Fréttablaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
6. september 2001 FIIVIIVITUDAGUR
HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA?
Bergþór Pálsson
söngvari
Hún heitír Dear Me og er eftir Peter Ustinov.
Petta er sjálfsævisaga Ustinovs, bók sem léttir
lund á allan hátt. Ustinov er einstakur maður,
bæði fyndinn og fjölhæfur.
Hörður Torfa kominn á kreik:
Hausttónleikar í 25. sinn
tónleikar Haustið er komið og þá
er einnig komið að árlegum tón-
leikum Harðar Torfa. í ár heldur
Hörður tónleika sína 25. árið í
röð sem hlýtur að teljast ein-
stakt afrek. Hörður heldur ekki
bara tónleika í Reykjavík heldur
fer hann alltaf í hringferð um
landið með þá.
Hörður er einn af frumherj-
unum af íslensku trúbadúrunum
auk þess að vera sá alfyrsti sem
birtist þjóðinni og ræddi af
hreinskilni samkynhneigð sína.
Hörður fjallar um lífið og marg-
víslegar hliðar þess á tónleikum
sínum. Hann lyftir þó aldrei fin-
HAUSTTÓNLEIKAR
Hörður Torfason hefur yljað landsmönnum með söng
og leik um langt árabil og heldur nú hausttónleika
sína í 25. sinn.
gri til að boða eitthvað
heldur spyr spurninga og
lætur hlustendum sínum
eftir að komast að niður-
stöðu. „Þetta er byggt
upp sem skemmtun og ég
reyni að fá fólk til að
syngja með,“ segir Hörð-
ur. Hann segir að svo
virðist sem sama fólkið
komi ár eftir ár á tónleik-
ana, til dæmis starfs-
mannahópar sem gera
sér glaöan dag. Tónleik-
ar Harðar verða haldnir í
kvöld og annað kvöld í ís-
lensku Operunni ■
Söngsveitin Fílharmónía:
Kirkjutónlist
í öndvegi
kórsöncur Æfingar eru hafnar hjá
Söngsveitinni Fílharmóníu. Verk-
efni vetrarins eru aðventutónleikar
þar sem flutt verða kirkjuleg verk
af ýmsu tagi og Messa heilagrar
Sesselju eftir Joseph Haydn sem
verður flutt í mars. Fjórir einsöngv-
arar og hljómsveit taka þátt í þeim
flutningi.
Stjórnandi sveitarinnar er Bern-
harður Wilkinson og píanóleikari
Guðríður St. Sigurðardóttir. Radd-
þjálfun annast Elísabet Erlingsdótt-
ir. Æfingar sveitarinnar eru á
mánudags- og miðvikudagskvöld-
um í Melaskóla. Laus pláss eru í öll-
um röddum. ■
Ballettskóli
Eddu Scheving
INNRÍTUN í
SÍMA 553 8360
ALLIR
ALDURSHÓPAR
FRÁ4 ÁRA
FÉLAG ÍSLENSKRA
LISTDANSARA
Raflína
rafteiknistofa
Hólmaslóð 4
S: 562 3010
S: 694 7705
FIMMTUDAGURINN
6. SEPTEMBÉR
FYRIRLESTRAR________________________
12.00 Fyrsta rabb Rannsóknastofu í
kvennafræðum á haustmisseri
verður i dag í stofu 101 Lögbergi.
Dagný Kristjánsdóttir, prófessor
flytur fyrlrlesturinn Það var einu
sinni Iftil stelpa. I fyrirlestrinum
verður fjallað um uppruna og
sögu frægra ævintýra eins og
Mjallhvitar og Þyrnirósar. Áhersla
verður lögð á það hvernig
prinsessunum og kvenhetjum
gömlu ævintýranna er lýst og hver
lýsir þeim og nokkrar prinsessur
verða skoðaðar - frá Öskubusku
til Juliu Roberts í Pretty Woman.
12.15 Víðskipta- og hagfræðideild
býður til málstofu í hádeginu. Vil-
borg Einarsdóttir, M.Sc. í við-
skiptafræði heldur fyrírlestur sem
nefnst Samruni skipulagsheilda.
Að auka líkur á árangursríkum
samruna. Fyrirlesturinn verður
haldinn í stofu 201 í Odda og eru
allir velkornnir meðan húsrúm
leyfir.
