Fréttablaðið - 21.08.2001, Blaðsíða 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
21. ágúst 2001 ÞRIÐIUDAGUR
HRAÐSODIÐ
BERCÞÓRA VALSDÓTTIR
framkvæmdastjóri .
Samráð er
lykilatriði
HVAÐA reglur gilda um útivistartíma
barna?
Þaö er ósköp einfalt. Börn tólf ára
og yngri mega ekki vera ein á al-
mannafæri eftir kl. 20 á veturnar,
eða frá og með fyrsta september til
fyrsta maí og eftir klukkan 22 á
sumrin. Börn á aldrinum 13-16 ára
mega ekki vera úti eftir klukkan 22
á veturnar og eftir klukkan 23 á
sumrin. Undantekningarnar frá
þessu eru ef að börn eru á heimleið
frá skólasamkomum eða íþróttaæf-
ingum. Þrátt fyrir að íþróttafélög
reyni að ljúka æfingum innan úti-
vistartíma þá er svo mikil aðsókn að
það hefur ekki gengið alveg upp.
Sömuleiðis er það ekki brot á regl-
um ef krakkar eru að koma úr heim-
sókn frá vinum sínum, ef þau fara
beinustu leið heim.
HVERNIG er best fyrir foreldra að
fylgja reglunum eftir?
Þessar reglur verður að halda eins
og aðrar reglur samfélagsins. Sam-
ráð er lykilorðið hér og foreldrar
verða að gera með sér samkomulag
um að vera löghlýðnir borgarar í
þessum efnum sem öðrum. Mikil-
vægt er að foreldrar ræði um úti-
vistartíma í upphafi skólaársins.
Foreldrar verða að vera sjálfum sér
samkvæmir og fylgja reglunum eft-
ir alveg frá upphafi skólagöngunnar.
Það þýðir lítið að ætla að fara að
setja krökkum reglur þegar þau eru
komin á unglingsaldur.
HVERS vegna er haustið mikilvægur
tími er kemur að útivistarreglum?
Á haustin safnast krakkarnir saman
eftir sumarið, þegar krakkar eru
meira í sitthvoru lagi. Eins og eðli-
legt er þá er vilja krakkar oft prófa
rammana á þeim tíma og ábyrgð for-
eldranna því mikil.
HVERT
er mikilvægi reglna um úti-
vistartíma?
Þær eru börnunum okkar fyrir
bestu, það er ekki flóknara en það.
Við höfum lagt áherslu á þessa nálg-
un. Það er mjög mikilvægt að börn
skilji að það er alls ekki verið að
refsa þeim með því að setja slíkar
reglur. Fjöldi ofbeldisverka og nauð-
gana og þess háttar sýnir okkur að
samfélagið í dag er alls ekki það
sama og var fyrir tuttugu árum síð-
an og reglur um útivist því nauðsyn-
legar.
HAFA reglurnar skilað árangri?
Já það er óhætt að segja það. Það er
sífellt meiri samhugur í foreldrum
um málið sem er mikilvægt. For-
eldrar mega alls ekki falla í þá
gryfju að hlusta á þegar börn fara
að bera sig saman við önnur börn og
segja að þau megi vera úti lengur.
Það er fylgir unglingsárunum að
reyna á mörkin og það er okkar for-
eldranna að setja þau mörk. ■
Bergþóra V/alsdóttir er framkvæmdastjóri Sam-
foks, Samtaka foreldrafélaga og foreldraráða í
grunnskólum Reykjavíkur.
Donald Woods látinn:
Barðist gegn
aðskilnaðar-
stefnunni
höfðaborc. ap. Donald Woods,
blaðamaður, sem barðist hat-
rammri baráttu gegn aðskilnaðar-
stefnunni í Suður-Afríku, lést sl.
sunnudag. Woods, sem var 67 ára
gamall, lést af völdum krabba-
meins. Nelson Mandela, fyrrum
forseti Suður-Afríku, minntist
Woods í gær og sagði hann hafa
verið óþreytandi í baráttunni gegn
kynþáttahatri og mismunun. Woods
stofnaði og ritstýrði dagblaðinu
Daily Dispatch í S-Afríku. Hann
var góður vinur Steves Bikos, leið-
IFRÉTTIR AF FÓLKII
Lesendur vefritsins Deiglunnar
eru varaðir við heimasíðu tó-
baksverslunarinnar Bjarkar í
Bankastræti í nýrri frétt. Bent er
á að þar sem upplýsingar um
vöruúrval verslunarinnar sé að
finna á síðunni sé innihald hennar
ólöglegt, „ólöglegra en argasta
klám,“ segir í fréttinni sem skrif-
uð er í hæðnistón. Gluggi tóbaks-
verslunarinnar var notaður í
listaverk á Menningarnótt sem
vakti mikla athygli en listamaður-
inn deildi í því á nýju tóbaksvarn-
arlögin sem hafa verið nokkuð
umdeild í þjóðfélaginu.
