Fréttablaðið - 21.08.2001, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.08.2001, Blaðsíða 10
10 FRETTABLAÐIÐ 21. ágúst 2001 ÞRIÐJUDAGUR Sœlustaðir í sumarferð um landið I Rí I í Aí'í AI >íí > Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Dreifing: Póstflutningar ehf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvasðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingaritostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt tilað birta allt efni biaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. Svo fór að ferðasaga Huldars Breiðfjörðs, Góðir Islendingar, reyndist vinsælli förunautur í hringferð, en sýnishorn úr íslend- ingasögum. Vetrarferð Kaffibars- stráksins úr 101 Reykjavík um landið er skemmtileg dægrastytt- ing í sumargrænni sólskinsför. „Hjartað í hverjum einasta bæ út á landi er bensínsjoppan", seg- ir Huldar og virðing fyrir hlut- verki hennar og afgreiðslufólks- ins vex mjög við lestur ferðasög- unnar sem út kom 1998. „Þetta er langbesta, langbesta sjoppan sem ég hef komið í. Hún er æði-slega góð, „ sungu Grýlurnar og Stuð- menn í klassískri vegamynd Ágústar Guðmundssonar, „Með allt á hreinu“,fyrir hálfum öðrum áratug. Og enn er enginn skortur á hamborgurum eða kjúklingum með frönskum, salati og sósu í vegasjoppunum, af misjöfnum gæðum og oft borið fram af áhugalausum ungmennum sem bíða eftir næsta sveitaballi. Mun- urinn er sá að nú á ferðafólk val á gistingu og viðurværi af ýmsum gæðaflokkum, allt eftir áhuga og efnahag. Víða eru tjaldstæði og bændagisting til fyrirmyndar, og einnig hægt að komast í lúxusgist- ingu eða glæsileg sumarhús, ef pantað er með fyrirvara. Matarmenningin hefur tekið stórstígum framförum. Um það geta menn sannfærst t.d.hjá Ferðaþjónustunni á Hólum í Hjaltadal, Café Nielsen á Egils- MáLmanna Einar Karl Haraldsson rifjar upp matarminningar úr _______ hringferð um landið stöðum og Hótel Framtíðinni á Djúpavogi þar sem fagmennska er í fyrirrúmi. Svo mikið var af ítölum á ferð um Norður- og Aust- urland að hægt var að verða full- numa í ítölsku á nokkrum dögum við að hlusta á ánægjuhjal þeirra yfir borðum á þessum stöðum. Er hægt að fá betri meðmæli! Og það er gaman að koma á vel ilmandi kaffihús eins og Sólvík á Hofsósi, Löngubúð á Djúpavogi og Templ- arann á Fáskrúðsfirði. Flestir þessir sælustaðir eru í reisuleg- um timburhúsum frá danska tím- anum á íslandi og mikil synd að hlýjan í þessum húsum skuli ekki hafa mótað húsagerðarlist síðari áratuga meira en raun ber vitni. ■ | BRÉF TIL BLAÐSINS OPINBERAR FRAMKVÆMDIR Hafa menn aldrei heyrt getið um tímaskýrslur hjá hinu opinbera, spyr bréfritari? Reglurnar eru til en þeim var ekkifylgt Byggingaverktaki skrifar verktaka Ég hef sem verktaki unnið stór tilboðsverk fyrir ríkið og mér blöskrar margt af því sem fram hefur komið í máli Árna Johnsen. Mín reynsla er sú að það sé mikil formfesta, nán- ast heragi, í samskiptum verk- taka og opinberra aðila. Það eru haldnir fundir vikulega, eða jafnvel oftar, og haldnar fundar- gerðir og eftirlitsmaður af hálfu ríkisins fylgdist með því hvaða verkþætti unnið væri við og verklýsingu stranglega fylgt fram. Ef féllu til aukaverk, sem ekki voru samkvæmt útboði þá voru þau unnin í tímavinnu og þá þurfti að skila tímaskýrslu. Reglan er sú að annað hvort er unnið samkvæmt útboði