Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 10
f 10 FRÉTTABLAÐIÐ 13. júní 2001 MIÐVIKUDAGUR IlögreglufréttirI Tveir bflaárekstrar urðu í gærmorg- un í Hafnarfirði að sögn lögregl- unnar þar. Annar áreksturinn varð á Álftarnesveginum og hinn við Hafnar- fjarðarbrúna. í báðum tilvikum þurfti fólk að leita sér læknisaðstoðar en meiðsl eru ekki talin alvarleg. Brotist var inn í Gullsmíðaverk- stæði Guðmundar á Laugavegin- um á fimmta tímanum í gærmorgun. Sýningarkassi var brotinn upp og það- an stolið armböndum og hálsmenum að verðmæti um 800 þúsund krónur. Nágrannar verkstæðisins urðu varir við mannaferðir þegar þjófarvarnar- kerfi fór í gang og tilkynntu lögregl- unni. Jafnframt sáu þeir til manna- ferða og að sögn lögreglunnar er nú verið að vinna úr þeim upplýsingum og málið því enn í rannsókn. Ástralía: Ekki gott að gefa villihundum að éta! brisbane. ÁSTRALÍA. flp. Túristar sem heimsækja vinsælt útivistarsvæði á ástralskri eyju, þurfa nú að hugsa sig tvisvar um áður en þeir ákveða að gefa villtum hundum að borða. Sjáist til þeirra mega þeir eiga von á að verða reknir burt frá eyjunni og þurfa að borga þungar sektir fyrir uppátækið, en þessar hörðu aðgerðir yfirvalda þar í landi eru til þess falln- ar að vernda gesti eyjarinnar. Ástæð- an er sú að nýlega lést 9 ára gamall drengur og bróðir hans særðist illa þegar tveir villihundar réðust á þá á Fraser eyju við austurströnd Ástral- íu í aprílmánuði, eftir að þeir reyndu að gefa villihundum mat. Ákveðið hefur verið að ráða fjóra nýja verði til að fylgjast með að allt fari rétt fram og til að sjá til þess að enginn gefi villihundum að éta. Þeir sem hins vegar brjóta reglurnar þurfa að borga þungar sektir upp á rúmar 100 þúsund krónur ásamt því að verða reknir burt af eyjunni. ■ ERLENT Innanríkisráðherra Finna, Ville Itala, var á laugardag kosinn for- maður finnska íhaldsflokksins. Hann tekur við embættinu af Sauli Niinistö, fjármálaráðherra Finn- lands, en Niinistö hefur verið for- maður flokksins í sjö ár. 28 ára gamall kennari lét lífið í Malatya í Tyrklandi þegar sprengja sem komið hafði verið fyr- ir í ruslapoka fyrir utan heimili hans sprakk. Maðurinn, sem býr í fjölbýl- ishúsi, hafði tekið pokann upp til að færa hann frá innganginum að hús- inu þegar sprengjan sprakk í loft upp. Að sögn tyrknesku lögreglunn- ar var þetta rörasprengja, en enn er ekki vitað hver kom sprengjunni fyrir. Ný vara: Godzilla kjöt á markað í Japan tokyo. ap. Þekktasta skrímsli Japana, Godzilla, er nú á leið í búðir þar í landi sem dósamatur. „Godzilla kjöt“, heitir varan, sem í raun er 100 grömm af léttsöltuðu nautakjöti frá japanska leikfangaframleiðandand- um Takara Co., pökkuðu í dós með myndum af risaeðlunni ógnarlegu, sem fyrst kom fram í japanskri kvik- mynd á sjötta áratugnum. „Fólk get- ur nú borðað Godzilla og orðið stút- fullt af orku og lífsgleði, alveg eins og gerðist með Stjána bláa og spínat- ið hans,“ segir talsmaður nýju vör- unnar. Einnig er að koma á markað í Japan með haustinu, Godzilla egg, þar sem hægt er að gæða sér á um 15 niðursoðnum kornhænueggjum. ■ Ógnvænlegt að forseti leggi blessun yfir aftöku Félagar í íslandsdeild Amnesty International bregdast við mannréttindabrotum. Berjast gegn dauðarefsingum. MANNRÉTTiNÐflMÁL „Við gerum ekkert sérstaklega meira úr þessu máli en öðrum, en við berjumst áfram gegn A dauðarefsingum í sjálfu sér, sama hver á í hlut og hver ber ábyrgð á aftökunni“, segir Jóhanna K. Eyjólfsdóttir fram- kvæmdastjóri ís- landsdeildar Am- nesty International um aftöku Timothy McVeigh. Eins og fram kemur hjá