Fréttablaðið - 26.09.2001, Síða 22
22
i FRÉJTTABLAÐIÐ
26( september 2061 IVIIDVIKgÐAGUiR
HRAÐSOÐIÐ
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Utanríkisráðherra
Aðildarríkin
upplýst um
stöðuna
HVAÐ er helst á dagskrá fundar vam-
armálaráðherra aðildarrikja Atlantshafs-
bandalagsins í Brussel í dag?
„Ég geri ráð fyrir því að þjóðirnar
sem aðild eiga að Atlantshafsbanda-
laginu verði upplýstar um stöðu máia
í heiminum. Þá er fundurinn líka sér-
stakur að því leyti að hann er sá
fyrsti meðal forystuþjóða bandalags-
ríkjanna síðan að lýst var yfir virkni
5. greinar stofnsáttmála bandalags-
ins. Þessi fundur snýst þannig fyrst
og fremst um þessa nýju stöðu og um
hryðjuverkastarfsemi í heiminum."
0
ATTU von á að teknar verði ákvarðanir
um aðgerðir vegna hryðjuverkanna í Banda-
ríkjunum á fundinum?
„Ég á ekki sérstaklega von á því að
teknar verði nokkrar ákvarðanir. Atl-
antshafsbandalagið hefur lýst yfir
stuðningi við Bandaríkin og ég á von
á því að sá stuðningur verði áréttaður
á fundinum, en síður að teknar verði
ákvarðanir.1'
r
ATTU von á því að fullur einhugur verði
um þann stuðning meðal bandalagsþjóð-
anna?
„Já ég á von á því. Ég vil enda minna
á að fundur leiðtoga Evrópubanda-
lagsins tók mjög eindregna afstöðu í
þessum málum til stuðnings Banda-
ríkjunum."
HVERNIG snýr ákvarðanatökuferlið
að okkur komi til þess að ákveðnar verði ein-
stakar aðgerðir?
„Fyrst er að vita hvort að einhverjar
aðgerðir eiga eftir að eiga sér stað,
en það er alveg óvíst að gripið veröi
til aðgerða. Þess vegna tel ég ótíma-
bært að tjá mig um hvernig að
ákvarðanatökunni yrði staðið.“
HVERNIG snýr yfirlýsing Ceorge
Bush, Bandarikjaforseta, um að peningar
stofnana og einstaklinga með tengsl við
hryðjuverkamenn verði frystir að okkur?
„Ég tel þetta afskaplega skynsamlegt
skref, að koma í veg fyrir að hryðju-
verkamenn geti nálgast fjármuni
sína og torvelda þeim á allan mögu-
legan hátt að athafna sig.“
Halldór Ásgrímsson er utanríkisráðherra þjóðar-
innar og situr fund varnarmálaráðherra NATO-
ríkjanna í Brussel í Belgiu.
Páíinn á ferð um Mið-Asíu:
Lætur ekki stríðs-
ógnir stöðva sig
astana.jerevan.ap Jóhannes Páll II.
páfi lét hryðjuverkin í Bandaríkj-
unum ekki raska áætlunum sínum
og hefur verið á ferð um Mið-Asíu-
ríki frá því um síðustu helgi. Á
laugardaginn hélt hann til
Kasakstan, þar sem hann dvaldi í
fjóra daga og hitti meðal annars
Nursultan Nazarbajev forseta.
Kasakstan á reyndar ekki
landamæri að Afganistan, en leið-
togar landsins hafa engu að síður
áhyggjur af uppgangi öfgamanna
og straumi flóttamanna til lands-
ins.
í gær hélt páfi svo áfram för
sinni og kom til Armeníu, sem árið
301 varð fyrst ríkja heims til að
taka upp kristna trú. Hann hyggst
einnig skoða minnismerki um eina
og hálfa milljón Armena sem féllu
fyrir hendi lyrkja á árunum 1915-
23, og tala Armenar jafnan um þá
atburði sem þjóðarmorð.
Páfi er orðinn 81 árs og heilsu
hans hefur hrakað á síðustu árum.
PÁFINN f KASAKSTAN
Páfi klappar klappar háskólanemum I Astana, höfuðborg Kasakstans, lof i lófa.
Hann er með einkenni parkinsons-
veiki, handskjálfta og drafar í tali.
