Fréttablaðið - 06.09.2001, Page 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
6. september 2001 FIMMTUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ |'
OSTANEYSLAN TVÖFALDAST
FRÁ 1980
íslendingar virðast stöðugt hafa aukið við
hrifningu sína á ostum á síðustu tveimur
áratugum. Árið 1980 var ársneyslan á
mann 40 kíló en í fyrra var hún orðin ríf-
HEIMILD: HACTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
ÚRSLITA BEÐIÐ
Þessi Fídjibúi var að lesa dagblað með
fréttum af kosningunum, sextán mánuð-
um eftir að valdaránið var framið þar.
Kosningarnar á
Fídjíeyjum:
Tvær meg-
infylkingar
áþingi
suva. Fipií. ap Mahendra Chaudry,
fyrrverandi forseti Fídjí-eyja, og
George Speight, leiðtogi upp-
reisnarmannanna sem steyptu
honum af stóli í maí árið 2000,
voru báðir kosnir á þing í kosning-
unum í síðustu viku, en fyrstu töl-
ur úr þeim voru birtar í gær, mið-
vikudag. Núverandi forsætisráð-
herra, Laisenia Qarase, komst ein-
nig á þing, en herinn setti hann í
embættið eftir valdarán Speights.
Speight situr reyndar í varð-
haldi og bíður réttarhalda vegna
landráðs, þar sem hann gæti átt
yfir höfði sér dauðadóm.
Þeir Qarase og Chaudry eru
hins vegar helstu keppinautarnir
um forsætisráðherrastólinn. Allt
bendir til þess að tvær meginfylk-
ingar berjist um völdin á þingi í
fyrsta sinn. Chaudry er fulltrúi
þeirra eyjarskeggja sem eru af
indverskum uppruna en Qarase er
innfæddur Fídjíbúi. ■
Borgarstjórn:
Nýr
fundartími
ráðhúsið Tímamót verða í fundar-
sköpum borgarstjórnar í dag,
fimmtudag, þegar fundur hefst
klukkan 14 í stað klukkan 17 eins
og verið hefur um margra ára
skeið. Tillaga um þessa breytingu
var samþykkt á fundi borgar-
stjórnar í sumar en mörgum hefur
þótt fundartíminn hafa verið á
skjön við tíðarandann í samfélag-
inu. Gamli fundartíminn gerði það
líkum að verkum að fundir gátu
staðið langt fram á kvöld og jafn-
vel framundir morgun eins og
komið hefur fyrir í umæðum um
fjárhagsáætlun borgarinnar og
önnur stór mál. ■
Mannréttindasamtök á Austur-Tímor:
Vara við einhliða stjórnarskrá
sjAlfstæðishetjan
Eyjarskeggjar á Austur-Tímor bera Xanana Gusmao á höndum
sér, en mannréttindasamtök óttast nú að sjálfstæðishreyfing
Gusmaos taki ekki tillit til smærri flokka á stjórnlagaþinginu.
DILL AUSTUR-TÍMOR. AP Fretel-
in, sjálfstæðisfylkingin á
Austur-Tímor, virtist býsna
örugg með að hljóta meiri-
hluta á stjórnlagaþinginu
sem kosið var til þann 30.
ágúst. Þegar talið hafði ver-
ið í tólf af þrettán kjördæm-
um hafði Fretelin hlotið ell-
efu kjördæmasæti og um
helming greiddra atkvæða á
landsvísu. Reiknað er með
að lokaúrslitin verði til-
kynnt í dag, fimmtudag.
Helstu mannréttinda-
samtök á eyjunni, Yayasan Hak,
sögðust þó í gær hafa áhyggjur af
því að ef Fretelin fengi yfirgnæf-
andi meirihluta gæti það þýtt að
smærri flokkar fengju ekki tæki-
færi til að taka þátt í að semja
stjórnarskrána, sem er
meginverkefni þingsins.
