Fréttablaðið - 21.08.2001, Side 9
ÞRIÐJUPAGUR 21. ágúst 2001
FRETTABLAÐIÐ
H agnaður Tryggingamið stöð varinnar:
Iðgjaldahækk-
unin skilar sér
árshlutauppcjör Stórhækkun ið-
gjalda vegna bílatrygginga í júlí á
síðasta ári ári skilaði 'IVygginga-
miðstöðinni rúmlega 150 milljóna
króna hagnaði á fyrri helmingi árs-
ins, sem er helmingshækkun frá
sama tímabili á fyrra ári. Það er
nefnt í árshlutauppgjörinu að
hagnaðurinn hefði orðið meiri ef
ekki hefði til komið stórbruni ísfé-
lagsins í Vestmannaeyjum, en
vegna þess greiddi félagið út tæp-
an milljarð. Nokkurt tap varð því á
eignatryggingum á fyrri árshluta.
Þá er það nefnt til að útskýra
góða afkomu að fyrstu fjórir mán-
uðir ársins voru tiltölulega tjóna-
léttir. Tjónaþunginn er hinsvegar
sagður hafa aukist og náð meðal-
lagi í maí og júní. Tryggingamið-
stöðin tapaði samtals 330 milljón-
um á ökutækjatryggingum á fyrri
árshelmingum 1999 og 2000, en
græddi 238 milljónir á sömu starf:
semi á fyrstu sex mánuðum 2001. í
uppgjörinu segir að leitað sé leiða
til að stöðva taprekstur í eigna-
tryggingum. ■
lögreglufréttirJ
Rannsóknardeild lögreglunn-
ar í Keflavík leitar nú upp-
lýsinga um grunsamlegar
mannaferðir á sunnudagskvöld
við hús Fiskmjöls og lýsis, en
talið er víst að um íkveikju hafi
verið að ræða. Ekki voru gefnar
frekari upplýsingar um rann-
sóknina í gærkvöldi. Óskar Æv-
arsson hjá Fiskimjöli og lýsi
segir áhrif brunans á starfsemi
fyrirtækisins óveruleg.
Húsið hefur staðið ónotað ef
frá er talin frystigeymsla í
kjallara hússins sem geymir
beitarfisk, en hún skemmdist
ekki. Fiskimjöl og lýsi er í eigu
Samherja og er þetta því í ann-
að sinn á stuttum tíma sem
kveikt er í eignum akureyrska
félagsins.
NÝ RANNSÓKN
Samgönguráðherra vill að Rannsóknanefnd flugslysa rannsaki björgunaraðgerðir vegna Skerjafjarðarslyssins en nefndin hefur ekki talið
það I sínum verkahring. Aðstandendur staðhæfa hins vegar að þetta sé ein af frumskyldum þeirra sem rannsaka flugslys.
Ráðherra vill rannsókn
á björgunaraðgerðum
Rannsóknarnefnd flugslysa rannsaki aðgerdir við Skerjafjarðarslysið.
RNF hefur áður sagt það ekki í sínum verkahring. Þarf nýja nefnd,
skipaða hæfum mönnum, segir Friðrik Þór Guðmundsson.
SKERJAFJARÐARSLYSIÐ Sturla BÖðv-
arsson samgönguráðherra hefur
óskað eftir að Rannsóknarnefnd
flugslysa yfirfari ný gögn sem
tengjast björguninni vegna
Skerjafjarðarslyssins. Um er að
ræða ýmsar skýrslur og minnis-
blöð vegna slyssins og myndband
einkaaðila af björguninni Flug-
slysanefndin segist ekki hafa vit-
að af tilvist þessara gagna fyrr en
nýlega.
Ákvörðun ráðherrans er sögð
vera tekin í kjölfar þess að hann
skoðaði myndbandið sem mun
sýna nánast allt björgunarferlið.
„Um svipað leyti komu fram
upplýsingar um skýrslu slökkvi-
liðsins í Reykjavík um sama mál
og minnisblað Flugmálastjórnar,
auk fundargerða um björgunar-
bátinn sem notaður var við björg-
unaraðgerðirnar. Rannsóknar-
nefnd flugslysa hefur staðfest að
gögnum þessum hafi ekki verið
komið til nefndarinnar meðan ver-
ið var að vinna að rannsókn flug-
slyssins og hún hafi ekki haft vit-
neskju um tilvist þeirra fyrr en
nú,“ segir í tilkynningu frá sam-
gönguráðuneytinu.
Samgönguráðherra segir að
þótt hann hafi ekki heimild til að
gefa flugslysanefndinni fyrirmæli
telji hann það æskilegt að nefndi
skoði áðurnefnd gögn með það í
huga hvort tilefni geti verið til að
endurupptaka þann þátt í skýrslu
nefndarinnar sem fjallar um
björgunaraðgerðirnar.
Þá hefur ráðherra ákveðið að
skipa starfshóp til að fara yfir ör-
yggismál á flugvöllum landsins og
annan hóp sem gera á tillögur um
breytingar á lögum og reglugerð
um rannsóknir flugslysa.