Það mátti meðal annars merkja af
því að honum tókst ekki að klára
ræðu sem hann hugðist flytja í
heimsókn sinni til armensku postu-
lakirkjunnar í gær, og þurfti prest-
ur að ljúka lestri ræðunnar fyrir
hann.
Páfi hefur í för sinni fordæmt
hryðjuverk en jafnframt hvatt
menn til að forðast stríð. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
rátt fyrir að Árni Johnsen hafi
sagt af sér þingmennsku og
formennsku í byggingarnefnd
Þjóðleikhússins ór
hann ekki alger-
lega hættur að að
þjóna þjóðinni.
Árni hefur um
hríð átt sæti í
Flugráði og situr
þar enn. Til dæm-
is mun þingmað-
urinn fyrrverandi
hafa mætt á síðasta fund ráðsins
fyrr í þessum mánuði. Sagt er að
Árni hafi verið fremur þegjanda-
legur þar til í lok fundar að hann
hreyfði við stöðu flugsamgangna
við Vestmannaeyjar. Meðal úr-
ræða sem þar munu hafa verið til
umræðu var sá kostur að ríkið
tæki upp fjárstyrki við áætlana-
flug til Eyja.
Ingimar Jónsson framkvæmda-
stjóri Pennans hf. hefur verið
ráðinn forstjóri Kaupáss hf. Ingi-
mar er 40 ára,
viðskiptafræðing-
ur að mennt. Kona
hans er Ingibjörg
Rósa Friðbjörns-
dóttir og eiga þau
3 börn. Ingimar
mun taka við
starfi forstjóra
Kaupáss um miðj-
an október næstkomandi.
Hláturinn lengir lífið er sagt
og þeir sem því trúa ættu ef
til vill að hlusta á morgunþátt,
Ásgeirs Páls á útvarpi Sögu á
morgnana. Þangað mætir nefni-
lega Bjarni Þór Sigurðsson, hlát-
urleiðbeinandi frá Lífi og Leik,
alla virka morgna og kennir hlát-
urfræði. Bjarni Þór mun vera
menntaður hláturfræðingur en
námið byggist upp á fornum ind-
verskum fræðum.
Málið í kringum kandidatsrit-
gerð Vilhjálms Vilhjálms-
sonar hefur eðlilega vakið upp
ýmsar vangavelt-
ur á meðal há-
skólanema. Einn
þeirra, Sif Sig-
marsdóttir, einn
ritstjóra vefsins
politik.is segir
eina ályktun sem
af því megi draga
vera þá að um-
sjónarmaður ritgerðarinnar, Stef-
án Már Stefánsson, og prófdóm-
ari hafi gerst sekir um vítavert
gáleysi. „Stofnun sem kallar sig
háskóla verður að gera fræðileg-
ar kröfur. Er umsjónarkennari og
prófdómari ákveða að fella ekki
nemanda sem styðst ekki að
neinu marki við fræðileg vinnu-
brögð í lokaritgerð eru þeir að
gengisfella Háskóla íslands, allt
nám innan veggja hans, allt starf
sem fer fram við skólann, alla þá
sem stunda þar nám sem og þá
sem þaðan hafa lokið námi. Um-
rædd lokaritgerð var upp á 40
blaðsíður. í henni var ekki vitnað
til heimilda þó aftast hafi verið
að finna heimildaskrá og þriðj-
ungur hennar er sagður stolinn.
Óháð ritstuldinum hefði slík rit-
Þarfir lesblindra
eru af ólíkum toga
Vaka stendur fyrir rádstefnu um málefni lesblindra í Lögbergi í dag.
Að mati Astu Sóllilju Sigurbjörnsdóttur, sem á sæti í undirbúnings-
nefndinni, eru engar samræmdar reglur til um aðstoð við lesblinda
stúdenta. Þörf er á skýrari reglum varðandi próftöku.
HLUTI UNDIRBÚNINGSNEFNDARINNAR.
Úrræði fyrir lesblinda eru oft á tiðum undir hverjum og einum kennara komin. Fyrir
lesblinda getur skipt sköpum að fá bókalista fyrr í hendurnar því langan tíma getur tek-
ið að skanna bækurnar í forrit sem auðveldar þeim lesturinn. Ásta Sóllilja, sem sæti á í
nefndinni, er lengst til hægri.
málþinc „Hugmyndin kviknaði
þegar frambjóðendur Vöku voru í
stofukynningu síðastliðinn vetur.
