Fréttablaðið - 21.08.2001, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 21. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
BÍftBOCfel.. KRINGLUK |
IJKUGARÁS , ~!SSa 2075
mmakmmm
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 vit 257
[ÁNTITRUST kL 5.50,8 og lo.io! gKt
IBROTHER ki. io.ioiKíl
[DRIVEN “nsnss
jPOKEMON 3 m/íslensku tali ílíIGS
Sýnd m/ ensku tatHd?4^45L8 Qg lO vrr 2S8
Ikissofthedragon kl. aogiolíSi
JSHREK m/ensku tali kl. 6 Og 8|Jxim|
JSHREK m/islensku tali ki.4[ga
[antitrust kl. 101 píei)
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10
ISCARY MOVIE 2 kl. 4, 6 og 81
JSHREK m/íslensku taii kl. 4 og 61
[SHREK m/ensku tali kl. 8 og 10 j
TOMB RAIDER id. íoj
Sýnd kl. 6, 8 og 10
EVOLUTION kl. 6, 8 og 10 [
HVERFISGOTU SIMI 551 9000
www.skifan.is
Synd kl. 6,8 og 10
ÍSCARY MOVIE 2
kl. 6, 8 og 10
jANIMAL
kl. 6, 8 og 10
ÍDR.DOOLITTLE2
kl. 6, 8 Og 10
Eins og kunnugt er hafa rappar-
ar gaman að slá um sig, hvort
sem það er peningum eða vina-
fjölda. Nelly, sem
gaf út metsöluplöt-
una Country
Grammar í fyrra,
sló öll met á laug-
ardagskvöld. Hann
mætti í miklu
kóngastuði á
skemmtistað í
Missouri og fór
fyrir hvorki meira né minna en
þrjú þúsund manns og heimtaði
inngöngu fyrir sig og sína á
skemmtistaðinn. „Það var mið-
nætti. Klúbburinn var þegar pakk-
fullur. Það voru 1500 til 2000
manns inni,“ sagði eigandi staðar-
ins. „Þegar ég sá að Nelly var
mættur með þúsundir manna í eft-
irdragi og vildi komast inn að
framanverðu sá ég engan annan
kost í stöðunni en að kalla á lög-
regluna." Fólkið var ekki með nein
læti en hélt áfram að reyna að
komast í gegnum læstar dyr
klúbbsins þó svo að lögreglan væri
komin. Enginn slasaðist og enginn
var handtekinn. Það tók tvo tíma
að leysa upp hópinn. „Ég get ekki
einu sinni ímyndað mér hvað hefði
gerst ef Nelly hefði komið inn,“
sagði eigandinn. „Miðað við það
hversu margir voru inni og hversu
æstir þeir sem fyrir utan voru
hefði þetta orðið að martröð."
Stundum getur leiðinlegt verið
gaman. Leikkonan Kate Winslet
segist hafa hrifist af persónunni
sem hún leikur í
kvikmyndinni
Enigma vegna
þess hversu leiðin-
leg hún er. Það er
enginn annar en
Mick Jagger sem
framleiðir mynd-
ina. „Hún er gjör-
sneydd öllum
glamúr, notar ekki andlitsfarða og
notar skrýtin gleraugu. Þetta er
allt leiðinlegt en hún er frábær
persóna og mikil áskorun fyrir mig
að leika,“ sagði Winslet við frum-
Undirtónar ráðast í útgáfu:
Fimm plötur á mánuði
tónleikar Nýlega stofnuðu
Undirtónar útgáfufyrirtækið
Stefnumót og ætla margir for-
vitnilegir tónlistarmenn að gefa
tónlist sína út hjá því á næstunni.
„Þetta verða „White Label“
geislaplötur, hálfgert kynningar-
efni, sem verða seldar í öllum
plötubúðunum niðri í bæ, Japis,
Þrumunni, 12 tónum og Hljóma-
lind á 700 kall. Við stefnum á að
gefa út fimm plötur á mánuði
fram að jólum,“ segir Örlygur
Eyþórsson hjá Undirtónum.
„Fyrst gefum við út nokkrar
plötur þar sem tveir tónlistar-
menn gera sex lög hvor, síðan
koma stórar plötur frá nokkrum
tónlistarmönnum, þvínæst plötur
sem plötusnúðar blanda tónlist
inn á og svo ætlum við að enda
árið með því að gefa út plötu með
því besta sem komið hefur út,“
segir Örlygur. Útgáfuverkefni
Undirtóna er gert í samvinnu við
margmiðlunarfyrirtækið Verði
ljós, sem sér um hljóðblöndun og
brennslu geislaplatnanna. Meðal
þeirra listamanna sem munu
koma út hjá Stefnumótum eru
Skurken, Prince Valium, Egill
Sæbjörnsson, Plastik, Frank
Murder, Early Groovers og
Heckle & Jive.