„Fretelin hefur þegar
samið drög að stjórnarskrá.
Ef þeir hljóta meirihluta á
þingi þá gætu þeir sam-
þykkt hana án umræðna,"
sagði Joaquim Fonseca,
talsmaðu Yayasan Hak.
„Hver sá flokkur sem hlýt-
ur meirihluta verður að
ráðgast við þjóðina og aðra
stjórnmálahópa."
Á næstu sex til átta mán-
uðum verður stjórn lands-
ins flutt úr höndum bráðabirgða-
stjórnar Sameinuðu þjóðanna yfir
til þjóðkjörinnar stjórnar. ■
ERLENT
Dómstóll í Frakklandi hefur
dæmt 66 ára rómversk-kaþ-
ólskan biskup í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangels fyrir að
hafa haft vitneskju um kynferð-
islega misnotkun prests á börn-
um, en þagað yfir því. Rene Biss-
ey, presturinn sem biskupinn
hylmdi yfir með, var dæmur í 18
ára fangelsi í október síðastliðn-
um fyrir kynferðislega misnotk-
un á 11 börnum á árunum 1996-
98.
.......-
Að minnsta kosti 17 létust þeg-
ar eldur kviknaði í þjóðgarði
í norðausturhluta Suður Afríku.
Eldurinn braust út í fyrrakvöld..
Slökkviliðsmenn börðust í gær
við að ráða niðurlögum eldsins.
Aukin aðsókn í hjálp-
arstarf Samhjálpar
Meira um yngra fólk en áður sem leitar sér hjálpar. Neyslan harðari en áður. Aðsókn aldrei
meiri en í sumar. Stefnt að því að hafa kaffistofuna opna um helgar.
Við reynum
að gefa fólki
von og hlýju
með kaffinu
.—.
heimilislausir „Við reynum að gefa
fólki von og hlýju með kaffinu,"
sagði Heiðar Guðnason, forstöðu-
maður Samhjálpar, þegar hann var
spurður um starfsemi Samhjálpar
til handa þeim sem veglausir eru.
Félagasamtökin hafa haldið úti
kaffistofu sem opin er alla virka
daga frá klukkan
tíu til fimm. „Við
gefum fólki kaffi
og meðlæti allan
daginn en klukkan
fjögur reynum við
að gefa fólki eitt-
hvað bitastæðara.“ Heiðar sagði að
unnið væri að því í samstarfi við
borgaryfirvöld að hafa opið um
helgar og taldi hann samkomulag
þess efnis nást fljótlega.
Heiðar sagði fjöldann sem
sækti kaffistofuna hafa aukist.
„Við erum einnig að sjá meira af
yngra fólki en áður og er orðið
áberandi hvað neyslan er orðin
harðari en áður var það brennivín-
ið sem var aðal vímugjafinn.“
Heiðar sagði aðsókn aldrei hafa
verið meiri en nú í sumar. „Það er
ákveðinn hópur fólks sem fer á
milli húsnæða eða grena, ef svo má
að orði komast. Þetta er fólk sem
vegna lifnaðarhátta sinna hefur
komið sér út úr því húsnæði sem
því hefur verió útvegað og nú þeg-
ar húsnæðismarkaðurinn er orðin
þyngri er ekki í mörg hús að
venda.“
Heiðar sagði hluta starfsfólks
þiggja laun fyrir störf sín en mikið
væri um sjálfboðavinnu. „Við rek-
um meðferðarheimilið Hlaðgerð-
HEIÐAR GUÐNASON í SAMHJÁLP
Heiðar sagði Reykjavíkurborg hafa styrk rekstur Samhjálpar en sú aðstoð dygði ekki til. Sagði hann fyrirtæki hafa gefið matvæli og sýnt
annars konar velvilja og það sem upp á vantaði kæmi frá einstaklingum og tekjur af áskrift tímarits Samhjálpar þar sem fjallað er um
starfsemina.
arkot en fjöldi manns sem heim-
sótt hefur kaffistofuna hefur leitað
sér áframhaldandi aðstoðar þar.