Til okkar kom lesblind stelpa og
spurði okkur hvað við ætluðum að
gera fyrir lesblinda í Háskólan-
um. Við settumst niður með henni
og heyrðum sögu hennar og sáum
að þetta var eitthvað sem þurfti
að vinna í. Við ákváðum að halda
þessu utan við kosningabaráttuna
þannig að umræðan færi ekki for-
görðum og halda veglega ráð-
stefnu um haustið," segir Ásta
Sóllilja Sigurbjörnsdóttir sem á
sæti í undirbúningsnefnd Vöku -
félags lýðræðissinnaðra stúdenta,
sem stendur að ráðstefnu um les-
blindu sem fram fer í Lögbergi,
stofu 101 í dag kl. 15.
„Það eru einhver úrræði tiltæk
fyrir lesblinda nú þegar. Þau fá
stækkuð próf og geta látið lesa
fyrir sig spurningar. Það sem
truflaði okkur hins vegar mest
var þegar stelpan, sem kom til
okkar, sagði að önnur úrræði
væru meira og minna undir
hverjum kennara komin og hver-
su langt hann vildi ganga,“ segir
Ásta Sóllilja. Hún segir engar
samræmdar verklagsreglur til
um aðstoð við lesblinda nema að
takmörkuðu leyti og þetta sé
brýnt að athuga.
Hjalti Hugason, formaður
kennslumálanefndar, Steingrím-
ur Ari Arason, framkvæmda-
stjóri lánasjóðsnefndar, Marta
Birgisdóttir, lesblindur meistar-
námsnemi, Gyða Stefánsdóttir
sérkennari, Rannveig Lund, for-
stöðumaður lestrarmiðstöðvar
KHÍ og Jónína Kárdal námsráð-
gjafi við H.í. flytja framsögu á
ráðstefnunni en að því loknu
verða pallborðsumræður.
„Það sem vildum gera var að
halda þessa ráðstefnu til að upp-
lýsa fólk og stúdenta um hver
réttur þessa fólks er. Að fá til okk-
ar fagfólk og fólk sem hefur
þekkingu á þessu til að sjá hver
möguleg úrræði eru og hver stef-
na Háskólans er í þessum málum.
í framhaldi af því getum við síðan
sett fram einhver raunhæf mark-
mið sem hægt er að ná og koma til
móts við þarfir lesenda," segir
hún.
Ásta Sóllilja bendir á að þarfir
lesblindra séu af ýmsum toga og
úrræðin sömuleiðis. Meðal ann-
ars geti skipt sköpum að birta
bókalistana fyrr, þar sem langan
tíma geti tekið fyrir lesblinda að
skanna lesefnið í ákveðið forrit
sem hjálpar þeim að lesa. Eitt af
stærri markmiðunum sé hins
vegar að móta samræmdar og
skýrari reglur varðandi próftöku.
kristjangeir@frettabladid.is
gerð ekki átt að þykja fullnægj-
andi sem kandídatsritgerð í lög-
fræði,“ segir Sif og eflaust marg-
ir henni sammála.
Ríkið var of gráðugt þegar
Síminn var verðlagður segir
Vef Þjóðviljinn og hnýtir eins og
venjulega í fjármálaráðherra,
Geir Haarde, sem honum þykir
mikil eyðslukló. Almenningur
sýndi kaupunum enda lítinn
áhuga, „Almenningur er ef til vill
ekki spenntur fyrir því að kaupa
hlutabréf á uppsprengdu verði af
ríkinu jafnvel þótt menn eigi þá
kost á að fá afslátt vegna hlut-
bréfakaupa af uppsprengdum
sköttunum," segir Vef-Þjóðviljinn
og leggur til að bréfin sem ekki
seldust verði gefin. „Ríki sem
tekur á sig 2700 milljarða króna
ábyrgð ætti að geta séð af hluta-
bréfum upp á 10 milljarða."
ÞRUÐA
„Þvo hendurnar?!
Af hverju þarf ég að þvo
hendurnar? Ég er að nota
hníf og gaffal!"