Fréttablaðið - 06.09.2001, Side 12
Draumurinn rætist,
með lægri vöxtum.
Eldaskáiinn hefur í samvinnu við
SPRON opnað nýja leið ril kaupa á
fataskápum, eldhús- og baðinnrétt-
ingum með INVlTA-ijármögnun.
Húsbyggjendur/húseigendur á Stór-
Reykjavíkursvæðinu sem æda að
innrétta með INVITA innréttingum
frá Eldaskálanum geta nú fjármagnað
kaupin á ódýrari og þægilegri hátt en
tíðkast hefur. Greiðslutími er lengri og
lánin bera lægri vexti en boðist hafa í
greiðslusamningum.
Lánin byggjast á fasteignaveði og
eru til 3-20 ára, en lánstími og vaxta-
stig ráðast af annarri veðsetningu og
viðskiptasögu lántakenda. Góður lán-
takandi með tryggt veð getur fengið allt
að 100% kaupverðs fjármagnað með
þessari nýju INVITA-fjármögnun,
enda er þetta góð eignaaukning fast-
eignarinnar.
Allt að 20 ára lánstími veldur að fólk
getur nú frekar leyft sér að kaupa
draumainnréttinguna og þarf ekki að
skera niður þægindi, glerskápa,
skrauthillur innfellda lýsingu eða ann-
að, miðað við fjárhagsstöðuna í dag.
Með þessu móti býður Eldaskálinn
INVITA innrétdngar í allt húsið,
uppsett eldhús, fataskápa, baðinn-
réttingu, Blomberg heimilistæki,
kork á gólfið, allt í einum pakka á
lægsta mögulega vetði.
Þó þetta sé auglýsing, finnst okkur
þetta engu að síður vera stórfrétt, bæði
fyrir húsbyggjandann og ekki síður
þann sem þarf að endurnýja hjá sér.
Hann kemur með teikningu af íbúð-
inni/húsinu til okkar, við hjálpum við
skipulagningu eldhúss eða annars
rýmis, gerum þrívíddar- teikningu
sem sýnir á mjög raun- verulegan
hátt hvernig innréttingin getur litið
út heima hjá viðkom- andi, afgreiðum
innréttinguna þess vegna uppsetta
með tækjum og gólfefni og komum á
INVITA- fjármögnuninni til langs
tíma.
Getur það verið auðveldara?
Eins og áður sagði er þetta auglýsing
frá Eldaskálanum sem býður ykkur
velkomin í sýningarsalinn í Brautar-
holti 3 þar sem sjá má sýnishorn
nokkurra þeirra u.þ.b. 160 innrétt-
inga sem í boði eru.
FRÉTTABLAÐIÐ
6. september 2001 FIMIVITUPACUR
Formaður skipulagsnefndar Kópavogs:
Getum verið fyrirmynd Reykjavíkur
skipulacsmál „Við höfum verið
með varúðarnálgun varðandi
skipulag á Vatnsenda. Við vorum
fyrst sveitarfélaga að gera ráð
fyrir seftjörnum. Reykjavíkur-
borg hefur tekið þetta upp eftir
okkur í hverfunum sem er verið
að skipuleggja við Úlfarsfell og
Korpu. Við höfum látið náttúruna
njóta vafans, en það þýðir ekki að
við ætlum ekki að gera neitt.
Heldur það að við ætlum að fara
varlega," sagði Ármann Kr. Ólafs-
son formaður skipulagsnefndar
Kópavogs.
Nokkur átök hafa verið milli
ráðamanna Reykjavíkur og Kópa-
vogs vegna skipulags við Vatns-
enda.
