Fréttablaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
25. september 2001 MIÐVIKUDAGUR
Lækjarskóli í Hafnarfirði:
Samið við
Istak og Nýsi
sveitarstiórnir Bæjarráð Hafnar-
fjarðar hefur ákveðið að ganga til
samninga við Nýsi hf. og Istak hf.
um byggingu og rekstur nýs Lækj-
arskóla á Sólvangssvæðinu sem
einkaframkvæmd. Fyrirtækin áttu
lægsta tilboðið í útboði.
Minnihluti Samfylkingarinnar
greiddi atkvæði gegn málinu í bæj-
arráðinu þar sem hann telur fram-
kvæmdirnar „óheyrilega dýrar og
óhagstæðar.“. Meirihluti Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks segir
lægsta tilboðið hins vegar hafa ver-
ið tæpu 1% yfir kostnaðaráætlun
sem hljóti að teljast mjög ásættan-
legt. ■
FERÐIR
Tafir og breytingar hafa orðið
á ferðaáætlun íslenskra
ferðamanna í nágrannalöndum
Afganistans vegna ástandsins í
þeim heimshluta. Fólkið er í
ferð á vegum Ferðahornsins í
Nanoq og amar ekki að því þótt
ferðaáætlanir hafi raskast
nokkuð. Aðstandendum eru
veittar upplýsingar í síma 575-
5200 eða í netfangi ferda-
hornid@ute.is. ■
Dulkóðun tölvupósts:
Lögreglan fái varalykla
new york. flp Nú þegar Banda-
ríkjamenn og nánast heims-
byggðin öll er með hugann við
hættuna á hryðjuverkum hafa
umræður hafist um það hvort
rétt sé að skylda höfunda
dulkóðunarforrita til þess að af-
henda lögreglunni afkóðunar-
lykla þannig að hún geti lesið
dulritaðan tölvupóst þegar brýnt
þykir. Ekki þarf að orðlengja
það, að hugmyndir í þessa veru
eru umdeildar í ljósi þess að
kröfur um persónuleynd hafa
orðið æ ákveðnari á síðustu
misserum.
Paul Zimmerman, höfundur
dulkóðunarforritsins Pretty
Good Privacy, er í hópi þeirra
sem barist hafa fyrir persónu-
leynd. Hann taldi sig hafa unnið
mikinn sigur í þeirri baráttu fyr-
ir tveimur árum þegar banda-
rísk stjórnvöld samþykktu út-
flutning öflugra dulkóðunarfor-
rita án þess að krefjast þess að
varalyklar verði afhentir stjórn-
völdum.
Árásirnar þann 11. september
breyttu mjög afstöðu margra í
þessu máli, enda er fullyrt að
hryðjuverkamennirnir hafi not-
að dulkóðaðan tölvupóst til þess
að skipuleggja óhæfuverkin. ■
BARÁTTUMAÐUR FYRIR PERSÓNULEYND
Paul Zimmerman er höfundurinn að dulkóðunarforritinu „Pretty Good Privacy", sem er
ein allra vinsælasta aðferðin við að dulrita tölvupóst nú á dögum.
Arnar Sigurmundsson:
Fylgjandi því að fiskvinnslan fái kvóta
ENDURSKOÐUNARNEFNDIN „Við höf-
um verið fylgjandi því að hægt
yrði að flytja kvóta á fisk-
vinnslustöðvar“, segir Arnar
Sigurmundsson, formaður Sam-
taka fiskvinnslustöðva. „Tví-
höfðanefndin lagði til á sínum
tíma að hægt yrði að flytja kvóta
til fiskvinnslustöðva en það náði
ekki fram að ganga þá. Við vor-
um fylgjandi þessari færslu þá
og höfum verið það síðan.“ Arnar
sagði að tillögur endurskoðunar-
nefndar hefðu ekki verið ræddar
í stjórn samtakanna og því of
snemmt að lýsa afstöðu til þeirra.
„Það skiptir öllu mál að betri
sátt skapist um fiskveiðistjórn-
ina en það verður að gæta þess
að þetta hafi ekki íþyngjandi
áhrif á greinina." Aðspurður
hvort hann teldi nokkrar líkur á
að sátt næðist við sjómenn um
tillögurnar sagði hann að það
væri tími til kominn að sjó-
mannaforystan slíðraði sverðin
og það yrðu útgerðarmenn
reyndar líka að gera. „Ef við
náum aukinni sátt um fiskveiði-
kerfið á grundvelli þessara til-
lagna er það öllum fyrir bestu,“
sagði Arnar. ■
RAÐAUGLÝSINGAR
FRETTABLAÐIÐ
ftfum m tetir m þé M skipél.
Sérstakleqa er óskað eftir einstakiinqum sen
Vinnutími er frá klukkaii 8 eða II morgnana til kl. 13
réttan adila.
igási 17 21
mn
laá netinu wwvv.10-1;
tMt.. f 0
10-11 verslanirnareru á eftirfarandi stöðum á sfór-Reykjavíkursvæðinu:
Austurströnd. Seltjarnarnesi ♦ Austiirstræti, Reykjavík (Miðbær) • Amarbakki, Reykjavík (Breiðholt) • Laugalaek. Reykjavik • Glæsibæ, Reykjavík
Lágmúla. Reykjavfk • Sporhamrar, Reykjavik (Grafarvogur) • Langirimi, Rey'kjavík (Grafarvogur) Barónstíg, Reykjavík • Efstalandi, Reykjavík (Grímsbær)
Seljavegi, Reykjavfk (við Loftkastalann) • Engihjalla. Kópavogi • Hjallabrekku. Kópa’/ogi • Lyngási. Garðabæ • Firði, Hafnarfirði (Miðbær)
Melabraut, Hafnarfirði (Holtið) • Slaðarbergi, Hafnarfirði
Vantar þig aukavinnu?
Viö erum ungt og kraftmikiö fyrirtæki
sem vantar fólk til úthringinga.
Viö bjóöum upp á góö laun, notalegan
vinnustaö og tækifæri til aö vinna meö
hressu og skemmtilegu folki. Vinnutími F
frá kl. 18 - 22.
Upplýsingar í síma:
562 6500 eöa 690 1441.
/ •••
simver^
Okkur vantar blaðbera
í Skerjafjörð, Skjóiin,
Miðbæinn og Vesturgötu
í Reykjavík.
I
Einnig Arnarnes og
Flatirnar í Garðabæ
Umsóknir sendist á valdimar@postflutningar.is
eða til Póstflutninga, Suðurhrauni 3,
210 Garðabæ, merkt „blaðberi“
—
SUÐURHRAUNI 3 • 210 GARÐABÆ
SÍMI: 595 6500 • FAX: 595 6503
e-mail: postflutningar@postflutningar.is
Símasala
Dagvinna/Kvöldvinna
Vegna aukinna verkefna getum við bætt
við okkur fólki til lengri eða skemmri
tíma. Starfið felst í sölu til fyrirtækja og
stofnanna í gegnum síma á daginn,
og úthringinga til einstakiinga á kvöldin.
Góð starfsaðstaða og góð laun í boði,
fyrir rétta fólkið.
Vinnutími 9-17 eða 18-22 virka daga.
Uppl. í síma 588 8600