Fréttablaðið - 02.07.2001, Page 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
2. júlí 2001 MÁNUUPACUR
Slögreglufréttir|
Lögreglan í Reykjavík þurfti að
hafa afskipti af manni í Elliðar-
árdalnum um miðjan dag á laugar-
dag. Maðurinn var þar að athafna
sig á þann hátt að ekki þótti við
hæfi.
Maður vann skemmdarverk á
tveimur bílum á Baldursgötu
um tvöleytið aðfaranótt sunnudags-
ins. Þegar lögreglan kom á vettvang
gaf maðurinn sig fram að sjálfsdáð-
um.
Þrjú tilfelli komu upp.í Hafnar-
firði yfir helgina þar sem menn
voru stöðvaðir grunaðir um ölvun
við akstur. Að sögn lögreglu var
helgin mjög róleg og áberandi hve
fáir voru á ferð.
ísraelar ráðast á sýrlenska herstöð:
Ekki bólar á friði
baalbek. JERÚSALEM. ap. ísraelskir her-
menn skutu tvo Palestínumenn til
bana á Vesturbakkanum í gær. Að
sögn hermannanna voru mennirnir,
sem tilheyrðu hryðjuverkahópnum
Hamas, að koma fyrir sprengjum.
Ekki sér fyrir enda á átökum í Mið-
Austurlöndum þó að dregið hafi úr
þeim síðan vopnahléi var komið á
milli ísraela og Palestínumanna 13.
júní. Hamas neita að viðurkenna
vopnahléið. Það setur strik í friðará-
ætlanir vegna þess að ísraelar krefj-
ast algers vopnahlés áður en tekið
verður til við þær, en leiðtogar
Palestínumanna telja þá kröfu óraun-
sæja.
ísraelskar orustuþotur réðust í
gær á sýrlenskar herstöðvar í Bekaa-
dalnum í Austur-Líbanon í gær. Að
sögn ísraela var árásin gerð í hefnd-
arskyni fyrir árás Hezbollah skæru-
liða á ísraleska herstöð sl. föstudag.
Sýrland og Líbanon höfnuðu því að
þau bæru nokkra ábyrgð á árásinni
sem gerð var við landamæri Líbanon
og Gólan-hæða sem ísraelar náðu yf-
irráðum yfir í stríðinu 1967. ■
MÓTMÆLI Á VESTURBAKKANUM
Palestínskur drengur með AK-47 riffil. í
kjölfar dauða Palestínumannanna tveg-
gja efndu Palestínumenn til mótmæla í
bænum Jenin á Vesturbakkanum.
Tekinn fyrir ofsaakstur
í Arnessýslu:
Sofnaði í
yfirheyrslu
slys Maður var fluttur á slysadeild í
Reykjavík í aðfaranótt sunnudagsins
og er talið að hann hafi höfuðkúpu-
brotnað. Maðurinn var staddur í Út-
hlíð og að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi var mikill mannfjöldi saman-
komin þar og töluvert um ölvun.
Lögreglan stöðvaði mann sem
mældist á 149 km hraða og við nánari
athugun reyndíst hann töluvert ölv-
aður og sofnaði maðurinn ölvunar-
svefni þegar lögreglan reyndi að yf-
irheyra hann. Hann var fluttur í
fangageymslu og látinn sofa úr sér
þar. Lögreglan sagði marga hafa ver-
ið stöðvaða yfir helgina vegna gruns
um ölvun við akstur.
Töluverður ferðamannastraumur
var í Árnessýslu um helgina og sagði
lögreglan íbúafjöldann hafa tvöfald-
ast. Mikil ölvun var í sýslunni og tölu-
vert um minniháttar slys og beinbrot.
Að sögn jögreglu var ástandið þó
verst í Úthlíð. Sagði viðmælandi
Fréttablaðsins félaga sína á nætur-
vaktinni hafa kvartað sáran yfir fá-
menni í liðinu því ekki hefði verið
hægt að sinna því sem þyrfti. ■
Skoðanakönnun:
Islendingar
eru svartsýnir
viðhorf Nokkurrar svartsýni um
efnahagsástandið gætir meðal lands-
manna í augnablikinu, ef marka má
niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar
PricewaterhouseCoopers. Rúmur
helmingur landsmanna telur að efna-
hagsástand muni versna mjög eða
nokkuð mikið á næstu 3 mánuðum.