eða samkvæmt tímavinnu og þá er skilað inn tímaskýrslum á eyðu- blöðum sem fást úti í Penna. Það er komið fram að það sé einhver 600 þús. kr. lokagreiðsla án tíma- skýrslu vegna grjóthleðslu við Þjóðhildarkirkju. Þetta er fá- heyrt að gera upp með einhverri lokagreiðslu án þess að fram komi gögn um fyrir hvaða vinnu er verið að greiða, staðfest af eftirlitsmanni. Árni virðist hafa haft þetta allt galopið út og suð- ur einsog honum sýndist og það er auðvelt að ímynda sér hvers vegna hann hefur viljað hafa þetta allt í ringulreið þar sem hann hefði sjálfur frítt spil. Sem manni, sem hefur áralanga reynslu af því að framkvæma út- boðsverk, þá blöskrar mér. Björn Bjarnason hefur kvartað undan því að það séu ekki til reglur en hér hafa strangar regl- ur verið í þróun í rúm 20 ár og síðan settir staðlar um útboð og framkvæmdir, sem vísað er til við framkvæmdina. í öllu þessu máli koma opinberir aðilar fram eins og bjánar. Það vantar ekki reglurnar, það vantaði að haft væri eftirlit með því að þeim væri fylgt af Árna Johnsen eins og öllum öðrum. Reglurnar eru settar til þess að koma í veg fyr- ir að menn geti fallið í freistni og gert einmitt það sem Árni Johnsen komst upp með að gera á kostnað ríkissjóðs. ■ Heimildamynd um stéttleysingja á Indlandi kostuð af Islendingum Hjálparstarf skilar góðum árangri. Viðbrögð við kröfugöngu þrælabarna í vor hefur vakið vonir um mikilvægar réttarbætur. Héraðsstjórinn í Kanchipuram afhendir 36 þrælabörnum frelsisskjal. mannréttindi Samtök stéttleys- ingja, Dalíta, á Indlandi munu sýna 30 mínútna heimildamynd, sem kostuð er af söfnunarfé frá íslendingum, á ráðstefnu Mann- réttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynþáttafordóma, sem hefst í Durban í Suður-Afr- íku í lok þessa mánaðar. „Það hafa orðið þáttaskil í baráttu samverkafólks okkar á Ind- landi“, segir Jónas Þórir Þóris- son framkvæmdastjóri Hjálpar- starfs kirkjunnar, en hjálpar- starfið hefur um margra ára skéið unnið með samtökunum Social Action Movement (SAM) í indverska ríkinu Tamil Ladu. „Starf þess í þágu þrælabarna, sem eru ánauðug í silkivefstof- um vegna skulda foreldra sinna, hefur fengið margvíslega opin- bera viðurkenningu á síðustu vikum, og með gerð Fjölmiðla- nets Dalíta á heimildamyndun- um , sem kostaðar voru af ís- lendingum, hefur málstaður stéttleysingja fengið í hendur öflugt upplýsingatæki." Um er að ræða þrjár heim- ildamyndir, þriggja klukkutíma myndskráningu á kjörum Dalíta og ofsóknum á hendur þeim, eins klukkutíma mynd á tamílsku til þess auka þekkingu Dalíta sjál- fra á eigin högum, og 30 mínútna mynd á ensku sem ber heitið „Hið ósnertanlega land“. Stúlkan Devi, sem er nýsloppin úr vinnuánauð, les kröfur þrælabarna á fundi eftir kröfu- gönguna í Kanchipuram 1. maí sl. Yfirvöld veita nú baráttu SAM athygli og stuðning, og hér er héraðsstjórinn að afhenda börnum 2000 rúbia iausnargjald fyrir hönd SAM og hvetja þau til þess að hætta vinnu í vefstofunum jafnvel þótt foreldrar þeirra vilji þvinga þau til þess. JÓNAS ÞÓRIR ÞÓRISSON Yfir 100 börn hafa nú verið leyst úr vinnuánauð, um þúsund stunda nám i kvöldskólum SAM, og mikill fjöldi barna er i stuðningsnámi, auk þess sem unnið er með fjölskyldum barnanna. íslendingar söfnuðu 30 milljónum króna til verkefnisins árið 1999 I páskasöfn- un Hjálparstarfs