Fréttablaðið - 26.09.2001, Síða 14

Fréttablaðið - 26.09.2001, Síða 14
FRÉTTABLAÐIÐ KÖRFUBOLTI Á Michael Jordan erindi í NBA á ný? Já, ef hann tekur sjálfur ákvörðun um að snúa til baka er það örugglega yf- irlýsing um að hann sé klár í slaginn. Hann hefur það mikinn metnað að hann myndi aldrei nokkurn tímann koma inn í deiidina nema að hann væri tilbúinn. Hann er samt nátturlega að fara í slakara lið en hann hefur verið í, þannig að hann má búast við erfiðu tímabili. Þetta verður engin allsherjar hamingja. ■ Friðrik Ingi Rúnarsson er landsliðsþjálfari ís- lands í körfuknattleik. Meistaradeild Evrópu: Coruna sigraði Man. Utd. knattspyrna Man. Utd. tapaði 2-1 fyrir Deportivo la Coruna í Meist- aradeild Evrópu í gær. United komst í 1-0 á 40. mínútu með marki frá Paul Scholes og jafnaði Coruna ekki metin fyrr en á 86. mínútu með marki frá Pandiani. Naybet skoraði síðan sigurmarkið á 90. mínútu. ■ ÚBSLIT Leikur E-riðll Úrslit Celtic - Porto 1-0 Rosenborg - Juventus 1-1 F-ridll Leverkusen - Barcelona 2-1 Fenerbahce - Lyon 0-1 C-riðll Coruna - Man. Utd. 2-1 Lille - Olympiakos 3-1 H-m Sp. Moskva - B. Múnchen 1-3 Sparta Prag - Feyenoord 4-0 Nissandeildin: KA tapaði fyrir ÍB V HANDKNATTLEIKUR íslandsmótið í handknattleik hófst í gærkvöld með fjórum leikjum. íslands- meistarar KA hófu titilvörn sína í Vestmannaeyjum, þar sem þeir mættu ÍBV. Vestmannaeyingar sigruðu leikinn 30-29. í kvöld fara síðustu þrír leikirnir í 1. umferðinni fram en þeir hefjast kl. 20. ■ IS.900,, Model 3620 8 mm. 24000/min. 860 W 14 26. september 2001 MIÐVIKUPAGUR NBA: Jordan snýr aftur Evröpukeppni félagsliða: Fylkir úr leik knattspyrna Fylkir tapaði síðari leik sínum gegn Roda JC 3-1 á Laugardalsvellinum í gær. Fylkir er þar með úr leik í keppninni því þeir töpðuðu fyrri leiknum 3-0 og því samanlagt 6-1. Fyrri hálfleikur leiksins í gær var frekar tíðindalítill og var stað- an í hálfleik 0-0. Síðari hálfleikur- inn var mun fjörugri og skoruðu Fylkismenn fyrsta mark leiksins á 57. mínútu. Þá kom stungusend- ing inn fyrir vörn Roda og Sævar Þór Gíslason lenti í tæklingu við markvörð Roda, en knötturinn barst til Steingríms Jóhannesson- ar, sem skoraði í autt markið. Aðeins mínútu síðar jafríaði Dave Zafarin metin fyrir Roda og BÚIÐ Steingrímur Jóhannesson skoraði mark Fylkis í 3-1 tapi liðsins gegn Roda. Evrópu- ævintýri Árbæinga er þar með lokið. á 77. mínútu kom varamaðurinn, Svíinn Fredrik Berglund, hol- lenska liðinu yfir. Grikkinn Ioann- is Anastasiou bætti við þriðja markinu rétt undir lok leiksins. ■ körfuknattleikur Washington Wiz- ards hefur fengið „smá“ liðsstyrk. Michael Jordan ákvað í gær að taka körfuboltaskóna af hillunni og mun leika með liðinu næstu tvö ár. „Ég er að snúa aftur sem mað- ur sem elskar leikinn," sagði Jor- dan í fréttatilkynningu sem hann sendi frá sér síðdegis í gær. „Ég er mjög spenntur fyrir Was- hington Wizards og er viss um að við höfum allt til að bera til að komast í úrslitakeppnina." Jordan