Fréttablaðið - 21.08.2001, Page 14

Fréttablaðið - 21.08.2001, Page 14
14 FRÉTTABLAÐIÐ 21. ágúst 2001 PRIÐJUDAGUR Símadeildin: FH-ingar sigruðu Val knattspyrna FH-ingar sigruðu Val 2-1 á Hlíðarenda í gærkvöld. Jón Þ. Stefánsson kom FH yfir á 41. mínútu, en Kristinn Lárusson jafnaði metin mínútu síðar. Það var síðan Jónas G. Garðarsson sem tryggði FH-ingum öll þrjú stigin með marki á 66. mínútu. Með sigrinum er FH nú komið með 25 stig og situr í fjórða sæti deildarinnar ásamt Fylki. Vals- menn eru hins vegar farnir að nálgast botnbaráttuna, því þeir eru með 17 stig, einu stigi meira en Fram og 6 stigum meira en KR, sem á einn leik til góða. ■ Enski boltinn: Ranieri vill Fowler knattspyrna Claudio Ranieri, fram- kvæmdastjóri Chelsea, segist enn hafa áhuga á að fá Robbie Fowler til liðsins, en leikmaðurinn hefur verið ósáttur við hlutskipti sitt hjá Liverpool og átti fyrir skömmu í útistöðum við Phil Thompson, að- stoðarframkvæmdastjóra liðsins. Chelsea bauð 12 milljónir punda í leikmanninn í desember á síðasta ári, en ekkert varð úr kaupunum. Ranieri segir að ef Fowler vilji fara frá Liverpool muni hann glað- ur taka við honum. „Við höfum fjóra góða fram- herja hérna svo ef Fowler kæmi myndi ég lenda í smá vanda - en mér mundi líka sá vandi,“ sagði Ranieri. ■ DON HUTCHINSON Sagt er að ástæða þess að Hutchison vilji fara frá Sunderland sé sú að konan hans kann afskaplega illa við sig á norðaustur Englandi. Don Hutchison til Rangers: Ósáttur hjá Sunderland knattspyrna Leikmaður Sunder- land, Don Hutchison, er óánægður með dvölina hjá liðinu og vill losna, þrátt fyrir að aðeins eitt samnings- ár af þremur sé liðið. West Ham lét strax í ljós áhuga sinn á honum, enda spilaði hann fyrir það áður en hann fór til Everton og síðar Sund- erland. Nú hefur skoska liðið Glas- gow Rangers einnig bæst í hópinn. Sagt er að Hutchison, sem er þrítugur, sé heitur fyrir Rangers, enda er liðið í Meistaradeild Evr- ópu og mikilli í sveiflu. Hann sagði fyrir skömmu að hann vildi ljúka ferlinum hjá Sunderland en viður- kennir að tilboð West Ham og Rangers séu freistandi. Þjálfari Sunderland, Peter Reid, vill ekki sjá á eftir Hutchin- son úr liðinu en talið er að bak- sviðsátök hafi leitt til þess að brottför hans var hraðað. Sagt var að kona Hutchinson kynni afskap- lega illa við sig á norðaustur Englandi en Hutchison segir Stoke City: Ríkharður í uppskurð? knattspyrna Ríkharður Daðason, leikmaður Stoke, gæti þurft að fara í uppskurð vegna meiðsla sem hann á við að stríða í hné. Ríkharður meiddist á æfingu á undirbúningstímabilinu og hefur misst af tveimur fyrstu leikjum liðsins í ensku 2. deildinni. Stoke tapaði fyrsta leiknum gegn QPR 1-0, en sigraði Northampton 2-0 á laugardaginn. Hnéð á Ríkharði var myndað skömmu eftir að hann meiddist, en eftir það var tekin sú ákvörð- un að bíða. Nú er hins vegar ráð- gert að hann fari í aðra röngten- myndun á næstu dögum og mun niðurstaðan úr henni ráða til um það hvort hann fari í uppskurð eða ekki. „Hann fór til sérfræðings á föstudaginn sem sagði að þetta gætu verið alvarlegri meiðsli en í fyrstu var talið,“ sagði Chris Moseley, sjúkraþjálfi Stoke. „Hann vill að Ríkharður fari aft- ur í myndatöku til þess að hægt verði að greina nákvæmlega hvers eðlis meiðslin eru.