„Ég vil að við og Reykjavíkur-
borg sameinumst um hvernig ber
að vernda Elliðaárnar. Þeir verða
að hugsa upp á nýtt hvernig ber
að vernda árnar fyrir neðan stíflu
sem nú fer í árnar og er í lögsögu
Reykjavíkur. Til dæmis með því
að taka yfirborðsvatn sem nú fer í
árnar og setja það í seftjarnir. Við
getum verið fyrirmynd þeirra í
því. Það þarf að fara yfir hvað á
að gera varðandi Áburðarverks-
miðjuna og hvaða áhrif hún hefur,
hvaða áhrif stórskipahöfnin hef-
ur, hvaða áhrif smábátahöfnin
hefur og sama má segja um Sem-
entsverksmiðjuna og sorphaug-
ana, hvaða áhrif Malbikunarstöð-
in hefur með sína tvo tanka á ár-
bakkanum, hvaða áhrif það hefur
að hafa hesthúsahverfi á árbakk-
anum og móttöku frá Sorpu og
hvaða áhrif það hefur að hafa
sundlaug þar. Hún hefur þegar
mengað ána svo skaði hlaust af.
Þá vil ég að kannað verði hvaða
áhrif rafstöðin hefur. Elliðavatn
er notað sem miðlunarlón og árn-
ar hafa nánast verið þurrkaðar
upp, en sem betur fer eru yfirvöld
í Reykjavík að átta sig á hversu
viðkvæmt það er fyrir hrygning-
una,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson.
ÁRMANN KR. ÓLAFSSON
Ef settar verða upp seftjarnir við Elliða-
árnar fer mun minna af eiturefnum í
árnar en gerist f dag.
Hlupu hágrátandi
í átt að skólanum
Fjórir lögregluþjónar slasast í sprengingu við
kaþólskan stúlknaskóla á N-írlandi. Skólabörn-
in í fylgd foreldra sinna grýtt og svívirt af mót-
mælendum þriðja daginn í röð. Ráðamenn úr
röðum mótmælenda og kaþólskra fordæma
ástandið.
norður-írland Fjórir lögregluþjón-
ar slösuðust þegar sprengja sprakk
skammt frá kaþólskum stúlkna-
skóla í norðurhluta Belfast á Norð-
ur-írlandi í gærmorgun, er örygg-
issveitir lögreglunnar, sem mynd-
að höfðu vegatálma, reyndu þriðja
morguninn í röð að vernda skóla-
börn fyrir grjótkasti og svívirðing-
um af hálfu mótmælenda sem búa
á svæðinu. Mikil skelfing greip um
sig í kjölfar sprengingarinnar og
hlupu skólabörnin, um 80 talsins, í
fylgd foreldra sinna í átt að skólan-
um, mörg þeirra hágrátandi.
Philomena Flood, sem var að
fylgja dóttur sinni í skólann hafði
þetta að segja um atburðinn: „Þetta
var algjör ringulreið. Þegar
sprengjan sprakk hlupum við bara
í hringi. Það voru börn út um allt og
við [foreldrarnir] reyndum grípa
okkar barn og komast í skólann."
„Þetta fólk [mótmælendurnir]
sagði í gær [í fyrradag] að við ætt-
um að skammast okkar fyrir að
ganga í skólann, en hver á að
skammast sín núna?,“ sagði hún í
viðtali við BBC og var mikið niðri
fyrir.
Tveir lögregluþjónanna slösuð-
ust á fótlegg eftir að hafa orðið fyr-
ir sprengubroti en hinir hlutu
minniháttar meiðsli. Að auki var
kona flutt á sjúkrahús eftir að hafa
hnigið niður. Hreyfingin „The Red
Hand Defenders," serrj er hluti af
skæruliðahreyfingum aðskilnaðar-
sinna, UDA og LVF, hefur lýst
ábyrgð á verknaðinum á hendur
sér. Einn maður var handtekinn í
kjölfar sprengingarinnar.
Mótmælendur frá Glenbryn-
svæði, þar sem byggð mótmæl-
enda er staðsett bakvið stúlkna-
skólann í Ayrdone-hverfinu, sem
annars er kaþólskt, halda því fram
að árásir kaþólskra manna á heim-
ili þeirra hafi færst í vöxt undan-
farið og þess vegna hafi þeir
ákveðið að vekja athygli á málinu.