16.10 Dr. Philip S.M. Chin, prófessor
við Tækniháskólann í Queens-
land í Ástralíu og heiðurskonsúll
íslands í Singapore heldur fyrir-
lestur á vegum verkfræðideildar
Háskóla íslands og Umhverfis-
stofnunar Háskóla íslands. Fyrir-
lesturinn nefnist Sustainable
development green cities and
green islands en í honum er
fjallað um samspil orkunotkunar
og umhverfis, sérstaklega innan
samgöngugeirans og við byggða-
skipulag og húsagerð. Fyrirlestur-
inn verður i sal 101 i Lögbergi.
Hann verður fluttur á ensku og
er öllum opinn.
17.15 Dr. Hubert Seelow, prófessor í
norrænum fræðum við háskólann
í Erlangen, flytur opinberan fyrir
lestur í boði heimspekideildar Há-
skóla íslands í stofu 201 í Árna-
. garði. Fyrirlesturinn nefnist
Habent sua fata libelli. Heitir Völs-
unga saga Völsunga saga? Fyrir-
lesturinn verður fluttur á íslensku
og er öllum opinn.
RÁÐSTEFNUR__________________________
15.00 Málþing um heimilið verður
haldið Ltengslum við sýninguna
Heimilið og Islandica í Laugar-
dalnum. Á málþinginu verður
fjallað um hvernig jafnvægi í
einkalífi og vinnu hefur áhrif á lífs-
ánægju fólks. Málþingið er á
Grand Hótel.
•KeTatnik fyrtralla
Komdu að mála keramik!
Byrjað að taka á móti bókunum:
1) Námskeið sem hefst 25. september.
2) Fyrir hópa sem vilja bóka „sitt kvöld“.
3) Myndmennt fyrir skapandi börn (námskeið
sem sló í gegn í sumar).
Öll miðvikudagskvöld er opið hús.
Athugið: í fyrra voru öll kvöld bókuð fyrir hópa
frá október og fram að
jólum, tryggið ykkar kvöld í tíma.
Keramik fyrir alla, Laugavegi 48 b, sími 552 2882.
Opið virka daga H00-1800 og laugardaga 1300-1700
www.keramik.is
Heimilið og Islandica 2001 í Laugardalnum:
Sýningarsvæði á við
fimm Kringlur
I LAUGARDALSHÖLL
Unnur Steinsson segist vona að veðurguðirnir verði hiiðhollir sýningunni. „Annars
verða gestir bara að klæða sig eftir veðri."
sýnincar Stórsýningin Heimilió og
Islandica hefst í dag í Laugardals-
höll. Um 120 aðilar kynna vörur
og þjónustu á sýningunni og kenn-
ir þar ýmissa grasa. í raun er um
tvær sýningar aö ræða, Heimilið
verður í Laugardalshöll og Island-
ica í anddyri hallarinnar og í tjal-
di við hana. Sýningarnar leggja
einnig undir sig Fjöiskyldu- og
húsdýragarðinn og Skautahöllina.
Unnur Steinsson, kynningarstjóri
sýningarinnar sagði í gær undir-
búninginn ganga ljómandi vel.
„Við fórum í að reisa 100 fer-
metra íbúð á sviðinu," sagði hún
til marks um að allt væri hægt.
„Allir eru tilbúnir að leggjast á
eitt með að gera sýninguna sem
glæstasta."
Meðal annarra liða í sýning-
unni eru verk eftir íslenskan
verðlaunahönnuð og gott úrval af
húsgögnum af öllum stærðum og
gerðum. Einnig geta fjölskyldur
kynnt sér ýmsa þjónustu við
heimilin svo sem tómstundir, fjár-
mál og tryggingar.
Á Islandica verða kynntar vör-
ur og þjónusta sem tengist ís-
lenska hestinum. Nýr íslenskur
i hnakkur fyrir fatlaða verður
l kynntur og söðlasmiður verður að
störfum svo eitthvað sé nefnt.
Fjölbreytt afþreying verður í
boði á sýningunni. Á sérstöku
tívolísvæði verður Kúlan sem er
stærsta tívolítæki sem flutt hef-
ur verið til landsins. Börn geta til
dæmis skoðað heim Harry Potter
og brugðið sér á hestbak. Þá
verða sérstakar hestasýningar í
Skautahöllinni á daginn þar sem
fólk getur séð íslenska hestinn
leika iistir sínar.
í Skautahöllinni verður sýnd-
ur Hestagaidur á kvöidin sem er
sjálfstæð sýning þar sem frem-
stu knapar og listamenn landsins
bjóða upp á mikia skemmtun. í
einu atriði sýningarinnar er til
dæmis kveikt í gólfinu þannig að
upp sprettur eldveggur sem
hestar sýningarinnar ríða með-
fram og i gegnum. Það er því
ijóst að búast má við tilkomumik-
illi sýningu í Skautahöllinni.
