Fréttablaðið - 02.07.2001, Page 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
2. júlí 2001 MÁNUUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI ÍBÚA ÍSLANDS
MEÐ ERLENT RÍKISFANG
Fjöldi þeirra Ibúa (slands sem eru með er-
lent ríkisfang hefur aukist verulega mjög á
undanförnum árum. Frá árinu 1995 þegar
þeir voru fæstir á slðasta áratug hefur þeim
fjölgað úr 4.715 I 7.271 eða um 54,2%. íbú-
ar með erlent rikisfang voru orðnir 2,6% af
heildarmannfjölda árið 1999 en voru 1,9%
1990. Það er hærra hlutfall en í Finnlandi
en mun lægra en í Svlþjóð og Noregi þar
Færeyskir dagar í Ólafsvík:
Bærinn iðaði af mannlífi
hátíðarhöld „Bærinn iðaði af lífi og
veðrið lék við okkur,“ sagði Pétur Jó-
hannsson, einn af skipuleggendum
Færeyskra daga sem haldnir voru í
Ólafsvík um helgina. Pétur sagði hátt
í sjö þúsund manns hafa verið í bæn-
um þegar mest var og væri það fjöl-
mennasta hátíðin hingað sem væri sú
fjórða frá upphafi. „Það voru Færey-
ingar búsettir hér sem áttu hug-
myndina að þessum hátíðarhöldum í
upphafi og fengu þeir til liðs við sig
aðra bæjarbúar." Að sögn Péturs fóru
hátíðarhöldin mjög vel fram og engin
læti í fólki.
Pétur sagði að um 140 manns
hefðu komið frá Færeyjum til að taka
þátt í hátíðarhöldunum. Þar á meðal
var 60 manna kvennakór frá Vest-
manna, sem er vinabær Ólafsvíkur,
hljómsveitirnar Hans Jakob og vin-
folk og Twilight en hún var að koma í
sína fjórðu heimsókn, skemmtu gest-
um. Færeyskum dögum lauk í gær
með útimessu í umsjón prestanna í
Ólafsvík og Vestmanna. „Það er al-
veg öruggt að það er að skapast hefð
fyrir þessum dögum og þeir verða ör-
ugglega haldnir aftur að ári,“ sagði
Pétur að lokum. ■
FJÖLMENN HÁTÍÐ
Að sögn lögreglunnar í Stykkishólmi tóru
hátíðarhöldin mjög vel fram og engin læti
voru í fólki sem voru um 7000 talsins.
KarlV. Matthíasson:
Geðþótti kaup-
manna hækkar
vöruverð
vIsitala Skuldir heimilanna hækka
um einn milljarð við hvert prósentu-
stig verðbólgu. „Það sem mér finnst
alvarlegast er að skuldir heimilanna
skuli hækka eftir
geðþótta kaup-
manna og bensín-
sala,“ segir Karl V.
Matthíasson þing-
maður Samfylking-
arinnar. „Það er
mjög óeðlilegt á
meðan það er ekki
betra verðlagseftir-
liti í landinu að lán
fjölskyldna í land-
inu skuli fylgja
verðhækkunum
sem eiga rætur að
rekja til þess skorts
á samkeppni. Verð-
lag á matvælum er
ekki í neinu sam-
ræmi við það sem
KARL V.
MATTHÍASSON
ÞINGMAÐUR
SAMFYLKING-
ARINNAR
Stjórnvöld hafa
ekki sinnt þeirri
boðun að efnisleg
gæði séu ekki
æðstu gæði ver-
aldarinnar, heldur
frekar alið á því.
gerist í nágrannalöndunum.
Karl hefur áhyggjur af því að
skuldirnar vaxi hratt hjá fjölskyldun-
um þegar verðbólga er farin á stað.
Verðtryggð lán séu að hækka mikið.
„Auðvitað verður að tryggja aðspari-
fjáreigendur tapi ekki sínum fjár-
munum, en fyrr má nú rota en dauð-
rota. Við verðum að athuga að bakvið
hvert uppboð er harmleikur." Karl
segir að það sé hlutverk stjórnmála-
manna að vera með siðferðilega boð-
un. „Stjórnvöld hafa ekki sinnt þeirri
boðun að efnisleg gæði séu ekki
æðstu gæði veraldarinnar, heldur
frekar alið á því.“ ■
—4—
Geimfar á vesum
NASA fer á loft:
Elsta ljós
alheimsins
rannsakað
vfsiHDi. örbylgjugeimskoðari frá
Bandarísku geimferðastofnuninni
NASA, mun bráðlega hefja ferð sína
inn í dýpstu myrkur himingeimsins í
leit að eftirljósi frá Stóra hvelli, sem
er talinn hafa leitt til sköpunar al-
heimsins fyrir um 14 milljörðum ára.
Með upplýsingum úr ferðinni vonast
vísindamenn til þess að hægt verði að
svara spumingum eins og hvernig al-
heimurinn varð til og hver verði ör-
lög hans. Á fréttavef BBC segir að
rannsóknarfarið muni leita að myn-
stri í ljósgeislanum sem gæti svarað
þessum og fleiri mikilvægum spum-
ingum, en ljósgeisli þessi hefur lýst
upp alheiminn alveg frá því að stóri
hvellur átti sér stað. „Þessi leiðangur
er það sem við höfum verið að bíða
eftir. Hann er meira spennnandi en
allt annað sem við höfum rannsakað.