Við erum alltaf tilbúin til að tala
við fólk og rétta því hjálparhönd
sem leiðir til þess að það vill snúa
við blaðinu.“ Heiðar sagði að á veg-
um Samhjálpar væri svokallað
Marita-starfi sem miðaðist við
ungt fólk. „Þetta er forvarnar-
fræðsla þar sem við í samvinnu við
félagsþjónustuna og lögreglu
heimsækjum grunnskólana og hef-
ur það gefið góða raun. Við erum
með samkomur á hverju mánu-
dagskvöldi klukkan átta og þangað
hafa mætt um og yfir eitthundrað
unglingar í viku hverri.“
Blaðamaður lýsti yfir undrun
sinni á umfangi Samhjálpar og
hafði orð á hversu hljóðlát starf-
semi samtakanna væri. „Við höf-
um kosið að fara þá leið að vera
ekki mikið sýnilegir heldur vinna
okkar starf hljóðlátlega með fólk-
inu sem sækir til okkar. Við viljum
frekar láta verkin tala heldur en að
berja okkur á brjóst,“ sagði Heiðar
að lokum.
kolbrun@frettablaðdid.ís
íbúar í nágrenni Pinatu-
bo búa sig undir flód:
Vatni hleypt
úr gígnum
BOTOLAN. FILIPPSEYJUM. AP ÞÚSUndÍr
manna flúðu þorp sín undir hlíð-
um eldfjallsins Pinatubo á Fil-
ippseyjum í gær áður en vatni
verður hleypt úr gígnum efst á
fjallinu. Undanfarnar vikur hefur
hópur manna unnið að því að
grafa skurð í gígbarminn, með
skóflur, haka og hjólbörur að
vopni, til þess að hleypa úr hon-
um vatninu áður en barmarnir
bresta af sjálfsdáðum undan sí-
vaxandi vatnsþrýstingnum og
aurskriður streyma stjórnlaust
niður fjallshlíðarnar.
Meiningin er að nota há-
þrýstisprautur til þess að rjúfa
síðasta haftið, og stóð til að gera
það á fimmtudagsmorgni, sem að
íslenskum tima var nú í nótt. Ekki
er vitað hversu miklum skaða
þetta framkallaða flóð veldur, en
FYRIR FLÓÐIÐ
Ibúar í nágrenni fjallsins notuðu ýmis konar farartæki til þess að koma sér á öruggar slóð-
ir áður en flóðinu verður hleypt niður fjallshlíðarnar.
íbúarnir búa sig undir það versta
og allt að 40 þúsund manns yfir-
gáfu heimili sín. Þó þykir víst að
tjónið yrði mun meira ef flóðið
fengi að streyma stjórnlaust nið-
ur fjallshlíðarnar. ■
Kalkútta:
Móður Ter-
esu minnst
KALKÚTTA.INDLANDI.AP Hundruð
manns lögðu blómsveiga við graf-
hýsi Móður Teresu í Kalkútta á
Indlandi í gær til að minnast þess
að fjögur ár
“..*-.■ voru liðin fra
því hún lést.
Síðan þá hafa
hin alþjóðlegu
kaþólsku trú-
boðssamtök
sem hún stofn-
aði, Mission-
aries of
Charity, komið
upp 78 nýjum
miðstöðvum
fyrir fátæka og
sjúka út um allan heim. Tvenn ind-
versk góðgerðarsamtök, sem
héldu bænafund skammt frá graf-
hýsi hennar, hvöttu í gær indversk
stjórnvöld til þess nefna götu í
Kalkútta eftir Móður Teresu. ■
MÓÐUR TERESU
MINNST
Nunna aðstoðar unga
stúlku við að bera
blómsveig að grafhýsi
Móður Teresu.