Hestagaldur verður frumsýndur
í kvöld og aðeins verða fjórar
sýningar.
í tengslum við sýninguna
Heimilið er svo blásið til mál-
þings um heimilið á Grand Hótel
frá klukkan 15 til 17 í dag. Þar
verður fjallað um hvernig jafn-
vægi í einkalífi og vinnu hefur
áhrif á lífsánægju fólks. Aðgang-
ur að málþinginu er ókeypis og
öllum opinn. Sýningin í Laugar-
dalshöll er opnuð kl. 16 í dag og er
opin til kl. 22. Á morgun og á
mánudag er einnig opið frá 10 til
22 en um helgina er opið frá 10 til
19. Sýningunni lýkur á mánudag.
steinunn@frettabladid.is
LEIKHÚS____________________________
20.00 Leíkritið Diskópakk eftír írska
leikskáldið Enda Walsh er sýnt í
hinu nýja ieikhúsi Vesturport við
Vesturgötu. Karl Ágúst Úlfsson
þýðir verkið, leikstjóri er Egill
Heiðar Anton Pálsson og leikarar
eru Nanna Kristín Magnúsdóttir
og Víkingur Kristjánsson.
TÓNLEIKAR________________________
21.00 Árlegir hausttónleikar Harðar
Torfa verða haldnir í Islensku óp-
erunni í kvöld.
JAZZHÁTÍP REYKJAVÍKUR
20.30 Djúpið nefnist nýr diskur með
Tríói Sigurðar Flosasonar. Trióið
leikur I kvöld á Kaffi Reykjavik.
Auk Sigurðar sem leikur á saxó-
fón er tríóið skipað þeim Eyþóri
Gunnarssyni píanóleikara og
Lennart Ginman bassaleikara.
Tónleikar fyrir þá sem hafa gam-
an af melódískum jazzi.
22.00 í Tjarnarbíóið verður gitardúett
þeirra Kevin Drumm og Hilmars
Jenssonar. Á tónleikunum munu
gítarleikararnir spinna saman.
Enginn áhugamaður um fram-
sækna tónlist ætti að missa af
þessum tónleikum.
SKEMIWtANIR_________________________
21.00 Þykkustu jungle, drum & bass og
experimental breakbeat tónarnir
hljóma i kvöld á hinu mánaðar-
legu BreakbeaLis kvöldi. fslenski
snúðurinn DJ Shroom spilar á
Breakbeatis kvöldi I fyrsta sinn
ásamt Breakbeatis kjamanum; DJ
Adda & DJ Eldari (Skýjum ofar) og
DJ Reyni (Electronica).
MYNPUST_____________________________
Hrefna Lárusdóttír sýnir nú vatnslita-
myndir i Stöðlakotí, Bókhlöðustíg 6.
Hrefna er Reykvíkingur en hefur verið
búsett erlendis i 29 ár. Sýning hennar
nefnist Heima og heiman. Sýningin er
opin daglega kl. 14 til 18 og stendur til
16. september.
EUkert er yfirskrift sýningar Bjarna Sig-
urbjörnsson sem opnuð var um helg-
ina í Hafnarborg. Sýningin stendur til
24. september og er opin alla daga
nema þríðjudaga frá 11 tíl 17.
Fráfomöld til
nútímans
Drengurinn í Mánatumi er um
margt sérstæð bók. í henni
er lýst lífinu í litlu þorpi í Lí-
banon upp úr miðri síðustu öld.
Sagan er sögð á sjálfsævisögu-
formi frá sjónarhóli drengs sem
elst upp á þeim tíma sem nútím-
inn heldur innreið sína í þorpið
hans. Útvarpið kemur, síminn og
bíllinn en drengirnir þorpinu
höfðu fram að því talið að lýs-
ingin á því fyrirbæri væri lyga-
saga. Á örfáum árum er ekkert
sem fyrr í þorpinu Magdaluna
eða Mánaturni þar sem ekkert
hafði breyst um aldir.
DRENGURINN i MÁNATURNI
Höfundur Anutar Accawi
Þýðandi Gyrðir Elfasson
173 blaðsfður
Mál og menning 2001
Frásögnin er hæg og seiðmögn-
uð og yfir henni er í raun það
tímaleysi sem ríkti í þorpinu
litla áður en öll tækin komu til
skjalanna. Höfundurinn lýsir lífi
sínu eins og pýramída þar sem
mikilsverðir atburðir verða að
steini í mannvirkinu og tekst
einstaklega vel að skila hinni
barnslegu sýn. Þýðing sögunnar
er framúrskarandi.
Steinunn Stefánsdóttir