“ Brynjar Gunnarsson er einnig frá vegna meiðsla og er útlit fyr- ir að hann missi af leiknum á morgun gegn Oldham í deildar- bikarnum. Samt sem áður er talið að meiðsli Brynjars séu ekki jafn alvarleg og í upphafi var talið. ■ MEIDDUR Tekin verður ákvörðun um á næstu dögum hvort Ríkharður Daðason, leikmaður Stoke, þurfi að fara í uppskurð. Eiturly fj ciney slan stærstu mistökin Diego Armando Maradona segist hafa sært marga með eiturlyfjaneysl- unni, sérstaklega konuna sína og dætur. Hann er með 18 gervihnatta- diska heima hjá sér til þess að geta fylgst með knattspyrnu á hverjum degi. Rivaldo er besti knattspyrnumaður heims í dag að hans mati. knattspyrna Diego Armando Maradona, einn allra besti ef ekki besti knattspyrnumaður allra tíma, segir í viðtali á heimasíðu Alþjóðaknattspyrnusambandsins (www.fifa.com), að hann eigi enn erfitt með að sætta sig við að vera ekki að leika knattspyrnu. Hann segir að stærstu mistökin sem hann hafi gert í lífinu hafi verið að taka inn eiturlyf. „Ég hef gert mörg mistök í líf- inu og þjáðst vegna afleiðinga þeirra,“ sagði Maradona. „Eitur- lyfjaneyslan voru stærstu mistök- in. Með henni særði ég marga, sér- staklega konuna mína og dætur. Ég á eftir að sjá á eftir því alla tíð að hafa ánetjast eiturlyfjum en það gerir mig samt ekki að ein- hverju skrímsli. Ég hef unnið mig út úr þessum vítahring og er nú sáttur við sjálfan mig.“ Maradona sagði að versti tím- inn í lífi hans hefði verið þegar knattspyrnuferlinum með Napolí á Ítalíu hefði lokið. Honum lauk skyndilega þegar upp komst um eiturlyfjaneyslu hetjunnar, mannsins sem allir Napolíbúar dáðu og elskuðu. Maradona fékk 15 mánaða keppnisbann og fór frá Napolí með skottið á milli lapp- anna. „Ég mun aldrei gleyma þessu. Leikmennirnir voru þeir einu sem höfðu samband við mig og þökk- uðu mér fyrir það sem ég hafði gert fyrir liðið og borgina. Ég heyrði hins vegar ekki múkk frá Á LEIÐ í MEÐFERÐ Maradona fór nýlega I meðferð vegna eit- urlyfjaneyslu, en segist nú vera búinn að ná sér og að hann sé heill heilsu. stjórn félagsins og mér fannst ég ekki eiga skilið að vera kvaddur með þessum hætti. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn góðar minningar frá þeim tíma sem ég átti í Napolí og ég mun aldrei gleyma fólkinu og þann stuðning sem það veitti mér.“ Aðspurður sagði Maradona að góðu minningarnar úr fótboltan- um væru fleiri en hinar slæmu. Hann sagði að bestu minningarnar væru frá upphafi ferilsins eða þegar hann lék með argentínska unglingalandsliðinu í lokakeppni Heimsmeistarakeppninnar í Jap- an árið 1979. „Við vorum með ótrúlega sterkt lið og unnum titilinn með stæl. Þetta var fyrsti stóri titillinn minn. Ég var mjög ungur og fullur af metnaði og draumum um fram- tíðina. Það sást vel í leikjum okkar hvað við höfðum gaman af því að leika knattspyrnu. Við sendum boltann margsinnis í gegnum klof- ið á andstæðingum okkar, lékum á varnarmenn og skoruðum frábær mörk. Við lékum yndislega knatt- spyrnu.“ Maradona sagðist enn fylgjast mjög mikið með knattspyrnu. Hann færi reglulega á leiki með Boca Juniors á La Bombonera vellinum í Buenos Aires og þá væri hann með sinn eigin sjón- varpsþátt um knattspyrnu. „Ég horfi á fótbolta heima hjá mér á hverjum degi. Ég er með 18 gervihnattadiska þannig að ég get horft á knattspyrnuleiki úti um allan heim. Ég get meira að segja horft á leiki í írösku deildinni." Rivaldo er sá leikmaður sem Maradona hefur mestar mætur á í dag., „Eg elska það að horfa á hann leika. Að mínu mati er hann eini leikmaðurinn sem maður hefur virkilega gaman af að horfa á. Hann er sífellt að koma manni á óvart. Ég hef einnig mikið álit á Luis Figo, en hann er ekki enn orð- inn fullmótaður knattspyrnumað- ur.