Fréttablaðið - 18.09.2001, Side 10

Fréttablaðið - 18.09.2001, Side 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 18. september 2001 PRIÐJUDAGUR Stjórnarviðræður í Noregi: Framfaraflokkurinn ekki með |vidskiptT| Flugleiðir lækkuðu um 10,5% á Verðbréfaþingi íslands í gær. Reyndar voru bara ein viðskipti á bak við þessa lækkun og ekki margir sem seldu eða keyptu bréf í félaginu. Hlutabréf helstu flugfélaga í Bandaríkjunum lækkuðu í gær þegar viðskipti hófust aftur á Wall Street í gær. —♦— iðskipti með íslensku krónuna á gjaldeyrismarkaði í gær námu 3.1 milljarði króna. I þess- um viðskiptum veiktist hún um 0,7% gagnvart erlendum gjald- miðlum. Vísitalan endaði í 140,3 stigum og hefur krónan veikst um 1,7% frá síðustu mánaðamót- um. Frá áramótum hefur krónan veikst um 15,5% kosnincar i NORECI í Noregi er talið líklegt að síðasta verk ríkis- stjórnar Jens Stoltenbergs verði að leggja fram fjárlagafrumvarp 11. október. Hugsanlegt er talið að ný ríkisstjórn taki við völdum strax daginn eftir að fjárlaga- frumvarpið hefur verið lagt fram en það er að sjálfsögðu háð því að tekist hafi að mynda nýjan meiri- hluta í norska þinginu. Ríkisstjórn Stoltenbergs gæti þó setið allt þar til þingið felldi hana sem gerðist þá eftir að Noregskonungur hefur flutt stefnuræðu forsætisráð- herra 18. október. Hægriflokkurinn, Kristilegi þjóðarflokkurinn og Vinstriflokk- urinn ræðast nú í óformlega við um stjórnarmyndun. Búist er við að formlegar viðræður hefjist á næstu dögum ef samkomulag næst milli flokkanna um stjórnar- myndun. Flokkarnir þrír hafa ekki meirihluta í þinginu þannig að ljóst er að ríkisstjórn þeirra þyrfti að treysta á stuðning ann- arra flokka. Framfaraflokknum hefur þó ekki verið boðið að taka þátt í viðræðum flokkanna. ■ AFTUR í STJÓRN Kristílegi demókratinn og tyrrver- andi forsætisráðherra, Kjell IWagne Bondevik,er liklega aftur á leið í ríkisstjórn. Iðnrannsóknastofnanir: Verulega dregið úr ijárveitingum ríkisstjórn Dregið hefur verulega úr fjárveitingum til rannsókna- stofnanna iðnaðarráðuneytisins síðustu ár, segir Valgerður Sverr- isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra. Hún lagði fyrir síðasta rík- isstjórnarfund skýrslu þar sem farið er yfir hlutverk þessara stofnana í eflingu rannsókna, ný- sköpunar og atvinnuþróunar. „Við teljum stofnanirnar gegna mikil- vægu hlutverki við uppbyggingu atvinnulífs og við að framfylgja stefnu stjórnvalda í þeim efnum,“ sagði hún. „Á þessu ári eru fjár- veitingar á föstu verðlagi einung- is helmingur af því sem var árið 1987,“ bætti Valgerður við. ■ Grunaður flugræningi: Lærði flug- virkjun í þýsk- um háskóla hamborc.þÝskalandi.ap Ráðamenn í háskóla í Hamborg hafa staðfest að einn af mönnunum sem grunað- ir eru um flugránin í tengslum við hryðjuverkaárásina í Bandaríkj- unum hafi lært flugvirkjun í skól- anum. Maðurinn, Ziad Jarrah, var einn þeirra sem voru um borð í flugvél United Airlines flugfélags- ins sem brotlenti í Pennsylvaniu. Einnig hefur komið í ljós að annar maður, grunaður um að hafa rænt flugvélinni sem flaug á syðri turn World Trade Center byggingarinn- ar, hafi tekið þátt í þýsku tungu- málanámskeiði í háskólanum í Bonn á árunum 1997 til 1998 undir nafninu Marwan Lekrab. Sagðist