I könnuninni kom fram að rúmur
helmingur landsmanna (50,2%) telur
að kaupmáttur muni minnka nokkuð
eða mikið á næstunni. Karlar eru
svarsýnni en konur og með hækkandi
aldri og tekjum eykst svartsýni.
Rúmur helmingur landsmanna
(56%) telur að efnahagsástand muni
versna mjög eða nokkuð mikið. Eldra
fólk er svartsýnna en þeir sem yngri
eru.
Tæplega 58% landsmanna telja að
að verðbólga muni aukast nokkuð eða
mikið.
Rúmur helmingur landsmanna
(52,5%) telur að ráðstöfunartekjur
muni minnka nokkuð eða mikið á
næstunni. Eldra fólk er svartsýnna
en þeir sem yngri eru og íbúar á höf-
uðborgarsvæðinu eru svartsýnni en
íbúar á landsbyggðinni.
Tæplega 45% landsmanna telja að
þeir hafi nokkuð eða umtalsvert
minna fé til ráðstöfunar nú en fyrir 6
mánuðum. Með hækkandi aldri fjölg-
ar þeim sem telja sig hafa minna ráð-
stöfunarfé nú en með hækkandi tekj-
um fækkar þeim sem telja sig hafa
minna ráðstöfunarfé nú en fyrir 6
mánuðum.
Könnunin var framkvæmd um
miðjan júní 2001. Tekið var slembiúr-
tak 1.200 íslendinga um allt land á
aldrinum 18 til 75 ára. Nettósvarhlut-
fall var 61% þegar dregnir eru frá
látnir, erlendir ríkisborgarar og þeir
sem búsettir eru erlendis. Könnunin
var framkvæmd símleiðis. ■
f>j óðhátíðarandrúmsloft
þegar forsetinn kom í I
Mikill Qöldi fólks tók á móti forseta Islands þegar hann kom í opinbera heimsókn til Færeyja. Forsetinn og lögmaður F;
framtíð sem hefði gert báðar þjóðir sterkari. Það hefur einungis einu sinni áður gerst að erlendur þjóðarleic
FORSETANUM FAGNAÐ í KLAKKSVÍK
Um 500 manns tóku á móti forsetanum þegar hann kom til Klakksvíkur.
opinber heiivisókn Opinber heimsókn
Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta fs-
lands, til Færeyja sem lauk síðasta
laugardag vakti gríðarlega athygli í
Færeyjum og tók fjölmenni á móti for-
setanum hvar sem hann kom. Óhætt er
að segja að sannkallað þjóðhátíðarand-
rúmsloft hafi ríkt hvar þar sem forset-
inn kom í heimsókn og veifaði fólk ís-
lenskum og færeyskum fánum til að
bjóða hann velkominn.
í heimsókn sinni lagði forsetinn
mikla áherslu á þau miklu samskipti
og góða samstarf sem þjóðirnar hefðu
átt í um það bil þúsund ár. Hann sagði
að það væri þó ekki nóg að minnast
þess góða samstarfs sem þjóðirnar
ÍSLENSK SKÓGRÆKT í FÆREYJUM
Forsetinn gróðursetti alaskavíði frá Mógilsá
í trjálundinn fyrir ofan bæinn Kuney á
samnefndri eyju.
hefðu átt heldur stæðu
þær frammi fyrir því að
tryggja að unga fólkið í
báðum löndum gæti átt
ánægjulegt samstarf og
minntist í þeim efnum á
að þjóðunum væri hollt
að eiga samstarf í menn-
ta- og menningarmálum.
„Það hefur afar
mikla þýðingu fyrir
Færeyinga að forseti ís-
lands skuli koma í opin-
bera heimsókn", sagði
Anfinn Karlsberg, lög-
maður Færeyja, og end-
urspegluðu orð hans hug
fjölda Færeyinga sem
Fréttablaðið ræddi við.
