Fréttablaðið - 06.09.2001, Síða 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
. 6. september.2001 FIMMTUDACUR
ísabella Rossellini:
Vinna lykill
feguroar
san FRANCISCO. flp. Leikkonan ísa-
bella Rossellini þykir með glæsi-
legri konum heims. ísabella er
orðin 49 ára gömul
en heldur sér eink-
ar vel. Hún upp-
lýsir i nýju viðtali
við þýska tímarit-
ið Bunte, lykilinn
að leyndarmáli
glæsilegs útlits.
„Ég vinn svo mik-
ið að ég hef ekki
tíma til að verða
gömul,“ sagði hún.
Isabella hefur
sem fyrirsæta og leik-
ALLTAF f VINN-
UNNI
ísabella er dóttir
Ingrid Bergman
og Roberto
Rossellini.
starfað
kona. ■
Jimmy Carter í Kina:
Þorpslýðræðinu verði beitt víðar
pekinc. ap Jimmy Carter, fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna, fór í
sögulega heimsókn til Kína fyrir
22 árum þar sem hann undirritaði
vináttusamning milli Kína og
Bandaríkjanna. Nú er hann kom-
inn þangað aftur, í áttunda sinn
raunar, og að þessu sinni er erind-
ið að hvetja kínversk stjórnvöld
til þess að færa þorpslýðræðið,
sem þar hefur tíðkast með góðum
árangri í hátt í tvo áratugi, upp á
næsta stjórnstig fyrir ofan.
Kínversk stjórnvöld segja að
flest öll þorp í Kína, sem alls eru
nánast milljón talsins, hafi haldið
að minnsta kosti þrennar beinar
og leynilegar kosningar frá því á
níunda áratug nýliðinnar aldar.
Hinir kjörnu fulltrúar bera
ábyrgð á fjármálum þorpsins og
sjá um að framkvæma stefnu
æðri valdastofnana.
í fámennum þorpum þekkja
kjósendur iðulega frambjóðend-
urna, en þegar komið er að stærri
bæjarfélögum með kannski tugi
þúsunda íbúa þyrftu frambjóð-
endur að skipa sér í pólitískar
fylkingar - en þar stendur hnífur-
inn í kúnni því slíkt leyfa kínversk
stjórnvöld ekki.
Frá því Carter tapaði kosningu
til annars kjörtímabils í embætti
Bandaríkjaforseta hefur hann
ekki setið auðum höndum, heldur
ferðast um heiminn og reynt að sá
fræjum lýðræðis sem víðast.
Carter hefur fylgst með kosn-
ingum í þorpum í Kína og segir
þær hafa gengið mjög vel í flest-
um tilvikum, þótt stundum eigi
gamlir flokkshundar erfitt með að
sleppa hendinni af þorpsmálun-
um. ■
HEIMSHORNAFLAKKARI
Jimmy Carter á fundi með
blaðamönnum í Peking: „Ég er
ekki talsmaður ríkisstjórnar
Bush," sagði hann til þess að
taka af öll tvímæli.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ungir Sjálfstæðismenn sitja á
fundum öll kvöld um þessar
mundir en verið er að undirbúa
þing Sambands ungra Sjálfstæð-
ismanna. Það verður haldið helg-
ina 14.-16 september á Seltjarn-
arnesi. Þema þjngsins í ár eru
lægri skattar. Á opnunarkvöldi
þingsins munu ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins sitja fyrir svör-
um ungliðanna. Ráðherrarnir
munu eflaust fá miklar skammir
fyrir eyðslugleði en ungliðar
Sjálfstæðisflokksins hafa gagn-
rýnt óspart þenslu í útgjöldum
ríkisins. Davíð Oddsson, forsæt-
isráðherra, var t.d. kosinn
eyðslukló ársins á Frelsisvefn-
um, vef Heimdellinga, í árslok
2000.
Annar ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, Geir Haarde, fjár-
málaráðherra, er staddur á Ítalíu
núna. Ástæðan er stofnun ítalsks
íslensks verslunarráðs í Mílanó.
Sérstakur viðskiptadagur íslands
og Ítalíu verður haldinn á undan
hinum formlega stofnfundi ráðs-
ins. Að því er segir í fréttatilkynn-
ingu Verslunar-
ráðs íslands munu
fulltrúar atvinnu-
lífs og stjórnvalda
í báðum löndum
flytja erindi um
efnahagslíf og við-
skipti á milli land-
anna. Daniele
Molgora, aðstoðarráðherra efna-
hags- og fjármála, mun fjalla um
ítölsk efnahagsmál en Geir um ís-
lensk efnahagsmál. 30 íslendingar
úr viðskiptalífinu taka þátt í við-
burðinum en alls hafa 90 manns
tilkynnt þátttöku.
Séra Halldór Reynisson, prest-
ur í Neskirkju, mun hverfa til
starfa á biskupsstofu um næstu
mánaðamót. Halldór hefur verið
ráðinn þar sem verkefnisstjóri í
fræðslumálum auk þess sem
hann á að sinna upplýsingamálum
biskupsembættisins sérstaklega.