Margir hjólakappar leynast á
Vestf jörðum, svo mikið er
víst. Sl. sunnudag tóku tólf sig til
og hjóluðu upp á Straumnesfjall
sem er í Hornstrandafriðlandi á
milli Aðalvíkur og Rekavíkur, bak
við Látur. Að því er fram kemur á
fréttavef Bæjarins besta, voru
þeir fljótustu eina og hálfa
klukkustund en þeir sem lengstan
tíma tóku voru fjórar klukku-
stundir. Ekki fer sögum af hvaða
kappar voru á ferð en hugmyndin
mun hafa komið frá Henrý Bær-
ingssyni sem starfar hjá Horn-
ströndum ehf.
Hljómsveitin Coldplay er
væntanleg innan tíðar til fs-
lands en hún heldur tónleika í
Laugardalshöll á miðvikudags-
kvöld. Þrátt fyrir
að eiga sér stóran
aðdáendahóp hér
á landi, eins og
sjá má á plötusölu
sveitarinnar, þá er
áhuginn ekkert í
líkingu við áhug-
ann sem var á
tónleikum þýsku
hljómsveitarinnar Rammstein
fyrr í sumar. Eins og kunnugt er
þá seldist upp á tvenna tónleika
Rammsteiri á stuttum tíma en enn
eru lausir miðar á Coldplay.
Suðurnesjabúar geta nú keyrt
Gokart-bíla allan sólarhring-
inn, segir Stefán Guðmundsson,
eigandi Reis-bíla, sem er fyrir-
tækið sem rekur gokartbrautina í
Reykjanesbæ. Að því er fram
kemur í Víkurfréttum er nefni-
lega búið að setja upp nýja
ljósastaura við brautina og hefur
lýsingin batnað um 70%. Ekki
fylgir þó sögunni hvort að opnun-
artími brautarinnar hafi verið
lengdur.
Mikið átak hefur staðið undan-
farin ár til að bæta húsakost
grunnskóla til að unnt sé að ein-
setja þá eins og gert er ráð fyrir í
grunnskólalögum frá árinu 1996.
A þessu hausti verða tveir grunn-
skólar í Reykjavík, Álftamýrar-
skóli og Ártúnsskóli einsetnir. Þá
eru 90% grunnskóla Reykjavíkur
einsetnir en fjórir skólar af fjöru-
tíu eru enn tvísetnir.
að vakti athygli sjálfstæðis-
manna sem ætluðu að taka
þátt í undirbúningi landsfundar
að í auglýsingu í Morgunblaðinu
þar sem áhugasamir voru hvattir
Cagnrýni Woods á aðskilnaðarstefnu s-
afrískra stjórnvalda varð til þess að hann
hraktist úr landi.
toga hreyfingar blökkumanna í
landinu, sem lést af völdum pynt-
inga í fangelsi. Vinátta þeirra var
meginefni myndar Richards Atten-
borough, Cry Freedom, sem frum-
sýnd var 1987. ■
Delta Kappa Gamma:
Evrópuþing í Svíþjóð
EVRÓPUÞINC. Ellefu ís-
lenskar konur sóttu í
ágústbyrjun Evrópu-
þing Delta Kappa
Gamma, sem eru al-
þjóðasamtök kvenna
í fræðslustörfum.
Sigrún Jóhannsdótt-
ir, fyrrverandi for-
seti Landssamtak-
anna, flutti erindi
um fullorðins-
fræðslu á íslandi.
Sigrún greindi ein-
nig frá íslenskri
rannsókn um gæði
samstarfs karla og kvenna í
ákvarðanatöku. Markmið samtak-
anna er að efla tengsl kvenna í
fSLENSKU ÞÁTTTAKENDURNIR.
