Fréttablaðið - 17.07.2001, Side 10

Fréttablaðið - 17.07.2001, Side 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 17. júlí 2001 PRIÐJ'JDAGUR \ R\ \ I ABl AD\D Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: (P-prentþjónustan ehf. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Dreifing: Póstflutningar ehf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðínu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og 1 gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS NÁTTÚRUEFNl Fræðsla um aukaverkanir náttúru- og fæðubótarefna þjónar almannaheill, segir þréfritari. Ólöf Þórhallsdóttir skrifar: Fræðsla um aukaverkanir fæðubótarefni Vegna bréfs sem birtist í Fréttablaðinu þann 9. júlí finnst mér rétt að skýra út í stuttu máli hvernig ákveðinn hluti af lokaverkefni mínu: „Aukaverkanir og milliverkanir náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna við Lyfjafræði- deild H.í. var unninn. í bréfinu er ég sökuð um áróðurskennd orð og talað er undir rós um að ég hafi einhverra hagsmuna að gæta varðandi umfjöllun um fæðubótarefni. Þeir sem kynnt hafa sér rannsóknina vita að hún er unnin á hlutlausan hátt. Almenningur telur oft að nátt- úruefni (náttúrulyf / náttúruvör- ur / fæðubótarefni) valdi ekki aukaverkunum en slík viðhorf eru varhugaverð. Einnig þarf að hafa í huga að náttúruefni geta milliverkað við lyfseðilsskyld lyf og breytt áhrifum lyfjameðferð- ar. Hluti af verkefninu var að senda spurningalista til allra lækna á landinu. Meðal þess sem spurt var um, var hvort viðkom- andi læknir hafi, í sínu starfi, orðið var við aukaverkanir eða milliverkanir hjá sjúklingi sem rekja mætti til neyslu náttúru- efna hér á landi. Spurningalistanum svöruðu 410 læknar og af þeim sögðust 134 hugsanlega hafa orðið varir við aukaverkanir sem rekja mætti til neyslu náttúrulyfja, náttúruvara eða fæðubótarefna. Greint var frá upplýsingum um alls 253 aukaverkanir vegna um 60 mismunandi efna. Þar af var talið að vörur frá fyrirtækinu Herbalife hafi valdið 78 auka- verkunum en yfirleitt var ekki getið um hvaða vörutegund frá fyrirtækinu var að ræða. Ginseng, blómafrjókorn, Ripped . fuelá og sólhattur komu þar á eftir en önnur efni eða vöruteg- undir sjaldnar. Aukaverkanirnar voru ýmis konar og alvarleiki þeirra mismikill, allt frá því að hafa lítil áhrif á sjúklinga og að því að hafa verið taldar valda innlögn á sjúkrahús og stofna lífi sjúklinga í hættu. Eftir rannsóknina má álykta að auka þurfi fræðslu til starfs- fólks í heilbrigðisþjónustu og al- mennings um verkun, aukaverk- anir og milliverkanir náttúru- efna. Ég tel að slík óháð fræðsla þjóni almannaheill. Angistaraugu hvíla á Argentínu Fjármálaheimurinn horfir nú ang- istaraugum til Argentínu þar sem stjórnvöld berjast við að halda aftur af skulda- og afborgunarkreppu sem ógnar ekki aðeins fjármálakerfi landsins heldur gæti haft slæmar afleið- „Komist ingar um allan Argentína í heim. Frá því Fern- þrot er líklegt ando De la Rua tók að ýmsir fjár- við embætti forseta málamarkaðir í desember árið landa í Suður- 1999 hefur hann lagt Ameríku, Asíu, fram sex áætlanir Sovétríkjunum um aðhaldsaðgerðir og á fleiri til þess að stemma stöðunum stigu við alvarleg- hrynji." um fjárlagahalla. ....... Nú hefur hann sett fram sjöundu áætl- unina og segir að úrslitastundin sé runnin upp. Eina leiðin sé að skera laun opinberra starfsmanna niður um 13% og lækka bótagreiðslur til ellilífeyrisþega. Jafnframt er héröð- um