Fréttablaðið - 06.09.2001, Page 2
KJÖRKASSINN
NIIKIL EFTIRSPURN
Ef marka má áhuga
kjósenda á visi.is þarf
Sturla Böðvarsson ekki
að kvíða þvi að Lands-
síminn hafi verið of
hátt verðlagður.
Ætlar þú að kaupa hlutabréf í
Landssíma íslands?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú á Jazzhátíð í Reykjavík?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þína skoðun I
Breytt skipulag í
Hraunbæ:
Verslun í stað
heilsugæslu
skipulagsmál Hætt hefur verið
við að reisa heilsugæslustöð á
lóð milli Hraunbæjar og Bæjar-
háls í Reykjavík og til stendur að
þar rísi verslunarhúsnæði í stað-
inn. Athugasemdafrestur við
auglýstar breytingar á
deiliskipulaginu rennur út 12.
þessa mánaðar. „Að ósk heilsu-
gæslunnar verður afmörkuð ný
lóð fyrir heilsugæslu vestan
Bæjarbrautar milli Bæjarháls
og Hraunbæjar. Verið er að
vinna deiliskipulag að því
svæði,“ segir í auglýsingunni.
ívar Pálsson, lögfræðingur hjá
Borgarskipulagi, segist ekki vita
til að neinar athugasemdir hafi
verið gdrðar við fyrirhugaða
breytingu. Hann segir að ekki
verði reist nein „kringla“ á lóð-
inni. „Þetta er alls ekki svo
stórt," sagði hann og taldi nær
að tala um búð, en samkvæmt
nýju deiliskipulagi má húsið
vera allt að 1.680 fermetrar, eða
40 prósent lóðarinnar sem er
4.200 fermetrar. ■
—♦---
Texas:
KJónaður grís
KLÓNUN ÞeSSÍ
klónaði grís
var í gær
sýndur gest-
um A&M há-
skólans í Col-
lege Station í
Texas. Háskól-
inn er eina
stofnunin í
heiminum sem klónað hefur
þrjár dýrategundir. ■
STUTT
Bæjaryfirvöld á Húsavík og
Hvalamiðstöðin hafa átt í
viðræðum við umsjónarmenn
Keikós um að honum verði búin
framtíðaraðstaða í nágrenni
Húsavíkur. Hvalurinn verður í
Klettsvík í vetur. Keikó var
fluttur til íslands fyrir þremur
árum, en kostnaðurinn við veru
hans hér er um einn milljarður
króna. RÚV greindi frá.
—
Kona á níræðisaldri féll við
er hún steig fram af palli
biðskýlis strætisvagna við
Hverfisgötu í gær. Konan féll
án þess að bera hendurnar fyrir
sig og skall með höfuðið á neðs-
tu tröppu strætisvagnsins og
rann undir vagninn. Tvær
sjúkrabifreiðar og tækjabíll
slökkviliðsins komu á vettvang
og lokaði lögregla Hverfisgöt-
unni fyrir umferð meðan að-
gerðir stóðu yfir, en bakka
þurfti vagninum til að ná kon-
unni undan honum. Konan var
flutt á Landspítala Háskóla-
sjúkrahús í Fossvogi, en hún
reyndist beinbrotin og hafði
hlotið höfuðáverka.
2
FRÉTTABLAÐIÐ
Busavígsla Menntaskólans við Hamrahlíð:
Fcirið mjúkum höndum um nemendur
busavígsla Menntaskólinn í
Hamrahlíð bauð nýja nemendur
skólans velkomna í gær. Farið var
í skrúðgöngu frá skólanum þar
sem leiðin lá £ Öskjuhlíðina. Þar
voru nemendur látnir hneigja sig
fyrir framan Beneventum kletti,
lúðrgsveit lék, forseti nemenda-
ráðs M.H. flutti ávarp og nemend-
um gefnar gjafir. Rut Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri nem-
endafélags M.H. sagði busavígsl-
una í fyrra hafa verið með svip-
uðu sniði og hefði hún gefið góða
raun. Sagði hún þetta ánægjulega
tilbreytingu frá fyrri árum þegar
nemendur voru útkrotaðir og þeir
pyntaðir. ■
SKRÚÐGANGA NÝNEMA
Nýir og eldri nemendur gengu fylktu liði I Öskjuhlíðina þar sem mikill fögnuður fór fram.
