakers og Phildelphia 76'ers. Hljómsveitin mun spila í fimmta leik liðanna og eru þeir þá komnir á sama stall og stærsta hljómsveit heims, U2, sem spilaði í fyrsta leiknum og píurnar úr Dest- iny's Child, koma fram í fjórða leik liðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem NBA fær hljómsveitir til að spila í hálfleik og ætti þetta að vera kær- komin uppbót fyrir þá sem vilja sjá eitthvað meira en karlmenn kasta bolta í hring. Sugar Ray mun spila lögin sín When It’s Over og Every Morning, á föstudaginn kemur. SJÖ ÁRUM SEINNA Ham hefur ekki spilað saman á tónleikum síðan á Tunglinu í júlí 1994. Nú er Tunglið brunnið og Ham spilar á Gauki á Stöng. Ennþá háværastir Ham spilar á þrennum tónleikum í þessari viku. Þeir hafa æft stíft í mánuð °g segjast vera orðnir góðir. tónleikar Háværasta hljómsveit landsins, Ham, heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld og annað kvöld. Á föstudaginn hitar hún upp fyrir Rammstein í Laugardalshöll. Miðar á tónleikana í kvöld seldust upp á nokkrum tímum í síðustu viku, enda á hljómsveitin marga aðdáend- ur, og því ákváð Ham að halda aðra tónleika á morgun. Þetta eru fyrstu tónleikar Ham síðan í júlí 1994. Þá hélt hún víð- fræga lokatónleika á Tunglinu, sem voru teknir upp á myndband og rúlla reglulega í myndbandstækjum víðs vegar um bæinn. Nú er ’lúnglið brunnið og mætti halda að aldurinn sé farinn að færast yfir hljómsveit- armeðlimina. „Útlitsbreytingarnar eru merkilega litlar," segir Björn Blöndal, bassaleikari. Hann kannast ekki við breytingar. „Sjáðu Hljóma þegar þeir voru uppá sitt besta og í dag. Berðu okkur saman við þá. Á hvorum er meiri breyting?" segir Björn og bætir við: „Með fullri og mikilli virðingu fyrir þeim.“ Ham lofar vænni 16 til 18 laga dagskrá á Gauknum en mun styttra á Rammstein-tónleikunum á föstu- dag. Lögin eru öll gamalkunn og þeir segjast ekki spila neitt nýtt. „Við höfum ekki samið lög lengi og ætl- um aldrei að semja aftur saman,“ segir Björn. Þá kemur fáum á óvart að endurhljóðblandanir eru ekki komnar upp á teninginn. „Það var ein hljómsveit sem stal af okkur frasa og gerði það að auglýsinga- stefi" segir Sigurjón Kjartansson, gítarleikari og söngvari, ekki sáttur. Þar vísar hann til lagsins Stick'em up með Quarashi. Björn er frændi Sölva, lagahöfundar Quarashi, en hann kannast ekki við að hafa gefið leyfi fyrir stuldinum. „Hún er farin að teygja sig langt, frændsemin," segir Björn. „Þetta eru samt góðir strákar.“ Félagarnir í Ham eru með fram- tíð hljómsveitarinnar á hreinu. „Þetta eru allra síðustu tónleikar okkar - að eilífu. Það liggur gjörsam- lega Ijóst fyrir. Við lofum því,“ segir Björn. Þeir segja Ham ekki verða með „kombakk” eftir tiu ár. „Fólk áttar sig á því af hverju þegar þessi tíu ár eru liðin,“ bætir söngvarinn Óttarr Proppé við. Hljómsveitin er búin að æfa stíft í mánuð en enginn hefur orðið þess heiðurs aðnjótandi að sjá þá í ham á æfingu. Þeir segja æfingar hafa gengið vel og hljómsveitin haldi þéttleikanum. „Við erum orðnir góð- ir, búnir að setja þá hluti í samhengi sem voru komnir úr samhengi. Þetta var heljarinnar líkamsrækt og pönk. Núna er þetta jafn átakalítið og sunnudagsbíltúr." En munu Ham standa undir nafni sem háværasta hljómsveit landsins? „Absolout! Al- veg tvímælalaust. Kerfið verður keyrt í botn,“ segir Björn að lokum. kristjan@frettabladid.is NABBI wxuesimœssMœsusmsarmismmKiM ismsstsmasmfmia/m

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.