landsins uppálagt að herða sular- ólina. Dominga Cavallo efnahagsráð- herra segir að Argentína stefni að jöfnun fjárlagahallans nú strax. Búast má við að þessum síðustu efnahagsráðstöfunum verði mætt með hörku af verkalýðsfélögum og Peronista flokknum sem ræður ýms- um héraðsstjórnum þótt hann sé í stjórnarandstöðu á landsvísu. Enda þótt gert sé ráð fyrir að Argentína geti mætt greiðsluskuld- bindingum sínum í ár, olli sú stað- reynd að ekki reyndist hægt að afla landinu nýrra lána nema með tveggja ....Mál manna Einar Karl Haraldsson Einar Karl Haraldsson horfir til erfiðleikanna í Argentínu stafa vaxtatölum, hruni á fjármála- markaði landsins. Forráðamenn Al- þjóðabankans og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins og ríkisstjórnir víða um heim bíða nú með öndina í hálsinum eftir því hvernig málum vindur fram í Argentínu. Astæðan er sú að komist Argent- ína í þrot er líklegt að ýmsir fjármála- markaðir landa í Suður-Ameríku, Asíu, Sovétríkjunum og á fleiri stöð- unum hrynji einnig vegna þess að vantrúin á getu nýrra markaða til þess að standast erfiðleikana breiðist hratt út. Á það er bent að fjármála- kerfi heimsins er miklu verr á sig komið til þess að vinna úr fjár- málakreppu nú á tímum niðursveiflu heldur en reyndin var 1998 þegar al- menn uppsveifla gerði auðveldara að ráða fram úr málum. ■ Sigríður Þorgeirsdóttir: Bregst trausti almennings árni johnsen „Það þarf að rann- saka þetta mál. Það fara miklar fjárreiður í gegnum nefndir á borð við þessa og þarna eru gerð- ir stórir samning- v , ar við verktaka og „Það er þó önnur fyrirtæki. nauðsynlegt að Það þarf afl kom- hafa hugfast ast að því hvort að í réttarríki er þarna hafi verið fólk saklaust brotnar gildandi þar til sekt er stjórnsýsluvenjur sönnuð" og hvort spilling — sé á ferðinni. Það er þó nauðsynlegt að hafa hugfast að í réttarríki er fólk saklaust þar til sekt er sönn- uð“, segir Sigríður Þorgeirsdóttir dósent í heimspeki við Háskóla íslands um mál Árna Johnsen. Hún telur að ganga verði úr skugga um það hvort fleiri sam- bærileg mál gætu hafa átt sér stað áður, sem ekki hafa litið dagsins ljós ennþá. Samkrull við- skipta og stjórnmálahagsmuna sé vel þekkt og nefndir á borð við bygginganefndir bjóði upp á spillingu, án þess að hún vilji ýja að því að meira hangi á spýtunni. „Ef svo reynist vera að lokinni rannsókn að góðar stjórnsýslu- venjur hafi verið brotnar, þykir mér eðlilegt að Árni segi af sér þingmennsku." Sigríður segir það illmögulegt fyrir almenning að treysta hon- um í áframhaldandi störfum, þegar hann hefur orðið uppvís að því að segja ekki satt. „Það verður að segjast að maður- inn bregst trausti almennings með því að ljúga að honum,“ sagði Sigríður. ■ SIGRÍÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR Það þarf að komast að þvl hvort þarna hafi verið brotnar gildandi stjórnsýsluvenjur. Kjördæmisráð sjálfstæð- ismanna: Oþœgilegt og vontfyrir flokkinn stjórnmál Sigurður Valur Ás- bjarnarson formaður kjördæma- ráðs sjálfstæðismanna í Suður- kjördæmi og bæjarstjóri í Sand- gerði segir að menn séu vissu- lega slegnir yfir máli Árni Johnsens þingmanni flokksins til margra ára. Þá segi það sig sjálft að málið' sé vissulega óþægilegt fyrir sjálfstæðismenn, enda sé öll neikvæð umræða af hinu verra fyrir flokkinn í kjördæm- inu. Hann segir það vera lykilat- riði að Árni geri hreint fyrir sín- um dyrum í þessu máli og ekki óeðlilegt að hann geri það fyrir Alþingi. Aðspurður