hann vera frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. ■ Sinntu ekki ákalli leigu- taka um viðhald í átta ár íbúð Félagsþjónustunnar hefur verið dæmd óíbúðarhæf og heilsuspill- andi. Heilbrigðiseftirlitið og barnaverndaryfirvöld höfðu sent ábend- ingar um endurbætur til Félagsþjónustunnar. húsnæðismál „Mér finnst þessi ummæli mjög niðrandi," sagði leigutaki íbúðar við Bergþórugötu sem Umhverfis- og heilbrigðis- nefnd Reykjavíkur hefur sett leigubann á þar sem hún er talin óíbúðarhæf og heilsuspillandi. Leigutakinn, sem ekki vildi láta nafn síns getið, vísar til ummæla Árnýjar Sigurðardóttur, heil- brigðisfulltrúa, sem birtist á for- síðu Fréttablaðsins 14. september sl. þess efnis að ekki hafi verið hægt að sinna viðhaldi á íbúðinni vegna íbúanna. Leigutakinn flutti í íbúðina árið 1989 og segir hana þá hafa verið í ágætu standi. Á því tímabili sem Félagsbústaðir tóku við eigninni árið 1993 og fram til dagsins í dag hafi í engu verið sinnt ákalli um viðhald. Segist leigutaki hafa tvis- var sinnum skrifað undir húsa- leigusamninga á þessu tímabili og í bæði skiptin bent á nauðsyn á viðhaldi. Hafi barnaverndaryfir- völd lagt fram skriflega ábend- ingu árið 1996 þess efnis að þörf fyrir stærri íbúð væri brýn. Auk þess hafi Heilbrigðiseftirlitið komið í tvígangi á þessu tíma og í seinna skiptið lýst hana óíbúða- hæfa. Segir leigutaki hótanir um útburð hafa knúið á um síðara mat Heilbrigðiseftirlitsins. Leigutak- inn segist hafa stöðvað greiðslur til Félagsþjónustunnar árið 1998 vegna þessarar forsögu auk þess sem þörfin fyrir stærri íbúð væri brýn. Leigutaki segist vera mjög ósáttur við vinnubrögð Félags- þjónustunnar og sagði útburðar- mál sitt verða tekið fyrir í Hér- aðsdómi Reykjavíkur 1. október. í bréfi Heilbrigðiseftirlitsins til Umhverfis- og heilbrigðis- nefndar Reykjavíkur segir að íbúðin hafi reynst heilsuspillandi vegna viðhaldsskorts og íbúarnir þrír búi við aðstæður sem séu óviðunandi. Vatn leki frá sturtu- BERGÞÓRUGATA Leigutakinn segir sér liða illa yfir því að hafa ekki borgað leigu í tæp þrjú ár en að hún hafi þurft að grípa til þessa örþrifarás þar sem hún hafi reynt allar aðrar leiðir. Segist hún hafa verið skuldlaus fram að þeim tíma að hún ákvað að stöðva greiðslurnar. klefa og salerni og 15 cm vatns- hæð milli glerja í gluggum. Gólf- efni séu ónýt og öll íbúðin þarfnist málningar og almennra viðgerða. kolbrun@frettabladid.is Sérhæfð fasteigna- sala fyrir atvinnu- og skrifstofu- húsnæði STOREIGN FASTEIGNASALA Lágmúli 7, Reykjavík • Simi 55 12345 Arnar Sölvason, framkvæmdastjóri Jón G. Sandholt, sölumaður Gunnar Jóh. Birgisson hrl. löggiltur fasteignasali Sigurbjörn Magnússon hrl. löggiltur fasteignasali Til leigu atvinnuhúsnæði við Eldshöfða 9, Reykjavík Eignin skiptist eftirfarandi: Kjallari 635 m2 lofthæð 2.8 m, 2 innkeyrsluhurðir gegnum akstur. Jarðhæð 656,7 m2 auk 83 m2 millilofts, góð lofthæð, tvær innkeyrsluhurðir. 2. hæð 184,0m2 skrif- stofa, kaffistofa og starfsmannaaðstaða. í húsnæðinu er fullkomið loftræstikerfi og góð lýsing. Húsnæðið hentar mjög vel undir hvers konar iðnaðar- og framleiðslufyrirtæki. _ Til greina kemur að bjóða leigutaka fyrstu tvo mánuði leigufría.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.