Fréttablaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 6
6
FRETTABLAÐIÐ
6. september 200) FIIVlf/iTUDAGUR
SPURNINC DACSINS
' Borgarráð Reykjavíkur:
Deilur risu um húsnæðis-
vandann í Reykjavík
sveitarstiórnarmAl Deilur risu
milli borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins og R-listans á
fundi síðasta þriðjudag vegna
ástandsins í húsnæðimálum.
Gerðar voru tvær bókanir. í
annarri þeirra kemur frarn að
sjálfstæðismenn telja aðgerðar-
leysi R-listans í skipulags- og
lóðamálum undanfarin ár hafa
komið í veg fyrir að eðlilegt fram-
boð byðist á íbúðum. Benda þeir á
að R-listinn hafi efnt til uppboðs á
þeirn lóðum sem til hefðu komið
og því orðið gífurleg verðspreng-
ing á fasteignamarkaðinum. Af-
leiðingin sé stórhækkun húsa-
leigu á almennum markaði.
Borgarfulltrúar R-listans
sögðu sjálfstæðismenn reyna að
gera Reykjavík að blórarböggli
fyrir húsnæðisstefnu sem mótuð
hefði verið í félagsmálaráðuneyt-
inu. Bentu þeir á að ríkisstjórnin
hefði lagt niður verkamannabú-
staðakerfió árið 1998 og einnig
kaupleiguíbúðarkerfið við sama
tækifæri. Auk þess hefði hún
méira en þrefaldað vexti á lánum
til félagslegra leiguíbúða. Bentu
þeir á að lagt hefði verið til að í
stað niðurgreiddra vaxta yrðu
teknir upp stofnstyrkir og hærri
húsaleigubætur. Hvorugt hefði
hlotið náð fyrir augum fjármála-
ráðherra sem væri ástæðan fyrir
því að á örskömmum tíma hafi
skapast neyðarástandsins í hús-
næðimálum. ■
INGUNNARSKÓLI í GRAFARHOLTI
Skólastarfið fer fyrst fram í samtengdum færanlegum kennslustofum sem skólastjórinn segir mjög vistlegar og mun betur útlítandi að
innan en utan.
Börnin fá sínar
eigin vinnustöðvar
I Grafarholti í Reykjavík hefur nýr grunnskóli hafið starfsemi þar sem
áhersla verður lögð á sjálfstæði nemenda og viðhafðar nokkrar nýjung-
ar í skólastarfi.
Er mikil aðsókn í bíó á meðan
landsleikurinn við Norður-íra
fer fram?
Það er nú frekar tómlegt. Ég held að lands-
leikurinn hafi áhrif á aðsóknina, að minns-
ta kosti var fjölskylda min öli búin að plan-
ta sér fyrir framan sjónvarpið klukkan sjö
Kristjana Viðarsdóttir starfar í miðasölu
Bíóborgarinnar við Snorrabraut.
HAGSMUNAÁREKSTUR
Iðnaðarráðherra, telur að afstaða Helga
Hjörvar kunni að markast af stjórnarsetu
hans hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Valgerður sendir Helga
tóninn:
Undrast
kunnáttu-
leysið
virkjanir „Það er með ólíkindum að
stjórnarmaður í Landsvirkjun,
sem fær greidd laun fyrir setu
sína þar, skuli vera svo kunnáttu-
laus í málefnum fyrirtækisins. Lög
um Landsvirkjun eru skýr, hlut-
verk fyrirtækisins afmarkað. Það
er að framleiða, flytja og selja raf-
orku,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir, iðnaðarráðherra um Helga
Hjörvar, forseta borgarstjórnar
Reykjavíkur og stjórnarmann í
Landsvirkjun. Valgerður segir á
heimasíðu sinni að afstaða Helga
kunni að markast af því að hann
situr í stjórn Orkuveitu Reykjavík-
ur og hafi því meiri áhuga á stækk-
un Norðuráls og ísal, þar sem
Orkuveitan yrði meðal orkusala.
Hún telur hugmyndir Helga, um
að Landsvirkjun hefði átt að setja
það fé sem farið hefur í undirbún-
ing Noral- verkefnisins í aðra at-
vinnuuppbyggingu fyrir austan,
fráleitar. ■
INNLENT
Skýr samdráttareinkenni eru í
samfélaginu að mati Davíðs
Oddssonar, forsætisráðherra.
