Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 13.06.2001, Blaðsíða 1
KOSNINGAR Vinstri-grœnir og samfylking bls 2 STE1NBÍTUR Einungis pólitísk ákvörðun bls 4 TÓNLIST Hljómar vekja athygli erlendis bls 17 55. tölublað - 1. árgangur ÞRIÐJUDACUR Umsögn send ráðherra Sixers og Lakers mætast í kvöld körfuknattleikur Philadelphia 76ers og Los Angeles Lakers mæt- ast í fjórða lciknum í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í Philadelphia í kvöld. 1KVÖLPIÐ I KVÖLD| Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 fþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 19 Útvarp 21 menntamál Skólanefnd Menntaskól- ans á ísafirði sendir Birni Bjarnasyni menntamáiaráð- herra formlega ákvörðun sína um ráðningu skóla- meistara. Norður-V íkingur björcunaræfinc Utanríkisráðuneyt- ið gerir grein fyrir Norður-Víkingi 2001. Varnarmálaskrifstofa utan- ríkisráðuneytisins hefur unnið að skipulagi æfingarinnar i samvinnu við varnarliðið, landhelgisgæsluna og yfirstjórn lögreglunnar. f DAC REYKIAVÍK Norðvestlæg átt, 5-8 m/S og léttskýjað. Hiti 7 til 13 stig. VINDUR URKOMA ísafjörður O léttskýjað ©8 Akureyri © léttskýjað Q 9 Egilsstaðir O léttskýjað Q 9 Vestmannaeyjar O skúrir O12 Hávaði í miðbænum rokk Tónleikar hljómsveitarinnar Ham verða á Gauk á Stöng í kvöld. Sungið á Nesinu tónlist Söngsveitin Fílharmónía heldur tónleika í Seltjarnarnes- kirkju í kvöld, vegna ferðar sveit- arinnar til Ungverjalands. Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagur 13. júni 2001 Einkaleyfi Aðalverktaka fyrir herinn í uppnámi Jón Olafsson hefur farið fram úr skilyrðum um hámarkseignarhlut í íslenskum aðalverktökum ef marka má gögn Verðbréfaþings Islands og utanríkisráðuneytið hefur kallað eftir upplýsingum frá Aðalverktökum. Meðeigandi Jóns, Sigurður G. Guðjónsson, segir eignarhlut Jóns ekki of stóran. hlutabréfaviðskipti Hlutur Jóns Ólafs- sonar, stjórnarmanns í íslenskum að- alverktökum, í félaginu virðist nú fara fram úr skilyrðum utanríkis- ráðuneytisins um 7% hámarkseign einstakra aðila í félaginu. Skilyrðið var sett í september 1998 áður en rík- issjóður seldi hluta af bréfum sínum í félaginu og gildir um alla aðra núver- andi hluthafa en ríkið sjálft. Klásúlan var sett í ljósi þess að Aðalverktakar njóta forgangs að tilteknum fram- kvæmdum fyrir Bandaríkjaher út árið 2003 en þá fellur skilyrðið úr gildi. Samkvæmt upplýsingum á Verð- bréfaþingi íslands er eignarhlutur Jóns Ölafssonar nú 8,83%. Utanríkis- ráðuneytið tók við sér í gær eftir fyr- irspurn Fréttablaðsins. „Við höfum haft samband við stjórn fslenskra að- alverktaka og með vísan í þetta skil- yrði óskað eftir upplýsingum um eignarhald einstakra aðila í félaginu og við væntum þess að fá svar við því á næstunni," segir Gunnar Gunnars- son, skrifstofustjóri varnarmálskrif- stofu hjá utanríkisráðuneytinu. Gunnar segir ráðuneytið vilja fá stöðu málsins upplýsta frekar áður en það tekur afstöðu til þess, en eins og að framan greinir kann reglan um 7% hámarkshlut að hafa verið brotin og er óljóst hvaða þýðingu það kynni að hafa fyrir Aðalverktaka. Aðspurður um það hvers vegna ráðuneytið hafi talið æskilegt að tak- marka hlut einstakra aðila í Aðalver- tökum á forgangstímabilinu segir Gunnar: „Mönnum fannst eðlilegra að eignaraðild sé dreifð þangað til verktaka hefur verið gefin frjáls að fullu." Hjá Aðalverktökum var sagt í gær að ekki væri unnt að afhenda nýjustu hluthafskrá félagsins vegna bilunar í tölvubúnaði. Verðbréfaþing íslands segist alfarið byggja á upplýsingum eigenda hlutabréfanna en innherjum sé skylt að tilkynna um öll viðskipti með hlutabréf í viðkomandi félagi og gefa upp samanlagða