hvort þingmaður- inn eigi að segja af sér vegna málsins segir Sigurður Valur að í þessu máli eins og svo mörgum öðrum sé ekki sé hægt að dæma SIGURÐUR VALUR ÁSBJARNARSON Sjálfstæðismenn vissulega slegnir yfir máli Árna Johnsen, fyrsta þingmanns flokksins í Suðurkjördæmi. manninn fyrr en niðurstaða ligg- ur fyrir í þeirri rannsókn sem beðið hefur verið um. Hann seg- ist jafnframt ekki geta svarað því á þessari stundu hvort kjör- dæmisráðið verði kallað saman út af málinu. Kjördæmaráðið var stofnað sl. haust í framhaldi af nýrri kjördæmaskipan, en kjör- dæmið nær yfir Suðurnes og Suð- urland og til með Hornafirði í austri ■ ______________________ ORÐRÉTT Þetta er nú ekki alvarlegt ÚTVARP „- En er honum (Árna Johnsen- aths. Frbl.) áfram sætt í byggingarnefnd leikhússins? - Nei, ég held að ekki bara út af bessu, heldur út af þessu fjaðrafoki öllu, þá hela ég að sé eig- inlega kominn tími á mig í bygginganefnd Þjóð- leiknússins. - En fjaðrafokið er það ekki fyrst og fremst vegna þess að þú hefur kosið að segja fjöl- miðlum ósatt? - Ég sagði ekki beint ósatt, ég sagði ekki allan sannleikann, en nú hef ég gert það. - En þú sagðir að steinamir væru á brettum út i bæ - Já, ég sagði það vegna þess að þegar maður gengur að lager hjá fyrirtæki sem selur þessa steina þá eru þeir geymdir þannig. - En þeir voru í garðinum heima hjá þér! - Já - Ekki á bretti út í bæ! - Nei - En þú sagðir þjóðinni það i gær - Já, það er ósatt og það er ekki gott Pétur H. Blöndal um almannafé: Minnka umsvif og styrkja eftirlit ríkisumsvif „Það er mjög brýnt að eigandi fjár komi að því hvernig því er ráðstafað. Of mikil ríkisaf- skipti bjóða heim þeirri hættu að illa sé farið með almannfé," segir Pétur H. Blöndal, í tengslum við meintar ráðstafanir Árna John- sen. Minnka þurfi ríkisumsvif og styrkja eftirlit með þeim sem ráðstafa slíku fé. Hann tekur þó fram að hann geti ekki tjáð sig sérstaklega um störf Árna þar sem hann hafi ekki kynnt sér mál- ið að fullu. Pétur segir reglur um ríkis- endurskoðun og útboð þrauta- lendingu sem leiði af því að ein- hver þurfi að ganga í stað eiganda fjár sem í raun sé í mörgum til- fellum „án hirðis." Ekki megi það heldur gleymast að Ríkisendur- - Er þér þegar það er upplýst að þú segir þjóðinni ósatt, er þér sætt áfram sem þing- maður fyrir þjóðina? -Já, já, ég held að það sé ekki þess eðlis þetta mál. Þegar standa öll járn á manni, þá reynir maður ósiálfrátt að víkja sér undan, og þetta er nú ekki aívarlegt. - Þér finnst þetta ekki alvarlegt? - Nei, ekki stóralvarlegt, en ekki til fyrirmyndar?" Úr viðtali Kristjáns Guy Burgess við Árna Johnsen alþingismann í hádegisfréttum RÚV 16. júlí 2001 skoðun heyri und- ir Alþingi sjálft. Best væri að kom- ast hjá vandamál- um með því að taka til í kerfinu og minnka ríkis- umsvif. Pétur hef- ur áhyggjur að . .. því að undanfarin PETURdalBLON átt sér stað Færa ber al- aukning á Umsvif- mannafé nær eig-um hins opinbera endum þess. Ríkis-þrátt fyrir ýmsa endurskoðun ekki jákvæða tilburði í vænlegur stað- einkavæðingarátt. gengiH eigenda. ^ £ ég sérstak- lega við sjálfseignarstofnanir, fyrirtæki í eigu ríkis og sveitar- félaga og fjársterk fyrirtæki inn- an verkalýðshreyfingarinnar." ■ ÁRNI JOHNSEN Ég sagði ekki beint ósatt, ég sagði ekki all- an sannleikann, en nú hef ég gert það. vcf.www í’Oii OCe >.r>t Oíi i&iU ,*ivtívtY*8 BOi ,ái JubidzLnshu'jji .Iri i£xtiJi9V)í6s tUv<i»JzI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.