í fyrri viku birti Rannsókna-
nefnd flugslysa yfirlýsingu í
Morgunblaðinu þar sem segir að
skipulag og stjórnun björgunar-
starfa, svo og læknismeðferð slas-
aðra, séu utan þess vettvangs sem
RNF kemur að í skýrslum sínum,
enda sé það í verkahring annarra.
Friðrik Þór Guðmundsson, fað-
ir eins fórnarlamba slyssins,
sagði að samkvæmt reglum
ICAO, Alþjóðaflugmálastofnun-
arinnar, sé það skýrt að rannsókn
á björgunaraðgerðum og því
hvort betur hefði mátt standa að
björgun farþega sé eitt megin-
markmið með rannsókn flug-
slysa. Rannsóknarnefnd flug-
slysa hafi annað hvort kosið að
hundsa þær reglur eða ekki lesið
þær. Friðrik sagði að þrátt fyrir
ákvörðun ráðherra standi eftir að
aðstandendur telji Rannsóknar-
nefnd flugslysa vanhæfa til að
rannsaka bjögunaraðgerðir nú,
fyrst það var ekki gert í upphafi.
Til rannsóknarinnar þurfi því að
setja nýja rannsóknarnefnd, skip-
aða hæfum mönnum. ■
Sprengjurvargar í Hafnarfirði ganga enn lausir:
Engar nýjar vísbendingar
lögregla Rannsóknarlögreglan í
Hafnarfirði segist ekkert hafa í
höndunum sem leitt geti hana á
spor þess eða þeirra sem sprengdu
rörasprengju í bænum á laugar-
dagskvöld. Eins og sagt hefur ver-
ið frá boraði brot úr spengjunni
gat á bíl tveggja skólastúlkna sem
áttu leið hjá og skemmdir urðu á
nálægum húsum þegar sprengju-
flísar þeyttust í allar áttir.
Engin vitni hafa gefið sig fram
utan íbúi við götuna sem segist
hafa séð þrjá drengi hlaupa á
brott frá húsasundinu við Strand-
götu þar sem sprengjan sprakk.
Hins vegar var skuggsýnt og lög-
reglan segist ekki hafa mikið áð
græða á lýsingu mannsins. Leifar
sprengjunnar sjálfrar eru sömu-
leiðis sagðar gefa afar takmark-
aóar vísbendingar og það er því
útlit fyrir að málið upplýsist ekki
nema sprengjuvargurinn eða
vargarnir sjálfir gefi sig fram eða
ný vitni komi fram sem leitt geti
til þeirra.
Sjálf segist Hafnarfjarðarlög-
reglan telja að sökudólgarnir séu
ósköp venjulegir „vitleysingar"
en nokkur brögð hafa verið að því
í gegn um árin að unglingar í bæn-
um hafa orðið uppvísir að því að
fikta við rörasprengjugerð.
Sprengjan á Strandgötunni mun
þó hafa verið „frekar stór“. ■
HÆTTULEGUR LEIKUR
Heíða Björk Vigfúsdóttir og Klara Syeins-
dóttir sluppu við sprengjuflísarnar á
Strandgötu á laugardagskvöld en
bíll þeirra ekki.
cTöCvu-
námsCeið
GYÐU ATLADOTTUR
TÖLHugroAMUAr Kr. 16.900
Helstu hugtök einkatölvu. Uppbygging og hlutverk stýrirkerfa.
Notkun lyklaborðs, músar. diskadrifs. prentara, skanna. 20
kennslustundir
MJcnrd/1 Kr. 16.900
Grundvallaratriði ritvinnsluforrita. Innsláttur texta og
leíðréttingar. Útlitsmótun stafa, efnisgreina, blaðsíðna
Prentun 20 kennslustundir
WorcUlI
Kr. 17.900
Staðsetning og notkun mynda í ritvinnsluskjali. Stöðluð
stllsnið texta og málsgreina. Notkun og uppsetning
flýtihnappa. Töflur og dálkar. Haus- og fótlina. 15
kennsiustundir
E)ccel/I
Kr. 16.900
Grundvallaratríði töflureikna. Innsláttur gagna og tilfærsla.
Gerð formúla og myndrita. Útlitsmótun. Prentun. 20
kennslustundir
Kr. 17.900
Framsetning tölulegra upplýsinga á myndrænan hátt. Flóknari
formúlugerð og föll. Síun og röðun. Tengingar á milli skjala.
15 kennslustundir
POMJ&rPOÍA^t
Kr. 16.900
s
Gerð vandaðra glæra, litskyggna. námsgagna fyrir
skásýningar Notkun bakgrunna og mynda. Hreyfing og
hljóð. 20 kennslustundir
N,
N,n
^75%
Urgrel**’
Fjögurra vikna kvöidnámskeið að
hefjast. Kennt flest kvöld vikunnar
kl.18:00-21:00 eða kl.18:00-22:00
UPPLÝSINGAR OG SKRANING I SIMA
863 1029
Passar á svalirnar, á veröndina,
í garöinn, við sumarbústaöinn
og allstaðar þar sem notalegs hita
er þörf þegar kólnar í veðri.
Verð aðeins
kr. 30.450,-
Afköst 4.0 kW.
Notkun 0,32 kg/klst.
Þyngd 25 kg/án gaskúts
ÞOR HF
REYKJAVÍK - AKUREYRI
REYK3AVIK; Ármúla 11
168 1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - si