Fréttablaðið - 02.07.2001, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 02.07.2001, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 2. júlí 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 13 Danir þykja tefja fyrir Færeyingum Svar danska forsætisráðherrans við viljayfirlýsingu Færeyinga um að taka að sér yfirstjórn mennta- og félags- mála vekur litla ánægju í Færeyjum. Lögmaðurinn fagnar jákvæðum punktum bréfsins opinberlega en embættismenn segja Dani gera hvað sem þeir geta til að teíja fyrir fullveldisáætluninni. fullveldi Færeyingar eru ekki alls kostar ánægðir raeð svör Poul-Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Dan- merkur, við bréfi Anfinns Karlsbergs, lögmanns Færeyja, þar sem hann lýsti því yfir að Færeyingar vildu taka að sér yfirstjórn mennta- og félagsmála og óskaði eftir viðbrögðum forsætis- ráðherrans. Rasmussen staðfestir í bréfi sínu að Færeyingar hafi lagalegan rétt til að taka stjórn þessara málaflokka að sér samkvæmt lögum um heima- stjórnina. Hann leggur hins vegar áherslu á að áður en af því verður hafi Færeyingar samráð við menntamála- og félagsmálaráðherra Danmerkur um hvernig skuli staðið að yfirfærsl- unni. Samhliða því að Færeyingar vilja taka yfirstjórn málaflokkanna að sér leggja þeir til að fjárlagastyrkur úr ríkissjóði Danmerkur vgrði lækk- aður um 356 milljónir danskra króna eða um 36% af því sem Færeyingar hafa hingað til fengið. Rasmussen tek- ur undir hvoru tveggja en segir að málin þurfi að skoðast betur áður en yfirfærslan eigi sér stað. Karlsberg hefur fagnað því í fjöl- miðlum að Rasmussen viðurkenni rétt Færeyinga til að stjórna málum sjálf- ir og segir að það sé punktur sem hægt sé að vinna út frá. Af viðtölum við fólk í færeysku stjórnsýslunni komst blaðamaður Fréttablaðsins hins vegar að raun um að talsverðrar óá- nægju gætir með svar danska forsæt- isráðherrans. Hann er sagður hafa dregið að svara bréfi lögmannsins og þegar svarið loksins berst sé það með þeim hætti að draga málið enn frekar. Þeir sem Fréttablaðið ræddi við segja að það liggi ljóst fyrir að Færeyingar geti einhliða samþykkt lög og tekið málin í sínar hendur. Danir hafi hins vegar valið að draga lappirnar og gera allt sem í sínu valdi stendur til að tefja fyrir því að Færeyingar stígi næstu skref í átt til fullveldis. Hefur þetta framferði Dana valdið mikilli óá- nægju í færeyska stjórnkerfinu og ljóst að þolinmæði margra er á þrot- um. ■ binni@frettabladid.is ANFINN KARLSBERG, LÖGMAÐUR FÆREYJA Lögmaðurinn hefur lýst þvi yfir opinberlega að bréf danska forsætisráðherrans sé já- kvætt. í stjórnsýslunni gætir hins vegar mik- illar óánægju með hvernig málið hefur tafist. í Færeyjum leimsókn æreyja lögðu áherslu á gott samstarf þjóðanna í nútíð og 3togi kæmi í opinbera heimsókn til Færeyja. FYRSTA FORSETAHEIMSÓKNIN TIL MYKINESS Þétt þoka lagðist yfir Mykines á laugardag þegar forsetinn og fylgdarlið hans skoðaði eina afskekktustu eyju Færeyja. ÆTLAR ÞÚ AÐ MÁLA í SUMAR ? Ef þú vilt vanda vinnuna veldu þá hágæða verkfæri. Penslarnir frá Penslaverksmiðjunni eru handunnir úr ekta ólituðum svínshárum, og þú færð þá í helstu byggingar- og málningarvöruverslunum iandsins. Góð verkfæri og vönduð vinnubrögð, tryggja þér góða útkomu. Penslaverksmiðjan ehf sími 5551645 eitt yerð með öllu og fyrir alla í

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.