hefur ákveðið gefa þeim hjálparsveitum, sem hafa aðstoðað fórnarlömb hryðjuverk- anna sem voru framin í Banda- Jordan hefur gert tveggja ára samning við Washington Wizards. ríkjunum fyrir tveimur vikum, þau laun sem hann fær fyrir að spila á þessari leiktíð, en þau eru talin nema um 100 milljónum króna. ■ Nýtt gullaldartímabil uppi á Skipaskaga? Olafur Þórðarson mun áfram þjálfa IA. Hann segir að margir leikmenn liðsins eigi erindi í at- vinnumennsku en býst ekki við breytingum á hópnum fyrir næsta tímabil. Hann þakkar ár- angurinn í sumar breyttu hugarfari leikmanna og bættu líkamlegu ástandi. ÞJÁLFARINN OG LEIKMAÐURINN Ólafur Þórðarson sagðj að Grétar Rafn Steinsson hefði leikið síðustu leikina með brákað bein og sú harka endurspeglaði vel andann í hópnum og vilja leikmannanna til að standa sig. knattspyrna Ólafur Þórðarson, þjálfari Isiandsmeistara ÍA í knattspyrnu, sagði í samtali við Fréttablaðið að það væri alveg ör- uggt að hann myndi þjálfa liðið áfram á næsta ári - ekkert annað lið hefði haft samband við sig. Hann sagðist ennfremur ekki bú- ast við neinum breytingum á leik- mannahópinum og því ætti liðið að eiga góða möguleika á að verja tit- ilinn næsta sumar. Aðspurður sagði hann að það ætti eftir að koma í ljós hvort þessi titill væri upphafið að nýju gullaldartímabili uppi á Skaga. „Ef við höldum þessum hópi saman þá á hann bara eftir að efl- ast,“ sagði Ólafur. „Þessi hópur er það ungur í dag að hann á bara eft- ir að vaxa.“ Að sögn Ólafs var sumarið mjög skemmtilegt og að sérstak- lega ljúft hefði verið að hampa ís- landsmeistaratitlinum á sunnu- daginn þvert ofan í væntingar margra m.a. fólks uppi á Akranesi. „Það má kannski segja að eftir leikina í deildai-bikarnum í vor hafi ég gert mér grein fyrir því að við ættum möguleika á að geta slegist um þennan titil,“ sagði Ólafui-. „Við tókum stefnuna á það að vera í einu af þremur efstu sæt- unum, en endurskoðuðum það markmið eftir fyrstu níu leikina í deildinni og ákváðum að setja stefnuna á titilinn og það gekk eft- ir.“ Uppistaðan í leikmannahópi ÍA í sumar voru ungir og óreyndir leikmenn, enda yfirgáfu 5 leik- knattspyrna Samtök leikmanna í ensku knattspyrnunni, PFA, mun hittast á mánudag til að ræða hugsanlegar aðgerðir vegna deil- na um samning vegna sjónvarps- réttar. Samtökin segjast ekki hafa fengið að koma að nýgerðum samningi og eru því að íhuga að- gerðir. Allir leikmenn deildanna, 3,496 talsins, fá sendan kjörseðill þar sem þeir geta kosið um hvort til aðgerða verði gripið. Ef meiri- hluti þeirra styður aðgerðirnar verða sjónvarpsmyndavélar bannaðar á leikjum. Samtök leikmanna vilja 5% af fjárhæðinni sem fæst fyrir sjón- varpsréttinn, líkt og þau hafa reyndustu leikmennirnir liðið eft- ir síðasta tímabil. ÍA sigraði í bik- arkeppninni i fyrra en fyrir utan fengið síðan 1955 en upphæðin er talin hafa numið 8.8 milljónum punda í fyrra. Nýi samningurinn er metinn á 1.65 milljarða punda og sam- kvæmt honum fá samtökin aðeins