Hann telur að Seðlabankinn eigi
fremur að horfa fram á við en aft-
ur á bak í mati á stöðu efnahags-
mála. Davíð segir tímabært að
lækka vexti, en segist verða að
halda sig til hlés í umræðunni sök-
um þess að Seðlabankinn heyri
undir ráðuneyti hans og þannig
gefa bankanum færi á að fara með
vald sitt í efnahagsstjórnuninni.
GRUNNSKólar Ingunnarskóli þjónar
Þúsaldarhverfi og fer skólastarfið
fram í færanlegum kennslustofum
þar sem rúmt er um nemendurna
því þeir eru einungis 32, en ætlað er
að skólinn taki upp undir 450 nem-
endur fullbyggður.
Guðlaug Sturlaugsdóttir, skóla-
stjóri, segir uppbyggingu hverfis-
ins hafa gengið hægar en ráð var
fyrir gert. „Það gerðist nú í fyrsta
sinn að nemendur urðu færri en ráð
var fyrir gert,“ sagði hún og bætti
við að unnið hafi verið að uppbygg-
ingu skólans með nýjum hætti.
„Fyrir tilstuðlan fræðslustjóra var
fenginn bandarískur ráðgjafi sem
byrjaði að starfa með okkur í janú-
ar, en fenginn var 25 manna hópur
fólks víðsvegar að úr þjóðfélaginu
til að velta fyrir sér hvernig skóla
væri þörf á nýrri öld,“ sagði hún.
Næsta skref segir Guðlaug að teik-
na skólann í samræmi við niður-
stöður hópsins. Meðal nýmæla í
skólastarfinu segir hún verða
aukna áherslu á samvinnu, en um
leið sjálfstæði og ábyrgð nemenda,
sem komi fram í þemavinnu og
betri nýtingu á námstíma nemenda.
„Og það sem er dálítið nýtt og öðru-
vísi er að krakkarnir verða með sín
eigin vinnusvæði í skólanum, frá
kannski 5. bekk. Frá þeim aldri yrði
hvert barn með sitt skrifborð eða
svæði í skólanum þar sem það vinn-
ur,“ sagði Guðlaug og bætti við aö
skólinn væri vitanlega umhverfis-
vænn, rusl væri flokkað og í skólan-
um væri boðið upp á mjólk og vatn
til að draga úr umbúðanotkun. „Það
er verið að gera góða hluti víða í
skólakerfinu. Við ætlum að nýta
okkur það og taka þá hluti sem ver-
ið er að gera vel. Það er engin
ástæða til að vera alltaf að finna
upp hjólið," sagði hún.
Guðlaug sagði að gætt yrði að
því að fara ekki of skarpt af stað
með breytingar og börnum sem
kæmu úr öðrum skólum þar sem
viðhaft væri annað vinnulag yrði
hjálpað að aðlagast nýjum aðstæð-
um og aðferðum. „Þetta gengur
best ef börnin eru með frá upphafi
og við gerum okkur grein fyrir að
þetta verður erfiðast með elstu
krakkana," sagði hún en tiltók jafn-
framt að vinnubrögðin sem þau
væru þarna að kynna hafi verið við-
höfð í kennslu yngri barna um ára-
bil.
Rúnar Gunnarson hjá bygging-
ardeild Borgarverkfræðings segist
búast við að bygging skólans hefjist
á næsta ári. „Núna er verið að vinna
að frumskissum. Upp úr október og
fram á vor verður svo vonandi
haldið í fulla hönnun og verkiö
væntanlega boðið út næsta vor,“
sagði hann.
o!i@frettabladid.is
ERLENT
Maður á reiðhjóli slasaðist
lítillega þegar hann lenti
utan í vörubifreið á mótum
Urðarbrautar og Borgarholts-
brautar í gærmorgun.
rjúhundruð kílóa járnbiti
féll framait á bifreið og
braut framrúóu hennar á Ölf-
usárbrúnni um hálf tólf leytið í
gærdag þegar ökumaður vöru-
bifreiðar rak járnbita sem hann
var að flytja í handriðið á brún-
ni. Ökumaður slapp ómeiddur
og sagði talsmaður lögreglunn-
ar á Selfossi það hafa verið
mikið lán. Umferðartöf mynd-
aðist við óhappið en leysist
fljótlega undir stjórn lögregl-
unnar.