kirkjunnar. Fyrsta maí sl. vöktu aðgerðir þrælabarna mikla athygli í borg- inni Kanchipuram, en þar er fjöl- di silkivefstofa. Fimm hundruð börn úr vefstofunum gengu fylktu liði um götur borgarinnar, dreifðu upplýsingaefni, og héldu dans- og söngskemmtun í ráðhúsinu þar sem margir foreldrar og forráða- menn SAM slógust í hópinn. Börn- in afhentu síðan fulltrúum héraðs- stjórnarinnar skjal með kröfum sínum, m.a. um tveggja daga frí frá vinnu á viku. Síðan var sam- eiginleg máltíð sem öllum þótti mikið til koma. Laugardaginn ellefta þessa mánaðar hélt síðan héraðsstjórinn mikilvægan fund í Kancipuram þar sem saman voru komnir full- trúar héraðsstjórnarinnar, kenn- arasamtaka, verkalýðshreyfingar og frjálsra félagasamtaka. Á fundinn komu einnig eigendur nokkurra stærstu vefstofanna sem nota börn við vefnað. Eftir miklar og strangar umræður urðu helstu niðurstöður þessar: 1. í september fer fram skráning á öllum „þrælabörnum“ í Kanchpuram. 2. Héraðsstjórnin mun setja af stað herferð til þess að koma í veg fyrir að „þrælabörnum" fjölgi. 3. Kvöldskólar SAM verða viður kenndir sem „Brúarskólar“ og veitir vist í þeim beinan að gang að ríkisskólum. 4. Opinberar nefndir sem eiga að vinna gegn barnavinnu verða settar upp víðsvegar um héraðið. Eigendur stóru vefstofanna sjá ekkert því til fyrirstöðu að börnin fá tvo frídaga á viku en telja að reka þurfi áróður í hópi undir- verktaka til þess að ná fram því markmiði. í framhaldi af þessum fundi er ljóst að stjórnmálamenn í Tamil Ladu eru farnir að taka mál- efni „þrælabarnanna" upp á. sína arma og er það verúlegur áfangi í baráttu Social Action Movement, segir Jónas Þórir hjá Hjálpar- starfi kirkjunnar. ■ |ORÐRÉTT Hvati til að nota þekkinguna heima bygcðaþróun „Því miður trúi ég því ekki að flóttinn (frá Austfjörðum - —ý-— aths. Fréttablaðs- „Kerfi sem ins) verði stöðvað- bauð mennta- ur við það eitt að fólki betrí fólki bjóðist að námslán gegn vinna í álverum og því að það þjónustustörfum sneri aftur." tengdum þeim Það er ekki skortur á atvinnu fyrir austan, þvert á móti hafa vinnuveitendur þurft að ráða erlent vinnuafl til að manna plássin í fiskvinnslunum og líklega verður það sama upp á teningnum þegar kemur að því að manna kerskálana í álverunum. Ungt fólk sem hefur áhuga á að mennta sig fer til Reykjavíkur í há- skólanám því ekki er það í boði í þeirra heimabæ. Að því námi loknu heyrir til undantekninga að þetta sama unga fólk, nú reyndar fjórum árum eldra og með gráðu úr Há- skólanum, hafi áhuga á því að vinna í kerskála á Reyðarfirði og alveg af sömu ástæðu og bræður þeirra og systur snéru ekki heim til að vinna í fiskvinnslunni., Það er skortur á fjölbreytilegum atvinnu- tækifærum sem skapar lands- byggðarvandann ekki skortur á ál- verum. í Noregi horfði fólk upp á sama vandann fyrir . nokkrum; áratug- um. Norðui'-Noregur var að leggj- ast í eyði. Ríkisstjórnin greip í taumana og kom á kerfi sem bauð menntafólki betri námslán gegn því að það sneri aftur til Norður- Noregs eftir námið og notaði þekkingu sína þar. Vandinn var leystur og án allrar hjálpar frá Norsk Hydro eða öðrum stóriðjuf- urstum enda hefði sú hjálparhönd varla komið sér vel.“ Andrí Ólafsson, formaður Ungra jafnaðar- manna í Hafnarfirði, á politik.is 20. ágúst 2001.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.