tæpt 1% af þeirri upphæð eða 5.2 milljónir punda, sem er 20 millj- ónum punda minna en þau hefðu fengið samkvæmt eldri samn- ingnum. Peter Hill-Wood, stjórnarfor- maður Arsenal hefur lýst því yfir að leikmenn fái ekki greidd laun frá félaginu samþykki þeir að- gerðirnar. „Leikmennirnir verða að átta sig á því að það er brot á samningi ef þeir fara út í þessar aðgerðir, það var tímabilið ekkert sérstakt. Ólafur sagðist þakka árangurinn í sumar breyttu hugarfari leik- PETER HILL-WOOD Stjórnarformður Arsenal segir leikmenn ekki muni fá laun fari þeir útí aðgerðir vegna deilna um sjónvarpsrétt frá leikjum. sem þýðir að þeir fá þá engin laun.“ Peter Ridsdale, stjórnarfor- maður Leeds tekur í sama streng. „Ef leikmenn okkar vilja fara út í aðgerðir þá þeir um það. Við munum hinsvegar ekki borga þeim laun.“ ■ manna og bættu líkamlegu ástan- di. „Það tókst að koma því hugar- fari inn í þessa stráka að við ætl- uðum að vinna. Það væri ekki stefnan að vera um miðja deild, heldur hlyti hún alltaf að vera að vinna. Leikmennirnir lögðu síðan mikla vinnu á sig síðasta vetur og uppskáru samkvæmt því. Það gladdi mig mjög hversu þessir strákar stóðu vel undir þeirri pressu að vera í toppbaráttunni í lok tímabilsins. Stór hluti af þess- um leikmönnum eru að vinna sinn fyrsta íslandsmeistaratitil." Ólafur sagði að Grétar Rafn Steinsson hefði leikið síðustu leik- ina með brákað bein, sem hefði að lokum gefið sig undir lok leiksins gegn ÍBV á sunnudaginn. Hann sagði að þessi hai-ka endurspegl- aði vel andann í hópnum og vilja leikmannanna til að standa sig. Að sögn Ólafs munu leikmenn hans æfa út þessa viku en þá tekur við mánaðarhvíld áður en undirbún- ingstímabilið hefst að nýju. Ellert Jón Björnsson, hinn 19 ára gamli miðvallarleikmaður ÍA, fór í gærmorgun til Gröningen í Hollandi til reynslu. Ólafur sagði að þrátt fyrir þessar þreifingar byggist hann ekki við því að Ellert Jón myndi ganga til liðs við hol- lenska liðið strax. Hann sagðist ekki vita til þess að aðrir leikmenn væru á leiðinni til erlendra liða til reynslu, en að margir í liðinu ættu án efa erindi í atvinnumennsku eftir smá tíma. trausti@frettabladid.is íslenska útvarpsfélagið: Valtýr Björn hættur? mannabreytingar Snorri Sturluson hefur verið ráðinn yfirmaður íþróttadeildar íslenska útvarpsfé- lagsins samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins og í kjölfar- ið hefur Valtýr Björn Valtýsson lát- ið af störfum. Valtýr Björn mun hafa litið á ráðningu Snorra sem uppsögn, þar sem hann gegndi þeirri stöðu áður. Ekki náðist í Valtý Björn í gær en Hermann Hermannsson, fram- kvæmdastjóri sjónvarpssviðs Norðurljósa, sagði að Valtýr Birni hefði hvorki verið sagt upp störf- um né hefði hann sjálfur sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Hann væri því enn starfandi hjá íslenska útvarpsfélaginu. ■ Deilur í ensku knattspyrnunni: Engar útsending- ar frá leikjum? VALTÝR BJÖRN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.