Fréttablaðið - 06.09.2001, Síða 1
FÓLK
Hver vill ekki
lifa í œvintýri
bis 22
SÝNING
Sýningarsvœði
á við 5 Kringlur
bls 18
LIKNARSTARF
Aukin aðsókn
í Samhjálp
bls 4
- einfaldlega bollt!
%
FRETTABLAÐIÐl
95. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 6. september 2001
FIMMTUDAGUR
Ísland-Ítalía
verslun. ftalskt íslensk verslunar-
ráð verður stofnað í Mflanó í dag.
Geir Haarde, f jármálaráðherra er
viðstaddur og heldur ræðu. Kosið
verður í fyrstu stjórn ráðsins á
fundinum sem væntanlega verður
skipuð 11 manns frá löndunum.
Fjárlagahöfundar vona
að samdrætti sé lokið
Samkirkjuleg
sálgæsla
NÁMSKEIÐ. Þjóðkirkjan, Hvíta-
sunnumenn, fríkirkjan Vegurinn og
KFUM&K standa saman að þriggja
daga námskeiði um sálgæslu. Guð-
fræðingurinn og sáifræðingurinn
Teo van der Weele f jallar um bless-
un sem aðferð til hjálpar. Nám-
skeiðið hefst kl. 17.30 í Safnaðar-
heimili Laugarneskirkju en skrán-
ingu annast Hvítasunnumenn og
þeir í Veginum.
|VEÐRIÐ í PflG
REYKlflVÍK Norðan 3-8 m/s og
bjartviðri.
Hiti 7 til 12 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Isafjörður (J 3-5 Skýjað Ql
Akureyri © 8-13 Skúrir Q6
Egilsstaðir 0 8-13 Skýjað QlO
Vestmannaeyjar © 8-13 Skýjað Qf ll
Sýningí
Laugardalshöll
SÝNINC. Sýningin Islandica og
Heimilið hefst í Laugardalshöli kl.
15. Stór hluti Laugardalsins hefur
verið lagður undir sýningarsvæðið,
m.a. skautahöllin og húsdýragarð-
urinn, og verður ýmislegt í boði.
Líflð, vinnan
og heimilið
MÁLÞINC. Á málþingi um heimilið á
Grand Hótel verður fjallað um
hvernig jafnvægi í einkalífi og
vinnu hefur áhrif á lífsánægju.
Meðal fyrirlesara er Árni
Mathiesen, sjávarútvegsráðherra,
sem fjallar um Lífsánægju með
jafnrétti. Þingið hefst kl. 15.
KVÖLDIÐ í KVÖLD
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
72,5% IBUA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS A ALDRINUM 1
25 TIL 67 ARA LESA FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI SAMKVÆMT
| KÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS FRA JÚLÍ 2001. |
Tekjubreytingar ríkissjóðs kalla á aðhald sem meðal annars kemur fram í að væntingar til framkvæmda
fá ekki sama hljómgrunn og vonast var til. Þó kreppi að er staðan alls ekki eins slæm og fyrir áratug.
ríkisfjármál Fyrstu sjö mánuði
þessa árs eru tekjur ríkissjóðs af
veltusköttum þremur til fjórum
milljörðum króna lægri en vænt-
ingar voru um. Heildartekjurnar
eru hins vegar ámóta miklar og
gert var ráð fyrir -
þar sem tekju-
skattar eru því
hærri. Þar munar
talsvert um fjár-
magnstekjuskatt,
en hann er nokkru
meiri nú en áður.
Tekjur ríkis-
sjóðs af veltu-
sköttum mun
minni en gert
var ráð fyrir.
—♦—
Helsta skýringin er sú að hann er
að mestu greiddur eftir á, það er
að sá fjármagnstekjuskattur sem
nú er greiddur er vegna tekna á
árinu 2000. Þá voru tekjur af fjár-
magni mjög miklar.
„Við erum að skoða hvort þessi
þróun heldur áfram yfir á næsta
ár. Ef það gerist þá verða tekjur
ársins 2002 ekki miklu hærri en
tekjur þessa árs. Við erum að
gera okkur vonir um að sam-
drættinum sé lokið,“ sagði Bolli
Þór Bollason skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu. Bolli Þór
segir að vegna þróunar efnahags-
mála hafi þurft að endurskoða
talsvert af vinnu við gerð fjárlaga
næsta árs. „Það hefur þurft að slá
á væntingar en staðan er alls ekki
ámóta og hún var á árunum 1988-
1991.“ Afkoma ríkissjóðs varð
langtum lakari á síðasta ári en að
var stefnt. í fjárlögum var gert
ráð fyrir tæplega 17 milljarða
króna afgangi en reyndin varð
halli upp á 4,3 milljarða. „Lífeyr-
isskuldbindingar eru aðalskýring-
in á þessari sveiflu. Þá var einnig
tekið mjög stórt skref í að af-
skrifa skattakröfur."
