Fréttablaðið - 06.09.2001, Side 24
FRETTABLAÐIÐ
SfMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á lyíSÍf-ÍS Fyrstur með fréttirnar
' A LAa tJtNGHOUT
OlficelSuperstore
■ ■ Cycm. ac aöc'trt cisn Smé $33-3*44 OPH) VIRKA DAGA KL 8-18 • LAUGARDAGA KL 10-16
533-3444 Skeifunni 17, 108 Reykjavík 1 Sími 5504100 Furuvöllum 5, 600 Akureyri 1 Simi 461 5000
j Skóladagar! j
Bakþankar
« »»»stefAnsdóttir
Uppspretta
góðra bóka
Bækur sem ritaðar eru af niðjum
innflytjenda njóta um þessar
mundir mikilla vinsælda. Þessar
bækur lýsa flestar þeirri togstreitu
sem felst í því að alast upp og lifa í
einu landi en vera fæddur og mótað-
ur af allt annarri menningu eða eiga
foreldra sem koma úr allt ööru um-
hverfi. Þetta er mjög forvitnileg
tískusveifla í bókaheiminum. Hún er
sprottin úr jarðvegi ákveðinna
átaka, eins og reyndar margar góðar
bækur, og gefur lesendum innsýn í
veruleika hóps fólks sem er orðinn
alveg gríðarlega fjölmennur um all-
an heim.
—•—
ÞESSAR BÆKUR eru afsprengi
hinna miklu þjóðflutninga um heim-
inn þveran og endilangan sem ein-
kennt hafa undanfarna áratugi.
Segja má að meginstraumurinn hafi
legið frá Asíu til Bandaríkjanna og
Evrópu en þjóðflutningarnir eru þó
mun víðfeðmari, t.d. bæði innan Evr-
ópu og Ameríku. Ég er sannfærð um
að þessar bækur eru ómetanlegt
framlag til menningar þess fólks
sem þær fjalla um en þær eru ekki
síður merkilegar fyrir hina sem að
mestu hafa alist upp við eina menn-
ingu. Bækur Amy Tan hafa náð vel
til lesenda og aukið áhuga þeirra,
ekki bara á togstreitu kínverskrar
og bandarískrar menningar í samfé-
lagi kínverskra innflytjenda í
Bandaríkjunum, heldur einnig á kin-
verskum veruleika fyrir ótrúlega
iaum árum. Á dögunum kom svo út
á íslensku smásagnasafn Juhma
Lahiri, Túlkur tregans. Lahiri er af
indversku bergi brotin og í smásög-
um hennar kynnist lesandinn bæði
indverskri menningu og samspili
hennar við þá bandarísku.
—♦—
ENN SEM KOMIÐ ER eru flest-
ar þessara bóka sem fjalla um fólk
sem að einhverju leyti gistir tvo
heima ættaðar frá Bandaríkjunum,
að minnsta kosti þær sem við sjáum
í íslenskum þýðingum. Þess er þó án
efa ekki mjög langt að bíða að þess-
ar bókmenntir spretti upp hér á
landi. Mikið hlakka ég til að lesa um
átök tælensks og íslensks veruleika
frá sjónarhóli þeirrar kynslóðar sem
nú er að vaxa úr grasi hér á íslandi,
eða pólska menningu andspænis
þeirri íslensku sem til dæmis má
finna í íslensku sjávarþorpi. Svona
bækur eru til marks um fjölmenn-
ingarlegt samfélag. ■
U LÍNU
Liggur simasamband heimilisins alltaf niðri þegar þu ert
á Netinu? Hjá Símanum Internet færðu hraðari
nettengingu þar sem þú getur vafrað á Netinu án þess I
að teppa símalínu heimilisins.
I
Kiktu í verslun Símans Internet í Kringlunni eða hringdu í
og kynntu þér hvaða tenging hentar þér. i
51M1NN lNTtRNET