“ Þegar hann var spurður að því hvort kaupverð leikmanna væri ekki orðið alltof hátt svaraði hann því neitandi. Hann sagði hins veg- ar að félögin fengju alltof stóran hluta af kaupverðinu. Leikmenn fengju kannski 10% sem væri Ferillinn í hnotskurn Fæddur: 30. októbeÉjwfei%|nús f Argentínu. Landslið: Argentínska landsliðið. 91 leikur og 34 mörk. -Argentlnska U21 landsliðið. 15 leikir og 8 mörk. Félagslið: Argentinos Juniors frá 1976 til 1980. 166leikirog 116 mörk. -Boca Juniorsfrá 1981 til 1982.40 leik- ir og 28 mörk. -Barcelona frá 1982 til 1984. 58 leikir og 38 mörk. -Napolí frá 1984 til 1991. 259 leikir og 115 mörk. -Sevilla frá 1992 til 1993. 29 leikir og 7 mörk. -Newell's Old Boys árið 1993. 5 leikir. -Boca Juniors frá 1995 til 1997. 29 leik- ir og 7 mörk. Þjálfari: Deportivo Mandiyú árið 1994. Rasing Club árið 1995. Viðurkenningar: Heimsmeistari 1986. -Heimsmeistari U20 1979. -Ameríkubikarinn 1983, 1987 og 1989. ftEvrppukeppni félagsliða I§89- Argentínskur meistari 1981. Spænskur bikarmeistari 1983. -ftalskur meistari 1987 og 1990. -ítalskur bikarmeistari 1989. -Knattspyrnumaður ársins í Argentínu 1979, 1980, 1981, 1986 og 1990. -Knattspyrnumaður S-Ameríku 1979, 1980, 1986, 1989, 1990 og 1992. -Besti argentínski knattspyrnumaður allra tíma 1993. -Besti íþróttamaður heims 1986. -Markakóngur [talíu 1988. -Markakóngur Argentínu 1978, 1979 og 1980. Bönn: 15 mánaða bann 1991 vegna lyfjaneyslu. -15 mánaða bann 1994 vegna lyfja- neyslu. -Tekin fyrir lyfjaneyslu 1997 og leggur 'cóna á billuoa. mm X WWt? ■ -igSf: Gagnrýnir nútímaknatt- spyrnu: Of mikil áherslaá taktík knattspyrna Diego Maradona gagnrýnir þróun knattspyrnunnar og segir hana ekki vera næstum jafnskemmtilega og áður. Nú væri megináherslan lögð á taktík, varn- arleik, líkamlegan styrk og þol leikmanna á kostnað knatttækni og sóknarknattspyrnu. „Ég held að ástæðurnar fyrir þessu séu helst þær að í mörgum löndum er knattspyrnan ekki lengur stunduð í bakgörðum húsa eða á leikvöllum," sagði Mara- dona. „Þessir staðir, sem hafa alið af sér góða knattspyrnumenn í gegnum tíðina, eru einfaldlega ekki jtil stayarjí. mörgyip |sprgum í dag.“ ; ' : 't' bann vegna lyfjaneyslu. alltof lítið, því það væru þeir sem trekktu að áhorfendur og gerðu félögum kleift að gera stóra aug- lýsingasamninga og sjónvarps- samninga. Hann sagðist samt undrast mjög hversu hátt verð fé- lög greiddu fyrir meðal góða leik- menn. „Það er eitthvað sem ég mun aldrei skilja." Eins og áður sagði sagðist Maradona sjá mikið eftir því að hafa tekið inn eiturlyf. Hann sagð- ist samt vera við góða heilsu í dag. „Ég æfi daglega og læknisskoð- anir hafa sýnt að það amar ekkert að mér. Ég mun vonandi verða hér á þessari jörð í góðan tíma til við- bótar og stefni að því að nota þennan tíma til þess að gefa eitt- hvað aftur til knattspyrnunnar. Hún hefur gefið mér svo mikið.“ trausti@frettabladid.is Mara- dona sagði að það sem honum findist hvað mest sláandi í nútímaknatt- spyrnu væri sú staðreynd að leik- mönnum skorti virðingu fyrir boltanum. Hann sagði að Alþjóða- knattspyrnusambandið ætti að beita sér fyrir því að auka knatt- tækni og leikni hjá ungum leik- mönnum. „Stundum þegar ég horfi á leiki velti ég því fyrir mér hvort þetta séu leikmenn inni á vellinum eða vélmenni. Það er alltof mikil áher- sla lögð á taktík. Vissulega er hún mikilvægur hluti af leiknum en hún má samt ekki hafa hamlandi áhrif á hann og þvinga tæknilega góða leikmenn til þess að draga sig inni í skelina.“ ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.