Fréttablaðið - 17.07.2001, Side 24

Fréttablaðið - 17.07.2001, Side 24
FRÉTTABLAÐIÐ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20 Vm SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSlr.iS Fyrstur með fréttirnar JffilaibícMb í Aádeýánu Grensásvegur 10 Sími 553 88 33 Ofíicelsuperstore OPtO VIRKA DAGA KL8-19 • lAUGAPDAGA KL 10-16 Skeifunni 17, 108 Reykjavík I Furuvöllum 5, 600 Akureyri Sími 550 4100 lfeeknlval Þjóðvegarúlletta Eitt sinn sat ég í bíl á ferð um holt og hæðir Jamaiku. Leiðsögumað- ur ók bílnum á ofsahraða á einbreið- um, krókóttum vegum um leið og hann sagði frá öllu milli himins og jarðar, fletti í bæklingum, gleypti í sig nesti, hrópaði, kallaði, sveigði, beygði og forðaði okkur oftar en einu sinni frá bráðum bana. Á blind- hæðum þeyttu menn horn í gríð og erg og tóku ævintýralegar sveiflur á tveimur hjólum þegar þeir mættust á flughraða. —♦— „FRUMSTÆÐ ÖKUMENN- ING," sagði ég yfirlætislega við sjálfa mig. Ökuþórinn tjáði farþeg- um að á Jamaiku væru banaslys í umferðinni sérlega tíð og þótti mér það ekki ólíklegt miðað við þá rúss- nesku rúllettu sem við upplifðum - hugsaði með mér að svona væri þetta ekki á landinu bláa, en hef síð- an þráfalt þurft að éta það ofan í mig. Þegar ég ek þjóðveg eitt með dýrmætasta farminn innanborðs finnst mér ég vera almennur borg- ari, villtur á fremstu víglínu í styrj- öld. Adrenalínið flæðir. Ég reyni að beita ítrustu varfærni og frums- stæðustu sjálfsbjargartækni til að koma aleigunni klakklaust yfir á ör- uggt svæði. —♦— SJÁLF VIL ÉG ekki drepa nokkurn mann. Það eitt vakir fyrir mér að halda lífi. Flestum ökumönnum virð- ist óbærilegt að aka með mér á níu- tíu kílómetra hraða og upphefst þá rússneska rúllettan. Framúrakstur við brúarenda, framúrakstur með bíl á móti, framúrakstur í blindbeygjum og hópframúrakstur þar sem spenn- an felst í því hversu naumlega sá síðasti sleppur áður en ég mæti bíl. Nýjasta áhættuatriðið er framúr- akstur með kerru. Þar er áhættan tvöföld og því er spennan enn meiri. Þessu kerrufólki er meinað að aka hraðar en áttatíu km/klst, en veit sennilega ekki af því. —♦— ÉG HEF AÐEINS tvær hernaðará- ætlanir til að verja mig og mína. Ég get reimað á mig, kall og kríli gönguskó, axlað poka og arkað af stað eða fjárfest í skriðdreka sem ekkert fær grandað. Auðvitað væri best að allir hægðu á sér, sýndu eig- in lífi og annarra virðingu og tillits- semi og færu að lögum. Það er hins- vegar svo barnsleg óskhyggja að ég er að spá í skriðdrekann. ■ HVALASKOÐUN firá Reykjavíkurhöfn, alb daga kl. 10:30

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.