Þar er bætt úr brýnni þörf og má
minna á að Halldór starfaði sem
forsetaritari á árum Vigdísar
Finnbogadóttur og hefur þekk-
ingu á sviði fjöl-
miðlunar. Hann
hefur að undan-
förnu haldið úti
pistlum um trúar-
leg og andleg við-
horf á strik.is. Þá
er Halldór nýlega
útskrifaður úr
Endurmenntunarstofnun HÍ þar
sem hann kynnti sér markaðs- og
útflutningsfræði. Séra Örn Bárð-
ur Jónssonsem gegndi preststörf-
um meðan Halldór var í náms-
leyfi og starfar í
Nessöfnuði, tekur
við störfum hans í
Neskirkju. Ekki
er að efa að trú-
ræknum KR-ing-
um í Vesturbæn-
um verður eftir-
sjá í Halldóri en
fótboltamessur hans nutu vin-
sælda í KR-bænum.
Vertu með í vetur
Áskriftarkort
Tryggðu þér örugg sæti í allan vetur og vertu með!
Kortið gildir á sjö sýningar í Borgarleikhúsinu:
Fjórar sýningar á Stóra sviði og þrjár aðrar að eigin vali.
Korthafar fá að auki 20% afslátt á allar sýningar Leikfélags Reykjavíkur.
Nýjung: Kortagestir njóta sérkjara hjá Listasafni Reykjavíkur, Borgarbókasafni
og Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Verð áskriftarkorta: Almennar sýningar 10.500 kr. Frumsýningar 18.000 kr.
Afsláttarkort: Tíu miðar á 15.900 kr. Frjáls notkun, panta þarf sæti fyrirfram.
Gjafakort: Gjafakort Leikfélagsins við öll tækifæri, sérstök og skemmtileg gjöf.
BORGARLEIKHUSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3 • 103 Reykjavik
Miðasala 568 8000 • www.borgarleikhus.is
Fjölbreytt leikhús
á fjórum sviðum
- undir sama þaki!
• Kristnihald undir Jökli
• Boðorðin 9
• Kryddlegin hjörtu
• íslenski dansflokkurinn:
Wunderbar &
Through Nana's eyes
þrjár að eigin vali:
• Blíðfinnur
• Fjandmaður fólksins
• Beðið eftir Godot
• Fyrst þarf nú að fæðast
• And Björk of course ...
• Með vífið í lúkunum
• Öndvegiskonur
• Kontrabassinn
• Píkusögur
• Dauðadans
• Gesturinn
Sýningar f áskrift:
Miðasala Borgarleikhússins
er opin daglega frá
kl.13:00 -18:00 ogfram
að sýningu sýningardaga.
Símapantanir alla virka
daga frá kl.10:00.
DAGNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR
Fyrirlestur hennar verður haldin í Lögbergi, stofu 101, kl. 12 í dag. Upplýsingar um
fyrirlestra Rannsóknarstofu í kvennafræðum má sjá á slóðinni. www.hi.is/stofn/fem.
Hver vill ekki
lifa í ævintýri?
Gott er gott og vont er vont í ævintýrum.
Þess vegna eru þau sívinsæl.
ÆVlNTYRl „Minni og söguþræðir
ævintýra liggja til grundvallar
mjög mörgu í fjöldamenningu nú-
tímans, sögum og kvikmyndum,"
segir Dagný Kristjánsdóttir, pró-
fessor við Háskóla íslands. Dag-
ný ætlar að ræða um prinsessur í
gömlum og nýjum ævintýrum á
rabbfundi Rannsóknarstofu í
kvennafræðum í dag. „Ég ætla að
tala um Öskubusku, og fylgi henni
alveg frá kínverskri öskubusku-
sögu sem skráð var á sjöundu öld
og fram til kvikmyndarinnar
Pretty Woman.“
Dagný hefur skoðað ævintýri
út frá bókmenntafræði, femín-
isma og menningarfræði. Hún
segir vinsældir ævintýra vera
mjög skiljanlegar. „Það eru svo
einfaldar og hreinar línur í ævin-
týrum. Gott er gott og vont er
vont og allt fer vel að lokum,“ seg-
ir Dagný. „Þau höfða sterkt til
okkar. Hver vill ekki lifa í ævin-
týri?“
Dagný fjallar einnig um munn-
lega geymd ævintýra áður en þau
voru skráð niður. „Það er mjög at-
hyglisvert að sjá hvað fræðimenn
segja að hafi farið inn í ævintýrin
og hverju hafi verið sleppt, þegar
þau voru skráð. Það skiptir miklu
máli að vita að ævintýri sem við
lesum í dag eru ekki endilega
upprunaleg og hugmyndir þeirra
ekki endilega komnar frá gömlu
sögumönnunum."
Sumar útgáfur ævintýra ná
hins vegar yfirburðastöðu og eru
útgáfur Walt Disneys dæmi um
það. „Margir þekkja t.d; bara
hans útgáfu af Mjallhvíti. í henni
er stjúpan hryllileg og tvöfölduð í
þokkabót því hún er líka norn. í
öðrum sögum er oft góð móður-
mynd sem skapar mótvægi við
vondu móðurina. Útgáfur Dis-
neys á ævintýrum eru reyndar
mjög umdeildar."
Dagný segir fáum detta í hug
að fordæma ævintýri, þótt póli-
tísk rétthugsun sé oft víðs fjarri i
þeim. Nútímaútgáfur ævintýra
sem búið sé að dauðhreinsa geti
þvert á móti verið mjög máttlaus-
ar og leiðinlegar. „Femínistar
hafa gagnrýnt kvenímynd ævin-
týra. En margir femínistar vilja
miklu frekar gömlu útgáfu ævin-
týranna, með allri grimmdinni,
raunsæinu og splatternum sem í
þeim er heldur en seinni tíma út-
gáfur þar sem móralismi hefur
tekið yfirhöndina."
sigridur@frettabiadid.is
AP/NG HAN GUAN