Fréttablaðið - 17.07.2001, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 17. júlí 2001
GAIZKA MENDIETA
Valencia vill fá 5 milljarða króna fyrir spænska landsliðsmanninn Mendieta.
Enski boltinn:
Dyer
ósáttur
KNATTSPYRNA Kieron Dyer leik-
maður Newcastle er ósáttur við að
fá ekki að fara frá liðinu, en stjórn
Newcastle hafnaði nýlega 15
milljóna punda boði Leeds í leik-
manninn. Dyer, sem er 22 ára
gamall enskur landsliðsmaður,
átti fund með Freddy Shepherd,
stjórnarformanni Newcastle í
gær, þar sem Shepherd tók það
skýrt fram að liðið hefði ekki í
hyggju að selja leikmanninn.
„Eg átti langan og góðan fund
með Kieron og umboðsmanni
hans þar sem ég sagði í stuttu
máli að framtíð Kieron lægi hjá
EKKI TIL SÖLU
Stjórnarformaður Newcastle segir að Kier-
on Dyer sé alls ekki til sölu.
Newcastle United," sagði
Shepherd. „Kieron er mikilvægur
hlekkur í liðinu og framtíð þess og
ég sagði honum að markmið og
metnaður liðsins færi saman við
hans eigin. Kieron Dyer er ekki til
sölu.“
Dyer er að ná sér eftir upp-
skurð á fæti og verður því frá æf-
ingum í nokkrar vikur í viðbót. ■
Spænski boltinn:
Mendieta til
Real Madrid?
knattspyrna Gaizka Mendieta hef-
ur óskað eftir því að vera settur á
sölulista hjá Valencia. Talið er að
Real Madrid, Lazio og AC Milan
hafi öll mikinn áhuga á að kaupa
leikmanninn en ásett söluverð
gæti reynst of hátt fyrir lið eins
og Real Madrid sem keypti nýlega
Zinedine Zidane frá Juventus fyr-
ir 6,7 milljarða króna. Talið er að
Valencia vilji fá um 5 milljarða
króna fyrir kappann.
Á blaðamannafundi sem
Mendieta hélt á sunnudagskvöldið
sagði hann að eflaust væri nú rétti
tíminn til að breyta til. Talið er að
hann vilji helst leika áfram á
Spáni og þá helst með Real Ma-
drid.
„Tækifærið til að fá að leika
með bestu leikmönnum heims er
freistandi," sagði Mendieta. „Real
Madrid er stórkostlegt lið og ég
Formúla 1:
Hakkinen
ræðir fram-
tíð sína
kappakstur Mika Hakkinen, sem
sigraði í Formúlu 1 keppninni á Sil-
verstone á Englandi á sunnudag-
inn, mun á næstu dögum ræða við
forráðamenn McLaren-Mercedes
um framtíð sína hjá liðinu.
„Þetta er ákvörðun sem hann
verður að taka og við munum því
ræða saman,“ sagði Juergen
Hubbert, stjórnarmaður Daimler-
Chrysler samsteypunnar, sem á
Mercedes Benz fyrirtækið og sér
McLaren liðinu fyrir vélum.
„Hann hefur ekki enn sagt hvað
hann vilji gera, en ég vænti þess að
niðurstaða fáist í málið innan fárra
daga.“
Hubbert sagði að með sigri sín-
um um helgina hefði Hakkinen
sýnt að hann hefði engu gleymt og
held að hvaða leikmaður sem er
myndi vilja leika með þeim. Það
er mikilvægt fyrir knattspyrnu-
menn að eiga tækifæri á því að
vinna einhvern titil á hverju ári.“
Mendieta sagðist búast við til-
boði í vikunni.
„Ég mun halda öllum mögu-
leikum opnum þar til keppnis-
tímabilið hefst í lok ágúst og ef
ekkert gerist fyrir fimmtudaginn
mun ég hefja æfingar með Val-
encia.“
Mendieta hefur tekið miklum
framförum á undanförnum árurn
og verið lykilmaður í liði Valencia
sem komst í úrslit Meistaradeild-
ar Evrópu síðastliðin tvö ár. Ef
hann færi frá liðinu væri það mik-
ið áfall fyrir Rafael Benitez,
nýráðinn þjálfara þess, en hann
tók við af Hector Cuper, sem fór
til Inter Milan. ■
EKKI AÐ HÆTTA
Mika Hakkinen mun ræða við forráða-
menn McLaren-liðsins á næstu dögum um
framtíð sína hjá liðinu.
væri enn metnaðarfullur ökumað-
ur. Áður en keppnin í Silverstone
hófst um helgina neitaði Hakkinen
að hann hygðist setjast í helgan
stein eftir yfirstandandi keppnis-
tímabil. ■
Veldu
FordTransit
Sendibíl ársins 2001
Meira af því skemmilega!
_
**< m
mm
CRAZY CREEK 1000
HLAUPAHJÓL
Venjulegt verð: 6.990
Club Tilboð: 4.490
..
al
Club INTERSPORT n
Hentar þér sem hefur brennandi
áhuga á íþróttum, útiveru og/eða
sportlegum lífsstíl. Einstök klúbþ-
tilboð fyrir félaga og bónus á öll kaup
o.fl. o.fl. mun gera tilveruna hjá þér
skemmtilegri og síðast en ekki síst
hagstæðari.
CRAZY CREEK SCOOTER
MEÐ TÖSKU
Venjulegt verð: 8.990
Club Tilboð: 5.990
FordTransit er sterkbyggður með elnstaka flutnings- og burðargetu.
I FordTransit sameinast rúmlega 35 ára þekking og reynsla á hönnun
sendibíla. FordTransit er glæsilegur og gott útsýni um stórar rúður gerir
aksturinn mun þægilegri og öruggari. Komdu og sjáðu hversu gott þú
Reykjavík getur haft það við aksturinn.
Brimborg
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Akureyri
Brimborg
Tryggvabraut 5
Sími 462 2700
bnmborg
www.brimborg.is
• Nýtt og glæsilegt útlit
• Framdrif með spólvörn
• Lægri viðhaldskostnaður
• Nýjar dísel vélar
• Meira og þægilegra hleðslurými