al- þjóðasamtökum Am- nesty er það að sjálf- sögðu alvarlegt að árlega fari fram margar aftökur í Þegar fréttir berast af mannréttinda- brotum á borð við af- tökur eða pyndingar eru félögum is- landsdeildar- innar sendar aðgerðabeiðn- ir sem flokkast undir neyðar- kall. —#— JÓHANNA K. EYJÓLFSDÓTTIR Framkvæmdastjóri Islandsdeildar Amnesty International. hinum ýmsu ríkjum Bandaríkjanna og víðar um heim. Hinsvegar sé það sérlega ógnvænlegt við þessa aftöku að það er alríkisdómstóllinn í Banda- ríkjunum og forseti Bandaríkjanna George Bush sem leggur blessun sína yfir slíkan atburð, en slíkt hefur ekki gerst þar síðan 1963. Jóhanna segir að nú beinist sjónir manna að þeim 20 alríkisföngum sem eftir eru og óttast sé að þeir verði teknir af lífi. Næsta skref sé að bregðast við og reyna að koma í veg fyrir yfirvof- andi aftöku Juan Raul Garza, en al- ríkisdómstóll Bandaríkjanna hefur dæmt hann til dauða í Indiana 19. júní n.k. Fordæming íslandsdeildarinnar fer fram á ýmsan hátt, segir Jóhanna. „Dauðarefsingamálin í Bandaríkjun- um eru meðhöndluð hjá okkur fyrst og fremst innan svokallaðs skyndiað- gerðanets, sem um 100 af 2000 félög- um erú þátttakendur í.“ Þegar fréttir berast af mannrétt- indabrotum á borð við aftökur eða pyndingar, eru þessum félögum ís- landsdeildarinnar, eins og félögum um allan heim, sendar aðgerðabeiðn- ir, sem eins og í tilfelli alríkisfanga Bandaríkjanna flokkast undir neyð- arkall. Þess er þá farið á leit við þá sem virkir eru í bréfaskriftum, að þeir sendi stjórnvöldum í viðkom- andi landi bréf, þar sem farið er fram á að tiltekið mannréttindabrot verði ekki að veruleika. Þetta hafa félagar í Amnesty International verið að gera um allan heim á degi hverjum, sagði Jóhanna. ■ I Múrblöndur fyrir sprautu- og dæluvélar. Hagkvæmt að velja og nota liMÉ IgS Mft iwJ 1""*^ Sandur Imúr framleiðir margar gerðir múrblandna fyrir sprautu- og dæluvélar meðal innimúr, rappmúr, trefjamúr, áferðamúr og nokkrar gerðir af flotmúr til gólfílagna. annars: Utimúr, sanDuriruuR Tæknilegar upplýsingar eru á www.sandurimur.is Viðarhöfði 1,110 Reykjavík. Sími: 567 35 55 • Myndsendir: 567 35 42 • www.sandurimur.is Vörurnar fró Sandi ímúr fúst í öllum helstu byggingavöruverslunum Nokkrir særðust lítillega: Sprengja sprakk í bíl spánn. ap Nokkrir særðust lítillega þegar að sprengja sprakk í bifreið í borginni Logrono á Norður-Spáni í gærmorgun. Sprengjan sprakk 45 mínútum eftir að lögreglan fékk sím- tal þar sem sagt var frá því að sprengja myndi springa í borginni. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í hvítri Fiat-bifreið sem stóð við skrif- stofubyggingu í borginni. Rúður í nærliggjandi byggingum og bílum sprungu þegar sprengjan sprakk og særðust nokkrir íbúar á svæðinu lítil- lega. Lögreglan innsiglaði svæðið og er unnið að rannsókn málsins. Talið er fullvíst að ETA, aðskilnaðarsam- tök Baska, hafi staðið að sprengjutil- ræðinu. ■ Framkvæmdastjóri Heil- brigðisstofnunarinnar á Siglufirði: Konráð Karl ráðinn heilbrigðismál Jón Kristjánsson, heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra, skipaði Konráð Karl Baldvinsson framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofn- unarinnar á Siglufirði, frá 1. júlí og til næstu fimm ára, eins og stjórn Heilbrigðisstofnunarmnar hafði lagt til. Mat nefndar sem fjallaði um hæfi umsækjenda var að tveir af fimm umsækjendum uppfylltu tiltekin skil- yrði um menntun og reynslu í rekstri og stjórnun. Þrír af átta umsækjend- um höfðu áður dregið umsóknir sínar til baka. ■ ii

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.