Hann kemur til með að svara fjöl-
mörgum spurningum en hann mun án
efa einnig vekja upp margar nýjar
spurningar;" segir Carlos Frenk, vís-
indamaður við háskólann í Durham í
Bretlandi. ■
Eg óska
innilega
útgerðinni
til hamingju
Ljóst að útgerðin ræður yfir þeim sem seítu regíurnar og dómurunum líka, segir formaður Sjómannafélags Reykjaxákur.
Stærsti kosturinn er að tekið er á mönnunarmálum en mesti gallinn er stuttur gildistími, segir framkvæmdarstjóri LIU.
cerdardómur „Ég get ekki annað en
JÓNAS GARÐ-
ARSSON
Þetta er mikið
áfall fyrir sjó-
menn.
óskað útgerðinni til hamingju með
sigurinn. Hann kemur að vísu ekki á
óvart þar sem út-
gerðinni hefur
greinilega ráðið
yfir þeim sem b.iug-
gu til leikreglurnar
og eins hefur hún
ráðið yfir dómurun-
um. Þannig að úr-
slitin koma ekki á
óvart,“ sagði Jónas
Garðarsson, for-
maður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur,
um niðurstöðu
Gerðardóms. Jónás segir ákvörðun
dómsins vera mikið áfall fyrir sjó-
menn og þeir standi frammi fyrir því
að einhverjir þeirra lækki í launum,
Gerðardómur, sem var skipaður
til að finna TSúsn á kjaradeilu sjó-
manna og útvegsmanna, hefur skilað
niðurstööu. Þar er
að njestu tekið mið
af sámningj -Vél-
stjórafélags ís-
lands og útvegs-
manna - en aðrir
sjómenn for-
dæmdu þann samn-
ing og kölluðu hann
skemmdarverk.
Gerðardómur vík-
ur frá þeim samn-
ingi í nokkrum at-
FRIÐRIK J. ARN-
GRÍMSSON
Bæði kostir og
gallar.
riðum. Gildistíminn er styttri, sér-
eignarsparnaður af tryggingu kemur
til, slysatrygging þar sem sjómenn
greiða hluta iðgjaldsins er sett inn og
launatryggingar hækka mun meira
en í samningi Vélstjórafélagsins.
„í úrskurði gerðardóms er að
finna bæði kosti og galla", segir Frið-
rik J. Arngrímsson framkvæmda-
stjóri LÍÚ. „Stærsti kosturinn er sá
SJÓMENN GANGA TIL SÁTTASEMJARA
Gerðardómurinn gildir þar til seint á árinu 2003. Það er því talsverður tími þar til sjómenn mæta ( Karphúsið. Útgerðarmenn vildu að
dómurinn gilti lengur - en virðast annars sáttir á meðan sjómenn eru ævareiðir.
að í niðurstöðunni er krafa okkar um
að skipta eigi ávinningi af hagræð-
ingu og fækkun í áhöfn milli útgerð-
ar og sjómannanna.“
Með þessu segir Friðrik að ann-
ars vegar sé komið í veg fyrir að
kostnaður útgerðar aukist þegar
gripið er til hagræðingar og fækkun-
ar og hins vegar að skiptahluturinn
taki mark af fækkun í áhöfn. „Þetta
er grundvallarmál sem við höfum
barist fyrir mjög lengi. Þetta er rétt-
lætis- og sanngirnismál sem er afar
mikilvægt að hefur náð fram að
ganga. Að auki var tekið á nýju
fjölveiðiskipunum. Samkvæmt kröf-
um Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins hefði ekki verið rekstrar-
grundvöllur fyrir þau skip. Niður-
staða gerðardóms er því mun betri
fyrir þá útgerð.“
Friðrik segir að það sé ýmislegt
sem útgerðarmenn hefðu viljað hafa
öðruvísi. Þar standi þó upp úr að nið-
urstaðan gildi aðeins í tvö og hálft ár
en til samanburðar var samningur
vélstjóra til fjögurra og hálfs árs. ■
Helgi Laxdal:
Hagstæðara en
okkar samningar
HELGI LAXDAL
Gerðardómur tekur mið af samningi vél-
stjóra við útgerðarmenn.
cerdardómur „Ég held að niðurstaða
gerðardóms sé mjög keimlík samn-
ingnum sem við gerðum", segir Helgi
Laxdal formaður Vélstjórafélags ts-
lands. „Það eru einhverjar breyting-
ar frá því sem var í samningnum sem
gerir niðurstöðuna heldur hagstæð-
ari fyrir sjómenn en samninginn okk-
ar. Enda hefði verið erfitt að standa
öðruvísi að málum eftir allt það sem
á undan er gengið."
Aðspurður um hvort hann teldi
Vélstjórafélagið ekki bera ábyrgð á
því að sjómenn fengju á sig gerðar-
dóm sem þeir væru ósáttir við neitaði
Helgi því. „Við gripum ekki fram fyr-
ir hendurnar á nokkrum manni. Við
sáum einfaldlega að lengra yrði ekki
komist og sömdum því á þeim for-
sendum sem við gerðum. Það sem
mér finnst ánægjulegast við gerðar-
dóm er að samningstíminn er stuttur.
Sjómenn hafa þá í það minnsta tvö ár
til að ná fram kjarabótum án þess að
hægt sé að segja að við eyðiieggjum
eitthvað fyrir þeim.“ ■
Þórsmörk:
Ólæti og
mikil ölvun
skemmtanir: Mikill fjöldi fólks lagði
leið sína í Þórsmörk um helgina. Á
föstudeginum var rólegt yfir mann-
skapnum en heldur fór að færast
fjör í leikinn á laugardagskvöldinu
þegar talið er að um 700 ungmenni
hafi lagt leið sína í Langadal.
Tblsvert var um ölvun og pústra. ■