eign sína í fé- laginu. Sigurður G. Guðjónsson, er með- eigandi Jóns í tveimur eignarhaldsfé- lögum sem eiga samtals 9,93% hlut í Aðalverktökum, en Jón á síðan 0,69% UR SKOLANUM I MATVÆLARÆKT Einn af föstu liðunum þegar skólahaldi lýkur á vorin er að þá halda fjölmörg grunnskólabörn í skólagarðana. Fanney Elsa og Guðrún voru önnum kafnar við iðju sína þegar Ijósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í gær og Ijóst að gróðursetning átti hug þeirra allan. í eigin nafni. Hlutdeild Jóns í félög- unum tveimur auk persónulegu eign- arinnar er áðurnefnd 8,83%. Sigurður segir þá félaga meðvit- aða um 7% regluna hjá Aðalverktök- um og að það sé ekki rétt sem kemur fram á Verðbréfaþinginu að Jón sjálf- ur eigi meira en 7% í félaginu heldur séu félög þeirra tvö aðskildir hluthaf- ar og að ekki eigi að leggja hlutbréfa- eign þeirra saman með tilliti til 7% reglunnar. „Félögin eru bæði innan marka. En þessi regla er ekkert vandamál. Þú getur bara stofnað nýtt og nýtt fé- lag um hvern hlut ef því er að skipta án þess að brjóta gegn þessu ákvæði," segir lögmaðurinn. gar@frettabladid.is Mælt með Ólínu í MÍ: Þarf undanþágu skólamál Ólína Þorvarðardóttir er eini umsækjandi um stöðu skóla- meistara Menntaskólans á ísafirði. Hinn umsækjandinn, Ásgerður Bergsdóttir dró umsókn sína til baka, en hún hefur full réttindi. Skólanefnd fundaði í gær og neitaði Ólafur Helgi Kjartansson að gefa upp nokkuð um niðurstöðu fundarins. Áreiðanlegar heimildir segja að skólanefndin hafi mælt með ráðningu Ólínu með fyrir- vara um að menntamálaráðherra veiti undanþágu frá kröfum um kennsluréttindi. Veiti menntamála- ráðherra ekki slíka undantekningu verður að auglýsa stöðuna að nýju. „Að Ólínu ólastaðri, er það dapur- legt og segir kannski sitt um stöðu skólans að einn umsækjandi sé um svo háa stöðu,“ sagði viðmælandi tengdur skólanum. ■ Paul Watson í samtali við Fréttablaðið: | FÓLK ÞETTA HELST | Hótar aðgerðum hvalveiðar Hvalavinurinn Paul Watson er ánægður með ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að ganga aftur í Al- þjóðahvalveiðiráðið. „Alþjóðahvalveiðiráðið er eini vettvangur þjóða til þess að veiða hvali en ég hef enga trú á því að þessi ákvörðun komi til með að breyta nokkru á íslandi um veiöarnar," sagði Watson í gærkvöldi. Hann bætti því við að ummæli Árna M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, um að hvalir éti í kringum 10-20 pró- sent af nytjastofnun íslendinga sé þvættingur. „Allir líffræðingar og embættis- menn ríkisstjórna segja augljóslega það sem þeim hentar þegar það kemur að vísindum og stærð nytjastofna í hafinu. Ég kalla þessa menn einu nafni og það er hórufræðingar." ,Brot íslendinga á núllreglunni varð til þess að ég kom til ís- lands 1986 og mótmælti harð- lega,“ sagði Watson og skír- skotaði þar til þess er hann vann skemmdarverk á hval- bátum í Reykjavíkurhöfn. Watson útilokar ekki að til frekari aðgerða komi hefji ís- lendingar aftur hvalveiðar. „Komi til þess að íslendingar reyni að styðja Japani og Norðmenn í ráðinu - og í framhaldi af því hefja veiðar - mun ég og mín samtök spyrna kröft- uglega á móti og mega íslendingar bú- ast við því að sjá mig og skip mitt, Ocean Warrior, á íslandsmiðum." omarr@frettabladid.is PAUL WATSON Ham snýr aftur SÍÐA 16 Samkeppnisstofnun hótar að sekta olíufélögin vegna lélegra verð- merkinga. bls.2 Samherji hyggst selja flaggskipið til útlanda vegna taps á sjó- mannaverkfallinu. bls.2 —♦— Sjómennirnir á Júlíusi Geirmunds- syni settu íslandsmet. bls.4 —♦— Hve lengi stunda Vestfirðingar sjó, spyr Ólafur Ragnar Gríms- son. bls. 8

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.