Útgjöld ríkislögreglustjóra
190 milljónir umfram áætlun
Umsvif ríkislögreglustjóra meira en tvöfölduðust milli 1999 og 2000.
Sértekjur jukust mikið, m.a. vegna bílaleigu embættisins.
ríkisfjármál Ríkislögreglustjóri
eyddi í fyrra 190 milljónum króna
umfram áætlun. Alþingi hafði
gert ráð fyrir að útgjöld embætt-
isins yrðu 624 milljónir króna en
útgjöld þess urðu hins vegar 814
milljónir þegar upp var staðið.
Útgjöld ríkislögreglustjóra
árið 1999 voru 344 milljónir og
nam hækkunin milli ára því 470
milljónum eða 137%.
Ríkislögreglustjóri aflaði gríð-
arlegra sértekna í fyrra. Gert var
ráð fyrir því að þær tekjur myndu
færa embættinu 197 milljónir en
reyndin varð 286 milljónir, eða 89
milljónir umfr-am áætlun. Hefðu
þessar umframtekjur ékki komið
til hefði ríkislögreglustjóri farið
279 millónum króna fram úr áætl-
un Alþingis. Sértekjur ríkislög-
reglústjóra felast m.a. útleigu á
bílum til annara lögregluembætta
og í ýmsum sektargreiðslum.
Hvað árið í fyrra snertir má nefna
Kristnihátíð á Þingvöllum sem
var stórt og kostnaðarsamt lög-
gæsluverkefni sem færði emb-
ættinu talsverðar sértekjur en
reyndar gott betur en samsvar-
andi útgjöld á móti.
Helst virðist það hafa verið
kostnaður vegna bílaflota ríkis-
lögreglustjóra sem fór fram úr
áætlun en embættið hefur yfir-
tekið rekstur lögreglubíla sem
eru endurleigðir lögregluembætt-
unum. Annars vegar átti rekstur
bílanna að kosta 100 milljónir en
kostaði 162 milljónir og hins veg-
ar voru keyptir bílar fyrir 123
milljónir króna en ekki 59 milljón-
RlKISLÖGREGLUSTJÓRI
„Búast má við gagnrýnisröddum þegar breytingar eiga sér stað hjá stofnunum eins og
lögreglu, sem er í eðli sínu íhaldssöm stofnun," sagði Haraldur Johannessen ríkislögreglu-
stjóri í ársskýrslu embættisins.
ir eins og Alþingi hafði heimilað.
Lögreglan í Reykjavík notaði
1634 milljónir króna á árinu 2000
Embætti Útgjöid 2000 Útgjöld 1999 Fjárheimild % umfram áætiun
Ríkislögreglustjóri 814 344 624 30%
Lögreglustjórinn í Reykjavík 1634 1655 1578 4%
Sýslumaðurinn i Hafnarfirði 327 312 347 -5,8%
Sýslumaðurinn í Kópavogi 231 223 239 -3,3%
en voru ætlaðar 1578 milljónir.
Sýslumannsembættinn í
Kópavogi og Hafnarfirði notuðu
hins vegar minna fé en þeim var
ætlað. I Kópavogi námu útgjöld-
in 231 milljón króna en áætlunin
hljóðaði upp á 239 milljónir. í
Hafnarfirði nam kostnaðurinn
327 milljónum en embættinu þar
höfðu verið ætlaðar 347 milljón-
ir. ■
Ásakanir um stríðsglæpi í Makedóníu:
Innanríkisráðherr-
ann var á staðnum
new york. ap Mannréttindasam-
tökin Human Rights Watch sendu
í gær frá sér skýrslu þar sem al-
varlegar ásakanir á hendur lög-
reglúnni í Makedóníu eru bornar
fram. Lögreglan er sökuð um að
hafa skotið til bana sex óbreytta
borgara og kveikt í að minnsta
kosti 22 húsum, kofum og verslun-
um í þorpinu Ljuboten þann 12.
ágúst síðastliðinn. Sprengjuárásir
urðu þremur óbreyttum borgur-
um að auki að bana og einn til við-
bótar var skotinn á flótta frá þorp-
inu.
Tveimur dögum eftir þessa
árás á þorpið neitaði Ljube
Boskovski, innanríkisráðherra
Makedóníu, því að óbreyttir borg-
arar hefðu verið myrtir í Ljuboten
en sagði fimm hryðjuverkamenn
af albönskum uppruna hafa látist í
bardögum.