Ráðamenn úr röðum bæði mót-
mælenda og kaþólskra hafa hins
végar gagnrýnt ástandið við skól-
ann harðlega og vilja að ró komist á
hið snarasta. Jane Kennedy, varn-
armálaráðherra Norður írlands,
hefur lýst yfir áhyggjum sínum
HLAUPIÐ f SKJÓL
Kaþólsk fegðin hlaupa í skjól í átt að Holy
Cross-stúlknaskólanum eftir að sprengjan
sprakk ( gærmorgun. Mikil skelfing greip
um sig á svæðinu, en mildi þykir að ekkert
barnanna, sem voru á aldrinum 4 til 11
ára, hafi slasast f sprengingunni.
vegna ástandsins og ætlar að ræða
við fulltrúa stjórnvalda á Glen-
bryn-svæðinu í tilraun til að koma
á friði.
freyr@frettabladid.is
DAIMS - HOLL, ANDLEG OG LÍKAMLEG ÍPRÓTT FYRIR ALLA
Sociaí Foxtrot - það nýjasta
Þú verður fær um aS dansa við 90% af öllum lögum sem leikin eru á
venjulegum dansleik eftir 6 fíma.
starfsár
ó tíma námskeið
Línudans
Auðveldur og skemmtilegur. Bók fylgir
meS lýsingu á dönsunum. ______GÖlYllu dafíSamÍr
10 tíma námskeiS
og þú lærir þá alla.
Freestyle - Hip Hop
Erla Haraldsdóttir kennir.
Salsa
Dansinn sem fer sigurför um
heiminn.
1 Break
Ásgeir, margfaldur íslandsmeistari, og
Gummi kenna. 6 tíma námskeið.
Samkvæmisdansar - barnadansar
Aratuga reynsla okkar og þekking tryggir þér bestu fáanlega kennslu.
14 vikna námskeið fyrir fullorðna
14 vikna námskeið fyrir börn
Dansleikur í lokin.
Keppnisdansar
Svanhildur Sigurðardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir,
frábærir þjálfarar í keppnisdönsum.
14 vikna námskeið. Mæting lx, 2x eða 3x í viku.
Brúóarvalsinn
Kenndur í einkatíma.
6 tíma námskeið
Upprifjunartímar
Einn tími á sunnudögum
Einn dans tekinn fyrir í hvert skipti.
10 tíma námskeið.
Dans ársins
Kennsla hefst
10. sept.
Innritun fer fram í síma 551 3129
milli kl. 15 og 22 daglega til 9. sept.
Frestur til 15. sept.:
Kærur
streyma til
FMR
BRUNABÓTAMAT Alls höfðu borÍSt
1,535 kærur til Fasteignamats rík-
isins um síðastliðin mánaðamót,
að sögn Hauks
Ingibergssonar
forstjóra. Kærur
halda áfram að
streyma inn, en
frestur til að skila
þeim rennur út
þann 15. septem-
ber næstkomandi.
Fasteignir þeirra
sem skilað hafa
inn kærum halda
fyrra brunabóta-
mati þar til af-
staða hefur verið tekin til athuga-
semda. Að sögn Hauks er að svo
stöddu ekki hægt að segja fyrir
um hversu langan tíma taki að
meðhöndla þær kærur sem ber-
ast. ■
STUTT
HAUKUR
INGIBERCSSON
forstjórí Fast-
eignamats r(ks-
isins
Afundi miðstjórnar ASÍ í gær
var samþykkt ályktun þar
sem lýst var þungum áhyggjum
yfir stöðunni í efnahagsmálum.
Miðstjórnin áréttaði að nauðsyn-
legt væri að grípa til aðgerða hið
allra fyrsta og að lykilatriði í
þeim aðgerðum væru vaxtalækk-
anir í fáum, en stórum áföngum.
Þá áréttaði miðstjórn ASÍ á fundi
sínum stuðning við baráttu sjó-
manna gegn félagslegum undir-
boðum á vinnumarkaði.
atMW/dV