Fréttablaðið - 21.06.2001, Page 4
SVONA ERUM VIÐ
--------------
FRÉTTABLAÐIÐ
21. júní 2001 FIMMTUPAGUR
SKIPTING TILKYNNTRA
OFBELDISBROTA EFTIR SVÆÐUM
INNAN BORGARINNAR
Rúmlega 50% tilkynntra ofbeldisbrota áttu
sér stað í póstnúmeri 101, þar af 95% í og
við miðborgina. ( öðru sæti kom svæði
105, eða Hlíðar, Holt, Tún og Teigar, með
7,6% tilkynntra ofbeldisverka. Friðsælast
virðist hafa verið á Seltjarnarnesi (1%), en
þar er Reykjavíkurlögreglan með útibú.
170 | 1,0%
107 | 1,3%
103 11,7%
104 # o ■
109 # r— •í ■
110 ■ 4ai 1
111 1 4,8%
108 5,4%
112 ■ 6,6%
105 ■ 7,6%
101
HEIMILD: ÁRSSKÝRSLA LÖGREGLUSTJ. I RVK. 2000
Hagstofan:
6% hækkun
BYGGINGARKOSTNAÐUR VÍSÍtala byggitlg-
arkostnaðar hækkaði um 0.3% frá
fyrra mánuði samkvæmt upplýsing-
um Hagstofu íslands. Hækkun vísi-
tölunnar síðustu þrjá mánuði jafn-
gildir 9,1% árshækkun. Síðastliðna
tólf mánuði hefur vísitalan hækkað
um 5,9%. ■
Hás'kólinn í Reykjavík býður upp á „nám með vinnu“:
Fleiri sækja um
skólamál Fleiri sækja um nám við Há-
skólann í Reykjavík fyrir skólaárið
2001-2002 en í fyrra. Nú sóttu 645
námsmenn um skólavist, um 50 ein-
staklingum fleiri en í fyrra. Lítill
kynjamunur er á umsóknum í hefð-
bundið nám, konur eru rúmlega 41%
og karlar tæp 59%.
Konur sækja meira í viðskiptadeild en
karlar í tölvunarfræðideild, en í síðar-
nefndu deildinni hafa 158 sótt um
fjarnám.
Að sögn Þóris Hrafnssonar for-
stöðumanns markaðs og kynningar-
sviðs skólans hafa nú þegar borist um
100 umsóknir í „nám með vinnu“ en
frestur rennur út 1. júlí.
Hægt er að ljúka 27 einingum á
einu ári, en þá fer námið fram frá kl.
4-7 þrjá daga vikunnar allt árið. „Það
er til dæmis hægt að útskrifast sem
viðskiptafræðingur á þremur árum og
einu sumri“, segir Þórir sem telur
einkum tvo hópa sækja í námið. Ann-
arsvegar þeir sem hafa háskólapróf af
öðrum sviðum og vilja breyta um
áherslur og hinsvegar þá sem hafa
stúdentspróf „en reka sig síðan á vegg
þegar kemur að stöðuhækkun og þess
háttar.“ ■
ÞÓRIR HRAFNSSON FORSTÖÐUMAÐUR MARKAÐS
OG KYNNINGARSVIÐS HÁSKÓLANS í REYKJAVÍK.
Hann er ánægður með góðar viðtökur náms með vinnu.
Þrælar nasista fá
loksins skaðabætur
Gatnahreinsun:
Fossvogurinn
hreinsaður
umhverfismál Kapparnir sem vinna
við gatnahreinsun ætla að beina
kröftum sínum á göturnar í Fossvog-
inum í dag. Hreinsunin hefst í Gaut-
landi og endar í Blesugróf.
Hreinsunin verður frá kl. 8.30 til
12 og kl. 12.30 til 16.30 og er fólk beð-
ið að færa bíla sína og sýna þá þolin-
mæði að leggja þeim ekki aftur fyrr
en 1-2 klst. síðar. ■
—-♦—-
34,047
1999 2000 2001
Lántökur rikissjóðs fyrstu fimm mánuði
ársins (í milljónum króna)
Ríkissjóður:
Fékk lánaða
34 milljarða
ri'kissjóður Ríkið tók 34 milljarða að
láni fyrstu fimm mánuði ársins. Það
er 21 milljarði meira en fyrstu fimm
mánuði ársins 2000. Rúmir 24 millj-
arðar voru fengnir erlendis frá en
tæpir 10 milljarðar hérlendis.
Stærsti hluti erlendra lána fór í að
greiða niður aðrar erlendar skuldir.
Ríkissjóður borgaði fyrstu fimm
mánuði ársins niður lán fyrir um 21,5
milljarð króna. Á sama tíma í fyrra
nam þessi upphæð rúmum 19 millj-
örðum. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR |
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
mann í fyrrakvöld þar sem hann
virti ekki stöðvunarljós á tveimur
gatnamótum á Miklubrautinni auk
þess sem hann keyrði á of miklum
hraða. Maðurinn er grunaður um
ölvun við akstur.
Utafakstur varð í gærmorgun
sunnan Hólmavíkur. Að sögn
lögreglunnar í Hólmavík björguðu
beltin ökumanni sem hafði sofnað
undir stýri. Bíllinn er mikið
skemmdur.
Hver um sig fær tæpa hálfa milljón króna. Baráttan fyrir bótunum hefur staðið yfir í hálfa öld.