Á myndinni má sjá fyrir miðju Sigrúnu Jóhannsdóttur og Ás-
laugu Brynjólfsdóttur, núverandi formann landssamtakanna.
fræðslustörfum og stuðla að
auknum fræðilegum og persónu-
legum þroska þeirra. ■
Einleikur undra-
barns í Sydney
Ungur Keflvíkingur spilar í tónleikahöllum út um allann heim með
amerískri sinfóníuhljómsveit. Kláraði stúdentinn 18 ára af raungreina-
og tónlistarsviði. Fyllir í skörð hjá Sinfóníuhljómsveit Islands
ef með þarf.
unprabarn Þegar hornleikari sin-
fóníuhljómsveitarinnar New Eng-
land Youth Enfamble frá Was-
hington D.C. í Bandaríkjunum
veiktist fimm dögum fyrir tón-
leikareisu um Skandinavíu og
Rússland voru góð ráð dýr.
Stjórnandi hljómsveitarinnar gat
ekki hugsað sér að spila án hans
og hafði heyrt af ungum manni á
íslandi sem gæti mögulega fyllt
upp í skarðið sem svo skyndilega
hafði myndast. Það var haft sam-
band við Sturlaug Björnsson - þá
15 ára pilt úr Keflavík - og hann
spurður hvort að hann gæti ekki
slegist með í reisuna þegar vél
hljómsveitarinnar myndi milli-
lenda á íslandi. Sturlaugur sló til
og síðan eru liðin fjögur ár og
fimm tónleikaferðir þar sem stað-
ir á borð við Carnegie Hall í New
York og litlar sveitakirkjur hafa
verið lagðar að velli.
„Ég spila á franskt horn og hef
verið að gera það í þó nokkuð
langan tíma,“ sagði Sturlaugur
þegar Fréttablaöiöhafði samband
við hann í gær. „í þessarri tón-
leikaferð var ég að spila 1. horn-
stöðu með hljómsveitinni og þetta
er í fyrsta skipti sem að ég geri
það,“ sagði Sturlaugur um tón-
leikaferð sem nú er nýafstaðin.
Það eru fáir íslendingar sem
hafa stigið fæti inn í það hús sem
Sturlaugur spilaði í nú síðast og
vafalítið enn færri sem hafa tekið
sig til og fengið að spila einleik.
Hvorki meira né minna en óperu-
húsið í Sydney dugði til og voru
þar um 700 manns sem hlýddu á
hann og klöppuðu svo upp.
Sturlaugur er sannkallað
undrabarn í tónlist því ásamt því
að spila fyrir New England Youth
Ensamble þá hefur hann tekið að
Á TOPPNUM
Sturlaugur kláraði stúdentinn aðeins 18 ára gamall af raungreina- og tónlistarsviði.
„Borgar sig ekki að sóa neinum tíma," sagði hann metnaðarfullur þegar hann var
spurður hvort að það væri ekki methraði. I dag er hann enn að nema tónlist ásamt því
sem hann tekur til sín nemendur og spilar í tónleikahöllum út um allann heim.
sér að fylla skörð sem stundum
myndast hjá Sinfóníuhljómsveit
íslands. Þá kennir hann einnig
tónlist meðfara námi hjá Tónlist-
arskóla Reykjavíkur.
En er einhver staður sem þig
dreymir um að spila á?
„Ég get ekki sagt það. Fyrir
mig þá skiptir það jafn miklu
máli að spila í stórri tónleikahöll
og að spila í lítilli kirkju. Það er
fyrst og fremst tónlistin sem
skiptir máli - ekki vettvangurinn.
Ilann er aukaatriði," sagði Stur-
laugur.
omarr@frettabladid.is
til málefnastarfs var þess hvergi
getið að utanríkismálanefnd ætti
að starfa á landsfundinum. Ein-
hverjir flokksmenn veltu því fyr-
ir sér hvort samstarfið í stjórnar-
liðinu væri svo náið að framsókn-
armönnum væru alfarið látin ut-
anríkismálin eftir. Svo er ekki því
við getum upplýst að innan
skamms verður tilkynnt um
hvernig undirbúningi fyrir utan-
ríkismálastarf landsfundarins
verður háttað.
Gunnar Eyþórsson blaðamaður
lést á heimili sínu í Reykja-
vík á laugardaginn. Hann var 61
árs að aldri. Gunnar starfaði
lengi á fréttastofu útvarps en
vann sjálfstætt við ritstörf síð-
ustu ár og ritaði m.a. reglulega
greinar um erlend málefni í DV.
Eftirlifandi sambýliskona hans er
Hjördís Guðbjartsdóttir.
„Hver var að
taka til í her-
berginu mínu?!"