Sáttane.fnd:
Urslitastund
á morgun
fiskveiðistjórnun „Ég er svartsýnni
nú en fyrir nokkrum dögum,"
sagði Árni Steinar Jóhannsson al-
þingismaður og nefndarmaður í
endurskoðunarnefndinni í sjávar-
útvegi. Nefndin á að vera búin aó
skila af sér en það hefur dregist
sökum þess að ekki hefur náðst
sátt meðal nefndarmanna.
Næsti fun er á morgun og
þeir nefndarmcnn sem rætt var
við eru allir þeirrar skoðunar aö þá
muni endanlega verða ljóst að
nefndin kemst ekki að sameigin-
legri niðurstöðu. Vonir um sættir
urðu að engu í gær. s
VEL Á VERÐI
ísraelskur hermaður var vel á verði á með-
an á skotárás stóð við palestínska byssu-
menn í borginni Hebron á Vesturbakkan-
um I fyrradag. Átök halda enn áfram fyrir
botni Miðjarðarhafs þrátt fyrir áform um
að hefja friðarviðræður á næstu dögum.
Israelskar hersveitir:
Skutu
eldflaugum
jerúsalem.ap ísraelat’ skutu í gær
þónokkrum eldflaugum að tveim-
ur palestínskum öryggisstöðvum
skammt fyrir utan Gaza-borg.
Ekki er vitað um mciðsli á fólki
eða hvort byggingar hafi
skemmst. ísraelsher vildi ekkert
láta hafa eftir sér vegna málsins
en hann hefur margoft beint eld-
flaugum sínum að öryggisstöðv-
unt Palestínumanna. Hafa ísrael-
ar sagt að Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, og öryggissveit-
ir hans hafi mistekist að korna í
veg fyrir árásir palestínskra
skæruliða á ísrael. ■
Hentu gamla maskaranum '
Kannanir sýna aö gamlir maskacar geta veriö
skaðlegir augum. N°7 býöur núná maskára á
tiiboði í staðinn.
,N°7 maskararnir eru algjöriega ný uppskrift.
Þeir næra og endurbæta vel meö vítamíni og
næringargjöfum.
Náttúrulegí vax mýkir hárin. Polymer lætur
hann haldast.
N°7 maskararnir henta viðkvæmustu
augum/linsunotendum.
Hundruö einstakra smábursta í N”7 passa
aö maskarinn klessist ekki en lengi vel.
Waterproof er fullkomnlega vatnsheldur.
Superlash/þykkir og lengir mikiö og er hann
nú vinsælasti maskarinn í Englandí.
N°7
^' -Am
Smáralind:
Fyrsta
skiltið risið
veitingahúS Smáralind er óðum aö
taka á síg endanlega mynd og hef-
ur eitt fyrirtækjanna, sem verður
með rekstur í húsnæðinu, riðið á
vaðið og sett upp fyrsta skiltið á
austurhlið hússins, Þetta er veit-
ingahúsið Friday’s sem er hluti af
bandarískri veitingahúsakeðju og
er þetta í fyrsta sinn sem veit-
ingastaðurinn opnar á íslandi.
Friðjón Hólmbertsson, frani-
kvæmdastjóri og einn eiganda
veitingahússins, ségir að frarn-
kvæmdir séu hálfnaðar og áætlað
sé að opna staðinn 10. október
næstkomandi.
Fyrsti Friday’s staðurinn var
opnaöur í New York árið 1965 en
þeir eru nú 671 talsins víða í heim-
inurn. í tilkynningu frá staðnum
segir að í boði verði þægileg og
óformleg stemming. ■
FRIDAY'S i SMÁRALIND
í byrjun næstu viku hefst uppsetning eld-
húss og innréttingar i sal. Síðasti áfanginn
fyrir opnun er þjálfun starfsfólks en sam-
kvæmt upplýsingum frá Friday's hefur
gengið vel að manna í stöður.