í kvöld verða vikuleg Stefnu-
mót Undirtóna haldin á Gauk á
Stöng þar sem verður spiluð
ambient tónlist. Fram koma
Frank Murder og Prince Valium
ásamt góðum gestum. Auk þess
mun Biogen sýna myndbands-
verk. Allir eru þeir leiðandi afl í
íslenskri raftónlist auk þess sem
þeir gefa út tónlist sína hjá
Stefnumótum. ■
prince valium á stefnumótum
Ambient ræður ríkjum á Stefnumótum
Undirtóna á Cauk á Stöng. Raftónlistar-
mennirnir Frank Murder, Prince Valium
koma fram auk þess sem Biogen sýnir
myndbandsverk. Allir gefa þeir út hjá
Stefnumótum, útgáfufyrirtæki Undirtóna.
sýningu mynd-
arinnar á Kvik-
myndahátíðinni í
Edinborg um
helgina. Winslet
leikur hetjuna
Hester Wallace í
rómantískri
sögu um breska
dulmálssérfræðinga, sem reyna að
átta sig á skilaboðum þýskra kaf-
báta. Hún var ólétt við tökurnar og
þurfti að klæða bumbuna af sér.
Winslet sagði Jagger vera frábær-
an framleiðanda. „Það er einfalt
mál að láta nafnið sitt við hin og
þessi verkefni. Hann var hinsveg-
ar drifkraftur myndarinnar, var á
settinu allan tímann í framleið-
andahlutverkinu í Wellington skón-
um sínum.“ Athygli vakti að Jag-
ger lét sig vanta á frumsýninguna
auk þess sem annar aðalleikarinn,
Dougray Scott, lét sig hverfa á
næsta bar þegar 15 mínútur voru
liðnar til þess að horfa á leik Hi-
bernian FC og Rangers FC í
skosku deildinni.
A tónlííkum]
r
Islenskt rokk
endurvakið
Eg er einn þeirra sem var lítið
fyrir það að ganga í mussum
eða splæsa á mig „dredda" þegar
vinsældir hljómsveitarinnar Jet
Black Joe náðu hámarki fyrir u.þ.b.
10 árum. Ég var því ekki alveg viss
hvað það var sem beið mín á
Gauknum þegar ég arkaði á tón-
leika bandsins sl. fimmtudags-
kvöld. Páll Rósinkrans steig á svið
urn miðnætti, nýrakaður og greidd-
ur, með Egils Bergvatn í hönd og
bauð gesti velkomna. Honum til
halds og trausts voru tvíburarnir
Guðlaugur og Kristinn Júníussynir
sem spiluðu á trommur annars veg-
ar og bassa hins vegar. Gunni
Bjarni handlék gítarinn og Harald-
ur Bergmann lék á hammond-orgel.
Óhætt er að segja að Páll Rósin-
krans er besti rokksöngvari sem ís-
land hefur alið af sér og það sýndi
hann og sannaði fyrir gestum sin-
JET BLACK JOE A GAUK Á STÖNG
um sl. fimmtudagskvöld. Þegar við
söng hans bætist trumbusláttur
Guðlaugs, sem er eins þéttur
Berlínarmúrinn, og bassaleikur
Ki-istins, sem gæti fengið helstu
djassgjeggara síðustu aldar til þess
að gráta, verður þetta heilsteypt
j-okkblanda sem á fullt erindi til
allra rokkara víðsvegar um heim-
inn. Ég ætla að di-ífa mig út í búð og
kaupa gömlu skífur Jet Black Joe.
Besta rokkhljómsveit er loksins
komin aftur - betri en nokkru sinni
fyrr og vonandi hvgrfur hún ekki
aftur af sjónarsviðinu alveg strax.
Ómar R. Valdimarsson
ISLAND BEINT ER ÞJÓNUSTA SEM NÝTIST ÍSLENDINGUM Á
FERÐALÖGUM ERLENDIS
* í flestum tilvikum mun ódýrara en að hringja til íslands á
annan hátt, t.d. úr farsímum eða hótelsímum.
* Hægt að hringja frá yfir 20 löndum víðsvegar um heiminn.
* Leiðbeiningará íslensku.
* Gjaldfærist á símreikninginn heima.