MÁLINU LOKIÐ
Roman Kent (tv) er einn þeirra gyðinga sem lifði helförina af og einn samningamanna gyðinga um bætur frá Þjóðverjum. Hér er hann
ásamt Dieter Kastrup, sendiherra Þjóðverja hjá Sameinuðu þjóðunum á blaðamannafundi þar sem málalyktir voru kynntar
new YORK. AP. Þúsundir eftirlifandi
fórnarlamba helfararinnar hafa nú
fengið fyrstu skaðabótagreiðslurnar
fyrir að hafa verið hnepptir í þræl-
dóm af nasistum í síðari heimstyrj-
öldinni. Greiðslurnar koma úr sjóði
sem settur var saman af þýska ríkinu
og þeim fyrirtækjum sem hlut áttu
að málinu. Var sjóðurinn settur á
stofn til að stöðva fjölda lögsókna í
Bandaríkjunum þar sem þýsk fyrir-
tæki voru krafin um bætur vegna
mála sem tengdust helförinni.
Greiðslurnar, sem nema um hálfri
milljón króna á mann, voru sendar
frá New York til um það bil 10 þús-
und gyðinga í 25 löndum, auk þess
sem greiðslur voru sendar til 10 þús-
und Tékka sem þræluðu fyrir nas-
ista. Til stendur að senda greiðslur til
Pólverja þann 28. júní.
„Hvað varðar þetta mál, þá er
ekkert réttlæti til“ sagði Greg
Schneider, aðstoðarforstjóri skaða-
bótasamtaka gyðinga sem meðal ann-
arra hafa staðið í baráttunni fyrir
greiðslunum. „Þrátt fyrir að talað
hafi verið um milljónir í greiðslur og
væntingar hafi verið miklar, þá munu
engir eftirlifendanna verða ríkir og
auðvitað munu engar greiðslur geta
bætt fyrir þá atburði sem áttu sér
stað.“ „í 60 ár hafa saklaus fórnar-
lömb sem hafa þurft að þola ómæld-
an sársauka, barist fyrir réttlæti í
sinn garð,“ sagði Schneider.
Alls sjá sjö samtök um dreifingu
greiðslnanna; fimm sem staðsett eru
í Austur-Evrópu fyrir þau fórnar-
lömb sem þar búa, skaðabótasamtök
gyðinga, sem sér um allar greiðslur
til gyðinga og alþjóðasamtök fólks-
fiutninga, sem sjá um dreifingu
greiðslna til annarra fórnarlamba
víðsvegar um heiminn.
Skaðabótasamtök gyðinga reikna
með að allt að 160 þúsund gyðingar
sem lifðu af helförina eigi rétt á
greiðslum allt að 500 milljarða dala.
Alls er talið að um 1,5 milljónir
manna eigi rétt á bótum, flestir í Mið-
og Austur-Evrópu.
Þýskaland hefur áður borgað
þeim sem urðu illa úti í helförinni
skaðabætur, en þeir sem þræluðu
fyrir nasista hafa hins vegar alltaf
orðið útundan.
Þýsk fyrirtæki neituðu lengi að
hafa borið ábyrgð á þrælahaldinu og
sögðust hafa haft þræla vegna þrýst-
ings frá nasistum. „Mikilvægum
kafla er lokið, en ég vil að það sé ljóst
að siðferðislega mun málinu aldrei
ljúka,“ sagði Dieter Kastrup, sendi-
herra Þýskalands hjá Sameinuðu
þjóðunum. „Við megum ekki láta
hræðilegan atburð sem þennan koma
fyrir aftur.“ ■
Orkuveita Reykjavíkur:
Orkureikningurinn
hækkar um 2700 krónur
verðlag Alfreð Þorsteinsson stjórn-
arformaður Orkuveitu Reykjavíkur
telur einsýnt að borgaryfirvöld
verði að yfirfara allar gjaldskrár
hjá sér í ljósi aukinnar verðbólgu
og kostnaðarhækkana. Gert er ráð
fyrir að borgarstjórn muni sam-
þykkja á fundi sínum í kvöld,
fimmtudag, að gjaldskrá Orkuveit-
unnar fyrir hita og rafmagn verði
hækkuð um 4,9% frá og með næstu
mánaðamótum. Það mun þýða að
orkureikningurinn hjá meðalfjöl-
skyldu mun hækka um 2700 krónur
á ársgrundvelli, eða um rúmar 200
krónur á mánuði. Athygli vekur að
með þessari hækkun er verið að
taka til baka um helminginn af þeir-
ri 10% lækkun sem varð á gjald-
skránni þann 1. mars. sl.
Alfreð Þorsteinsson stjórnarfor-
maður Orkuveitunnar segir að
ástæðan fyrir þessari hækkun sé
einkum vegna kostnaðarhækkana
og aukinnar verðbólgu svo ekki sé
minnst á 4,9% verðhækkun á raf-
magni frá Landsvirkjun sem kemur
til framkvæmda um mánaðamótin.
Hann segir að efnahagsmunhverfið
sé þvl mikið breytt frá því í desem-
ber í fyrra þegar ákvörðun var tek-
in um 10% verðlækkunina. ■
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
STJÓRNARFORMAÐUR ORKUVEITU
REYKJAVÍKUR
Borgin verður að yfirfara gjaldskrár sínar i
Ijósi verðlagsþróunar.