Fréttablaðið - 21.06.2001, Síða 2
KJÖRKASSINN
FRÉTTABLAÐIÐ
21. júní 2001 FIMIVITUDAGUR
ÞÓRÐUR
FRIÐJÓNSSON
Netverjar eru ekki á því
að Þjóðhagsstofustjóri
og hans fólk sé óþarf-
lega svartsýnt á efna-
hagsástandið.
Er Þjóðhagsstofnun
of svartsýn?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Nei
28%
72%
Spurning dagsins í dag:
Skila átök gegn umferðarslysum
árangri?
LOÐNUBAÐ
Viðar Karlsson á nótaskipinu Víkingi var
bjartsýnn á komandi vertíð þótt ekki gæfi
hann í skyn að sjómenn ættu eftir að
synda í loðnu með sama hætti og ungi
maðurinn hér að ofan
Loðnuvertíðin:
Nokkur
skip við leit
siflVflRúTVEGUR Fyrstu skipin hófu leit
að loðnu upp úr miðnætti aðfaranótt
miðvikudags, um leið og loðnuvertíð-
in hófst. Skipin hafa verið að leita á
austurslóð en þar hafði þó engin
loðna fundist í gærkvöldi. Skipum á
leitarsvæðinu fer óðum fjölgandi
enda mörg skip á leiðinni á leitar-
svæðið. íslensk skip á svæðinu voru
fá í gær en auk þeirra munu nokkur
erlend skip vera mætt á svæðið til
leitar og veiða.
Viðar Karlsson er skipstjóri á
nótaskipinu Víkingi frá Akranesi
sem nú er á leið á miðin. Þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í gær-
kvöldi var ekki annað á honum að
heyra en að hann væri bjartsýnn á að
skammur tími liði þar til loðnan fynd-
ist. „Undanfarin fjögur ár hefur veið-
in byrjað um þetta leyti. Það hefur
nokkurn veginn verið hægt að ganga
að loðnunni á tiltölulega þröngu
svæði“, segir Viðar en tekur fram að
hitastig sjávar ráði miklu um hversu
dreifð loðnan er og hversu vel gangi
að finna hana og slíkt sé breytilegt
frá ári til árs. ■
—4—
Heilbrigðisstarfsfólk:
Atta sviptir
starfsleyfi
LYFJAMiSFERii Fimm læknar og þrír
hjúkrunarfræðingar hafa verið svipt-
ir starfsleyfum síðustu þrjú árin
vegna neyslu á lyfseðilsskyldum lyfj-
um, fölsunar lyfseðla og ofskrifaðra
lyfjaávísana að því er fram kemur 1
nýjasta tölublaði tímaritsins Skýs.
Læknar á íslandi eru um þúsund tals-
ins og því hefur um hálft prósent þeir-
ra verið sviptur starfsleyfi á síðustu
árum. íslenskir hjúkrunarfræðingar
eru um 1.800 talsins og því einn af
hverjum 600 verið sviptur starfsleyfi
undanfarin ár af þessum sökum. ■
1 LÖGREGLUFRÉTT |
Karlmaður á níræöisaldri slasað-
ist alvarlega um miðjan dag í
gær þegar keyrt var á hann. Maður-
inn var að ganga yfir Reykjavíkur-
veg þegar bíll sem kom aðvífandi
keyrði á hann þannig að maðurinn
kastaðist upp á vélarhlíf bflsins.
Maðurinn var fluttur á slysadeild til
aðhlynningar eftir slysið en var ekki
talinn í lífshættu.
Fj ármálaeftirlitið:
Hægt að neita fólki
um verðbréfakaup
viðskipti „Fjármálafyrirtækjum ber
að ganga úr skugga um að kaupendur
verðbréfa búi yfir þekkingu og
reynslu af verðbréfaviðskiptum sem
nægir til að þeir geri sér grein fyrir
áhættunni og í framhaldi af því, ef
talið er að kaupandinn hafi ekki
nægilega þekkingu eða reynslu ber
að synja honum um kaupin" segir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri fjár-
málaeftirlitsins, um ný laga- og
reglugerðarákvæði um verðbréfavið-
skipti.
Lögin skilgreina betur hvaða skil-
yrði fyrirtæki þurfa að uppfylla í út-
boði verðbréfa til almennings. For-
sendur til eftirlits eru gerðar skýrari
og fjármálaeftirlitinu heimilt að
bregðast við, t.d. með opinberri yfir-
lýsingu eða dagsektum, uppfylli fyr-
irtæki ekki útboðsreglurnar.
Páll segir að margir hafi talið
tímabært að endurskoða þær reglur
sem giltu um almennt útboð og verð-
bréfakaup almennings. Margir hafi
haft áhyggjur af örri þróun verð-
bréfamarkaðarins undanfarin ár og
að almenningur hafi getað keypt í
miklu mæli hlutabréf án þess að hafa
þær upplýsingar sem nauðsynlegar
eru. Nokkur dæmi eru um slíkt eins
og til dæmis kaup almennings á bréf-
um í deCode. ■
STYRKARA EFTIRLIT MEÐ
VERÐBRÉFAKAUPUM
Ekki er útilokað frekar en áður að almenn-
ingur eignist verðbréf sem ekki fóru í al-
mennt útboð segir Páll Cunnar Pálsson
SKÍFsfbr m\
ÍSLANDSFLUC
Háir reikningar vegna sjúkraflugs hafa komið forráðamönnum sjúkrahúsa á landsbyggðinni í opna skjöldu.