„Heimsóknin er stað-
festing á því góða sam-
starfi sem þjóðirnar
hafa átt. Það er afar
mikilvægt fyrir ríkin á
Norðvestur-Atlantshafi
að standa saman svo
þær falli ekki í skugg-
ann af stærri ríkjum.
Því þegar við stöndum
saman eru þjóðirnar
sterkar."
Forsetanum var hvarvetna vel tek-
ið þar sem hann ferðaðist um Færeyj-
ar og var mikill fjöldi fólks kominn til
að taka á móti honum á öllum nema
allra fámennustu stöðum þar sem hann
kom á. Fyrsta dag heimsóknarinnar
kom hann til Þórshafnar og hélt mót-
töku fyrir íslendinga búsetta á eyjun-
um. Þar voru samankomnir um 170
manns og er það mál manna að aldrei
hafi jafn margir íslendingar verið
samankomnir á einum stað á Færeyj-
um áður. Engar áreiðanlegar tölur eru
til um fjölda þeirra íslendinga sem
búa á Færeyjum en talið er að þeir séu
um 250 talsins. Annars staðar var ein-
nig vel tekið á móti honum. Mikill fjöl-
di var samankominn í Runavík og í
Klakksvík er talið að um 500 manns
hafi fagnað forsetanum við komu hans.
Fæstir tóku þó á móti forsetanum við
komu hans til Mykiness. Þar búa um 30
manns að sumarlagi en eyjan er þekkt
fyrir mögnuð fuglabjörg sín þar sem
er að finna einhverja mestu lunda-
byggð í Norður-Atlantshafi.
Olafur Ragnar er aðeins annar er-
lendi þjóðarleiðtoginn til að koma í op-
inbera heimsókn til Færeyja. Vigdís
Finnbogadóttir var fyrst erlendra
þjóðarleiðtoga til að heimsækja Fær-
eyjar þegar hún kom þangað árið 1987.
Kristján Eldjárn kom einnig til Fær-
eyja en þá sem fræðimaður áður en
hann varð forseti.
binni@frettabladid.is
Norður-Irland:
Trimble segir af sér
belfast. ap. David Trimble, forsætis-
ráðherra norður-írsku heimastjórn-
arinnar, sagði af sér embætti í gær-
morgun í mótmælaskyni gegn því að
írski lýðveldisherinn (IRA) hefur
ekki hafið afvopnun. Samningur við
IRA, tengdur friðarsamkomulaginu
frá 1998, kveður á um að afvopnun
hæfist í júní 2001.
'IMmble sagði þó að hann væri
reiðubúinn til að taka aftur við emb-
ættinu ef að IRA hæfu afvopnun.
Hann útnefndi Reg Empey, viðskipta-
ráðherra stjórnarinnar, til að gegna
embættinu þar til arftaki hann verð-
ur kosinn sem gerast á eigi síðar en
12. ágúst.
Afsögn Blair vakti misjöfn við-
brögð. Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagðist skilja ástæðu
hennar en vonaðist til að mál leystust
á næstu dögum.
Mitchel McLaughlin, formaður
Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA,
sagði að IRA myndi ekki láta segjast
vegna kúgana stjórnmálamanna og
hvatti flokk Trimble, Sambandssinna
Ulster, til að velja sér nýjan leiðtoga.
Varaforsætisráðherra heima-
stjórnarinnar, Seamus Mallon, hóf-
samur kaþólikki sem sæti á í stjórn
Trimble, gagnrýndi afsögnina harð-
lega og spáir því að mikil spenna
muni fylgja í kjölfarið á N-írlandi.
Mallon var sömuleiðis harðorður í
garð IRA fyrir að hafa ekki hafið af-
vopnun sem ljóst væri að þorri íra,
styddi. ■
TRIMBLE OG REID
Fráfarandi forsætisráðherra heimastjórn-
arinnar á N-írlandi og John Reid, ráð-
herra N-írlandsmála I bresku ríkisstjórn-
inni voru staddir á minningarathöfn
heimsstyrjöldina fyrri í Frakklandi í gær.