Bolli Þór segir að ekki
hafi verið hægt að sjá líf-
eyrisskuldbindingarnar
fyrir. Samningar hafi
vissulega verið lausir við
kennara en ekki hafi legið
fyrir á hvaða nótum yrði
samið. „Hefði verið samið
um framlengingu á gömlu
BOLLI ÞÓR
BOLLASON
Þurft hefur að
lenda á ríkinu þó svo sveitarfélög-
in semji."
í síðustu árum hefur mikið af
skattakröfum verið afskrifaðar -
en aldrei eins og í fyrra
þegar þær námu 11 millj-
örðum, en það er um helm-
ingi meira en á síðustu
árum. „Það er verið að
hreinsa upp gamlar syndir
en í fyrra var tekið hressi-
legar á þessu en áður.“
Þetta mikla frávik frá
fjárlögum til raunveruleik-
sammngunum þá hefðu taka h|uta af ans vekur athygli. „Frávik-
þessar skuldbindingar ekki fjárlagavinnunni. ið er fyrst og fremst bók-
komið. Megnið af þeim er haldslegt og hefur ekkert
reyndar vegna sveitarfélaga þar með reksturinn að gera. Rekstur-
sem lífeyriskuldbindingar vegna inn skilar hagnaði umfram áætl-
samninga grunnskólakennara un,“ sagði Bolli Þór Bollason. ■
1 ÞETTA HELST |
Fjórir lögregluþjónar slösuðust
þegar sprengja sprakk skammt
frá stúlknaskóla í Belfast í gær.
_♦— bls-1Z
Embætti ríkislögreglustjóra
eyddi í fyrra 190 m.kr. um-
fram fjárlög. Sértekjur embættis-
ins jukust gríðarlega. bls. 2.
—♦—
Fiugleiðir hafa samið við banda-
ríska ferðaskrifstofu um leigu-
flug frá Boston til fjögurra staða í
Karíbahafi. Verðmæti samnings-
ins er um það bil milljarður króna.
___+___ bls. 2.
Hætt hefur verið við að reisa
heilsugæslustöð á lóð milli
Hraunbæjar og Bæjarháls. Þess í
stað á að rísa þar verslun á 4.500
fermetra lóð. bls. 2.
í ÞESSARI BORG VAR LANDSLEIKURINN Meðan (slendingar léku landsleik í knattspyrnu við Norður-íra var umsátursástand í norður-
hluta borgarinnar. Mótmælendur veittust þriðja daginn I röð að kaþólskum börnum á leið í skóla og grýttu þau og foreldra þeirra. Fjórir lög-
reglumenn slösuðust í sprengingu við skólann. Nánar á bls. 12 og um landsleikinn, sem lauk með 3:0 sigri heimamanna, á bls. 14 og 15.
Tveir gyðingar eítir í Kabúl:
Svarnir óvinir
kabúl. afcanistan. ap Eftir því sem
best er vitað eru aðeins tveir gyð-
ingar eftir í Kabúl, höfuðborg
landsins. Á árum áður voru þeir
um 40.000 talsins en hningun lands-
ins á tímum langvarandi borgara-
styrjaldar og valdatöku talebana
hefur leitt til þess að nú eru Ishaq
Levin og Zebulon Simentov einir
eftir. Þeir búa hvor í sínum enda
samkunduhúss í Kabúl, en eru
svarnir óvinir og eiga í harðvítug-
um deilum um eignarhald sam-
komuhússins.
„Stundum reynir hann að tala
við mig, en mér líkar ekki við hann.
Ég sný mér undan,“ segir Si-
mentov, sem er rúmlega fertugur
og ríflega þrjátíu árum yngri en
Levin. ■
ISHAQ
ZEBULON
Fjárreiður yíirstjórnar forsetaembættisins:
Notaði tvöfalda heimild
Ríkisfjármál Embætti forseta ís-
lands fór sjö milljónir króna fram
úr áætlun á árinu 2000. Útgjöldin
námu 131 milljón
króna en til embætt-
isins voru ætlaðar
124 milljónir.
Langveigamesti
þátturinn í framúr-
keyrslu forsetaemb-
ættisins er yfir-
stjórnin. Til hennar
voru ætlaðar 50 millj-
ónir en niðurstaðan
varð 96 milljónir eða
nærri tvöfalt hærri.
FORSETAEMBÆTTIÐ
Samtals voru ætlaðar 46 milljónir
til Besstaða og bifreiða- og tækja-
kaupa sem ekki voru nýttar en
samsvarandi upphæð var notuð
aukalega af yfirstjórn embættisins.
Kostnaður við opinberar heimsókn-
ir nam 31 milljón króna eða 9 millj-
ónum umfram heimild.
Forsetaembættið nýtti ekki 36
milljóna króna heimild sem hafði
verið veitt til Bessa-
staða og vóg það
þungt í því að emb-
ættið fór ekki meira
fram úr heimildum
fjárlaga en raunin
varð. Eins höfðu emb-
ættinu verið ætlaðar
6,8 milljónir króna til
bifreiðakaupa sem
ekki voru nýttar og af
4,3 milljóna króna
heimild til tækja-
kaupa voru aðeins notaðar rúmar
200 þúsund krónur. ■
| íþróttiTT
Einbeiting
leysi í Belfast
SÍÐA 14