Verðsprenging hefur
orðið á sjúkraflugi
Allt að 60% hækkun á sjúkraflugi frá Vestfjörðum. Kostaði 112 þúsund með Leiguflugi ísleifs Ottesen
en 180 þúsund með Islandsflugi.
heilbrigðismál Kostnaður sjúkrahúsa
á landsbyggðinni og Tryggingastofn-
unar vegna sjúkraflugs hefur aukist
töluvert frá því íslandsflug tók við
þessari þjónustu af Leiguflugi ísleifs
Ottesen. Sem dæmi má nefna að
sjúkraflug frá ísafirði til Reykjavík-
ur hefur hækkað úr 112 þúsund í 180
þúsund krónur, eða um 60%. Þessu til
viðbótar þarf að greiða 90 þúsund
krónur ef útkall flugvélar varir leng-
ur en í tvo tíma. Eins og kunnugt er
þá ákvað ríkið að leysa Leiguflug ís-
leifs Ottesen undan samningi um
sjúkraflug í framhaldi af rannsókn á
flugslysinu í Skerjafirði með 10 milj-
óna króna greiðslu.
Ekki liggur fyrir hvað þessi um-
skipti munu hafa í för með sér mikil
fjárútlát fyrir Tryggingastofn-
un og einstaka sjúkrahús á
landsbyggðinni. Það minnsta
hefur það ekki enn verið tekin
saman í heilbrigðisráðuneyti
og m.a. vegna þess að ráðu-
neytið hefur ekki yfirlit yfir
fjölda sjúkrafluga. Engu að
..
Kvartað hefur
verið yfir þess-
ari óvæntu
hækkun við
ráðuneytið
----4---
sjúkrahússins á ísafirði kvartað yfir
þessari hækkun við ráðuneytið, enda
hefði hún komið þeim í opna skjöldu.
Aftur á móti hefur verið fátt um svör
hjá ráðuneytinu. Dagný Brynjólfs-
dóttir í heilbrigðisráðuneytinu
segir að samningurinn við ís-
landsflug gildi til 30. apríl á
næsta ári. Hún telur líklegt að
sjúkraflugið verði boðið út að
þeim tíma liðnum. Hún segir
að viðkomandi sjúkrahús
greiði kostnað við sjúkraflug
síður hafa forráðamenn Fjórðungs- á innrituðum sjúklingi en að öðrum
kosti fellur reikningurinn á Trygg-
ingastofnun. í báðum tilvikum sé hins
vegar um að ræða opinbera fjármuni.
Leiguflug ísleifs Ottesen átti á
sínum tíma lægsta tilboðið í sjúkra-
flug á Vestfjörðum og á Suðursvæð-
inu, þ.e. Snæfellsnes og Suðurland að
Höfn í Hornafirði. í þeim efnum
hafði það betur í samkeppninni við
íslandsflug sem bauð einnig í þessa
þjónustu. Flugfélag íslands sinnir
hins vegar sjúkraflugi á Norður- og
Austurlandi í framhaldi af útboði.
grh@frettabladid.is
ASÍ átelur verkfallstal forsætisráðherrans:
Davíð einbeiti sér
að stöðugleikanum
EFNAHAGSMÁL Miðstjórn Alþýðusam-
bands fslands hefur hvatt Davíð
Oddsson forsætisráðherra til að ein-
beita sér að því að tryggja stöðug-
leika í efnahagslífinu og segir það
vekja undrun að ráðherrann reyni að
beina athyglinni frá ábyrgð stjórn-
valda á efnahagsstjórninni með því
að hefja umræðu um tíðni verkfalla.
„Langflest verkföllin eru háð á
þeim tveimur sviðum þar sem stjórn-
völd sjálf koma beint að málum, ým-
ist með tíðum inngripum og lagasetn-
ingum eða sem annar samningsaðila.
Á almennum vinnumarkaði eru verk-
föll að verða næsta fátíð enda búið að
skilgreina markmið um stöðugleika
og uppbyggingu kaupmáttar," segir í
ályktun ASÍ.
Að sögn ASÍ er nærri helmingur
tapaðra daga vegna verkfalla opin-
berra starfsmanna og tæplega helm-
ingur verkfallsdaga vegna fiski-
manna þar sem inngrip stjórnvalda í
kjaradeilur séu tíðari og meiri en í
öðrum greinum.
Hagdeild ASÍ telur að áhrif geng-
islækkunar síðustu mánaða séu að
miklu leyti komin fram og að gengi
krónunnar sé nú lægra en efnahags-
legar forsendur standi til og muni
styrkjast. „Horfur er því vonandi
ekki eins svartar og Þjóðhagsstofnun
reiknar með,“ segir í ályktun ASÍ. ■
GRÉTAR ÞORSTEINSSON
Horfurnar eru vonandi ekki eins svartar
og Þjóðhagsstofnun reiknar með,
segir formaður ASÍ og félagar hans.
Nasdaq:
deCode
hækkar um
fjórðung
hlutabréf Hlutabréf í deCode Genet-
ics, móðurfyrirtæki íslenskrar erfða-
greiningar, hækkuðu um 25,56% í
gær og voru metin á 9,04 dollara þeg-
ar mörkuðum var lokað.
Verð bréfanna við opnun markaða
var metið á 7,2 dollara og nemur
hækkunin því nær tveimur dollurum
á hvert bréf. Alls gengu 161.600
hlutabréf í fyrirtækinu kaupum og
sölum í gær. Nasdaq og Dow Jones
vísitölurnar hækkuðu einnig nokkuð
í gær, Nasdaq um 38,5 stig eða 1,93%
og Dow Jones um 50,66 stig eða
0,48%. ■