í skýrslu mannréttindasamtak-
anna segir að engin merki hafi
fundist um að skæruliðar hafi
verið staddir í þorpinu þegar
árásin var gerð. Hins vegar er því
haldið fram að innanríkisráðherr-
ann hafi verið á staðnum, og segir
fulltrúi mannréttindasamtakanna
mjög alvarlegt að hann hafi tengst
svo náið einu versta atviki stríðs-
átakanna. ■
HARMUR f LJUBOTEN
Þessi mynd er tekin tveimur dögum eft-
ir árásina. Þorpsbúi heldur um höfuð
sitt eftir að hafa séð lík nágranna síns.
6. september 2001 FIMIVITUDACUR
Stór samningur Flugleiða:
Leiguflug frá
Boston
samgöngur Flugleiðir hafa gert
samning við ferðaskrifstofuna
GWV í Boston um leiguflug milli
Boston og fjögurra áfangastaða í
Karabíska hafinu tvo næstu vetur.
Fjárhæð samningsins við ferða-
skrifstofuna er um 1 milljarður
króna. Flugleiðir nota í verkið 213
sæta Boeing 757-200 vél sem notuð
hefur verið í leiguflugi, m.a. fyrir
Úrval Útsýn og Samvinnuferðir
Landsýn hér á landi og Air Scandic
í Bretlandi. íslenskar áhafnir Flug-
leiða munu annast flugið að mestu
leyti. Samningurinn er í samræmi
við þá stefnu fyrirtækisins að auka
sveigjanleika í rekstrinum með
leiguflugi yfir vetrarmánuðina. ■
Starfsgreinasamband
Islands:
Draugabanar í
Stykkishólmi
verkalýðsmál Halldór Björnsson
formaður Starfsgreinasambands
íslands segir að tilveruréttur
sambandsins sé í veði ef ekki nást
sættir innan þess á milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðis-
ins. Af þeim sökum sé brýnt að
þessum deilum faiú að linna og
hægt verði að kveða niður þennan
draug sem fylgt hefur samband-
inu frá stofnun þess. Fundað verð-
ur um þessi innri mál á fundi
framkvæmdastjórnar sambands-
ins sem haldinn verður í Stykkis-
hólmi um aðra helgi.
Formaðurinn segist vona að
menn hafi náð þeim þroska í al-
mennri skynsemi til að átta sig á
því að það skiptir ekki máli hvort
einstaklingur sé t.d. frá Langanesi
eða Reykjavík sem fulltrúi sam-
bandsins. Hann segir að þótt
reynt sé að taka tillit til byggðar-
sjónarmiða í starfi sambandsins
megi það ekki vera alls ráðandi.
Hins vegar sé hætta á því að
menn geti eyðilagt þá sterku og
áhrifamiklu stöðu sem sambandið
hefur innan verkalýðshreyfingar-
innar ef menn ná ekki sáttum. ■
varnarmálaráðherrann
Biyamin Ben-Eliezer, annar frambjóðand-
anna, veifar kjörseðli sínum.
Pattstaða í Verkamanna-
flokki Israels:
Asakanir um
kosningasvindl
JERúsalem. ap Of mjótt varð á mun-
unum í leiðtogakjöri Verkamanna-
flokksins í ísrael á þriðjudag til
þess að hægt væri að lýsa annan
frambjóðendanna sigurvegara.
Auk þess virtist í uppsiglingu
mikið þrætumál vegna gagn-
kvæmra ásakana frambjóðend-
anna um kosningasvindl, og þótti
ekki ólíklegt að þau mál enduðu
hjádómstólum.
í kjöri voru þeir Avraham
Burg, sem er forseti þingsins og
stuðningsmaður friðarumleitana,
og Binyamin Ben-Eliezer, hinn
herskái dómsmálaráðheri'a í
stjórn Sharons. Efna þurfti til
leiðtogakjörs í Verkamanna-
flokknum eftir að Ehud Barak
sagði af sér formannsembættinu í
kjölfar kosningaósigursins í júní.
Ben-Eliezer fór fram á endur-
talningu atkvæða eftir að fyrstu
tölur bentu til þess að Burg myndi
sigra með rúmlega þúsund at-
kvæða mun. Rúmlega sjötíu þús-
und af alls 117 þúsund félögum í
flokknum greiddu atkvæði. ■